Monitor - 13.10.2011, Qupperneq 10
10 Monitor FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011
stíllinn
Hvenær byrjaðirðu að sitja fyrir?
Ætli ég hafi ekki verið svona 13 þegar þetta
byrjaði. Ég man að ég var að kaupa fyrsta
maskarann minn í Smáralindinni með mömmu
þegar Steinunn Þórðar make-up artist, sem vann
þá á EMM-skrifstofunni, kom til mín og bað mig
um að vera á skrá hjá þeim. Ég fór til þeirra í
myndatöku og það er eiginlega upphafið af þessu.
Hvert var fyrsta stóra verkefnið þitt?
Það var auglýsing fyrir póstinn sem ég fékk í
gegnum EMM-módelskrifstofuna. Á þessum tíma
var ég í níunda bekk en var að leika fermingar-
barn sem fékk fermingarskeyti frá póstinum.
Þetta var fyrsta alvöruverkefnið mitt og líka í
fyrsta sinn sem ég fékk borgað fyrir verkefni.
Hjá hvaða módelskrifstofu ertu núna?
Síðasta haust bauðst mér að taka þátt í Elite
Model-fyrirsætukeppninni, ég gerði það og var
á samning hjá Elite í kjölfarið. En svo núna í vor
skipti ég yfir í Eskimo og ég er ánægð þar.
Er þetta alltaf jafn gaman?
Mér finnst þetta alltaf skemmtilegt en það eru
viss verkefni sem geta verið meira þreytandi en
önnur. Það getur til dæmis verið erfitt að sitja
fyrir úti ef það er brjálað óveður og svo er líka oft
erfitt að vera að sýna á óskipulögðum tískusýn-
ingum eða einhverju því um líkt. Skemmtilegustu
verkefnin eru hins vegar eins og RFF sem er
skipulagt alveg frá A til Ö og það er virkilega gam-
an að vera að sýna á þannig tískusýningum. Svo
finnst mér mjög gaman þegar ég fæ tækifæri til
að nota dansbakgrunninn minn í myndböndum
eða myndatökum.
Hvert er þitt stærsta verkefni hingað til?
Það eru eflaust myndatökurnar með Nikita. Ég
hef verið að ferðast svolítið með þeim til útlanda
upp á síðkastið. Ég var líka í myndbandinu ONE
sem Narvi-fyrirtækið gerði og frumsýndi á RFF
núna í ár, það var virkilega gaman. En það var
fyrir svona einu og hálfu ári þegar verkefnin fóru
að hrynja inn hjá mér og þá fékk ég meðal annars
boð um að taka þátt í Nikita-myndatökunum.
Fyrst fór ég til Mexíkó með þeim fyrir um það
bil einu og hálfu ári og svo síðasta haust fór ég
til Miami með þeim aftur. Það var alveg ótrúlega
gaman að fara út með svona mörgu skemmtilegu
fólki og í dag lít ég á Nikita-fólkið sem hluta af
fjölskyldunni minni. Maður lærir líka svo mikið
af þessu, ég hafði til dæmis aldrei verið jafn lengi
í útlöndum án foreldra minna svo þetta var mikil
og skemmtileg reynsla.
Það birtist mynd af þér í breska Vogue núna í
september, fyrir hvað var það?
Já, þetta er eflaust stærsti áfangi sem ég hef
náð og mér finnst þetta mjög gaman. Þetta var
Lookbook-myndataka fyrir Kalda-hönnunina.
Þetta var mjög afslöppuð myndataka, Silja Magg
ljósmyndari gerði förðunina sjálf og það voru
teknar bara tvær myndir af hverju dressi og
svo skipt, allt voða afslappað og einfalt. Svo eru
Kalda-systurnar svo flinkar að jakkinn sem ég var
í á einni myndinni var trend í breska Vogue og
þess vegna birtist myndin. Mér fannst þetta mjög
gaman fyrst, en svo ennþá skemmtilegra þegar
ég gerði mér almennilega grein fyrir því hvað
þetta var í raun stór áfangi.
Hefur þú einhvern tímann unnið með einhverj-
um frægum?
