Morgunblaðið - 08.04.2010, Blaðsíða 36
FYRIR rúmum átta vikum hóf verslunin Ha-
varí í Austurstræti að stilla upp vikulegum
veggspjöldum sem framleidd eru í 20 eintökum
og seld í búðinni. Tónlistarmaðurinn, grafíski
hönnuðurinn og einn eigenda Havarís, Svavar
Pétur Eysteinsson, segist hafa fengið hug-
myndina að verkefninu í draumi og til að byrja
með hafi þetta átt að vera ný mynd einu sinni í
mánuði. Mynd mánaðarins er því orðin að
veggspjaldi vikunnar.
„Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á vegg-
spjöldum og hef unnið nokkur í gegnum tíðina,
fannst fínt að byrja með þetta svona til að
halda mér við og sjá ný veggspjöld.“
Svavar er þó ekki eini listamaðurinn sem
hefur sýnt verk eftir sig. Hann hefur bæði sett
sig í samband við listamenn sem hann vill sjá gera
veggspjald og listamenn hafa líka verið duglegir
að hafa samband við hann. „Það fer mikil vinna í
að halda þessu gangandi, stundum hrekkur mað-
ur upp í miðri viku og á eftir að redda listamanni.
En það næst alltaf.“
Eftir rúma tíu mánuði stefnir Svavar svo á
bókaútgáfu þar sem öllum 52 veggspjöldunum
verður safnað saman í veglega bók. „Þetta á
örugglega eftir að verða mjög fjölbreytt og
skemmtileg bók,“ segir Svavar.
matthiasarni@mbl.is
Hugmynd að veggspjaldi vikunnar kom í draumi
Tvö af þeim átta veggsjöldum sem hafa verið
til sýnis í Havarí í Austurstræti.
36 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010
Tónlistarfólkið Uni og Jón
Tryggvi hafa nú verið í Bandaríkj-
unum í þrjár vikur en þau eru um
þessar mundir á tónleikaferðalagi
þar vestra. Þau hafa nú þegar hald-
ið nokkra tónleika við góðar und-
irtektir, meðal annars á The
Beauty Bar í Austin í Texas. Fram-
undan er ferðalag til Santa Fe í
Ńýju-Mexíkó þar sem þau munu
halda tónleika en að því loknu
munu þau halda til Arizona og Kali-
forníu.
Uni og Jón Tryggvi gera
það gott í USA
Fólk
Það er ekki bara eldgosið á
Fimmvörðuhálsi sem vekur athygli
erlendis þessa dagana heldur einn-
ig ljósmyndir íslenskra ljósmynd-
ara af gosinu. Eitt virtasta tímarit
heims, National Geographic, hefur
birt fjölda mynda af eldgosinu á
heimasíðu sinni undanfarnar vikur.
Á heimasíðunni má finna þrjú al-
búm með myndum eftir þá Chris
Lund, Halldór Kolbeinsson og ljós-
myndara Morgunblaðsins, Ragnar
Axelsson. Það er því vel þess virði
að fylgjast með heimasíðunni, hvort
ekki birtist fleiri íslenskar myndir
af gosinu. Slóðin er www.national-
geographic.com.
National Geographic
sýnir eldgosinu áhuga
BMX-mót verður haldið í Vetrar-
garðinum í Smáralind á laugardag-
inn og hefst það kl. 15. Mót þetta er
boðsmót og munu BMX-kapparnir
Anton, Björgvin, Gulli, Haukur,
Maggi, Nonni og Róbert leika listir
sínar. Fyrir þá sem ekki vita er hér
átt við BMX-reiðhjól og menn sem
leika listir sínar á þeim.
Kúnstir leiknar á BMX
í Vetrargarðinum
FARIÐ var heldur óvenjulega leið
við fjármögnun kvikmyndarinnar
Vaxandi tungl en tökur byrjuðu um
páskana á Vestfjörðum.
Myndin segir frá andláti eldri
konu í litlu sjávarþorpi og deilum
sem upphefjast á milli sona hennar,
þeim eldri sem enn býr í þorpinu og
þeim yngri sem fluttur er í höfuð-
borgina. Óvænt þungun er svo til að
flækja málin enn frekar.
Að sögn Lýðs Árnasonar, leik-
stjóra myndarinnar, var ákveðið að
bjóða fólki að kaupa hlut í myndinni
sem beina fjárfestingu. Farið er í
framleiðsluna með því hugarfari að
það þurfi ekkert endilega að tapa á
henni eða að eina leiðin til að búa til
mynd hér á landi sé með ríkis-
styrkjum. „Aðstandendur verkefn-
isins trúa því að góð kvikmynd sé
góð söluvara og telja ízlenskan efni-
við úr okkar eigin reynsluheimi
áhugaverðasta kostinn,“ segir á
heimasíðu myndarinnar. Reikna að-
standendur myndarinnar með end-
urgreiðslu til hluthafa 15 mánuðum
eftir að tökur hefjast.
