Morgunblaðið - 08.04.2010, Qupperneq 11
Núna erum við með eldgamlan mynd-
varpa. Svona hlutir fara strax. Gamlir
barnavagnar og gömul barnarúm eru
líka vinsæl. Ef það kemur eitthvað
svona gamalt og vel með farið fer það
nánast strax í dyrunum.“
Umfangsmikil starfsemi
Að sögn Vilhjálms eru þau tvö sem
sjá um markaðinn auk sjálfboðaliða.
„Tekjurnar af markaðnum fara all-
ar óskiptar í rekstur Samhjálpar og
hjálpa okkur verulega. Auðvitað
fengum við á baukinn í þessari
kreppu, starfið er umfangsmikið og
það fara hér í gegnum þetta hús fleiri
hundruð manns á mánuði, ég hugsa
að það séu um 2000 manns sem fara í
gegnum félagsmiðstöðina og göngu-
deildina á mánuði. Svo erum við með
106 manns í rúmi á hverri einustu
nóttu á áfangaheimilunum okkar. Á
síðasta ári voru 42 þúsund heimsókn-
ir á kaffistofuna og þar erum við að
gefa heitan mat alla daga ársins,“
segir Vilhjálmur um rekstur Sam-
hjálpar.
Markaðurinn í Stangarhyl er opinn
frá klukkan 13 til 18 alla virka daga.
„Við tökum alltaf vel á móti góðum
gjöfum og við sækjum dót til þeirra
sem gefa ef þeir óska eftir því,“ segir
Vilhjálmur að lokum.
Gramsað Ungt fólk er duglegt að koma á markaðinn og kaupa í búið.
Gamlir barnavagnar
og gömul barnarúm
eru líka vinsæl.
www.samhjalp.is
Daglegt líf 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010
Bónus
Gildir 8. - 11. apríl verð nú áður mælie. verð
N.v ferskt nautahakk .................. 898 998 898 kr. kg
Kjörfugl ferskur heill kjúklingur .... 598 719 598 kr. kg
Bónus 3ja kornabrauð 600 g ...... 198 259 330 kr. kg
Bki gullkaffi 500g ...................... 398 498 796 kr. kg
K.f frosið sparhakk..................... 398 498 398 kr. kg
Bónus kleinur xl 6 stk. ................ 298 359 50 kr. stk.
K.f kryddað lambalæri................ 1.398 1.798 1.398 kr. kg
Hunts tómatar í dós 410 g.......... 98 111 240 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 8. - 10. apríl verð nú áður mælie. verð
Nautainnralæri úr kjötborði......... 2.395 2.995 2.395 kr. kg
Lambainnralæri úr kjötborði........ 2.498 2.998 2.498 kr. kg
Hamborgarar 4 x 80 g m/brauði . 456 548 456 kr. kg
Ísfugl kjúklingabringur ................ 2.094 2.992 2.094 kr. kg
Móa kjúklingaleggir.................... 649 998 649 kr. kg
Fk Bayonne skinka ..................... 940 1175 940 kr. kg
Hagkaup
Gildir 8. - 11. apríl verð nú áður mælie. verð
Grísalundir ................................ 1.559 2.598 1.559 kr. kg
Grísakótelettur........................... 940 1.879 940 kr. kg
Kjúklingalundir .......................... 1817 2.595 1.817 kr. kg
Ferskar bringur .......................... 1817 2.595 1.817 kr. kg
SS VSOP lambafille m/fitu ......... 2.918 4.168 2.918 kr. kg
Hamborgarar Siggi sterki ............ 594 849 594 kr. pk.
Myllu risabrauð 1 kg .................. 199 249 199 kr. stk.
Myllu vínarterta ......................... 499 629 499 kr. stk.
