Monitor - 20.10.2011, Side 8
8 Monitor FIMMTUDAGUR 20. OKTÓBER 2011
Dísa Jakobs gaf út sína fyrstu sólóplötu fyrir þremur árum
en hún hefur þó verið óbeint viðriðin popptónlistarbrans-
ann frá æsku. Foreldrar hennar eru tónlistarmennirnir
Jakob Frímann Magnússon og Ragnhildur Gísladóttir. Hún
stundar nú lagasmíðanám í Kaupmannahöfn, stendur
í útgáfu á nýrri plötu með dúettinum Song For Wendy
ásamt því að eiga nýtt sólóverkefni uppi í erminni. Í
dúettinum syngur hún og semur með kærasta sínum,
Mads Mouritz frá Danmörku, en saman eignuðust þau
sitt fyrsta barn fyrr á árinu. Undanfarið ár hefur senni-
lega verið eitt það viðburðaríkasta í hennar lífi til þessa
og því liggur beinast við að byrja á að forvitnast um hver
hápunktur ferilsins til þessa sé.
Heimildir Monitor herma að þú hafir, ásamt fleiri
nemendum Hagaskóla, borið sigur úr býtum í Skrekk
fyrir um tíu árum. Er það hápunkturinn á ferlinum
hingað til?
Já, er það ekki bara? Það var geðveikt atriði. Það var
stomp í þessu, við bjuggum til búningana sjálf, við
sömdum sporin, bjuggum til sviðsmyndina og æfðum á
hverjum einasta degi í nokkra mánuði. Við sömdum síðan
texta við lagið „Copacabana“, sem ég söng, og ég fékk að
vera Lola. Er eitthvað hægt að toppa það (hlær)?
Maður gefur sér hálfpartinn að þú hafir fengið tónlistar-
ríkt uppeldi. Hver voru þín kynni af tónlist sem krakki?
Ég var mikið í stúdíóum, hljóðprufum og stundum á
giggum ef þau byrjuðu ekki of seint. Það var góð reynsla
að sjá hvernig það er að fara í sándtékk og hvernig
stúdíóvinna gengur fyrir sig. Ég fékk oft að þvælast með
foreldrum mínum í því og það var frábær skóli. Ég átti
rosalega skemmtilega, viðburðaríka og jákvæða æsku
og ég er náttúrlega mjög rík að eiga svona yndislega
foreldra. Sem barn lærði ég líka á selló og píanó og svo
lærði ég klassískan söng og ætlaði á tímabili að verða
óperusöngkona. Ég fór í svona „master class“ og allt en
passaði einhvern veginn aldrei inn, mér fannst það ekki
alveg nógu skemmtilegt. Svo fór ég í FÍH og lærði þar
djass-, rokk- og poppsöng. Mér finnst popparalífið miklu
skemmtilegra.
Hvenær varð þér ljóst að tónlistin væri eitthvað sem þú
vildir leggja fyrir þig?
Þegar ég var svona fimmtán ára, minnir mig. Þá eig-
inlega sannfærði fjölskyldan mín mig um að þetta væri
eitthvað sem ég gæti, ég trúði því aldrei fyrr. Ég vissi svo
sem að ég gæti haldið lagi og eitthvað en ég var sannfærð
um að ég kynni ekkert að semja tónlist eða neitt slíkt. Ég
var sannfærð um það alveg þangað til í sumar þegar ég
komst inn í lagasmíðanám. Þá hugsaði ég: „Ókei, nú ætti
ég kannski að byrja að trúa aðeins meira á þetta“.
Áður en þú ætlaðir að verða söngkona, hvað langaði þig
þá að verða?
Ég ætlaði alltaf að verða læknir. Þegar ég var krakki
var ég svo ógeðslega mikill Michael Jackson–aðdáandi að
mig langaði helst að verða lýtalæknir svo ég gæti orðið
lýtalæknirinn hans. Í dag er ég nú samt fegin að ég hætti
við þetta allt saman því ég hefði örugglega sprungið úr
sorg ef ég hefði verið í miðju kafi í þessu langa námi
þegar hann síðan lést.
Þú hefur búið í útlöndum dágóðan hluta ævi þinnar.
Þegar þú kemur í heimsókn til Íslands, upplifir þú þig
þá út úr því sem er í gangi hérna heima?
Já, ég myndi segja það. Það tengist þá helst vinunum og
tónlistinni. Maður fattar þá að það er kannski ekki nóg
að fylgjast með t.d. Facebook og mbl.is. Það eru svona
bakdyrasögurnar eða –fréttirnar sem maður missir af og
svo sakna ég „underground“ tónlistarsenunnar. Maður
þarf eiginlega að vera hérna til að geta fylgst almennilega
með henni og mér finnst hún svo skemmtileg hérna á
Íslandi. Hér eru allir svo kreatívir og sniðugir.
