Morgunblaðið - 29.05.2010, Blaðsíða 1
GYLFI ÞÓR VILL
SKORA Í FYRSTA
LANDSLEIKNUM
HÖGNI
BYLTING
EVRÓVISJÓN
BRÆÐURNIR ERU
SVALANDI VEISLA
SUNNUDAGSMOGGINN IÐANDI SÝNING 50ÍÞRÓTTIR
Kristín Heiða veltir fyrir sér
mannslíkamanum og dansi
Stofnað 1913 123. tölublað 98. árgangur
L A U G A R D A G U R 2 9. M A Í 2 0 1 0
Sæktu um á www.hr.is
GRUNNNÁM
MEISTARANÁM
DOKTORSNÁM
Leiða má að því líkur að nýju
bankarnir hafi keypt yfirdrátt
heimilanna af gömlu bönkunum
með 40 prósenta afslætti, að sögn
Breka Karlssonar, forstöðumanns
Stofnunar um
fjármálalæsi.
Seðlabankinn
birti í síðustu
viku bráða-
birgðagögn um
reikninga ís-
lenska banka-
kerfisins og er
það í fyrsta sinn
frá bankahruni
sem þessar tölur
eru birtar.
Kemur þar
fram að í sept-
ember 2008 námu yfirdráttarlán
hjá íslenskum bönkum 251,5 millj-
örðum króna. Þremur mánuðum
síðar, eða í desember sama ár, nem-
ur yfirdráttur í bókum bankanna
129,7 milljörðum króna. Seðlabank-
inn færir yfirdráttarlán ekki sem
stöðu gagnvart viðskiptavinum
bankanna, heldur eins og þau eru
bókfærð í bönkunum. »24
Nýju bankarnir
fengu yfirdráttinn
með afslætti
Kosið utan kjörfundar
» Við lokun kjörstaðar í Laug-
ardalshöll í gærkvöldi höfðu
7.839 atkvæði borist.
» Til samanburðar greiddu
8.500 atkvæði utan kjörfundar
um Icesave.
» Í alþingiskosningum 2009
voru það 13.000 og 12.500 í
sveitarstjórnarkosningum
2006.
Kosið verður til sveitarstjórna í dag
og eru kjörstaðir almennt opnir frá
kl. 9 árdegis til kl. 22. Skömmu eftir
lokun kjörstaða ættu fyrstu tölur að
liggja fyrir. Mikil spenna er í flestum
sveitarfélögum og óvissa, enda
benda skoðanakannanir til að mikil
endurnýjun muni eiga sér stað.
Samkvæmt könnun sem Capacent
gerði fyrir Ríkisútvarpið og birt var í
gærkvöldi fengi Besti flokkurinn sex
borgarfulltrúa, einum minna en sam-
kvæmt könnun sem Capacent gerði
fyrir Morgunblaðið og birt var í vik-
unni. Sjálfstæðisflokkur bætir í
sömu könnun við sig einum manni og
fengi fimm, Samfylkingin þrjá og
Vinstri grænir einn. Önnur framboð
næðu ekki manni inn í borgarstjórn.
Þá vilja flestir sjá Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, oddvita sjálfstæðis-
manna, sem borgarstjóra.
Ekki rétt að útiloka samstarf
Í umræðuþætti Sjónvarpsins í
gærkvöldi lýsti Hanna Birna Krist-
jánsdóttir sig reiðubúna til sam-
starfs við hvern þann flokk sem vildi
fylgja Sjálfstæðisflokknum í vegferð
borgarbúum til góðs. Hún sagði
einnig, að sér fyndist ekki rétt að
kjörnir fulltrúar borgarbúa útilok-
uðu samstarf við aðra flokka.
Við sama tækifæri lýsti Sóley
Tómasdóttir, oddviti Vinstri
grænna, því yfir að hún útilokaði
meirihlutasamstarf með Sjálfstæðis-
flokki. Áður hefur Dagur B. Egg-
ertsson, oddviti Samfylkingarinnar,
sagt samstarf við Sjálfstæðisflokk-
inn langsótt. Oddvitar annarra
flokka vildu hins vegar ekki útiloka
neitt mögulegt samstarf.
Komið að úrslitastund
Sjálfstæðisflokkur bætir við sig einum borgarfulltrúa milli kannana og fær fimm
Besti flokkurinn mælist enn stærstur með sex borgarfulltrúa og missir einn
Morgunblaðið/Eggert
Kosningar Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri og Jón Gnarr, oddviti Besta flokksins, gerð klár fyrir beina útsendingu í Sjónvarpinu í gærkvöldi.
MTalningarmenn lokaðir »14
Morgunblaðið/Kristinn
Á lofti Uppboð heimila fólks sem
fengið hefur frest hefjast í júní
Skúli Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
Verði frumvörp sem liggja fyrir Al-
þingi að lögum í tæka tíð gætu úr-
ræði samkvæmt þeim leitt til þess að
ekki yrði af nauðungaruppboðum á
heimilum þeirra sem fengið hafa
frest samkvæmt bráðabirgðaákvæði
laga um nauðungarsölu. Voru frestir
veittir í málum þar sem í hlut áttu
heimili skuldara en fyrstu frestir
sem veittir voru taka brátt að renna
út. Meðal þeirra úrræða sem um er
að ræða er greiðsluaðlögun fyrir ein-
staklinga og heimild fólks til að búa á
heimilum sínum í allt að eitt ár eftir
nauðungarsölu.
Forsætisráðherra og félags- og
tryggingamálaráðherra vilja að Al-
þingi afgreiði frumvörpin sem fyrst
en fyrstu umræðu um þau er lokið.
Fyrstu uppboð eigna fólks sem feng-
ið hefur frest verða aðra vikuna í júní
fari sem horfir.
Ráðherrar félags- og trygginga-
mála annars vegar og dóms- og
mannréttindamála hins vegar eru
flutningsmenn frumvarpanna sem
lögð voru fram fyrr á árinu. »6
Reynt að forðast hamarinn
Ný lög gætu forðað heimilum fólks frá nauðungaruppboði
Jóhanna Sig-
urðardóttir for-
sætisráðherra
segist ekki hafa
lagt að Steinunni
Valdísi Óskars-
dóttur að segja
af sér þing-
mennsku fyrir
Samfylkinguna.
Ekki hafi heldur
verið lagt sér-
staklega að henni innan þingflokks-
ins. „Hún tók þessa ákvörðun sjálf
og ég tel að hún hafi gert það af
mikilli auðmýkt og mikilli reisn,“
segir Jóhanna. Varaformaður Sam-
fylkingarinnar og oddviti flokksins
í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson,
hefur ekki svarað skilaboðum
Morgunblaðsins, til að tjá sig um af-
sögn Steinunnar, og heldur ekki
efstu frambjóðendur á lista flokks-
ins í borginni. »4
Ekki lagt að Stein-
unni að segja af sér
Steinunn Valdís
Óskarsdóttir
252
milljarða kr.
yfirdráttarlán
í september
2008
130
milljarða kr.
yfirdráttarlán í
desember 2008