Monitor - 13.10.2011, Qupperneq 19
17FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 2011 Monitor
Steven Paul Jobs
Fæddur 24. febrúar 1955 - Lést 5. október 2011
Viðbrögðin
á netinu
Eftir að tilkynnt var um fráfall
Steve Jobs loguðu netheimar
sem aldrei fyrr. Monitor tók
saman viðbrögð nokkurra
stórstjarna.
AF TWITTER:
„Our
parents
had JFK, we had
Steve Jobs. Edison
gave us electricity, Jobs gave us
the Jetsons in real life. We lost
an icon today. Mourn him.“
- Kevin Smith, kvikmyndaleikstjóri
„For those of us
lucky enough to
get to work with
Steve, it’s been an
insanely great honor. I will miss
Steve immensely.“
- Bill Gates, stjórnarformaður
Microsoft
„Devastated 2 hear
about the passing
of Steve Jobs. Was
blessed 2 have the
opportunity to spend time w/
him on several occasions. May
he RIP.“
- Lance Armstrong, hjólreiðagoð-
sögn
„Steve Jobs was the
man.”
- Tony Hawk,
hjólabrettagoðsögn
„As I type on my
iPhone, tears
spring2 my eyes4an
amazingMan I
never met. His genius has
touched us all. Steve Jobs, you
will b/with us 4ever,“
- Tyra Banks, fyrirsæta og
þáttastjórnandi
„RIP Steve Jobs
– thanks to one of
your inventions my
life was changed.
You will be missed but not
forgotten!“
- Justin Bieber, poppstjarna
„Wow Steve Jobs
died! He was a
brilliant man!“
- Kim Kardashian,
glamúrprinsessa
AF FACEBOOK:
„Steve, thank
you for being
a mentor
and a friend.
Thanks for
showing that
what you build can change
the world. I will miss
you.“
- Mark Zuckerberg,
stofnandi Facebook
Jobs vs. Gates
Ásamt Steve Jobs er Bill Gates án efa sá einstaklingur
sem hefur mótað þróun heimilistölva mest á síðustu
áratugum. Fyrir vikið var samkeppnin milli þessara
tveggja risa iðulega mikil og var þeim gjarnan stillt
upp sem óvinum. Eitt af eftirminnilegum atvikum úr
samkeppni þeirra tveggja var í heimildarmyndinni
Triumph of the Nerds þar sem Jobs lét út úr sér að það
sem færi í taugarnar á honum við Microsoft væri að þeir
hefðu gjörsamlega engan smekk. Sagan segir að eftir að
myndin var gefin út hafi hann hins vegar séð að sér og
hringt í Bill Gates til að biðjast afsökunar. Það var hins
vegar ekki svo að hann tæki þetta allt til baka, heldur
baðst hann afsökunar á að hafa sagt þetta opinberlega
en ítrekaði þó við Gates að honum þætti hann smekk-
laus.
Þótt samkeppni þeirra hafi oft og tíð-
um verið hörð og grimm ríkti á milli
þeirra mikil gagnkvæm virðing
eins og sjá má á orðum Bill Gates
þegar hann var beðinn um að
nefna þann framkvæmdastjóra
í viðskiptaheiminum
sem hann bæri mesta
virðingu fyrir í janúar
1998: „Sem hvetjandi
leiðtogi er Steve
Jobs sá besti sem
ég hef hitt“. Árið
1999 var myndin
Pirates of Silicon
Valley gefin út
sem er leikin
mynd um upp-
hafsár Microsoft og
Apple. Þar fer leikarinn
Noah Wyle, sem
gerði garðinn
frægan í E.R.,
með hlutverk
Steve Jobs.
Rúllukragi, gallabuxur og hlaupaskór
Steve Jobs sneri til baka til Apple árið 1997. Um svipað
leyti tók hann upp fatastíl sem hann hélt tryggð við
nánast hvar sem hann kom opinberlega fram alveg til
dauðadags. Stíllinn hans var einfaldur og stílhreinn,
ef til vill eins og vörurnar sem Apple framleiddi, og
samanstóð af svörtum rúllukragabol (nefndir „mock
turtleneck“) frá merkinu St. Croix, bláum Levi‘s-
gallabuxum í hinu sígilda 501 sniði og New Balance-
hlaupaskóm. Um hvers vegna Jobs kaus að klæða sig
alltaf í sama gallann hefur ýmislegt verið ritað en einn
samstarfsmanna hans hjá Apple, Steve Chazin, lét
hafa eftir sér að Jobs vildi klæða sig látlaust einfaldlega
til að að áherslan væri alltaf á vörunum sem hann
væri að kynna og vörumerkinu, en ekki honum sem
einstaklingi. Þess má geta að peysuframleiðandinn
greindi frá því í síðustu viku að sala á „mock turtlen-
eck“-peysunum hefði rokið upp eftir fráfall Jobs og
seldist svarta týpan sem hann var vanur að klæðast
meira að segja upp á vefverslun fyrirtækisins. Fyrir
hverja selda peysu, sem kostar 175 dollara, renna 20
dollarar til Ameríska krabbameinssjóðsins.
TVEIR KLÁRIR OG RÍKIR
Á GÓÐRI STUNDU
Kynforeldrar Jobs voru Joanne Schieble,Bandaríkjamaður af þýskum og sviss-
neskum uppruna, og Abdulfattah Jandali,
Sýrlendingur. Faðir Joanne var andvígur
sambandi þeirra og fyrir vikið urðu þau að
láta Steve litla af hendi til ættleiðingar. Hann
var ættleiddur fimm ára að aldri af þeim
Paul og Clara Jobs sem Steve kallaði alla tíð
foreldra sína.
Jobs tók aðeins eina önn í háskóla, ReedCollege, árið 1972 en flosnaði upp úr
námi.
Árið 1974 hélt Jobs til Indlands meðtveimur félögum sínum. Þegar hann
sneri til baka hafði hann rakað af sér allt
hár, farið að klæðast indverskum múnder-
ingum og tekið upp búddatrú. Í sömu ferð
segist Jobs hafa prófað ofskynjunarlyfið LSD,
sem hann sagði mjög mikilvæga lífsreynslu á
þeim tíma.
Steve Jobs var grænmetisæta sem þóborðaði fisk og sjávarrétti, svokallaður
„pesceterian“.
Steve Jobs lést af völdum krabbameinsí brisi. Hann greindist upphaflega með
krabbamein árið 2004.
Steve Jobs var jarðsunginn föstudaginn 7.október við litla athöfn í kirkjugarði í Palo
Alto, Kaliforníu.
Einu ævisögu Jobs, sem rituð var með hansleyfi, er ætlað að koma út 24. október.
Stórfyrirtækið Sony hefur nú þegar keypt
kvikmyndaréttinn á bókinni fyrir sjö stafa
upphæð í dollurum.
NAFNARNIR JOBS OG WOZNIAK UM
ÞAÐ LEYTI SEM ÞEIR STOFNUÐU APPLE
PIXAR STUDIOS VAR EITT AF
HUGVERKUM STEVE JOBS