Það eru svo margir sem ég hef unnið með sem
eru stórir á sínu sviði. Ég hef gert alveg nokkrar
myndatökur með bæði Sögu Sig sem er virkilega
vinsæl í Bretlandi og Silju Magg sem er stór í New
York og víðar í Bandaríkjunum. Ég hef líka unnið
mjög oft með Berki sem tekur Nikita-myndirnar,
hann er mjög flinkur og er farinn að vinna mikið
með kvikmyndir. Svo var Andrea Helgadóttir
make-up artist að farða mig fyrir myndatöku
í sumar og hún var að segja mér að hún hafi
verið að farða aðalleikarann í Social Network-
myndinni, henni fannst það bara voða eðlilegt og
var ekkert að gera mikið úr því. En hún býr í New
York og er virkilega stór þar og hún hefur einmitt
verið make-up artistinn hennar Bjarkar lengi.
Þannig að það eru kannski frekar ljósmyndarar,
make-up artistar og stílistar sem hafa unnið með
einhverjum frægum einstaklingum, sem hafa svo
líka unnið með mér heldur en einhverjir brjálað
frægir sem ég hef unnið beint með.
Er eitthvað stórt verkefni á döfinni hjá þér?
Ég er að fara að taka þátt í annarri Nikita-
myndatöku í október, hún verður tekin hérna
heima á Íslandi og það verður örugglega virkilega
gaman eins og alltaf. Svo er ég búin að vera með
Sögu Sig og Hildi Yeoman, þær eru að undirbúa
sýningu sem þær eru að fara að halda og ég
verð að vinna með þeim í henni sem mér finnst
mjög spennandi verkefni. Svo er draumurinn að
komast eitthvað út eftir menntaskóla og reyna að
fá einhver góð verkefni þar.
Eitthvað að lokum?
Þetta er virkilega skemmtilegur bransi og það
er gaman að fá tækifæri til að gera eitthvað öðru-
vísi. Ég hef ekki enn kynnst slæmu hliðunum en
það hlýtur að koma að því, þangað til nýt ég bara
þess góða. Það er líka mjög gaman hvað maður
kynnist mörgu og ólíku fólki, ég væri til dæmis
bara hin venjulegasta skólastelpa ef ég hefði ekki
byrjað í þessu. Þetta byggir mann upp og hálpar
til við að styrkja sjálfstraustið og maður verður
ósjálfrátt meiri félagsvera af því að vera stans-
laust í kringum svona skemmtilegt og ólíkt fólk.
lh
Andrea Röfn Jónasdóttir er 19 ára Vesturbæingur sem er að
gera það virkilega gott í módelbransanum. Stíllinn settist
niður með Andreu og ræddi við hana um fyrstu mód-
elminninguna, fræga kollega og stærstu verkefnin.
Fyrirsæta
á fleygiferð
Það er líka mjög
gaman hvað maður
kynnist mörgu og ólíku
fólki, ég væri til dæmis
bara hin venjulegasta
skólastelpa ef ég hefði
ekki byrjað í þessu.
MYND SEM
BIRTIST Í SÍÐASTA
TÖLUBLAÐI NUDE
MAGAZINE.
Mynd: Vera Páls
„BEHIND THE SCENES”
TÖKUR Á MYNDBANDINU
ONE SEM NARVI FRAM-
LEIDDI FYRIR RFF Í ÁR.
Mynd: Elísabet Gunnarsdóttir
MYNDIN SEM VAR
Á FORSÍÐU RFF
PAPER SEM KOM ÚT
Í KRINGUM REYKJA-
VÍK FASHION
FESTIVAL Í VOR.
Mynd: Kjartan Már
FRUMRAUN SEM BAÐFATA-
FYRIRSÆTA FYRIR NIKITA
Mynd: Börkur Sigþórsson
NIKITA-MYNDATAKA SEM FÓR
NÝVERIÐ FRAM Á ÍSLANDI
Mynd: Börkur Sigþórsson
LOOKBOOK-MYNDATAKA
FYRIR KALDA, ÖNNUR
MYND ÚR ÞESSARI TÖKU
VAR NOTUÐ Í BRESKA
VOGUE Í SEPTEMBER
Mynd: Silja Magg