Morgunblaðið - 08.04.2010, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. APRÍL 2010
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
ÞEIR URÐU
HELLAÐIR
2010
OG VÖKNUÐU
UPP
ÁRIÐ 1986
HOTTUBTIME
MACHINE FÆR
FULLT HÚS
- 5 STJÖRNUR AF
FIMM MÖGULEGUM
SIGGI HLÖ – VEISTU
HVER ÉG VAR ?
– BYLGJAN
„...THE MOVIE
MADE ME LAUGH
AS MUCH AS
THE HANGOVER...“
– M.P. –TIME
HHHH
- J.N. – DAILY NEWS
HHHH
- NEWYORKTIMES
ÓVÆNTASTI GRÍNSMELLUR ÁRSINS
„HANGOVER Á STERUM“
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
HHHH
ENTERTAINMENT WEEKLY
„DÁSAMLEGA SKEMMTILEG FLUGFERГ
HHHH- EMPIRE
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU
OKKUR SHREK & KUNG FU PANDA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
SÝND Í ÞRÍVÍDD Í REYKJAVÍK
OG Á AKUREYRI
Í Í Í Í Í
I
HHHH
-H.S.S., MBL
/ ÁLFABAKKA
AÐTEMJADREKANNSINN m. ísl. tali kl. 3:403D -5:503D L 3D-DIGITAL MENWHOSTAREATGOATS kl. 8 - 10:10 12
HOWTOTRAINYOURDRAGON kl. 83D -10:103D m.ensku tali L 3D-DIGITAL NANNYMCPHEE kl. 3:40 - 5:50 L
HOTTUBTIMEMACHINE kl. 3:40-5:50-8-10:10 12 THE BLIND SIDE kl. 5:30-8-10:30 10
HUTTUBTIMEMACHINE kl. 3:40-5:50-8-10:10 VIP-LÚXUS BJARNFREÐARSON kl. 3:20 síðustu sýn. L
WHENINROME kl. 3:40-5:50-8-10:10 L
HOTTUBTIMEMACHINE kl. 8:10D -10:20D 12 WHENINROME kl. 5:50 - 8 L
AÐTEMJADREKANNSINN kl. 63D m. ísl. tali L MEN WHO STARE AT GOATS kl.10:10 12
ALICEINWONDERLAND kl. 5:503D L
/ KRINGLUNNI
Gæti valdið óhug
ungra barna
MENNINGARGRAFIÐ fjallar að
þessu sinni um hitt og þetta sem Al-
þingi gæti mögulega bannað með
lögum. Búið er að banna börnum
innan 18 ára að nota ljósa-
bekki og búið er að banna
nektardans. En hvað
verður bannað næst?
Loðnir teningar hang-
andi í baksýnis-
speglum bifreiða?
Múmínálfar? Út-
lenska? Sjónvarp?
Menningargrafið varpar
ljósi á möguleg lagabönn Al-
þingis í framtíðinni.
Á að banna
loðna teninga?
Það semAlþingi gæti mögulega bannað með lögum
9. Innflutning
á erlendum
matvælum
(íslenskur matur,
bestur í heimi!)
10. Lög sem
banna lög sem
bannaBA
NN
AÐ
BA
NN
AÐ
7. Akstur utan
Reykjavíkur
(það er svo
flókið að leggja á
vegtolla)
8. Hækkanir
á bensínverði
(skýrir sig sjálft)BA
NN
AÐ
BA
NN
AÐ
5. Loðna
teninga á bak-
sýnisspeglum
(það er bara
svo hrikalega
hallærislegt!)
6. Skoðanir
(alltof mikið af
þeim út um allt
og sérstaklega á
netinu)
BA
NN
AÐ
BA
NN
AÐ
3. Útlensku
og útlendinga
(Ísland er best í
heimi!)
4. Dressman-
auglýsingar
(hlutgerving
karla)B
AN
NA
Ð
BA
NN
AÐ
1. Að standa í
biðröð (reyndar
kunna Íslend-
ingar varla að
standa í biðröð)
2. Múmínálfa
(af því bara)BA
NN
AÐ
BA
NN
AÐ
MENNINGARGRAFIл
Það koma stundum út mynd-ir sem erfitt er að setja íákveðinn flokk. Myndireftir Wes Anderson, eins
og til dæmis The Royal Tenen-
baums, og I Heart Huckabees eftir
David O. Russell eru þeirra á meðal.
