Morgunblaðið - 08.04.2010, Page 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010
✝
Elskulegur faðir okkar, besti vinur, sonur, bróðir og
mágur,
INGVAR BÚI HALLDÓRSSON,
lést á heimili sínu laugardaginn 27. mars.
Útför hans fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag,
fimmtudaginn 8. apríl, kl. 14.00.
Halldór Matthías Ingvarsson,
Tinna Ösp Ingvarsdóttir,
Kolbrún Viktorsdóttir,
Bentína Jónsdóttir, Halldór H. Ármannsson,
Elvar Eyberg Halldórsson, Guðbjörg María Árnadóttir,
Linda Sóley Halldórsdóttir, Karvel Halldór Árnason,
Andri Þór Halldórsson,
Ása Dóra Halldórsdóttir, Skjöldur Skjaldarson,
Jóhannes Pétur Halldórsson.
✝
Elskulegur sonur minn, bróðir okkar, mágur og
frændi,
STEFÁN BRYNJAR ÓSKARSSON,
sem lést í Kaupmannahöfn laugardaginn 6. mars,
verður jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn
12. apríl kl. 13.00.
Erna Stefánsdóttir,
Arnar Steinþórsson,
Sunna Arnarsdóttir,
Tinna Arnarsdóttir,
Rósa Hlín Óskarsdóttir, Guðjón Egilsson
og systkinabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
EINAR EYJÓLFUR EYJÓLFSSON,
Steinholtsvegi 13,
Eskifirði,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
mánudaginn 5. apríl.
Elín Hjaltadóttir,
Hjalti Elís Einarsson,
Guðmundur Rúnar Einarsson.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, systir og
mágkona,
MONA HALLSSON,
Steen Billesgade 22,
Álaborg,
lést á heimili sínu aðfaranótt mánudagsins
29. mars.
Jarðsungið verður frá Vor Frelser kirke í Álaborg í
dag, fimmtudaginn 8. apríl, og hefst athöfnin
kl. 12.00.
Peter Arndt Pedersen, Mona Borksted Nielsen,
Ellen Borksted Arndt,
Bjarni Hallsson, Gitte Kragh Hallsson,
Hallur Karl Hallsson, Christine Berry Hallsson
og fjölskyldur.
✝
Hjartkær frændi okkar og vinur,
BJÖRN TRYGGVI JÓHANNSSON
bóndi á Stóru-Borg,
Húnaþingi vestra,
lést á Heilbrigðisstofnuninni Hvammstanga
mánudaginn 29. mars.
Útförin fer fram frá Breiðabólsstaðarkirkju í Vestur-
hópi laugardaginn 10. apríl kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á að láta Heilbrigðis-
stofnunina Hvammstanga njóta þess.
Fyrir hönd frændsystkina og annarra aðstandenda,
Ólöf Hulda Karlsdóttir.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓR JÓHANNESSON
bóndi,
lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri laugardaginn
3. apríl.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn
12. apríl kl. 13.30.
Árni V. Þórsson, Ragna Eysteinsdóttir,
Nanna B. Þórsdóttir,
Hjörvar Þór Þórsson, Andrea Thorsson,
Ásdís Þórsdóttir, Guðmundur Ólafsson,
Gunnur Petra Þórsdóttir, Ólafur Þórarinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
SOFFÍA SIGURLAUG LÁRUSDÓTTIR,
Hólabraut 25,
Skagaströnd,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi miðviku-
daginn 31. mars.
Útför hennar fer fram frá Hólaneskirkju á Skaga-
strönd í dag, fimmtudaginn 8. apríl kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Sjúkrasjóð Höfðakaupstaðar, s. 895 2690 / 862 3876.
Guðmundur Jóhannesson,
Lárus Ægir Guðmundsson,
Helga J. Guðmundsdóttir, Eðvarð Hallgrímsson,
Guðmundur Guðmundsson, Sigurlaug Magnúsdóttir,
Ingibergur Guðmundsson, Signý Ósk Richter,
Karl Guðmundsson,
Lára Guðmundsdóttir, Gunnar Svanlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku nafni minn.
