Monitor - 27.10.2011, Page 18
18 Monitor FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2011
Það er ansi algengt að íþróttamenn og stórstjörnur Hollywood pari
sig saman þótt ástin sé hverful á þeim bæjum eins og annars staðar.
Monitor tók út helstu íþróttamanna- og stjörnupörin.
ÍÞRÓTTAMENN
SK RA
Ökuþórinn Lewis Hamilton og söngdívan Nicole
Scherzinger hættu saman í síðustu viku eftir fjögurra ára sam-
band. Orsök sambandsslitanna eru sögð vera hvað þau hafa getað
varið litlum tíma hvort með öðru að undanförnu.
Lewis Hamilton Nicole Scherzinger
Hljólreiðameistarinn Lance Armstrong skildi við
móður fyrstu þriggja barna sinna árið 2003 og hóf upp frá
því að vera með söngkonunni Sheryl Crow. Í september
2005 tilkynntu þau um trúlofun sína en í febrúar á næsta
ári höfðu leiðir þeirra skilið. Lífi ð tekur óvæntar beygjur hjá hjólreiðaköppum.
Lance Armstrong Sheryl Crow
Boxarinn Wladimir Klistchko og Ha
yden Panettiere úr þáttunum
Heroes slitu tveggja ára sambandi sínu í m
aí síðastliðnum. Panettiere
sást endrum og eins á bardögum boxarans
en þess má geta að
hæðarmunurinn á turtildúfunum fyrrverand
i er 41 sentímetri.
Wladimir Klitschko Hayden Panett
iereÞótt Marko Jaric hafi ekki afrekað margt á þeim sex tímabilum sem hann spilaði í NBA þá sér hann efl aust ekki eftir komunni til Banda-ríkjanna en þar nældi hann sér í eina fl ottustu fyrirsætu heims, Adriana Lima. Parið gifti sig á Valentínusardaginn árið 2009.
Marko Jaric Adriana Lima
Ein skærasta stjarna NFL-deildarinnar í
Bandaríkjunum undanfarin ár, Tom Brady, og ofurfyr-
irsætan Gisele Bündchen giftust við litla kaþólska
athöfn í febrúar 2009. Tveimur mánuðum síðar héldu
þau aðra og stærri athöfn í Kosta Ríka. Saman eiga hjónin einn
son.
Tom Brady Gisele Bündchen
Glamúrdrottningin Kim Kardashian festi ráð sitt við körfuboltamanninn Kris Humphries í ágúst síðastliðnum. Trúlofunarhringur parsins er sagður hafa kostað tvær milljónir dollara, þótt hvorugt þeirra hafi þurft að borga hann. Það hefur lengi þótt gott að þekkja rétta fólkið.
Kris Humphries Kim Kardashian
ÞAÐ MUNAR 49 SENTÍMETRUM
Á HÆÐ KRIS OG KIM
TVÆR ATHAFNIR VAR ÞAÐ
EINA SEM NÆGÐI
JARIC ER ÓHEPPINN Í SPILUM,
HEPPINN Í ÁSTUM
LANCE,
LANCE,
LANCE
OG CROW
HAYDEN ER 11 ÁRUM YNGRI EN WLADIMIR