Nú er ég ekki að segja að I Love You
Phillip Morris sé endilega lík þeim
myndum, en hún er ein af þeim sem
erfitt er að skilgreina.
I Love You Phillip Morris fjallar
um Steven Russell (Carrey), ham-
ingjusamlega giftan lögreglumann. Í
upphafi myndarinnar liggur hann
fyrir dauðanum og segir frá því
hvernig hann lenti í árekstri sem
breytti lífi hans; í kjölfarið skilur
hann við konuna sína, kemur út úr
skápnum og fer að lifa góða lífinu,
sem snýst allt um kynlíf, peninga og
þægindi.
En góða lífið kostar peninga og
þeirra aflar Steven sér með svikum
og prettum. Á endanum næst hann
og er stungið í steininn þar sem
hann hittir hinn viðkvæma Phillip
Morris (McGregor) og verður yfir
sig ástfanginn. Steven heitir því þeg-
ar hann losnar að fá Phillip lausan
líka, og saman sjá þeir fyrir sér að
lifa hamingjusamir til æviloka. Stev-
en kemst þó fljótlega að því að með
því að blekkja aðra þá blekkirðu
sjálfan þig og ekki fer allt sem horf-
ir.
I Love You Phillip Morris er
byggð á sannsögulegum viðburðum í
lífi Stevens Jays Russells, sem vann
sér það til frægðar að sleppa oftsinn-
is úr fangelsum þar sem hann sat af
sér dóma fyrir hin ýmsu svik. Þó svo
atburðum sé hér aðeins breytt er
saga hins raunverulega Stevens
lygileg.
Myndin er að sjálfsögðu fyrst og
fremst gamanmynd en hún er líka
ótrúlega ljúfsár og á sama tíma
mátulega súr. Bæði Carrey og
McGregor eiga verðlaun skilið fyrir
leik sinn í myndinni. Það sést á
stundum glitta í hinn dæmigerða
Carrey-karakter en hann tekur aldr-
ei yfir og því tekst leikaranum að
gera tilfinningaríkar senur mynd-
arinnar skemmtilega trúverðugar í
öllum farsanum. McGregor er líka
stórkostlegur sem hinn peni Phillip
Morris.
Það verður bara að segjast eins og
er, og ég er viss um að margir í saln-
um voru að hugsa: þeir eru svo gay!
Kynlífsatriði og kossar kölluðu á
fliss og hlátur og ég er ekki frá því
að einhverjir hafi sopið hveljur. En
það gerist einmitt bara vegna þess
að myndin er ekki of fáránleg og
persónurnar ekki ýktar út í eitt. Hér
ganga menn skrefinu lengra en í
Brokeback Mountain; við fáum að
sjá.. Og að sjá tvo leikara af þessu
kalíberi vera innilega er eitthvað
skrýtið og kjánalegt en samt á góðan
hátt. Ég er mest hissa á því að sum
atriðin skuli yfirhöfuð hafa tekist;
hvernig leikurunum tveimur og
tökufólkinu tókst að halda andlitinu
og springa ekki úr hlátri er merki-
legt út af fyrir sig.
I Love You Phillip Morris er góð
og upplífgandi mynd. Hún er fyndin,
sagan er skemmtileg, handritið gott
og það er nógu mikil alvara í henni
til að það leysist ekki allt upp í ein-
hverja vitleysu. Hún er ögrandi og
eflaust ekki fyrir alla, en það er bara
eitthvað alveg ómótstæðilegt við að
sjá Jim Carrey og Ewan McGregor
knúsast aðeins.
Hommar, svik og prettir
Turtildúfur Ewan McGregor og Jim Carrey eru frábærir í hlutverkum sínum sem elskhugarnir tveir.
Smárabíó, Laugarásbíó og
Borgarbíó
I Love You Phillip Morris
bbbbn
Leikstjórar og handritshöfundar: Glenn
Ficarra og John Requa. Aðalhlutverk:
Jim Carrey og Ewan McGregor. Banda-
ríkin og Frakkland. 2009. 102 mín.
HÓLMFRÍÐUR
GÍSLADÓTTIR
KVIKMYNDIR