Austri - 03.07.1981, Blaðsíða 1
26. árgangur.
Egilsstöðum 3. júlí 1981.
24. tölublað.
-WIU
-verð
Riðan breiðist út fró tóhimði Bóhisifns HérMo
Skorið niður á þremur bæjum
í Jökulsárhlíð og Jökuldal?
Riða virðist í útbreiðslu í
Jökulsárhlíð og í Jökuldal, og
hefur þessi vágestur komið upp
á þremur bæjum á síðustu mán-
uðum, á Hrafnabjörgum í Jök-
ulsárhlíð, Teigaseli og Eiríks-
stöðum á Jökuldal.
Sauðfjársjúkdómanefnd hef-
ur nú lagt til að skorið verði
niður á þessum heimilum og rík-
isstjórnin hefur samþykkt heim-
ild til landbúnaðarráðherra til
lántöku vegna bótagreiðslna.
Hins vegar er endanlegt ákvörð-
unarvald í höndum landbúnaðar-
ráðherra um það hvort niður-
skurði verði beitt, og hefur hann
ekki tekið ákvörðun um málið
þegar þetta er ritað.
Þetta mál er viðurhlutamikið
þar sem hér er um að ræða fjár-
mörg heimili. Á Hrafnabjörgum
eru fjórir ábúendur, í Teigaseli
eru tveir og lagt er til að skor-
ið verði niður á öðru búinu á
Eiríksstöðum, en þar er tvíbýli.
Þarna er því um að ræða bú-
stofn sjö heimila.
Eins og menn muna kom upp
riða á Brú á Jökuldal fyrir
nokkrum árum og var skorið
niður þar, og hafa bændurnir
þar nú keypt nýjan fjárstofn.
I þesu máli ræða menn nú eink-
um hvort gerlegt reynist að
halda riðunni niðri á svæðinu
milli Jökulsár í Dal og Jökulsár
á Fjöllum með niðurskurði, en
þær sveitir sem þar um ræðir
eru mjög fjármargar. Á hinu
leytinu er rætt um hvort hægt
verði að búa við þennan vágest,
eins og gert hefur verið í Borg-
arfirði eystra, Norðfirði og
Breiðdal um árabil.
J. K.
I skýrslu um starfsemi Bóka-
safns Héraðsbúa fyrir árið 1980
sést að 408 lánþegar komu alls
3061 sinni í safnið á árinu, eða
að meðaltali rúmlega sjö sinnum
hver. Fengu þeir alls 8897 bæk-
ur að láni eða tæplega 22 bækur
hver. Þessar útlánstölur eru
eftirtektarverðar þar sem bóka-
eign safnsins í ársbyrjun var
aðeins 4183 bækur. Safninu
bættust 287 titlar á árinu. Töl-
ur um útlán standast fyllilega
samanburð við hliðstæð söfn á
landinu og er þá miðað við ný-
útkomna skýrslu bókafulltrúa
ríkisins, um starfsemi almenn-
ingsbókasafna á árinu 1979.
Notkun safnsins hefur aukist
gífurlega upp á síðkastið, eða
nær þrefaldast frá árinu 1978.
Hvernig á þessari ánægjulegu
þróun stendur er ekki gott að
segja, sennilega á þó lengri opn-
unartími stærstan hlut þar að.
Einnig er það ánægjulegt að
sveitafólk sem til skamms tíma
sást varla í safninu, er nú að
komast upp á lag með að nota
það. 76 Héraðsbúar utan Egils-
staða voru skráðir lánþegar á
árinu, þar af 34 úr Fellahreppi.
Egilsstaðabúar voru 281 og
nemendur í M.E. búsettir utan
Héraðs voru 51.
Flestir koma þessir lánþegar
reglulega og fá sinn bóka-
skammt, aðrir koma sjaldnar,
og á það einkum við um nem-
endur í M.E., sem margir koma
fyrst og fremst til að afla sér
heimilda í ritgerðir og því um
líkt.
Ljóst er, að því betur sem bú-
ið er að safninu fjárhagslega,
þeim mun betri þjónustu getur
það veitt gestum sínum. Efst á
lista um bætta þjónustu við
Héraðsbúa er bókaskrá, sem nú
er unnið að. En hvenær hún
kemur út, fer eftir því hvernig
hrepparnir standa í skilum með
lögboðin lágmarksf j árf ramlög
til safnsins, en fram til þessa
hefur slælega verið staðið við
þær greiðslur. Sumir láta ekkert
frá sér heyra, aðrir eru hálf-
volgir í afstöðu sinni til safns-
ins. Staðreyndin er sú að aöeins
Egilsstaðahreppur, Fellahrepp-
ur, Vallahreppur og Eiðahrepp-
ur hafa greitt framlög sín fyrir
árið 1980.