Þú varst ávallt svo in-
dæll við mann og góð-
ur maður. Ég get sagt
að mínar sælustu
minningar um þig eru
frá tímanum þegar þú bjóst í Kópa-
voginum og við hittumst oft á laug-
ardögum og eyddum tíma saman. Ég
sótti þig á fína Bensanum þínum og
við keyrðum í rúmar tvær mínútur
yfir í Smáralindina að versla lottó-
miða og láta yfirfara þá gömlu, þeir
voru yfirleitt eitthvað gallaðir, engir
vinningar á þeim. Við tókum því allt-
af sallarólega og skoðuðum aðeins
fólkið í kringum okkur og oftar enn
ekki spunnust samræður okkar um
hvað væri nú eiginlega á seyði þarna.
Eftir „bæjarferðina“ tók alltaf við
rólyndisspjall um daginn og veginn.
Það skipti engu hvað maður reyndi
að stríða þér og ýta á þig, þú varst
alltaf sannur sjálfum þér. Rólyndis-
maður og yfirvegaður í alla staði.
Vandað og kurteist málfar sem ég
leit alltaf upp til. Skipti þá engu
hvort pólitíkin væri rædd eða pínku-
litla útsýnið þitt yfir malbikaðar göt-
urnar í Kópavoginum. Aldrei gat
maður komið þér úr jafnvægi. Ef svo
einkennilega vildi til kom svolítið hik
í setningarnar og eitthvert óskiljan-
legt handapat. Það var mér alltaf
ómögulegt að giska í þessar eyður.
Gömlu árunum úr Hveragerði
man ég að sjálfsögðu eftir. Holóttur
malarvegurinn með pollum allt árið
um kring, óaðfinnanlegur skrúð-
garðurinn og kyrrðin. Mig minnir að
það hafi alltaf verið rólegt hjá ykkur
Unni ömmu. Það var alltaf hlýtt og
rólegt. Útvarpið í botni um morgun-
inn en rólegt eftir það. Nóg var
plássið fyrir barnabörnin og það að
fá að klifra í trjánum þar til maður
sjálfur varð leiður á því, er afar
minnisstætt í mínum huga og alls
ekki slæm minning það.
Ég hugsa að sjálfsögðu alltaf til
þín er ég þykist vera að gera eitt-
hvað í garðinum. Ég hefði viljað erfa
eitthvað af garðræktunargenunum
þínum. Fram að þessu hef ég aðeins
náð að rækta þrjá tómata sem voru
borðandi, en óteljandi er illgresið.
Kannski ég hefði átt að stökkva nið-
ur úr trénu og fylgjast betur með þér
meðan færi gafst til. Sítrónutréð var
handónýtt þegar ég tók við því, svo
það er ekki mér að kenna.
Þín er og verður sárt saknað. Ljúf-
menni eins þig geymir maður alltaf í
huga sér. Daginn sem þú varðst
bráðkvaddur gleymdi ég að stilla
vekjaraklukkuna og þú, alltaf sami
herramaðurinn, vekur mig á réttum
tíma. Ef þú gætir nú haldið því
áfram væri ég ósköp þakklátur.
Þinn nafni og sonarsonur.
Ólafur Steinsson.
Aðeins jákvæð lýsingarorð koma
upp í hugann þegar ég hugsa um
Ólaf afa minn. Hann var ótrúlega
Ólafur Steinsson
✝ Ólafur Steinssonfæddist á Þing-
eyri við Dýrafjörð 1.
maí 1917. Hann lést á
Hjúkrunarheimilinu
Eir 24. mars sl.
Útför Ólafs var
gerð frá Grafarvogs-
kirkju 7. apríl 2010.
blíður og góður maður
sem tók ávallt á móti
manni með bros á vör
og þéttu faðmlagi.
Hann kenndi mér að
heilsa, þétt handaband
og augnsamband sem
hann síðar kenndi
börnunum mínum.
Hann var með mjög
gott geðslag, alltaf svo
yfirvegaður og róleg-
ur, virtist hafa enda-
lausa þolinmæði.
Vinnusamur og
vandvirkur var hann
hvort sem það var úti í garði, að
teikna myndir eða að skreyta rjóma-
tertur. Ólafur afi var mjög myndar-
legur maður og ég var alltaf mjög
stolt af því að hann væri afi minn.
Það eru góðar minningar sem
fylgja honum og ömmu úr Bröttu-
hlíðinni, sögurnar um bakaríið á
Þingeyri og hversu góður hann var
við börnin mín.
Elsku afi, þú ert búinn að lifa góðu
lífi og skilur okkur eftir með jákvæð-
ar minningar um góðan mann sem
við getum öll litið upp til á svo marga
vegu.
Þín sonardóttir
Unnur Símonardóttir
og fjölskylda.