Kostur
Gildir 8. - 12. apríl verð nú áður mælie. verð
Kostur, lambalæri, kryddað......... 1.238 1.905 1.238 kr. kg
Bautabúrið, grísakótilettur .......... 1.499 1.998 1.499 kr. kg
Lambafille m/fitu, kryddlegið...... 2.848 3.798 2.848 kr. kg
Móar, kjúklingur heill ferskur ....... 694 1.068 694 kr. kg
Pítubuff m/brauði og sósu.......... 769 1.098 769 kr. stk.
Goði, dönsk lifrarkæfa 380g ....... 255 339 255 kr. stk.
Goði, nestiskæfa 150 g.............. 161 229 161 kr. stk.
Kjarnafæði, pólskar pylsur .......... 768 1.370 768 kr. kg
Krónan
Gildir 8. - 11. apríl verð nú áður mælie. verð
Grísakótelettur 10 stk................. 899 1.498 899 kr. kg
Grísasnitsel ............................... 849 1.698 849 kr. kg
Grísagúllas................................ 849 1.598 849 kr. kg
Ísl. m. kjúklingabringur ............... 1.698 1.998 1.698 kr. kg
Ísl. m. kjúklingur ferskur ............. 599 798 599 kr. kg
SS bláberjahelgarsteik ............... 1.974 2.468 1.974 kr. kg
Krónu skinka ............................. 159 198 159 kr. pk.
Nóatún
Gildir 8. - 11. apríl verð nú áður mælie. verð
Ungnautaborgari 90 g ................ 129 169 129 kr. stk.
Lamba rib eye ........................... 2.998 3.998 2.998 kr. kg
Lamba rib eye m.hvítl.&rósm. ..... 2.998 3.998 2.998 kr. kg
Grísalundir erlendar ................... 1.498 1.998 1.498 kr. kg
Laxaflök krydduð ....................... 1.528 1.798 1.528 kr. kg
Lax í heilu ................................. 763 898 763 kr. kg
Laxasneiðar .............................. 1.188 1.398 1.188 kr. kg
Þín Verslun
Gildir 8. - 11. apríl verð nú áður mælie. verð
Nautahakk úr kjötborði............... 998 1.398 998 kr. kg
Nautasnitsel úr kjötborði ............ 1.598 2.498 1.598 kr. kg
Nautagúllas úr kjötborði ............. 1.698 2.198 1.698 kr. kg
Nautainnralæri úr kjötborði......... 2.498 3.198 2.498 kr. kg
Ísfugls kjúklingabringur úrb......... 2.094 2.992 2.094 kr. kg
Jacob́s pítubrauð fín/gróf 400g .. 210 279 525 kr. kg
Myllu beyglur, allar teg. .............. 298 419 298 kr. pk.
Capri Sonne djús Multivit 330 ml 175 229 531 kr. ltr
Helgartilboðin
Ný heyrnartæki - helmingi minni en tvöfalt öflugri!
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | S í m i : 5 6 8 6 8 8 0 | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | w w w . h e y r n a r t æ k n i . i s
Pantaðu tíma í fría heyrnarmælingu í síma 568 6880 og prófaðu Agil
Njóttu orkunnar sem fylgir því að heyra betur!
Agil eru einstök heyrnartæki sem voru þróuð með það markmið í
huga að bæta talgreiningu við allar aðstæður og draga úr
hlustunarþreytu. Agil heyrnartækin eru þau fullkomnustu frá
Oticon fram til þessa en segja má að þau hafi tæknilega sérstöðu
umfram önnur tæki.
Þrátt fyrir að Agil séu um helmingi minni en hefðbundin bak við
eyra tæki þá búa þau yfir öflugustu
örflögunni en vinnsluhraði
hennar er helmingi meiri en
áður hefur þekkst.
Eins og önnur heyrnartæki
frá Oticon þá eru Agil með
þráðlausa tækni og veita
þrívíddarhljómgæði.
Það er leiðinlegt að þurfa að henda
mat. Gúrkur lenda oft í ruslinu enda
eiga þær til að gleymast í grænmetis-
hólfinu í ísskápnum.
