Monitor - 20.04.2011, Blaðsíða 28

Monitor - 20.04.2011, Blaðsíða 28
28 Monitor MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2011 Það vita allir hvað varð um barnastjörnur á borð við Lindsay Lohan og Britney Spears. Monitor tók saman nokkrar fyrrum barnastjörnur sem hafa einnig gert það gott í Hollywood á fullorðinsárunum. Barnastjörnur Christian Bale Byrjaði að leika 8 ára gamall. Batman byrjaði leiklistarferil sinn í auglýsingageiranum og auglýsti meðal annars mýkingarefnið Lenor og Pac-Man morgunkorn. Árið 1987 fékk hann stórt tækifæri er Steven Spielberg gaf honum hlutverk í kvikmyndinni Emp- ire Of The Sun. Bale þoldi illa athyglina sem fylgdi framanum og reyndi að halda sig úr sviðsljósinu sem barn. Hann hélt þó áfram að leika í kvikmynd- um Hollywood og má til dæmis sjá hann í stóru hlutverki í kvikmyndinni Treasure Island. BALE LÍTUR ÖRLÍTIÐ ÚT EINS OG JÓLA- SVEINN Í DAG SCARLETT HEFUR LÍTIÐ SEM EKKERT BREYST Scarlett Johansson Byrjaði að leika 9 ára gömul. Móðir Scarlett er kvikmyndaframleið- andi og fór með hana í ótalmargar áheyrnarprufur er hún var barn. Fyrsta kvikmyndahlutverk hennar var í grínmyndinni North árið 1994 og á næstu árum lék hún í nokkrum Hollywood-myndum en stóra breikið kom þegar hún var fjórtán ára. Þá kom Scarlett sér rækilega á kortið með leik sínum í hinni dram- atísku The Horse Whisperer og var af mörgum talin bjartasta von Hollywood á þeim tíma. Scarlett tók að sér fjölda hlutverka í misstór- um kvikmyndum sem táningur en stimplaði sig inn sem fullorðins- leikkona í kvikmynd- inni Lost In Translation aðeins 19 ára gömul. Neil Patrick Harris Byrjaði að leika 15 ára gamall. Flestir þekkja hann sem hinn óviðjafn- anlega Barney Stinson úr þáttunum How I Met Your Mother en Neil Patrick Harris byrjaði að leika áður en sumir lesendur Monitor fæddust. Þegar Neil var aðeins fimmtán ára gamall landaði hann hlutverki í kvikmyndinni Clara‘s Heart með Whoopi Goldberg í aðalhlut- verki. Hann var meira að segja tilnefndur til Golden Globe verðlaunanna fyrir frammistöðu sína. Næstu ár lék Harris í hverri sjón- varps- mynd- inni á fætur annarri og var meðal vinsælustu unglinga Holly- wood um nokkurn tíma. HARRIS LÍKLEGA AÐ LEIKA Í LÆKNAÞÆTTI Anna Paquin Byrjaði að leika 11 ára gömul. Árið 1993 fékk Anna Paquin Óskarinn sem besta leikkona í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína kvikmyndinni The Piano. Þá var Paquin aðeins 11 ára gömul og því næstyngst til að hljóta Óskarsverð- launin. Upp frá því var ekki aftur snúið og hefur Paquin einbeitt sér alfarið að leiklistarferlinum síðan. Á unglingsárunum lék hún meðal ann- ars í kvikmyndunum She‘s All That og Almost Famous og þegar hún var 18 ára gömul landaði hún hlutverki í X-Men kvikmyndunum. Núna er hún þekktust fyrir túlkun sína á hinni smágerðu Sookie Stackhouse í vampíruþáttunum True Blood. sem uxu vel úr grasi 11 ÁRA MEÐ EITT STYKKI ÓSKAR TIL AÐ SETJA UPP Á HILLU Kristen Stewart Byrjaði að leika 9 ára gömul. Þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gömul í dag er Kristen Stewart vaxin upp úr því að vera barna- eða ungl- ingastjarna. Stewart kom fyrst fram á hvíta tjaldinu í litlu hlutverki í The Flintstones in Viva Rock Vegas. Fyrsta stóra hlutverkið hennar var í kvikmyndinni Panic Room þar sem Stewart lék dóttur Jodie Foster aðeins 12 ára gömul. Á unglingsárunum lék hún í ýmsum sjónvarps- og kvik- myndum og þegar hún var sautján ára vakti hún mikla athygli fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Into The Wild. Sama ár var hún ráðin til að leika hina þjökuðu Bellu Swan í Twilight-myndunum sem hafa skilað henni heimsfrægð. ÞARNA GÆTI VERIÐ STÚLKA EÐA DRENGUR Á FERÐ

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.