Monitor - 20.04.2011, Blaðsíða 33
Popp-
korn
33MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 2011 Monitor
Komið er á
hreint
hverjir fara með
aðalhlutverkin í
nýjustu kvikmynd
leikstjórans Woody
Allen. Þau Jesse
Eisenberg, Ellen Page, Alec Baldwin
og Penelope Cruz verða stjörnur
myndarinnar sem hefur ekki
fengið nafn ennþá. Cruz lék
einmitt í kvikmynd Allen, Vicky
Christina Barcelona og hlaut
Óskarinn fyrir en hin þrjú hafa
aldrei unnið með leikstjóranum
áður. Tökur hefjast í sumar og fara
fram í Róm á Ítalíu.s.
James Franco virðist ætla
sér um of
en hann er
orðaður við
fjölda kvikmynda
á næstunni. Ein
ný hefur bæst í
safnið en það er
kvikmyndin The
Stare sem svipar örlítið til Black
Swan hvað varðar söguþráð.
Myndin segir frá rithöfundi,
leiknum af Winonu Ryder, sem sér
sýnir og skilin milli raunveruleika
og drauma verða óskýr. Leikstjóri
kvikmyndarinnar er Jay Anania
sem er einmitt fyrrverandi
kennari Franco í NYU háskóla.
Mikil spenna ríkir fyrir
kvik-
myndinni
Cowboys &
Aliens og í
vikunni var
stikla í fullri
lengd sett á
vefsíðu Apple.
Sagan segir frá minnislausum
manni leiknum af Daniel Craig
sem ráfar inn í bæinn Absolution
sem er stýrt af hershöfðingjanum
Dolarhyde leiknum af Harrison
Ford. Mikil ringulreið skapast er
geimverur ráðast inn í bæinn og
allt fer í rugl í þessari furðulegu
kvikmynd þar sem allar gerðir
kvikmynda virðast blandast
saman í eina.
Nýjasta kvikmynd Will
Ferrell mun líklega slá í
gegn en hún gerist
alfarið á spænsku.
Ferrell leikur
senjorinn Armando
og hefur greinilega
lagt mikið í að
þjálfa spænska
hreiminn fyrir
myndina. Sjarmörinn Gael García
Bernal fer með hlutverk illmenn-
isins í myndinni sem er beðið eftir
með mikilli eftirvæntingu í
Hollywood og hafa sumir sagt að
Armando sé næsti Ron Burgundy.
Hæð: 165 sentímetrar.
Besta hlutverk: Monica í Friends.
Staðreynd: Er með brúna beltið
í karate.
Eitruð tilvitnun: „Mér finnst
óþægilegt að eldast og reyni
því að hafa sem fæsta spegla í
kringum mig.“
1964Fæðist þann 5. júníí Birmingham í
Alabama-fylki Bandaríkjanna.
1983Hóf nám í arkítekt-úr og innanhúss-
hönnun í Mount Vernon College
en hætti ári seinna til að einbeita
sér að fyrirsætustörfum.
1984Kom fram í tónlist-armyndbandi Bruce
Springsteen við lagið Dancing In
The Dark.
1985Varð fyrst til aðnota orðið period
yfir tíðablæðingar kvenna í
bandarísku sjónvarpi í auglýs-
ingu fyrir Tampax tíðatappa.
1987Lék í fyrstukvikmyndinni,
Masters Of The Universe, og kom
fram í nokkrum sjónvarpsþátt-
um næstu árin. Cox lék meðal
annars kærustu Michael J. Fox í
þáttunum Family Ties.
1989Byrjaði meðleikaranum Michael
Keaton. Þau hættu saman sex
árum síðar.
1994Kom sér á kortiðí Hollywood er
hún lék kærustu Jim Carrey í
kvikmyndinni Ace Ventura: Pet
Detective. Seinna á árinu var
hún beðin um að koma í prufu
fyrir hlutverk Rachel Green í
Friends. Eins og allir vita var hún
ráðin í hlutverk Monicu sem varð
hennar frægasta hlutverk.