Samkvæmt vefsíðunni www.is-
lenskt.is geymist góð og heilbrigð
gúrka í rúma viku án þess að dragi úr
gæðum ef aðstæður í geymslunni eru
réttar.
Besti geymsluhiti fyrir gúrkur er
12°C. Þeim er mjög hætt við kæli-
skemmdum ef hitinn fer undir 10°C
en hafi þær verið geymdar við lægri
hita er réttast að halda honum eins
út geymslutímann, því gúrkur spillast
fljótt við stofuhita eftir slíka með-
höndlun. Best er því að geyma gúrkur
heima á svölum stað, t.d. á þeim stað
í ísskápnum þar sem kuldinn er
minnstur.
Best er að pakka gúrkunni vel inn í
plast, loka vel fyrir sárið eftir að búið
er að skera af henni til að koma í veg
fyrir að hún þorni upp og geyma hana
í ísskápnum.
Endilega...
...látið gúrkuna
ekki skemmast
Agúrkur Góðar og grænar.
Kjötbollur eru alltaf vinsælar hjá
börnunum. Þessi suðurítalska upp-
skrift að kjötbollum með pasta fellur
hins vegar ekki síður að smekk full-
orðinna og er í miklu uppáhaldi hjá
mér. Það er hægt að nota margar teg-
undir af pasta með kjötbollunum en
sjálfur nota ég yfirleitt annaðhvort
penne eða spagettí. Í kjötbollurnar
sjálfar þurfum við í skammt fyrir
fjóra:
500 g svínahakk
500 g pasta, t.d. penne
3-4 hvítlauksrif
Steinseljubúnt, helst flatlaufa
2 egg
2 sneiðar af brauði, venjulegt niður-
sneitt brauð hentar vel.
1 laukur
1 dl hvítvín
1 dós af heilum tómötum
Parmesanostur
Ólívuolía
Salt og pipar
Saxið hvítlaukinn og steinseljuna fínt.
Skerið skorpuna af brauðsneiðunum og
saxið brauðið niður í eins litla bita og
þið getið. Blandið saman við hakkið.
Rífið niður um það bil hálft stykki af
parmesanosti og blandið saman við.
Bætið eggjunum við og blandið vel
saman. Saltið og piprið eftir smekk.
Mótið kjötbollurnar þannig að þær
verði vel þéttar og á stærð við golfkúlu.
Það er þægilegt að nota ísskeið við
þetta. Passið ykkur á að bollurnar verði
ekki of stórar. Þá eru meiri líkur á að
Uppskriftin
Ítalskar
kjötbollur
Fleiri uppskriftir má finna á:
www.mbl.is/matur/
www.vinotek.is
þær molni í sundur við steikingu. Veltið
bollunum upp úr hveiti. Hitið ólívuolíu á
pönnu. Saxið laukin og mýkið í olíunni á
pönnunni. Bætið kjötbollunum við og
steikið um stund þar til þær eru orðnar
stökkar að utan. Takið bollurnar af
pönnunni og geymið.
Hellið hvítvíninu út á heita pönnuna
og notið sleif til að losa skófarnar sem
eru fastar við pönnuna. Þetta er það
sem gefur sósunni bragð. Bætið nú
tómötunum saman við ásamt safanum
úr dósinni og maukið á pönnunni. Setjið
kjötbollurnar aftur út í og látið malla á
vægum hita undir loki í um hálftíma eða
þar til sósan er farin að þykkjast.
Hitið pastað skv. leiðbeiningum og
setjið í stóra skál. Blandið kjötbollunum
og sósunni saman við. Berið fram með
fersku salati og nýrifnum parmesanosti.
Hvað annað með en ítalskt rauðvín?
Til dæmisIsole e Olena Chianti Classico
eða Cantina Zaccagnini Montepulciano
d’Abruzzo.