Morgunblaðið - 29.05.2010, Qupperneq 6
FRÉTTASKÝRING
Skúli Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
Á Alþingi liggja nú fyrir fjögur
stjórnarfrumvörp sem ætlað er að
bæta stöðu skuldara gagnvart
kröfuhöfum sínum og gera þeim
kleift að standa við skuldbindingar
sínar. Nái þau fram að ganga áður
en frestir samkvæmt bráðabirgða-
ákvæði laga um nauðungarsölu
renna út gætu þau orðið til þess að
skuldarar komist hjá því að missa
heimili sín í hendur kröfuhafa á
nauðungarsölu.
Fyrstu frestirnir sem veittir voru
renna senn út, en þeir voru aðeins
gefnir í málum þar sem um var að
ræða heimili fólks. Fari sem horfir
munu 50 heimili sem fengið hafa
frest fara á nauðungarsölu í Reykja-
vík í júní og 25 á Akureyri.
Skuldurum veitt úrræði
Árni Páll Árnason, félags- og
tryggingamálaráðherra, er flutn-
ingsmaður þriggja frumvarpanna
og segist vona að þingið muni af-
greiða frumvörpin áður en fyrstu
eignir fara á nauðungarsölu aðra
vikuna í júní. Alþingi kemur saman
á ný eftir sveitarstjórnarkosningar
á mánudag.
„Markmiðið er að fólk hafi við-
unandi viðspyrnu og úrræði til að
semja um sín skuldamál og haldi
sínu húsnæði,“ segir Árni Páll og
kveður frest samkvæmt bráða-
birgðaákvæði laga um nauðungar-
sölu ekki hafa átt að fela í sér eig-
inlega lausn á skuldavandanum.
Í fyrstu grein frumvarps Árna til
laga um greiðsluaðlögun ein-
staklinga segir að þeim sé ætlað að
gera „einstaklingum í verulegum
greiðsluerfiðleikum kleift að end-
urskipuleggja fjármál sín og koma á
jafnvægi milli skulda og greiðslu-
getu“. Verði þetta frumvarp auk
hinna þriggja að lögum hyggur Árni
Páll að úrræði þeirra geti leyst
vanda margra sem glíma við
greiðsluerfiðleika. Þau efli samn-
ingsstöðu skuldara, tryggi rétt
þeirra við nauðungaruppboð fast-
eigna þeirra og með lögum um um-
boðsmann skuldara fái þeir mál-
svara sem gætir hagsmuna þeirra.
Fá að leigja seld heimili sín
Fjórða frumvarpið sem um ræðir
kveður á um breytingar á lögum um
gjaldþrotaskipti, lögum um nauð-
ungarsölur og fleiri lögum. Ragna
Árnadóttir, dómsmála- og mann-
réttindaráðherra, er flutnings-
maður frumvarpsins, en í því er lagt
til að mögulegt verði að leyfa fólki
að búa í húsnæði sínu gegn leigu í
allt að eitt ár eftir að það hefur verið
selt nauðungarsölu. Lagt er til að
samskonar ákvæði verði einnig tek-
ið upp í gjaldþrotalög.
Þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir
að við nauðungarsölu lækki allar
kröfur á hendur skuldara í sam-
ræmi við markaðsverð eignar burt-
séð frá því hvað fæst fyrir eignina.
Með þessu er réttur skuldara betur
tryggður en nú er það svo að við út-
reikning á eftirstandandi skuldum
er miðað við það verð sem fæst við
nauðungarsölu.
Í öndunarvél fjármálakerfis
„Við lítum á þetta þannig að [úr-
ræðin] séu öndunarvélar fjár-
málakerfisins,“ segir Friðrik Ó.
Friðriksson, formaður Hagsmuna-
samtaka heimilanna, og segir að
meira þurfi að gera til að tryggja að
sem fæstir þurfi að notfæra sér úr-
ræðin.
„Við höfum ítrekað sagt að það
þurfi að fara í tafarlausar leiðrétt-
ingar skulda,“ segir Friðrik og segir
fólki haldið á floti í stað þess að það
sé dregið á land.
Morgunblaðið/Kristinn
Undan hamrinum? Verði frumvörpin að lögum í tæka tíð munu ný úrræði skuldara verða virk áður en heimili þeirra verða seld nauðungarsölu.
Setja lög í kapp við tímann
Nái frumvörp tveggja ráðherra fram að ganga í tæka tíð veitist skuldurum
færi á að leysa úr vanda sínum áður en heimili þeirra fara á nauðungarsölu
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2010
„Að sjálfsögðu
liggur á þessu,“
segir Ásta S.
Helgadóttir, for-
stöðumaður Ráð-
gjafarstofu um
fjármál heim-
ilanna, um úrræði
frumvarpa sem
varða greiðsluað-
lögun og stöðu
skuldara.
Úrræðin sem felast í frumvörp-
unum telur hún verða til bóta fyrir
þá sem þurfa á aðstoð vegna
greiðsluerfiðleika að halda og ein-
falda greiðsluaðlögunina.
Hún segir nokkuð af fólki leita að-
stoðar sem hefur fengið nauðung-
arsölu frestað samkvæmt bráða-
birgðaákvæði laga um
nauðungarsölu. Hún segir fólk oft
draga fram á síðustu stundu að leita
sér aðstoðar. „Oft er fólk mjög kvíð-
ið en þegar þetta er komið alveg á
síðasta dag er svo erfitt að gera eitt-
hvað,“ segir Ásta og hvetur fólk til
að leita aðstoðar sem fyrst. Sími ráð-
gjafarstofunnar er 512-6600 og vef-
síðan er www.rad.is.
