Morgunblaðið - 08.04.2010, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
10
einfaldlega betri kostur
lau. 10-18 sun. 12-18 mán. - fös. 11-18:30
ILVA kaffi: lau. 10-17 sun. 12-17 mán.-fös. 11-18
s: 522 4500 www.ILVA.is
Komdu og njóttu
góðra veitinga
Croissant og kaffi
kr. 590,-
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
HVERS vegna gekk svo seinlega
að finna þremenningana sem lentu
í hrakningum í Fljótshlíð og að
Fjallabaki, eftir að leit hófst?
Hvers vegna var ekki strax leitað
lengra inn á hálendinu og hvers
vegna voru björgunarsveitir ekki
kallaðar fyrr út? Þessar spurningar
hafa vaknað eftir að ferð fólksins
að horfa á eldgosið á Fimmvörðu-
hálsi endaði illa og tvö þeirra létust
en eitt komst af við illan leik.
Ótrúlegt hvert bíllinn komst
Í fyrsta lagi var ákveðið að hefja
leit innst í Fljótshlíð, þar sem síð-
ast var talið að heyrst hefði til
fólksins. Bíllinn, jepplingur, fannst
hins vegar tugi kílómetra þaðan,
uppi á reginfjöllum norðan Mýr-
dalsjökuls. Aðspurður segir Sveinn
K. Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á
Hvolsvelli, það hafa komið mjög
mikið á óvart hvar bíllinn fannst.
Lögreglu hafi ekki dottið í hug að
hann gæti hafa komist svo langt.
Fólkið hafi hitt á alveg ótrúlegt
akstursfæri á leiðinni upp eftir, en
þetta svæði fer fólk helst um á
stórum jeppum og vélsleðum á
þessum tíma árs.
Kristinn Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Landsbjargar, tekur í sama
streng. Hann segir að fólkinu hafi
tekist að keyra ofan á mjög þéttu
harðfenni upp eftir snemma á
mánudag. Svo hafi veður snar-
versnað með norðanbyl, skafrenn-
ingi og úrkomu. Þegar björg-
unarsveitarmenn hafi svo komið
inn á Fjallabak, eftir ábendingu
konunnar sem fannst á lífi seinni
partinn á þriðjudag, hafi þeir átt í
mestu vandræðum með að komast
leiðar sinnar á mikið breyttum
fjallajeppum. Þeir hafi í raun verið
gapandi hissa þegar jepplingurinn
fannst þarna lengst uppfrá.
Samskiptin við fólkið í bílnum
Í öðru lagi eru uppi grunsemdir
meðal bæði björgunarsveitarmanna
og lögreglumanna sem rætt hefur
verið við, um að ekki hafi verið rétt
tekið á samskiptum við fólkið í bíln-
um af hálfu lögreglunnar á Hvols-
velli. Lögreglan hafi jafnframt kall-
að björgunarsveitir seint út og
haldið málinu of lengi hjá sér.
Sveinn K. Rúnarsson tekur ekki
undir það. Þegar símtölin við fólkið
hafi átt sér stað hafi þetta verið
eins og hver önnur beiðni um að-
stoð. Margar slíkar berist í viku
hverri og flestar þeirra séu á end-
anum teknar aftur og hjálpin af-
þökkuð. „Sem betur fer, því annars
værum við í daglegum útköllum við
að leita að ferðamönnum,“ segir
Sveinn. Jón Hermannsson, fulltrúi
björgunarsveitarinnar Dagrenning-
ar í svæðisstjórn Landsbjargar, tel-
ur ekki heldur að lögregla hafi ver-
ið of sein að kalla til
björgunarsveitir, miðað við þær
upplýsingar sem hún hafði á þeim
tíma.
„Nei. Það vildi þannig til að í
sama herberginu var að vinna
björgunarsveitarfólk og lög-
reglumenn vegna gæslu á Fimm-
vörðuhálsi. Björgunarsveitarfólk
varð óbeint vitni að samskiptunum
við fólkið í bílnum. Það taldi enginn
neitt óvenjulegt við þau á þeim
tímapunkti,“ segir Jón.
Þannig háttar til að lögreglan á
Hvolsvelli hefur aðstöðu í björg-
unarsveitarhúsinu til bráðabirgða,
vegna þess að endurbætur standa
yfir á lögreglustöðinni. Samstarfið
hefur því verið óvenjunáið und-
anfarnar vikur. „Allir voru sam-
mála um að verkefninu væri lokið
þegar fólkið afþakkaði sjálft að-
stoðina. Þá hefur fólkið heldur ekki
verið nálægt staðnum þar sem bíll-
inn fannst, því þá var það í síma-
sambandi, í gegnum tvo síma meira
að segja,“ bætir Jón við. Bílstjórinn
hafi því án vafa náð að losa bílinn
og haldið áfram ferð sinni.
