Nýr Stormur - 01.10.1965, Page 4
"ðfomtm
4
POSTUDAGfCR 1. október 1965
IN MEMORIAM
Framhald af 2. síðu.
on, þar sem flokksbróðir þinn,
Wilson, á í vök aS verjast, og
sýnir það drenglyndi þitt að
vera þar til staðar, sem mest
á reynir. Ef til vill gætir þú
veitt leiðbeiningar um það,
hvemig íhaldsflokkar og sósíal
demókrataflokkar geta unnið
saman og jafnframt kennt hon
um leyndardóminn um að
gera sósíaldemókrat að sósíal
aritstókrata.
Sagt er að Wilson berjist við
skuldir stórar og erfiðar. Ekki
er að efa að þú myndir geta
kennt honum ráð við að leysa
þann vanda. Mætti til dæmis
benda honum á að véfengja
skuldirnar, gefa loforð, svíkja
þau æ ofan í æ. Hleypa síð
an málunum fyrir dómstólana,
fá fresti á frest ofan og nota
sér seinagang þeirra til að
draga að greiða í lengstu lög.
Þegar svo fokið er í öll skjól,
mætti benda honum á að gera
tilraun að gera upp skuldirnar
með 1/8. per. kontant, eins
og Bör Börson myndi sagt hafa.
Nú ef þetta gengi ekki að held
ur, væri hægt að benda honum
á lokaúrræðið, en það er að fá
peninga til að greiða skuldirn
ar hjá Bandaríkjamönnum, því
að þeir hafa líka herstöðvar á
Englandi. Meðan á öllu þessu
gengi, myndi tíminn með geng
isfellingum og óðaverðbólgu
lækka svo skuldina, að hún
yrði ekki tilfinnanleg. Ég veit
að þú kannt öll þess heillaráð
og mætti þá svo fara, að ekki
yrði hátt risið á lánadrottnum
Breta á eftir. Einnig myndir
þú geta kennt Wilson ráð til
að treysta eigin efnahag með
'hliðarráðstöfunum, því að
sagt er, að hann sé fremur
snauður maður. Ég vil svo að
lokum minnast þín persónulega,
kæri vinur! Þú hefur verið
mér hugstæður frá því ég sá
þig fyrst fyrir 28 árum, en þá
varst þú á skrifstofunni hjá
honum Stefáni Jóhann. í það
sinn skuldaði ég þér. Stjama
þín var að byrja að skríða
upp á himininn, fyrir tilstilli
Stefáns Jóhanns. í þá daga
átti ég eina hugsjón og hún
var að vinna fyrir Alþýðuflokk
inn í baráttu hans fyrir hags-
munum hins snauða manns. Ár
ið áður hafið ég verið í hópi,
sem smalað var upp í Alþýðu
húskjallara (húsið þitt) á
stofnfund Byggingafélags verka
manna. Hópur þessi var úr
Félagi ungra jafnaðarmanna,
og þar hittum við marga góða
Sjálfstæðismenn. Héðinn Valdi
marsson var orðinn óhæfur um
að hafa forgöngu um bygginga
mál verkamanna þótt hann hefði
áður haft þar alla forystu. Stef
án var þá félagsmálaráðherra
og þótti einsýnt, að þú værir
einmitt rétti maðurinn til að
taka við þessari forystu, en til
þess þurfti bráðabirgðalög, og
Stefán setti þau.
Árið síðar var haldinn aðal
fundur, en á hann gat ég
ekki komið. Var það ástæð
an til þess að ég kom síðan á
þinn fund. Ég var með peninga
handa þér, heilar fimm krón
ur, aleigu mína, sem ég ætlaði
að greiða þér til að halda rétt-
indum mínum í félaginu, sem
gat komið sér vel seinna meir.
Þá kenndir þú mér fyrstu
lexíuna um skilvísi, og þá
fékk ég strax í fyrsta sinn að
kynnast því hve þú ert rétt
látur maður. Þú gazt ekki tekið
við greiðslu á fimm krónunum,
sem var félagsgjaldið, vegna
þess að það skyldi greiða á
aðalfundi. Þar með var fé-
lagi nr. 43 strikaður út af
félagaskránni. Það skiptir raun
ar engu máli, fyrst réttlætinu
var fullnægt.
Mér þótti að vísu súrt í
broti, þótt ég væri fimm krón-
um ríkari. Mér fannst ég
ekki sekur um vanskil, vegna
þess að ég hafði lögleg forföll.