Á meðan á tökum stóð fyrir vest-
an var hægt að fylgjast með því sem
gerðist bakvið tjöldin á YouTube,
en þar birtust daglega myndbönd
með viðtölum við leikara og að-
standendur myndarinnar. Fram-
hald verður á því út framleiðslutím-
ann. „Myndin um það sem gerist
baksviðs gæti alveg eins verið
betri,“ segir Lýður og hlær.
Með aðalhlutverk í myndinni fara
Elva Ósk Ólafsdóttir, Pálmi Gests-
son, Birta María Gunnarsdóttir, Ár-
sæll Níelsson ásamt dönsku leik-
konunni Rakel Dimar, sem á ættir
sínar að rekja til Súgandafjarðar.
matthiasarni@mbl.is
Vaxandi tungl fjármögnuð
með almennu hlutafé
Vestfirðingar leika stórt hlutverk í kvikmyndinni
Við tökur Íslenskur raunveruleiki er hinn ákjósanlegasti efniviður.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ER netleikurinn Eve Online efni í
þjóðfræðirannsókn? Jú, ef marka
má rannsókn Óla Gneista Sól-
eyjarsonar sem
hann fjallar um í
meistararitgerð
sinni EVE On-
line: Leikir,
sköpun og sam-
félög. Óli flytur í
dag fyrirlestur
um þessa rann-
sókn, að-
ferðafræði sína
og niðurstöður.
Óli segir að
fæstir hugsi sér tölvuheima sem
sérstakt rannsóknarefni þjóðfræð-
inga og hann fjallar sérstaklega
um þá ögrun að fara nýjar leiðir í
þjóðfræðirannsóknum með því að
skoða samfélag tölvuleiks. Er yf-
irhöfuð eitthvað þar að finna sem
má flokka sem þjóðfræðiefni? spyr
Óli og svarið er einfalt: já.
„Þetta er ekki beinlínis eitthvað
sem fólki dettur í hug þegar það
er að leita sér að rannsóknarefni,“
segir Óli um efni ritgerðarinnar.
Mikil sköpunargleði
– Hverjar voru niðurstöður
þessarar rannsóknar, hvað stóð
upp úr?
„Það sem mér fannst mest
spennandi var hversu mikil sköp-
un á sér stað meðal spilaranna,
þeir eru ekki, eins og maður segir,
neytendur. Maður sér fyrir sér
einhvern sem situr fyrir framan
tölvuskjáinn og er nokkuð passíf-
ur, vinnur þrautirnar sem lagðar
eru fyrir hann, einhvern veginn,“
segir Óli. Það hafi komið honum
skemmtilega á óvart hversu mikil
sköpunargleðin er innan leiks sem
utan. „Þetta samfélag nær svo
langt út fyrir tölvuna,“ bendir Óli
einnig á og vísar í afar fjölmennar
ráðstefnur Eve Online hér á landi.
Minnast látins leikmanns
Óli segist einnig hafa skoðað
sérstaklega hóp leikmanna þar
sem einn dó, þ.e. í raunveruleik-
anum, en hinir í hópnum hittust til
að minnast hans og lögðu á sig
ferðalög milli landa til þess. „Þá
fundu þau þessa þörf, að þau væru
að missa af einhverju með því að
hittast ekki augliti til auglitis,“
segir Óli. Þessir leikmenn hafi átt-
að sig á því hvers virði vinátta
þeirra væri, vinátta sem hófst í
tölvuheimum.
Óli segir íslenska hópa leik-
manna einnig hittast, þ.e. hópa
sem eru að meirihluta skipaðir ís-
lenskum leikmönnum. „Það er svo
sem almennt þekkt úr leikjum,
það myndast þessi félagsandi,“
segir Óli.
Ritgerð Óla var gefin út af
Þjóðfræðistofu í fyrra og verða
eintök af bókinni til sölu á fyr-
irlestrarstaðnum. Fyrirlesturinn
er á vegum Háskóla Íslands og
Félags þjóðfræðinga á Íslandi og
er annar af þremur meistarafyr-
irlestrum þar sem nýlega útskrif-
aðir þjóðfræðingar segja frá rann-
sóknum sínum. Fyrirlesturinn
hefst kl. 17 í stofu 201 í Árna-
garði. Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Þjóðfræðin og Eve Online
Óli Gneisti Sóleyjarson rannsakaði samfélag tölvuleiksins Eve Online og skrif-
aði um það meistararitgerð í þjóðfræði Heldur fyrirlestur í dag um efnið
Morgunblaðið/Golli
Eve Fanfest Mynd tekin á alþjóðlegri árshátíð Eve Online, Eve Fanfest, í Laugardalshöll í fyrra. Fjórir gestir, þau
Shae, Krissi, Íris og Guðrún, mættu í viðeigandi gervum, þ.e. eins og persónur í leiknum vinsæla.
Óli Gneisti
Sóleyjarson