Austri - 13.11.1981, Blaðsíða 3
Egilsstöðum, 13. nóvember 1981.
AUSTEI
3
.
" ' %
Þubyrö
ódýrt
og
miðsvæðis
hjá okkur
#Hon
II 9
Utivistartími barna 09 ungmcnna
Frá
YIDEO - MYNDSEGUL-
BAND
Eins og margir vita, lét
stjórn U.l.A. taka upp afmæl-
ishátíðina, sumarhátíðina og
landsmótsferðina á mynd-
band. Er nú búið að klippa og
vinna úr þessum upptökum
hæfilega langt efni, sem hvert
fyrir sig er ein spóla.
Nú hefur komið fram sú
hugmynd að félög gætu feng-
ið þessar spólur leigðar eða
jafnvel keyptar. Það ætti að
vera framkvæmanlegt, en þá
er nauðsynlegt að félög láti
vita á skrifstofu U.I.A., ef
þau vilja fá spólu og geti þess
í hvaða kerfi.
Þessar upptökur eru nú all-
ar í VHS-kerfi, en mögulegt
væri að fá þær í Betamax og
2000-kerfinu líka.
Þar sem þetta er nú frum-
raun okkar í svona upptök-
um á starfi okkar, þá má allt-
af finna að, en samt er nú
von okkar að fólk hafi gaman
af þessu, og þá gæti orðið
framhald á þessu.
Ekki er komið neitt endan-
legt verð á spólurnar, svo ekki
verður sagt frá því að sinni.
Að lokum: Látið vita strax
á skrifstofuna, ef þið hafið á-
huga á að kaupa eitthvað af
þessum spólum og munið að
nefna í hvaða kerfi.
AFMÆLISPLATAN
Hann Gunnar Baldvinsson
sem kvaddi okkur svo virðu-
lega í síðasta fréttabréfi hef-
ur ekki gert það endasleppt.
Og í síðustu viku hafðist
það. Hann náði afmælisplöt-
unni margeftirspurðu úr
vinnslu. Helmingur upplags-
ins er nú kominn á skrifstof-
una og bíður þess að vera
sendur til dreifingaraðila.
Samþykkt var að fela aðild-
arfélögum söluna, en þeim í
sjálfsvald sett, hvort gengið
verður í hús, eða ákveðnum
aðila falið að liggja með hana.
Verðið er kr. 50 og er von-
ast til að upplagið, 1000 stk.
renni út, enda hefur platan
nú þegar heyrst í útvarpinu.
TÝNDUR BIKAR
Fundist hefur svohljóðandi
reglugerð vegna bikars, sem
gefinn var 1969:
REGLUGERÐ
um gjafabikar Sveins Magn-
ússonar Neskaupstað til
minningar um son hans Víði
Sveinsson skipstjóra,
VÍÐISBIKAR
Áletrun bikarsins er svo-
hljóðandi:
*■
„Til minningar um Víði
Sveinsson skipstjóra, F. 6. 8.
1930 - D. 19 9. 1968. Gefinn
af Sveini Magnússyni Nes-
kaupstað árið 1969. Einkunn-
arorð: Þróttur, drengskapur,
vinátta. Drengjabikar U.I.A.
Fyrir besta afrek í frjálsum
íþróttum á drengjameistara-
móti U.I.A.”
Bikarinn er farandbikar,
er vinnst aldrei til eignar, en
veitist fyrir besta afrek í
frjálsum íþróttum á drengja-
meistaramóti U.I.A. á 15 ára
tímabili - árin 1970-1984.
HúsniEði
Bílskúr eða annað sam-
bærilegt húsnæði óskast
til afnota sem geymsla.
Þarf að vera þurrt og
rakalaust (má vera óupp-
hitað).
Fyrirframgreiðsla í boði
fyrir gott húsnæði.
Upplýsingar í síma 1427
á kvöldin.
Kauptilboð óskast í hús-
eign mína að Stekkjar-
tröð 2 (bláa húsið)
Egilsstöðum.
Gunnlaugur Helgason
símar 97-1267 og 1284.
Ibúð óskast á leigu í
Egilsstaðakauptúni, eða
nágrenni.
Upplýsingar í síma 1691
og 1452.
Magnús Þórðarson
Skal frjálsíþróttaráð UlA
afhenda sigurvegara bikarinn
hverju sinni og innkalla hann
aftur fyrir næsta mót.
Er framangreind 15 ár eru
liðin skal bikarinn afhentur
Byggðasafni Neskaupstaðar
til varðveislu og eignar.
Þrátt fyrir nokkra eftir-
grennslanir hefur mér ekki
tekist að hafa upp á þessum
grip, en miður væri það ef
hann er með öllu glataður.