Nú ert þú á fullu að kynna nýjasta tónlistarverkefnið
þitt, Song For Wendy, sem samanstendur af þér og
kærastanum þínum, Mads. Samband og samstarf ykkar
hefur verið ansi viðburðaríkt að undanförnu, ekki satt?
Jú, lífið þessa stundina er Magnús, sonur okkar, að
semja og svo Song For Wendy. Við erum að fara að gefa út
fyrstu plötuna okkar, Meeting Point, og þetta er búið að
vera stórskemmtilegt ferli. Við Mads hittumst upphaflega
í lagasmíðavinnubúðum, og svo vorum við alltaf bara
eitthvað að „chilla“ saman þar til við sögðum: „Eigum við
ekki bara að prófa að fara upp í sveit, semja saman og sjá
hvað gerist?“. Síðan vorum við bara allt í einu komin með
efni í heila plötu. Þegar ég var komin sjö mánuði á leið,
þá ákváðum við að kýla á þetta og klára plötuna áður en
hann fæddist. Við settum upp tónleikaferðalag í desem-
ber, tókum það upp með tæknimanni og svo fæddist
Magnús í janúar. Ég var sem sagt að syngja, komin átta
mánuði á leið, og þetta var alveg yndislegt.
Mælir þú með því að taka upp plötu ólétt?
Já, en ég mæli kannski ekki með því að fara í rosa
tónleikaferðalag samt. Það getur verið dálítið erfitt að
ferðast milli staða og þurfa að sitja svona lengi, það er að
segja í áttunda mánuði meðgöngunnar. Það er kannski
aðeins of mikið, en ég var bara svo heppin að mér leið
svo vel þegar ég var ólétt. Það fer náttúrlega bara eftir því
hvernig manni líður.
Er ekkert erfitt að fá pössun fyrir soninn þegar þið eruð
að spila á tónleikum?
Það er það en það reddast nú eiginlega alltaf. Annars
hef ég nú spilað með hann framan á mér í magapoka.
Það var þegar hann var alveg pínulítill, þá gat hann sofið
alls staðar. Þetta voru rosalega rólegir tónleikar, það var
allt órafmagnað þannig að hann fékk ekkert í eyrun eða
neitt.
Þegar þið tvö ákveðið að eiga saman kósíkvöld, grípið
þið þá í gítarinn og syngið og semjið?
Já, maður þarf að nýta tímann og skipuleggja kósíkvöld-
in svolítið. Þau þurfa oft að vera dálítið praktísk. Song
For Wendy er í raun bara kósíkvöldin okkar og afrakstur
þeirra, það er eiginlega bara sannleikurinn (hlær). Þetta
er svona huggulegheitaverkefni og tónlistin er í raun
eftir því, þetta er þægileg en samt listræn tónlist. Þetta er
tónlist sem er samin fyrir hjartað.
Þú gafst út þína fyrstu sólóplötu fyrir þremur árum. Er
sólóferillinn farinn í pásu á meðan Song For Wendy er
að gefa út plötu?
Nei, ég er að vinna á fullu í nýrri plötu. Ég var meira að
segja búin að taka upp heila plötu, ég fór í stúdíó þegar
Magnús var mánaðargamall. Svo henti ég hins vegar öllu
af því að þetta var ekki að virka og byrjaði upp á nýtt.
Þetta var ekki nógu feitt og pródúsentinn fór í einhverja
átt sem ég réð ekki við, þetta var ekki ég og þetta var bara
rugl. Þetta var eiginlega bara hrikaleg upplifun. Ég byrjaði
upp á nýtt og nú er þetta að verða feitt. Ég ætla að gera
EP-plötu og gefa hana út á næsta ári og nú er ég komin á
ról.
Nú stundar þú tónsmíðanám Rytmisk Musikkonserv-
atorium í Kaupmannahöfn. Hvernig kom það til að þú
fórst í þann skóla? Hvernig fer námið fram?
Vinur minn, sem er tónlistarmaður úti í Danmörku, er
í þessu námi og benti mér á það. Hann sagði að þetta
væri svo skemmtilegt og hugljómandi og það væri hægt
að gera þetta með öðrum tónlistarverkefnum og að þetta
hjálpaði til við þau. Ég er bara í stanslausri skapandi
vinnslu, ég þarf að semja og skila af mér tveimur lögum í
viku og meira að segja stundum meira. Þetta er rosalega
hvetjandi, maður er í svo yndislegu hugarástandi þarna
og ég er umkringd frábæru fólki.
Fyrir skemmstu var íslenska teiknimyndin
Hetjur Valhallar – Þór frumsýnd en þú syngur einmitt
aðallagið í myndinni. Hvernig er tilfinningin að syngja
lag í dýrustu kvikmynd Íslandssögunnar? Hvernig vildi
þetta til?
Það er algjört fjör, ég elska teiknimyndir svo það er
rosalegur heiður að fá að syngja þetta. Kiddi í Hjálmum
hringdi í mig og spurði hvort ég gæti komið í stúdíó.
