Morgunblaðið - 08.04.2010, Blaðsíða 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Veitingastaðurinn Rub 23 flytur
eftir nokkrar vikur í húsnæðið neðst
í Listagilinu þar sem veitingahúsið
Friðrik V var áður. KEA á hús-
næðið, sem var gert upp fyrir nokkr-
um árum og er hið glæsilegasta.
Þar sem Rub 23 er nú til húsa, ein-
um 150 metrum ofar við götuna,
verður áfram veitingastaður; steik-
hús í nafni Rub.
Menningarhúsið Hof verður
formlega vígt laugardaginn 28.
ágúst. Gaman er að geta sagt frá því
að þá verður frumflutt verk sem tón-
skáldið Hafliði Hallgrímsson er að
semja fyrir Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands. Hafliði er Akureyr-
ingur en hefur verið búsettur um
árabil í Skotlandi.
Kristján Jóhannsson, akureyrski
stórsöngvarinn, kemur fram í Hofi á
opnunarkvöldinu eins og áður hefur
verið greint frá. En mér heyrist að
„þjófstartað“ verði kvöldið áður;
söngkonan Lay Low verður þá með
tónleika þar sem hún flytur eigin
tónlist og norðlenska, í samvinnu við
nemendur Tónlistarskóla Akureyrar
og Tónlistarskóla Eyjafjarðar.
Gamanleikurinn 39 þrep hjá
Leikfélagi Akureyrar hefur notið
mikilla vinsælda. Síðastliðinn laug-
ardag var 39. sýning á verkinu og
þegar Oddný Stefánsdóttir mætti
var tekið á móti henni með viðhöfn;
leikhússtjórinn, María Sigurð-
ardóttir, afhenti Oddnýju páskaegg
og blóm en Oddný keypti miða núm-
er 39 á þessa 39. sýningu …
Gera má ráð fyrir að mikið fjör
verði í Íþróttahöllinni á laugardags-
kvöldið. Þar fer fram Söngkeppni
framhaldsskólanna og risadans-
leikur í kjölfarið.
Ein vinsælasta hljómsveit landsins,
Dikta, heldur tónleika á Græna hatt-
inum bæði í kvöld og annað kvöld.
Félag áhugafólks um heimspeki
efnir til fyrirlestraraðar í vor undir
yfirskriftinni Hrunið og heimspekin.
Páll Skúlason heimspekingur og
fyrrverandi rektor HÍ ríður á vaðið í
dag kl. 17 í Amtsbókasafninu með
fyrirlestrinum Samfélag og rík-
isvald: Hvað fór úrskeiðis?
Hættumatsnefnd Akureyrar-
bæjar kynnir nýtt hættumat ofan-
flóða fyrir bæinn í Zontahúsinu í
dag. Þar verður opið hús kl. 16 til 19.
AKUREYRI
Morgunblaðið/Skapti
39 þrep Oddný Stefánsdóttir, sem
keypti 39. miðann á 39. sýningu 39
þrepa, með leikurum og Maríu Sig-
urðardóttur, leikhús- og leikstjóra.
Rub 23 fer
á slóðir
Friðriks V
ÚR BÆJARLÍFINU
AÐEINS Grund vill reka hjúkrunarheimilið við
Suðurlandsbraut 66. Ríkiskaup leita rekstraraðila
til sex ára og rann fresturinn út í gærmorgun.
Haraldur Hrafn Guðmundsson, verkefnisstjóri
hjá Ríkiskaupum, segir að rekstur hjúkrunar-
heimilisins sé ekki útboðsskyldur en ákveðið hafi
verið að setja hann í slíkt ferli. „Standist tillaga
þátttakenda grunnkröfur verður henni gefin ein-
kunn. Eftir á að koma í ljós hvort hún gerir það
og því get ég ekki sagt hver niðurstaðan verður
þótt þátttakandinn sé aðeins einn,“ segir hann.
Grund festi nýverið kaup á þremur íbúðabygg-
ingum við hlið hjúkrunarheimilisins á Suður-
landsbraut. Þar er hægt að festa sér íbúð með
íbúðarréttarfyrirkomulagi og hefur þriðjungur
íbúðanna 78 verið seldur. Haraldur segir stefnt á
að hjúkrunarheimilið verði tilbúið í ágúst. Í verk-
efnislýsingunni má sjá að það er ætlað 110
hjúkrunarsjúklingum. Þar verða 70 almenn
hjúkrunarrými fyrir aldraða og langveika og fjór-
ar sérhæfðar einingar, tíu rými fyrir geðsjúka,
fólk yngra en 67 ára með heilabilun, hjúkr-
unardeild fyrir yngri en 67 ára og hvíldarinn-
lagnir fyrir heilabilaða yngri en 67 ára. „Mark-
miðið með rekstri hjúkrunarheimilis við
Suðurlandsbraut er að skapa heimili fólks sem
vegna heilsu sinnar og aðstæðna er ekki lengur
fært um að búa á eigin vegum með viðeigandi
stuðningi og þarf á umönnun og hjúkrun að
halda.“ gag@mbl.is
Grund vill hjúkrunarheimilið
Morgunblaðið/Heiðar
Við Suðurlandsbraut Hjúkrunarheimilið stend-
ur við hlið þessara íbúða fyrir aldraða.
Ríkiskaup skoða rekstrartillögu Grundar
T
ilb
o
ð
in
g
ild
a
ti
lo
g
m
eð
11
.0
4.
20
10
.V
SK
er
in
ni
fa
lin
n
ív
er
ð
i.
Fy
ri
rv
ar
ar
er
u
g
er
ð
ir
ve
g
na
m
ö
g
ul
eg
ra
p
re
nt
vi
lln
a.
KÓPAVOGUR: Smáratorg sími 550 0800
GRAFARVOGUR: Blikastaðavegur sími 585 0600
AKUREYRI: Glerártorg sími 461 4500
TAKMA
RKAÐ
MAGN!
471209
DISKRÓLA
Ummál 1 m.
Hámarksþyngd
100 kg.
Verð 10.999
AFGREI
ÐSLUT
ÍMI
VIRKA
DAGA
: 11-19
(AKUR
EYRI 1
0-18.3
0)
LAUG
ARDA
GA: 10
-18
(AKUR
EYRI 1
0-17)
SUNN
UDAG
A: 12-1
8
(AKUR
EYRI 1
3-17)
471166
HÖRBY SILVER RÓLA ÚR MÁLMI
Tvær rólur og ein tvöföld róla. 215 x 185 cm.
Verð 18.999
16.999
SPARIÐ 2.000
146974
LITTLE TIKES
SKJALDBÖKUSANDKASSI
Fyrir sand eða vatn. Úr þykku
plasti með handhægu loki.
109 x 119 cm. Leikföng
seld sér. Venjulegt verð: 6.999 9.499
KYNNINGARVE
RÐ
SPARIÐ 1.500
ÞAÐ ER VOR Í LOFTI!
3.499
1/2
VERÐ
SPARIÐ 3.500