Keyrðu lengi í kolranga átt
Furðu vekur hversu rammvillt
fólkið varð og hve lengi það ók í
ranga átt, um staði sem það hefði
átt að átta sig á að það hafði ekki
farið um áður í sömu ferðinni. Til
að mynda höfðu þau ekið yfir
Markarfljót á brú ofan Mark-
arfljótsgljúfra, framhjá Emstru-
skála og hesthúsum við skálann, en
samt haldið áfram. Samkvæmt
heimildum var fólkið einungis með
ónákvæmt túristakort af svæðinu
meðferðis, til að rata. Þegar mað-
urinn og konurnar tvær ákváðu að
ganga eftir hjálp virðast þau hins
vegar öll hafa farið í hárrétta átt til
byggða.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins mun maðurinn hafa gefið
lögreglunni afar óljósar upplýs-
ingar um staðsetningu sína. Hann
hafi því verið spurður út í ástand
fólksins í bílnum og hvort ekki
væri í lagi með alla.
Sveinn segist hafa verið í tölu-
vert miklum samskiptum, milliliða-
laust, við lögreglumanninn sem tal-
aði við manninn. „Við erum búnir
að skoða þetta mál út í hörgul,“
segir Sveinn. Engar ákvarðanir
hafi átt að taka öðruvísi, miðað við
þær upplýsingar sem lágu fyrir á
hverjum tíma. Jón Hermannsson
hjá svæðisstjórn Landsbjargar tek-
ur í sama streng og segir það auð-
velt að vera vitur eftir á.
„Það voru allar ákvarðanir réttar
á þeim tíma þegar þær voru tekn-
ar,“ segir Jón. „Núna sér maður
hins vegar að það hefði mátt taka
aðrar ákvarðanir, ef við hefðum
haft þær upplýsingar sem nú eru
komnar fram.“ Þetta mál verði
mikilvægt í reynslubanka björg-
unarsveita í framtíðinni.
„Allar ákvarðanir réttar
þegar þær voru teknar“
Bíllinn fór á harðfenni langt inn á hálendi þar sem lögreglu datt ekki í hug að leita
Var rétt staðið að björgunarað-
gerðum vegna harmleiksins að
Fjallabaki í fyrradag? Yfirvöld
segja réttar ákvarðanir hafa ver-
ið teknar miðað við þær upplýs-
ingar sem lágu fyrir þá.
Leitarsvæðið
Tindfjallajökull
Mýrdalsjökull
Þórólfsfell
F L J Ó T S H L Í Ð
Markarfljót(Hvolsvöllur)
Hattafell
Fljótsdalur
Emstruskáli
Álftavatn
Einhyrningur
Hvanngil
Emstrubotnar
Hungurfit
Tindfjöll
Skáli Bær
Yngri konan finnst,
köld og hrakin
1
Bíllinn finnst.2
Eldri konan
finnst.
3
Maðurinn finnst.4
Krókur
„Þennan dag var rennifæri þarna
inn úr,“ segir Kristinn Ólafsson,
framkvæmdastjóri Landsbjargar,
um aðstæðurnar á leiðinni inn í
Hvanngil á mánudag. „En svo
þyngdist færðin og það varð mikið
norðanbál og ofankoma.“
Hann segir því ekki skrýtið að
fólkið hafi örmagnast þegar það
reyndi að ganga eftir hjálp. Það
var með snjógalla en alls ekki
útbúið fyrir neinar göngur.
Veðurathuganir á Sámsstöðum í
Fljótshlíð sýna að hæglætisveður
var þar fyrripart mánudags en fór
svo versnandi. Um kvöldið fór
vindhraðinn í 22 m/s í hviðum.
Sámsstaðir eru í 90 metra hæð yf-
ir sjó en fólkið var í yfir 200 metra
hæð. Þar var því væntanlega bæði
kaldara og hvassara sem því nem-
ur.
Veðrið var afleitt
FÓLKIÐ sem varð úti að Fjallabaki
á þriðjudag hét Friðgeir Fjalar Víð-
isson og Kristín R. Steingrímsdóttir.
Friðgeir var 55 ára, fæddur 22.
apríl 1955, búsettur á Vesturgötu 69
í Reykjavík. Hann lætur eftir sig
einn son.