Liggur á
að úrræðin
verði tiltæk
Mikilvæg þeim sem
eru í greiðsluvanda
Ásta S.
Helgadóttir
„Ég legg þunga
áherslu á að um-
rætt frumvarp
verði afgreitt í
júní,“ segir Jó-
hanna Sigurðar-
dóttir forsætis-
ráðherra um
frumvarp dóms-
mála- og mann-
réttindaráðherra.
Hún segir að
úrræði þau sem kveðið er á um í
frumvarpinu muni „stórlega bæta
réttarstöðu“ skuldara. Hún telur þá
breytingu að eftirstöðvar skulda
verði reiknaðar út frá söluverði en
ekki markaðsvirði og að fólk fái að
búa áfram í seldum heimilum sínum
eftir nauðungarsölu muni vega
þungt í baráttu skuldara í greiðslu-
erfiðleikum. Þá telur hún að þeir
frestir sem þegar hafa verið veittir
hafi veitt skuldurum svigrúm til að
vinna bug á greiðsluvanda sínum.
Vill að lögin
verði afgreidd
í júnímánuði
Jóhanna
Sigurðardóttir
Í frumvarpi til laga um umboðs-
mann skuldara er kveðið á um að
ríkisstofnun með því nafni verði
sett á fót. Henni skuli ætlað að
gæta hagsmuna og réttinda þeirra
sem eiga í verulegum greiðsluerf-
iðleikum. Umboðsmaður skal hafa
umsjón með aðlögun greiðslna að
greiðslugetu skuldara, taka við
ábendingum um ágalla í lánastarf-
semi og veita alhliða ráðgjöf um
fjármál heimila. Þá skal hann setja
verklagsreglur um framkvæmd
greiðsluaðlögunar. Í þriðju grein
frumvarps til laga um greiðsluað-
lögun er heimild til að veita skuld-
ara algera eftirgjöf krafna, hlut-
fallslega lækkun þeirra, gjaldfrest,
skilmálabreytingar, breytt
greiðsluform og fleiri úrræði.
Beita má öllum úrræðum grein-
arinnar í senn. Þurfi þess með
verður hægt að fá greiðsluaðlögun
fram með dómi.
Bæði lagafrumvörpin voru tekin
til fyrstu umræðu í apríl.
Lög sett til verndar skuldurum
UMBOÐSMAÐUR SKULDARA OG GREIÐSLUAÐLÖGUN
Séra Bragi Reynir
Friðriksson andaðist
fimmtudaginn 27. maí.
Hann var 83 ára.
Bragi fæddist 15.
mars 1927 á Ísafirði.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri
árið 1949 og embættis-
prófi í guðfræði frá Há-
skóla Íslands 1953.
Sama ár var Bragi
kallaður til prestsþjón-
ustu í Kanada og vígð-
ist hann það ár. Hann
var framkvæmdastjóri Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur frá 1957 til 1964 og
var á sama árabili formaður Æsku-
lýðsnefndar þjóðkirkjunnar.
Árið 1966 tók Bragi við Garða-
prestakalli og árið 1977 var hann
skipaður prófastur í Kjalarnespró-
fastsdæmi. Árið 1997 var honum
veitt lausn frá prests-
og prófastsembætti.
Sinnti Bragi ýmsum
trúnaðar og félags-
störfum um ævina.
Hann var fulltrúi þjóð-
kirkjunnar í Alþjóða-
kirkjuráðinu 1954,
meðstofnandi ung-
mennafélagsins Stjörn-
unnar í Garðabæ árið
1960 og formaður Þjóð-
ræknisfélags Reykvík-
inga árin 1974-1980.
Braga var veitt Paul
Harris Fellow-viður-
kenning Rótarýhreyfingarinnar
1996. Árið 1997 varð hann heið-
ursfélagi Rótarýklúbbsins Görðum
og Skátafélagsins Vífils. Hann var
kjörinn heiðursborgari Garðabæjar
árið 2001. Eftirlifandi eiginkona séra
Braga er Katrín Eyjólfsdóttir. Þau
eiga fjögur uppkomin börn.
Andlát
Séra Bragi Reynir
Friðriksson látinn Ákveðið hefurverið að fella nið-
ur hátíðahöld í
tengslum við svo-
nefnda Hátíð
hafsins, sem hald-
in hefur verið á
Akranesi á laug-
ardeginum fyrir
sjómannadag sl. fjögur ár. Skv.
upplýsingum Tómasar Guðmunds-
sonar,verkefnastjóra Akranesstofu,
voru framlög til viðburða á vegum
Akraneskaupstaðar lækkuð mjög í
kjölfar efnahagshrunsins og ljóst
að breyta þyrfti verulega tilhögun
og framkvæmd vegna þeirra við-
burða sem haldnir væru á Akranesi
ár hvert. „Af þessum sökum verður
að fella niður umrædda Hátíð hafs-
ins að þessu sinni. Ítrekað skal að
þetta hefur engin áhrif á skipu-
lagða dagskrá á sjómannadegi,
enda hefur Akraneskaupstaður
ekki komið að skipulagi dagskrár á
þeim degi,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Engin Hátíð
hafsins í ár