Kristrún Jónsdóttir.
Sigurjón Bjarnason skrifar
eftirfarandi pistil í síðasta
fréttabréf U.Í.A. um starfsemi
skrifstofu sambandsins.
Undirbúningur fyrir sumar-
vertíð stendur nú sem hæst og
gerast verkefni skrifstofunnar
nú æði yfirgripsmikil.
Gunnar Baldvinsson sem titl-
aður verður fjáröflunarstjóri
U.l.A. í sumar er nú kominn til
starfa.
Undirritaður glímir nú við
síðustu framteljendurna, og
verður þeirri glímu væntanlega
lokið um næstu helgi. I hjáverk-
um vinnur hann að undirbún-
ingi fyrir landsmótsferð til Ak-
ureyrar, ásamt Dóru á Fá-
skrúðsfirði og Pétri á Borgar-
firði.
Þá er húsbyggingin á Eiðum
mitt áhyggjuefni, og er von á-
taka á þeim vettvangi á næst-
unni með væntanlegum tilstyrk
Frd Verhalýðsfélaði Fljótsdflhhéraðs
Björns Björgvinssonar á Breið-
dalsvík.
Gunnar vinnur nú að undir-
búningi sumarhátíðar. Þá verð-
ur samkoman í Atlavík hans
aðalverkefni í sumar auk fleiri
fjáröflunarverkefna sem upp
kunna að verða fundin.
Hermann Níelsson verður
framkvæmdastj óri Sumarhátíð-
ar, auk þess hefur hann lagt
mikla vinnu í undirbúning af-
mælishátíðar í Valaskjálf og í-
þróttalegan undirbúning fyrir
landsmót.
Hamingjan má vita hvernig
öllum þessum verkefnum reiðir
af í sumar, en við treystum á
fulltingi hins óbreytta ung-
mennafélaga til að öll þessi góðu
mál nái fram að ganga. Víst er
að sumarið 1981 mun kosta
margan svitadropann, en ef við
sýnum samstöðu og dug getum
við örugglega glaðst yfir unnum
afrekum á U.I.A. þingi í haust.
Á aðalfundi félagsins, sem
haldinn var 1. júní síðastliðinn
var samþykkt að sjúkrasjóður
félagsins gæfi til Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Egilsstöðum
sjúkrarúm.
Þá urðu formannaskipti, Ei-
ríkur Elísson gaf ekki kost á
sér til endurkjörs. Stjórn fé-
lagsins skipa nú: Jón Þórarins-
son formaður, Stefán B. Guð-
U.Í.A. VERSLUNARMANNA-
HELGI — ATLAVÍK
Um verslunarmannahelgina
hyggst U.I.A. að venju efna til
fjáröflunar, en að þessu sinni
verður það samkoma í Atlavík
sem farið verður út í.
10 ár eru síðan síðast var
haldin samkoma í Atlavík. Það
var U.I.A. sem hélt samkom-
urnar áður og yfirleitt var
nokkur tekjuafgangur af þeim
sem rann beint í sambandssjóð.
Á síðustu árum hefur U.I.A.
vaxið mjög bæði hvað varðar
mundsson varaformaður, Gyða
Vigfúsdóttir gjaldkeri, Dröfn
Jónsdóttir ritari og Rósa
Björnsdóttir meðstjórnandi.
Þá vill stjórnin benda á að
skrifstofa félagsins Selási 11,
Egilsstöðum sími 1535, er opin
þriðjudaga og fimmtudaga frá
kl. 15 - 18. Starfsmaður er Guð-
rún Ágústa Jóhannsdótir.
Fréttatilkynning.
fjöldaþátttöku og starfssvið.
Það segir sig sjálft að aukin
umsvif kalla á peninga til þess
að rekstur sambandsins geti
haldið áfram óbreyttur. Þess
vegna treystum við á U.Í.A. -
fólk um aðstoð á meðan á sam-
komunni stendur.
Dagskrá samkomunnar er enn
í mótun og því lítið hægt að
segja um hana ennþá. Dansleik-
ir verða á kvöldin, einhverjar
íþróttir laugardag, tónleikar og
einhver skemmtiatriði sunnudag
og e.t.v. fleira.
SB.