Kristín var 43 ára, fædd 24. febr-
úar 1967, til heimilis á Kleppsvegi
108 í Reykjavík.
Urðu úti að
Fjallabaki
„ÉG er hóflega bjartsýnn,“ sagði
Vilhjálmur Birgisson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, eftir
fund samninganefndar stéttarfélaga
starfsfólks í álveri Norðuráls á
Grundartanga með samninganefnd
fyrirtækisins í gær. Samninganefnd
starfsmanna lagði fram nýtt tilboð
sem vinnuveitandinn mun svara á
fundi á morgun.
Deilan var komin í svo harðan
hnút fyrir hálfum mánuði að rík-
issáttasemjari ákvað að hvíla við-
ræðurnar.
Samninganefnd starfsmanna hef-
ur krafist þess að fá sömu laun og
starfsfólk í sambærilegum verk-
smiðjum og er Alcan í Straumsvík
sérstaklega nefnt í því sambandi.
Telja starfsmenn Norðuráls að í
sumum tilvikum muni tugum þús-
unda á mánuði.
Áfram launasamanburður
Á fundinum í gær lagði samn-
inganefnd stéttarfélaganna fram
nýtt tilboð. Vilhjálmur segir að í því
hafi verið tekið tillit til fleiri þátta í
launasamanburðinum og kröfurnar
leiðréttar í samræmi við það.
Samningamenn Norðuráls tóku
við tilboðinu og munu svara því efn-
islega á fundi hjá ríkissáttasemjara í
fyrramálið. „Það gætir óþreyju á
meðal starfsfólks og gríðarlega mik-
ilvægt að það komi niðurstaða í þess-
ar viðræður um eða eftir helgi,“ seg-
ir Vilhjálmur. helgi@mbl.is
Norðurál metur nýtt
tilboð starfsmanna
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Álver Starfsfólks Norðuráls ber sig
saman við starfsfélaga.
GUÐMUNDUR
Gíslason tryggði
sér sinn annan
áfanga að alþjóð-
legum meist-
aratitli með góð-
um sigri á Daða
Ómarssyni í átt-
undu umferð Ís-
landsmótsins í
skák sem fram
fór í íþrótta-
miðstöðinni í Lágafelli í Mosfellsbæ í
gærkvöldi.
Guðmundur er með 6,5 vinninga
og deilir efsta sætinu með Braga
Þorfinnssyni, sem sat yfir í gær, og
Hannesi Hlífari Stefánssyni sem
vann Ingvar Þór Jóhannesson.
Björn Þorfinnsson er hálfum vinn-
ingi á eftir þeim eftir jafntefli við
Þröst Þórhallsson. Stefán Krist-
jánsson er með 5,5 vinninga eftir sig-
ur á móti Róbert Lagerman.
Níunda umferð fer fram í dag og
þá mætast m.a. bræðurnir Björn og
Bragi og Hannes mætir Þresti. Guð-
mundur Gíslason situr yfir og stend-
ur best að vígi af efstu mönnum.
Guðmundur
í góðum gír
Guðmundur
Gíslason
EIN milljón tölvunotenda hefur
fylgst með eldgosinu á Fimm-
vörðuhálsi á vefmyndavélum á
heimasíðu Mílu, www.mila.is.
Flestir fóru inn á síðuna 1. apríl,
um 117 þúsund manns.
Notendur frá um það bil 150
löndum hafa fylgst með eldgosinu
og meira en þriðjungur heimsókn-
anna koma erlendis frá.
Strax og eldgosið hófst kom
Míla upp myndavélum á Hvolsvelli
og Þórólfsfelli. Síðar var komið
fyrir vefmyndavél á Fimmvörðu-
hálsi, nær gosstöðvunum en þær
fyrrnefndu. Síðan bættist við
myndavél á Valahnjúki í Þórs-
mörk.
Allar vélarnar notast við sam-
bönd á fjarskiptaneti Mílu frá um-
ræddum stöðum.
Morgunblaðið/RAX
Gos Mikill áhugi er á eldgosinu.
Milljón
skoðað eld-
gos í beinni
BJÖRGUNARSVEITIR á höfuð-
borgarsvæðinu voru kallaðar út á
níunda tímanum í gærkvöldi til að
leita að konu, sem hafði orðið við-
skila við samferðafólk sitt í Esj-
unni fyrr um kvöldið.
Konan kom hins vegar fljótlega
í leitirnar og ekkert amaði að
henni. Konan er af erlendu bergi
brotin.
Fannst eftir
leit í Esjunni