Austri - 13.11.1981, Page 4
4
AUSTRI
Egilsstöðum 13. nóvember 1981.
1WTH'1» - "
lituwrr-—
RAUÐARARSTIGUR 18
S‘
$itt úr Hverri úttinni
Síðasti þátturinn okkar „Sitt úr
hverri áttinni” var um þann mikla
meistara Jóhannes Kjarval Sveins-
son Kjarval og að mestu tekinn
úr ræðu Valtýs Péturssonar. En
Kjarval gerði fleira en að mála,
stundum var hann líka að skrifa
og gaf út nokkrar smábækur, m.a.
Grjót, Ljóðagrjót, Meiragrjót og
Hvalssögur. Hann byrjaði líka að
gefa út blað: „Kvöldblað lista-
manna.” En ekki urðu það mörg
eintök, þrjú eða fjögur, og mundu
nú kosta kýrverð ef þau væru fá-
anleg.
í stærstu bókinni Meiragrjót eru
bréfin frá London 13 að tölu. I
ræðunni um Kjarval sagði Valtýr
Pétursson, að bréfin frá London
væri það snjallasta sem Kjai"val
hefði skrifað og mikil listaverk.
Fyrir nokkrum árum las dr.
Broddi Jóhannesson þau i útvarp-
inu og fór um þau fögrum orðum.
Við leggjum hér engan dóm á
bréfin frá London né aðrar rit-
smíðar Kjarvals en birtum hér til
gamans sýnishorn af þessum
bréfum.
EST POSTOFFIS
LONDON
POSTE RESTANTE.
Ástkæra frænka!
Jeg gleymdi að skrifa þjer
addressuna mína á brjefið seinast
þegar jeg skrifaði þjer — en hjer
er nú hún. En jeg hefi altaf svo
mikið að gera. Er alment vinnu-
leysi hjá þjer, eða ykkur strax og
vorar, fyrst ekki er fært frá? —
Jeg hugsa oft um ykkur og alla í
sveitinni, þó jeg sje svona langt
frá. Jeg get ekki trúað því, að af-
koman verði beisin. — Það er
einkennilegt — það er einhver nýr
tími alstaðar núna. — Það er erf-
itt að skilja það, menn hætta við
það gamla og taka upp eitthvað
nýtt. — En til dæmis í sveitinni
sjest bara ekki neitt öðru nýrra
nú en var áður. Lömbin á hverju
vori. Það tekur hver hundur eftir
því. Það nýja í sveitinni eru árs-
tíðirnar, annað ekki; en það er
líka nóg, manneskjan tekur eftir
því. Hver morgun í sveitinni er
það nýja þar, og hvert kvöld —
annað ekki — vetur, sumar, vor
og haust, — og svo náttúrlega
fráfærurnar; þar er himinblám-
inn í mjólkinni, sem grasið nær
sjer í, sjerstaklega í sólskini; þar
eru fjarlægðirnar, sem skapa nógu
rúrnt umhverfi fyrir efnin, —
nógar fjarlægðir í mannssálina
innvortis og útvortis, af því það
er svo langt upp í himininn þegar
heiðríkt er; alt fer eftir því. Þeg-
ar er þokusumur, eða mikið sýkj-
aður himin, er minna af himin-
bláma í sauðamjólkinni en þegar
heiðríkt er. Það er af því, að gras-
ið er undirlagt sömu ástæðum,
kvíaærnar líka. Vellíðan manns-
ins fer eftir því, hvað látið er of-
an í sig, segja menn hjer — en
alt er matur, sem í magann kem-
ur, segja menn í sveitinni. Það
getur verið, að það sje eitthvert
vit í því. En hver maður getur
sjeð muninn á orðinu — bæði í
tali og á prenti. — Himinblám-
inn er merkilegri en menn halda,
jafnvel þoka er oft betri en skýj-
aður himinn að þvi leyti, að þeg-
ar birtir upp, þá er heiðríkja, en
þyknið byrgir heiðríkjuna. — Jeg
vil ekki tala meira um þetta nú.
En það er gaman að vita, að þeim
líður vel, sem maður fór frá —
þá er maður rólegur þar, sem
maður er. En svo er ekki að
heilsa um mig. — Jeg var reyndar
órólegur þegar jeg fór, jeg vissi
ekki af hverju, en jeg held jeg
viti það nú. Það er eitthvað nýtt
í loftinu, sem gerir það, — eitt-
hvað, sem kanski altaf hefir verið
til — mismunandi mikið, held jeg
nefnilega. — Og jeg held Marconi
hafi uppgötvað eitthvað af því, og
jeg held það sje mikið af þessu í
loftinu í sveitinni hjer hjá þjer,
hjá ykkur — jeg býst við því. —
Hjer hafa menn brúk fyrir margt,
af því hjer er alt öðruvísi en hjá
ykkur í sveitinni — hjá þjer. —
Hjer er mikið grjót; já, hjer er
nú mikið grjót. Hjer er alt líkast
og til dæmis í huldufólkssögu. —
Stundum finst mjer jeg vera kom-
inn inn í annan heim — og jeg er
viss um að þjer mundi finnast það
líka, ef þú værir hjer, því hjer er
svo margt.
Jeg hætti nú núna við þetta
brjef, háttvirta frændsystir.
Þinn ónýtur frændi.
Góða nótt.
Albjartur Siklingsbur.
m-.hmmmm
Til sölu diesel Rússajeppi
árgerð 1971, með öku-
mæli. Sæti fyrir 8
manns. Upplýsingar í
síma 97-1487 á kvöldin
og 97-1329 á daginn.
Kaffistofan ■ ■ ■ er OPm
allan daginn. Heitur matur,
brauö, kaffi og kökur.Vistlegt
umhverfi.
i-----------------—
Happý - húsgögn
Barnakojur úr furu eða litaðar. Tvær
stærðir 75 x 195 cm og 65 x 161 cm.
Verð 4.347 og 3.864.
Þörfin fyrir pláss til geymslu á fötum og
öðru eykst með aldrinum og við 15 - 17
ára aldur gæti til dæmis reynst heppilegt
að bæta við fataskáp og auk þess einum
skáp, og þá hefur maður herbergi búið
fallegum sterkum og um fram allt ódýr-
um húsgögnum.
Húsgagnaverslunin
Björk
Lyngási 1
Egilsstöðum sími 1427
V//////////////Z/////////////////////////////////ZVVVVm
■
Þetta gæti verið byrjunin, þegar barn
er svona 5-8 ára og byrjar í skóla.
Uppstillingin er samsett af einsmanns
bekk með heilli sængurfatageymslu,
skrifborði með þremur skúffum, skáp,
bókahillu og skrifborðsstól. Það er nóg
til að byrja með.
r
Egilsstaðabúar
Héraðsbúar
X ★ ★ HEF Á BOÐSTÓLUM;
★ ★ ★ Gott úrval af unnum kjötvörum
★ ★ ★ ★ •
★ ★ ★ Mjólk og mjólkurvörur
X ★ ★ ★ Brauð og kökur
★ ★ ★ ★ •
★ ★ Ávexti, nýja og niðursoðna
★ ★ Ásamt annarri algengri matvöru
* ★ ★ og hreinlætisvöru.
★ ★ ★ ★ •
★ ★ Verslið þar sem er lágt vöruverð
★ ★ ★ og góð þjónusta.
★ ★ ★ ★ •
★ ★ Opið virka daga frá kl. 9 - 6 og á
X ★ laugardögum frá kl. 9 - 12.
Matariðjan
Reynivöllum 1, Egilsstöðum
Sími 1219.