Morgunblaðið - 08.04.2010, Page 10
ólíkindum,“ segir Vilhjálmur.
Dótið sem er til sölu á markaðnum
kemur frá birgjum, heildsölum, búð-
um og einstaklingum. „Við höfum
ekki keypt neitt hingað inn, það var
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
Það er rúmt ár síðan mark-aðurinn var opnaður og hef-ur hann sannað gildi sitt,tekjurnar af honum ásamt
öðrum þáttum sjá til þess að Sam-
hjálp geti rekið óeigingjarna starf-
semi sína,“ segir Vilhjálmur Svan Jó-
hannsson, ráðgjafi og umsjónar-
maður nytjamarkaðarins og
styrktarfélags Samhjálpar.
„Það er fullt af fólki sem hefur þörf
á því að versla eingöngu á svona
mörkuðum, fólk hefur misjafnan
smekk og misjafnlega mikið á milli
handanna,“ bætir Vilhjálmur við.
Þetta er fyrsti markaðurinn sem
Samhjálp rekur. „Við erum eigendur
að þessu húsi og þegar kjallarinn,
sem var í útleigu, losnaði tókum við
þá ákvörðun að smella upp markaði.
Við sáum ekki annað þá en að þetta
yrði eitthvert kropp en nú kemur
þetta starfinu verulega til góða í dag-
legum rekstri. Þetta hefur verið því-
lík búbót fyrir starfið að það er með
tekin sú ákvörðun í upphafi að kaupa
ekki vörur því þá væri farið að halla á
okkur í þessu. Reksturinn gefur ekki
það mikið af sér að það myndi borga
sig. Við fáum allt gefins en þrátt fyrir
það er mikið af dótinu hér inni ný
vara.“
Fá fullt af gullmolum
Það er stöðugur straumur af fólki á
markaðinn á meðan blaðamaður
stoppar þar. Vilhjálmur segir að um
60 til 80 manns að meðaltali renni í
gegn á hverjum degi.
„Hingað kemur þverskurðurinn af
okkar samfélagi. Það er líka stór hóp-
ur fastakúnna. Við erum ströng á því
að halda öllu verði í lágmarki og það
veitir vissa gleði þegar fólk er að
versla, að fá eitthvað fyrir lítinn pen-
ing. Það er tölvert af ungu fólki sem
byggir innbúið heima hjá sér upp á
því sem það fær hér, fólk hefur
skemmtilegan smekk inni á svona
markaði, það kann að leita og það er
gaman að afgreiða það.
Fólk kaupir mikið af fötum, okkur
vantar alltaf föt. Það er líka mikið
keypt af búsáhöldum og slíku. Það fer
mikið af sýnilega góðum rafmagns-
vörum, sjónvörpum og vínyl-
plötuspilurum, og síðan tölvert af
húsgögnum, þau stoppa lítið hérna.
Okkur vantar alltaf mest af fatnaði og
húsgögnum.“
Vilhjálmur segir marga gullmolana
hafa rekið á fjörur þeirra. „Já já, við
erum búin að fá fullt af gullmolum.
Við fengum t.d. eitt skipti vínylspilara
sem var trekktur og númeraður.
Það er notaleg stemning sem tekur á móti þeim sem heimsækja Allt milli himins og jarðar, nytja-
markað Samhjálpar í Stangarhyl 3. Enda er flest sem þar er til sölu með sögu og sál.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Nytjamarkaðurinn Vilhjálmur Svan segir um sextíu til áttatíu manns koma á nytjamarkaðinn á degi hverjum.
Vantar alltaf mest af
fatnaði og húsgögnum
10 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010
Góð vísa er aldrei of oft kveðin. Því er
ekkert að því að benda neytendum
enn og aftur á að fara inn á vefsíðu
Neytendasamtakanna, ns.is.
Það ætti eiginlega að vera skylda
að fara inn á þessa síðu reglulega og
kveikja aðeins á neytendavitundinni.
Þar eru reglulega settar inn neyt-
endafréttir, t.d fjalla nýjustu frétt-
irnar um hvað það kostar ferðamenn
að láta bjarga sér í hinum mismun-
andi löndum, hvað það kostar að láta
telja úr sparibauknum í bankanum og
um varasöm fæðubótaefni.
Þarna má líka finna upplýsingar
um réttindi neytenda, siðræna
neyslu, verðkannanir, fjármál, mat-
væli, ferðamál og margt, margt ann-
að. Allt nauðsynlegt fyrir hinn al-
menna neytenda að skoða og vera
upplýstur um.
Vefsíðan: www.ns.is
Kveiktu á neyt-
endavitundinni
Matarkaup Framtíðar neytandi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Til hamingju! Þú hefur unnið pen-
ingaverðlaun. Þú getur valið um að fá
annaðhvort 10.000 krónur í dag eða
sömu upphæð eftir tvö ár.
Hvort myndirðu velja?
Flestir myndu velja að fá pen-
ingana strax. En af hverju ætli það
sé? Peningarnir munu líta eins út eft-
ir tvö ár, tveir fimmþúsundkallar. En
þó seðlarnir séu þeir sömu er gildi
þeirra ekki það sama þar sem þú get-
ur áunnið þér vexti yfir tímabilið. Því
má segja að peningarnir eftir ár séu
því jafngildir 10.000 krónum, auk
þeirra vaxta sem þeir geta áunnið
þér. Séu vextir 5% er gildi pening-
anna 10.500 krónur eftir eitt ár og
11.025 krónur eftir tvö ár. Þannig eru
11.025 krónur sem þú fengir eftir 2 ár
því 10.000 króna virði í dag.
Ef þér yrði boðið að fá annað hvort
10.000 krónur í dag eða 11.000 krónur
eftir tvö ár er því samkvæmt ofan-
greindu örlítið hagstæðara að velja að
fá vinninginn greiddan í dag.
Mikið hefur verið fjallað um að fólk
geti greitt inn á höfuðstól lána og
sparnaður vegna þess reiknaður út,
stundum án þess að gera ráð fyrir
tímavirði peninga. Ef þú greiðir
10.000 krónur inn á lán sem ber 5%
vexti og er til 25 ára er stundum sagt
að „sparnaðurinn“ séu tæpar 34.000
krónur. Þó er það í besta falli mikil
einföldun. Eigirðu kost á 5% ávöxtun
sparifjár og leggir sömu upphæð
sparireikning muntu eiga sömu upp-
hæð eftir sama tímabil. Því má segja
að gildi 34.000 króna sem við eign-
umst eftir 25 ár sé 10.000 krónur í
dag.
Þetta sýnir okkur bókstaflega að
tími eru peningar. Virði peninga sem
þú átt í dag er ekki það sama og virði
peninga sem þú munt eignast í fram-
tíðinni. Það er því afar mikilvægt að
gera ráð fyrir tímavirði peninga svo
þú getir reiknað út sparnað eða
ávöxtun af fjárfestingum sem þér er
boðin og þannig látið peningana vinna
fyrir þig.
Breki Karlsson er forstöðumaður
Stofnunar um fjármálalæsi og vinnur að
eflingu fjármálalæsis Íslendinga.
Tímavirði peninga
Fjármálalæsi