Af lestri fundargerða og
frjálsíþróttaskýrslna varð ég
engu fróðari. Vil ég því biðja
þá sem kynnu að hafa orðið
varir við þennan grip að láta
mig vita.
S.B.
Uaustið er roott
Nýlega er komin út og í
bókabúðir ný skáldsaga sem
ber heitið „Haustið er rautt.”
Þetta er fyrsta skáldsaga
ungs höfundar sem heitir
Kristján Jóhann Jónsson og
hefur hann jafnframt rit-
störfum unnið við kennslu
við Menntaskólann á Egils-
stöðum. Undirritaður hefur
ekki enn lesið þessa bók, en
hún f jallar að sögn um mann-
lífið í litlu þorpi úti á lands-
byggðinni og í sveitunum þar
í kring. Umhverfi það sem
sagan gerist í mun að sögn
koma Egilsstaðabúum og
Héraðsbúum kunnuglega fyr-
ir, og m.a. af þeim sökum
ætti að vera forvitnilegt að
sjá hvaða skil höfundur gerir
mannlífi sem lifað er í hlið-
stæðu samfélagi og hér er.
J. K.
Barnaverndarnefnd Egils-
staðahrepps hefur nýlega
sent dreifibréf í öll hús á
Egilsstöðum um útivistartíma
barna og ungmenna, og þar
með hvatt alla foreldra/for-
ráðamenn til að virða gild-
andi reglur um útivistartíma.
Skv. reglugerð nr. 105/
1970 um vernd barna og ung-
menna mega b'óm yngri en
1 dra ekki vera á almanna-
færi eftir kl. 20 frá 1. sept.
til 1. maí nema í fylgd með
fullorðnum, aðstandendum
sínum eða umsjónarmönnum.
Unglingar yngri en 15 ára
mega ekki vei'a á almanna-
færi eftir kl. 22 frá 1. sept.
til 1. maí nema í fylgd með
fullorðnum eða um sé að ræða
beina heimferð frá skóla-
skemmtunum, íþróttasam-
komu eða frá annarri viður-
kenndri æskulýðsstarfsemi.
UMFERÐARMÁL
Bamaverndarnefnd sendi
nýlega hreppsnefnd og lög-
Frá blaðinu
Undanfarið hafa verið send
út kynningareintök af Austra
og er þetta síðasta blaðið sem
sent er út á þennan hátt. Þeir
sem hafa fengið slík eintök
og óska eftir því að gerast
áskrifendur að blaðinu eru
minntir á áskriftarsímana
reglu á Egilsstöðum eftirfar-
andi ályktun:
„Barnaverndarnefnd Eg-
ilsstaðahrepps vill leyfa sér
að vekja athygli á þeim mikla
umferðarþunga sem er á
Tjarnarbraut. Sérstaklega
vill nefndin beina því til
hreppsyfirvalda að sérstakar
ráðstafanir verði gerðar við
gatnamót Tjamarbrautar -
Seláss-Tjarnarlanda á mesta
umferðartímanum fyrir og
eftir hádegi þegar mikill
fjöldi skólabarna er á leið úr
og í skóla. Nefndin leyfir sér
að benda á ráðningu gang-
brautarvarða eða uppsetn-
ingu umferðarljósa. Nefndin
væntir þess fastlega að ein-
hverjar ráðstafanir verði
gerðar sem dregið geti úr
slysahættu á umræddum
gatnamótum.”
Frá Barnaverndarnefnd
Egilsstaðahrepps.
1314 og 1585 á kvöldin og um
helgar.
Nýir áskrifendur fá blaðið
ókeypis til áramóta. Enn skal
minnt á það að innheimta
blaðsins fyrir árið 1981
stendur yfir, og eru þeir sem
hafa fengið innheimtuseðla
og ekki hafa gert skil, beðnir
að gera það sem fyrst.
Veggflísar —
gólfflísar
Nýkomnar ítalskar vegg- og gólfflísar í miklu úr-
vali. Margar gerðir, margir litir.
Höfum allt á gólfið, allt á vegginn.
Opið virka daga frá 9 - 6 og laugardaga frá 9 - 12.
mi Kjartans Innorssomir
Lyng-ási 1, Egilsstöðum Sími 97-1215 og 1189
Er ykkur kalt?
Ef svo er þá smíða ég allar stærðir af miðstöðvar-
ofnum.
Tek einnig að mér að setja nýtt byrði á gamla ofna.
Hef í miklu úrvali koparrör og fittings.
Hringið og kynnið ykkur verðið og þjónustuna.
Björn Oddsson
Sími 97-1491 Egilsstöðum