Síðar hef ég verið að reyna að
finna aðra skýringu á þessari
breytni þinni, en hún er sú,
að þú neitaðir að taka við
þessum peningum, stafaði af
meðfæddri andúð þinni á því
að taka við peningum yfirleitt.
Þegar þú nú hverfur á braut,
minnumst við þín með óum-
ræðilegu þakklæti fyrir allt,
sem þú hefir fyrir þjóð þína
og flokk gert.
Þú hefir fórnað beztu ár-
um ævi þinnar í þrotlaust strit
og starf fyiir fólkið í landinu,
og árangurinn hefir heldur
ekki látið á sér standa. Alls
staðar blasir við ró og friður,
hagsæld og hamingja.
Og svo er umhyggja og fyr
irhyggja þín mikil fyrir landi
og þjóð, að þú hefir svo frá
öllum hnútum gengið, er þú
sjálfur hverfur héðan, að
þjóð þín er varin fyrir öllum
óvinum, þótt að vísu ekki sé
vitað til að hún eigi neina,
Þótt ævistarfi þínu væri nú
lokið, sem ekki er, gætir þú
með stilti sagt: — Geri aðrir
betur. Eins og kunnugt er, er
Brezka krúnan ■ein hin dýrð
legast í öllum heiminum, og
fer vel á því, að þú gerist
þar hirðmaður. Á sama hátt
og brezka þjóðin mun blessa
þann dag, er þú stígur þínum
fróma fæti á enska grundu,
blessar íslenzka þjóðin minn
ingu utanríkisráðherra síns,
sem leitt hefir hana farsællega
gegnum brim og boða í heimi,
þar sem veður eru öll válynd.
Og í hinu nýja lífi þínu, sem
varðmaður þjóðarinnar í fram-
andi landi fylgja þér heilla-
óskir landvætta og þjóðar
innar allrar og vonir um, að
Herveldið Kína
Framhald af 5. síðu
staðreynd, að kínverski flug
flotinn mun smám saman
dragast afturúr, því það sem
sagt hefur verið hér að fram
an ,mun valda því, að oft
verður að taka sundur vélar,
til þess að fá varahluti.
í aðrar sem bilaðar eru.
Kennsla nýrra flugmanna
verður því að takmarkst af
þessum orsökum. Talið er,
að fullnaðar kennslu-
stundir kínverska flugmanna
séu í dag ekki meira en 10
flugtímar á mánuði á flugi,
sem er helmingur þess tima,
sem á amerískan mælikvarða
er álitinn nauðsynlegur til
þess, að halda flugmanni í
fyrsta flokks æfingu. Bæði
til sóknar og varnar er kín-
verski flugflotinn því álitinn
vera mjög veikbyggður. Það
þú unir þar ævi þinni unz
kvöldið kemur. Og er að skapa
dægri þínu kemur, sem við von
um öll að verði langt að bíða,
erum við þess fullviss, að
þér verður ekki skipaður ó-
veglegri sess meðal útvaldra,
en í höll drottningar. Ég
kveð þig svo, kæri vinur og vel
gerðarmaður — að eilífu.
P.F.
P.S. Væntanlega verður séð
svo um, að þú haldir ráðherra
launum þínum óskertum í
næstu sex mánuði, án þess að
Ambassadorslaun þín verði
skert. Með eilífðarkveðjum.
Sami.
er skoðun manna sem taldir
eru hafa þekkingu á þessum
málum, að í þeim munu ekki
verða neinar breytingar,
nema Kínverjar geri eínhverj
ar breytingar á stefnu sinni
gagnvart Sovétríkjunum.
Lítilfjörlegur floti.
Flotastyrk Kína má kalla
óverulegan í samanburði við
7 flota Bandaríkjanna, hinn
volduga flota, sem ávallt hef
ur bækistöðvar sínar á vest
anverðu Kyrrahafi. Kínverski
flotinn, sem skiftur er í norð
læga, vestlæga og suðlæga
flotadeild, samanstendur
af átta tundurspillum, nálægt
25 kafbátum, um það bil 250
varðskipum og ca. 700 létt-
vopnuðum fljótabátum.
Stærsta skip flotans, sem fyr-
ir löngu er orðið úrelt, liggur
fyrir akkerum á höfninni í
Shanghai og er notað sem
kennsluskip fyrir nýliða.
Framhald í næsta blaði.
MADE IN U.S.A.
„Camei stund
er ánægju stund!u
Kveikið í einni Camel og njótið
ánægjunnar af gæðatóbaki, mildu
og hreinræktuðu tóbaksbragði.
BEZTA TÓBAKIÐ GEFUR BEZTA REYKINN.
strax í dag!