1996Fór með hlutverkblaðakonunnar
Gale Weather í fyrstu Scream-
myndinni. Þar kynntist hún
verðandi eiginmanni sínum,
David Arquette sem lék einmitt
ástmann hennar í myndinni.
1999Giftist DavidArquette þann 12.
júní og tók upp nafnið Courteney
Cox Arquette.
2004Eignaðist sitt fyrstabarn, dótturina
Coco Riley Arquette.
2009Kom sér afturinn í Hollywood í
þáttunum Cougar Town þar sem
Cox fer með aðalhlutverkið.
2010Skildi við DavidArquette vegna
óleysanlegs ágreinings. Þau
eru þó enn góðir vinir og leika
saman í Scream 4.
Courteney
Cox
FERILLINN
Tegund: Skotleikur
PEGI merking: 16+
Útgefandi:
Sony Computer
Dómar: Game Informer: 7,8
PlayStation Universe: 8,5
Eurogamer: 6
Special Forces
Hugsa fyrst
...skjóta svo!
TÖ LV U L E I K U R
SOCOM US Navy Seals leikirnir
litu fyrst dagsins ljós á Play-
Station 2 fyrir rúmum 9 árum
síðan. Þetta voru leiðandi leikir
hvað netspilun varðar og urðu
mjög vinsælir, sérstaklega í
Bandaríkjunum þar sem selirnir
eiga ættir sínar að rekja. Nýjasti
leikurinn í seríunni er SOCOM
Special Forces á PlayStation 3,
en þar fara leikmenn í hlutverk
Cullen Gray sem er foringi fimm
manna hersveitar sem send
er til Asíu að skakka leikinn í
fjarlægu landi. Söguþráðurinn er
dæmigerður fyrir svona leiki og
engin djúp persónusköpun hér á
ferð en í sögunni eru 14 verkefni
og eru nokkur þannig að maður
þarf að fara hljóðlega um eða
svokölluð „stealth“ verkefni.
Mikið lagt upp úr taktík
SOCOM Special Forces er
þriðju persónu skotleikur sem
leggur mikið upp úr taktík, en
leikmenn hafa með sér á hverju
borði tvær tveggja manna
herdeildir sem hægt er að skipa
fyrir. Skipanirnar eru frekar
einfaldar og ganga oftast út á að
segja herdeildunum hvert þær
eigi að fara eða biðja þær um að
sprengja upp ákveðið skotmark.
Einnig er gott að nýta herdeild-
irnar til að „flanka“ óvininn til
að dreifa athygli þeirra.
Stýringar leiksins eru sérhann-
aðar með Move stýripinnann
og Sharpshooter aukahlutinn
í huga og þó að gamli góði
Dual Shock stýripinninn sé
alltaf bestur í skotleikjum er
mjög þægilegt að nota Move
kvikindið.
Skínandi netspilun
Sem fyrr er það netspilun
SOCOM leikjanna sem skín hér
skærast, en í henni geta allt að
32 spilað saman í keppni og svo
er hægt að búa til sérstök „co-
op“ verkefni sem allt að fimm
leikmenn geta spilað saman
gegn tölvustýrðum hermönnum.
Grafíkin í SOCOM er vel yfir
meðallagi og ekkert þar sem
leikurinn þarf að skammast sín
fyrir og það sama má segja um
hljóð leiksins og tónlist.
SOCOM Special Forces er vand-
aður og skemmti-
legur skotleikur
fyrir þá sem vilja
meiri taktík og
hugsun í stað-
inn fyrir bara
að hlaupa og
skjóta.
Ólafur Þór
Jóelsson
ÞAÐ ER ENGIN SKÖMM AÐ ÞVÍ AÐ VERA
DREPINN AF SVONA FALLEGUM MANNI