Kveðja frá Hvergerðingum
Þegar fyrstu krókusarnir gægðust
feimnir uppúr moldinni hér fyrir
austan fjall kvaddi Ólafur Steinsson,
garðyrkjubóndi og einn af frum-
byggjum Hveragerðisbæjar.
Fyrir hönd Hvergerðinga vil ég
með örfáum orðum minnast Ólafs,
manns sem skilað hefur ómetanlegu
starfi til samfélagsins hér í Hvera-
gerði í tæp 70 ár og hefur með óeig-
ingjörnu lífshlaupi sínu sett mark
sitt svo víða á byggðarlagið okkar.
Ólafur Steinsson fluttist til Hvera-
gerðis árið 1941 og fljótlega eftir
garðyrkjunám að Reykjum hóf hann
rekstur garðyrkjustöðvar hér í
Hveragerði ásamt konu sinni, Unni
Þórðardóttur, sem ættuð var frá
Bjarnastöðum í Ölfusi. Með vali á
ævistarfi var brautin mörkuð. Elja,
dugnaður og einmuna snyrti-
mennska átti eftir að einkenna öll
störf Ólafs hvort sem var í garðyrkj-
unni eða á öðrum sviðum. Ólafi voru
falin fjölmörg ábyrgðarstörf af sveit-
ungum sínum og meðal annars sat
hann í hreppsnefnd um árabil þar
sem hann gegndi stöðu oddvita tvö
kjörtímabil. Með festu var bænum
stýrt í gegnum ólgusjói sem þá herj-
uðu á lítið bæjarfélag. Ólafur var af-
ar farsæll í þeim störfum sem honum
var trúað fyrir. Hann var rólegur
mannasættir en slíkt er góður eig-
inleiki að hafa í stjórnmálum.
Ólafur og Unnur bjuggu allan sinn
búskap í Bröttuhlíðinni þar sem þau
ólu upp fjögur myndarleg börn sem
ásamt afkomendunum öllum bera
þeim hjónum fagurt vitni. Það gerir
einnig einstaklega fallegur garður
sem umlykur hús þeirra en þar
eyddu þau hjón flestum frístundum
sínum við ræktun og umhirðu garðs-
ins. Hvergerðingar og gestir bæjar-
ins leggja enn þann dag í dag leið
sína framhjá garði Ólafs og Unnar til
að dást að þeim gróðri sem þar er að
finna. Fyrir störf sín að umhverfis-
málum veitti Hveragerðisbær Ólafi
sérstaka viðurkenningu á sumardag-
inn fyrsta árið 2007.
Ólafur hefur kvatt þetta jarðlíf en
minningin lifir um einstakan mann.
Mann sem átti stóran þátt í að gera
Hveragerði að því bæjarfélagi sem
það er í dag. Við vitum að Ólafur beið
vorsins með ákefð þess sem unni ís-
lenskri náttúru. Nú rækta þau hjón-
in garðinn sinn á nýjum stað. Við
Hvergerðingar þökkum áralanga
vinsemd og með virðingu kveðjum
við Ólaf Steinsson um leið og við
sendum fjölskyldu hans innilegar
samúðarkveðjur.
Aldís Hafsteinsdóttir.
Sjálfstæðismenn í Hveragerði
kveðja nú góðan félaga og dyggan
stuðningsmann, Ólaf Steinsson,
garðyrkjubónda.
Ólafur tók þátt í stofnun Sjálf-
stæðisfélagsins Ingólfs í Hveragerði
árið 1947 og starfaði alla tíð dyggi-
lega að málefnum félagsins. Hann
var leiðtogi sjálfstæðismanna og
oddviti hreppsnefndar um árabil. Sat
í stjórn félagsins auk þess að gegna
fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir
félagið í gegnum tíðina. Ólafur var
heiðursfélagi í Sjálfstæðisfélaginu
Ingólfi og auk þess sæmdur heiðurs-
viðurkenningu fulltrúaráðs sjálf-
stæðismanna í Árnessýslu árið 2005.
Með Ólafi Steinssyni er genginn
góður félagi en minningin lifir um
einstakan öðlingsmann sem alltaf
vildi félaginu sínu og Hveragerði allt
hið besta.
Fyrir hönd sjálfstæðismanna í
Hveragerði færi ég fjölskyldu Ólafs
innilegustu samúðarkveðjur.
Eyjólfur K. Kolbeins,
Formaður Sjálfstæðisfélags
Hveragerðis.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður grein-
in að hafa borist eigi síðar en á há-
degi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Minningargreinar