Samdægurs eða daginn eftir mætti ég síðan í stúdíóið og
þá var verið að útsetja lagið og svo bara söng ég þetta inn
Ég hlakka síðan rosalega til að sjá myndina.
Í laginu syngur þú með Memfismafíunni. Þetta er ekki í
fyrsta skipti sem þú vinnur með mörgum þeirra því þú
söngst á sínum tíma með Hjálmum, var það ekki?
Jú, þeir höfðu einu sinni samband við mig og fengu mig
til að koma með þeim til Rússlands í staðinn fyrir Steina
í september árið 2009. Þá hringdi Kiddi í mig og sagði:
„Heyrðu, við vorum að pæla, vegna þess að Steini kemst
ekki með okkur til Rússlands, hvort þið Danni gítarleikari
væruð kannski til í að koma með okkur. Þú myndir
syngja með í nokkrum lögum og svo gætum við spilað
undir í einhverjum Dísu-lögum.“ Ég var náttúrlega bara
steinhissa, spurði hann hvort hann væri að meina þetta
og svo hrópaði ég náttúrlega bara af gleði. Þetta var svo
skemmtileg ferð, hvítir rússar og svo spilerí eftir spilerí.
Takk fyrir mig, Hjálmar og Danni.
Hvað hefur Danmörk fram yfir Ísland sem staður til að
búa á og öfugt?
Ég er eiginlega bara búin að kynnast listamannageiran-
um í Danmörku og umhverfi hans. Ég verð eiginlega að
vera alveg opin og mér finnst vera borin meiri virðing fyr-
ir tónlistarmönnum í Danmörku heldur en hérna heima,
sorrí með mig. Það er talinn sjálfsagður hlutur að borga
tónlistarmönnum, meira að segja óþekktum, fyrir það að
spila í Danmörku. Þetta er samt ekki alltaf spurning um
peningaupphæð, heldur oft hvernig hugsað er um mann
þegar maður kemur, líka hvort það sé matur og aðstaða
til að undirbúa sig áður en maður fer á svið og að það sé
góður og hjálpsamur mórall gagnvart manni. Bara þessi
atriði, ásamt því að þar eru miklu fleiri staðir til að spila
á og stærri markaður en samt ekki of stór, gerir það að
verkum að mér finnst miklu skemmtilegra að starfa
þar sem tónlistarkona. Ég get spilað á fullu og fengið
tekjur, þarna get ég lifað á þessu ef ég er nógu dugleg og
sniðug. Mér finnst þetta virðingarmál svo mikið atriði, að
bera virðingu fyrir því að það eigi ekki að vera frítt að fá
tónlistarmenn til að vinna vinnuna sína.
Ég vildi óska þess að tónlistarmenn almennt stæðu
meira saman í þessu og þessi pæling um að þetta eða hitt
sé svo góð auglýsing eða plögg fyrir tónlistarmenn finnst
mér ekki vera nógu góð. Að svo sögðu þá veit ég og skil að
ástandið heima er erfitt og til dæmis er Danmörk stærra
og eldra samfélag sem hefur haft fleiri heila til að leysa
vandamál og skipuleggja menningarlífið. Ég veit að þetta
mun breytast og lagast á Íslandi.
Hvert er skammtímamarkmiðið annars vegar og
langtímamarkmiðið hins vegar í tónlistinni?
Skammtímamarkmiðið er að láta Song For Wendy
fljúga, semja meira og gefa út Meeting Point. Mig langar
að ferðast um allan heim með tónlistina sem ég tek þátt
í. Í rauninni er það líka langtímamarkmiðið þó svo að
það sé líka það að geta verið fjárhagslega og tónlistarlega
frjáls tónlistarkona. Langtímadraumurinn er að tekju-
brunnurinn sé að semja, taka upp, spila úti í heimi og
heima og hafa gaman af.
Texti: Einar Lövdahl Gunnlaugsson einar@monitor.is
Myndir: Golli golli@mbl.is HRAÐASPURNINGAR
Fyrstu sex: 210787.
Uppáhaldsmatur: Lambakótilettur og
kartöflumús.
Uppáhaldstónlistarmaður: Brian Eno.
Helsti kostur: Sumir segja að hjartað
mitt sé dálítið gott, að ég sé kærleiksrík.
Helsti ókostur: Ég er gleymin og get verið dramatísk
og skapmikil.
Þegar ég var krakki var
ég svo ógeðslega mikill
Michael Jackson–aðdáandi
að mig langaði helst að verða
lýtalæknir svo ég gæti orðið
lýtalæknirinn hans.
Dísa Jakobs stendur nú í ströngu við útgáfu plötu sem helmingur dúettsins Song For
Wendy. Platan var tekin upp þegar hún hafði gengið átta mánuði með barn undir belti.
Kósíkvöldin
verða að vera praktísk