Nýr Stormur - 14.11.1969, Side 6
6
FÖSTUDAGUR 14. nóv. 1969.
Breiðliolt
Framhald af bls. 8.
unni og sá þar út (í vetur
sem leið var þar stundum
haft teppi fyrir).
Skilrúmið milli stofu og
svefnherbergja er þannig,
að þilplöturnar ná þar
sumsstaðar ekki upp að
lofti. Þar er eitthvert klast-
ur — þó ekki einlitt. Múr-
húðuð horn í herbergjunum
eru hvöss og þola svo sem
enga viðkomu — þá hvarn-
ast úr þeim (efni í múr-
húðuninni innanhúss virð-
ist því Iélegt). Trúlega hefði
mátt hafa styrkari blöndu
eða annan umbúnað á horn
unum.
Gljáhúð á skápum virð-
ist óvandvirk, þannig að
sumstaðar er góð áferð en
annarsstaðar virðist ein um
ferð hafa verið látin duga
og skáparnir því skjóttir. —
Og svo að endingu hurðirn-
ar. Við þær hefur verið
endalaus orrusta. Þær voru
í upphafi og eru enn marg-
ar skakkar í körmum. Sfga
á lömum. Eitthvað er bogið
við efniviðinn í körmunum,
því lamirnar hafa hrein-
lega rifið sig af (virðast
ekki halda skrúfum).
í þessu húsi eru margar
íbúðir og vel má vera að
þær séu vel gerðar. Ég þekki
það ekki. Hvort þarna hef-
ur verið um viljandi eða
óviljandi vinnusvik og ó-
vandvirkni að ræða skiptir
ekki máli fyrir þá sem fyrir
svikunum verða. Heldur
hitt að þetta verði bætt.
Einhver hlýtur að vera
ábyrgur.
Þórarinn frá Steintúni.
séð
ullina af
glerdýrinu ?
Hlý eins og ull, sterk eins og gler.
Tveir aðalkostir, sá þriðji, en ekki lakasti kostur gler-
ullarinnar er: hún er frá
FIBERGLASS
og kostar 77 krónur fermetrinn.
Og svo er það LITAVER, sem gefur þér kost á að
sjá og sannfærast.
Lítið við í LI7AVERI
— ÞAÐ BORGAR SIG —
GEFJUN
Hann er öruggur um gott efni
frá Gefjun.
Hann er öruggur um gott snið
frá Gefjun.
Hann er öruggur um hag-
kvæmt verð frá Gefjun.
ÖRUGG TRYGGING VERÐS
OG GÆÐA.
Efnahagsaðstoð
Framhald af bls. 1.
um Bandaríkjamenn hljóta
að taka í íaumana áður en
þessi ljóti andarungi í hópi
þeirra færist alveg í kaf.
Halda forráðamenn þjóðar-
innar í raun og veru að
þeim takist að halda fleyt-
unni ofansjávar endalaust
með bráðabirgðalánum og
yfirdrætti hjá erlendum
lánastofnunum til skamms
tíma?
Það fer ekki á milli mála
að þetta er álit meginþorra
manna. Það sjá allir heil-
vita menn að ástandið fer
hríðversnandi og það sjá
líka allir heilvita menn að
ríkisstjórnin ræður ekki við
ástandið þrátt fyrir vafa-
laust ágætan vilja. Menn
sjá líka að þótt stjórnar-
skipti verði og stjórnarand
staðan tæki við ein eða í
samvinnu við þá, sem nú
eru í stjórn, myndi ekki
takast að gera nein krafta-
verk.
Það er staðreynd að afla-
brögð eru góð, verðlag hátt
og auðvelt að selja hvern
ugga — en þrátt fyrir þetta
eru engar líkur til að unnt
verði að rétta efnahag þjóð
arinnar við, nema þá ef til
vill á afarlöngum tíma og
með þungum fórnum hvers
einasta þjóðfélagsþegns —
svo að segja.
RAUÐARÁRSTÍG 31