Morgunblaðið - 29.05.2010, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2010
Frambjóðandi á vegum Dags Egg-ertssonar kippti teppinu undan
Steinunni Valdísi flokkssystur
hans. Leikritið var sett þannig upp
að segði hún ekki þegar af sér yrði
henni kennt persónulega um ófarir
Dags. Það réð borgarstjórinn fyrr-
verandi ekki við. Afsagnarástæðan
var meðal annars sú að hún hefði
hlotið eitthvað hærri fúlgur en
Dagur í prófkjöri sem bæði tóku
þátt í árið 2006.
En Jóhanna ogDagur höfðu
áður vísað öllum
umkvörtunum
um siðleysi Sam-
fylkingarmanna
til sérstakrar
umbótanefndar
sem skyldi rann-
saka styrkja-
málið og velta við hverjum steini.
Rannsóknin átti þó að takmarkast
við styrki frá og með árinu 2007.
En frá þeim tíma hafa ekki farið
fram nein prófkjör fyrr en nú í ár.
Snjallt.
Samfylkingin á enn eftir að skipasérstaka umbótanefnd til að
rannsaka hegðun og umgengni í
miðbænum á nóttunni, en und-
irbúningur þess máls er sem betur
fer vel á veg kominn.
Til að einfalda málið hefur þegarverið ákveðið að rannsaka um-
gengni og hegðun í miðbænum á
milli kl 3 og 6 á daginn, sem er bæði
aðgengilegra en á nóttunni og talið
gefa jafngóða mynd af ástandinu.
Mun sama nefnd og rannsakarstyrkina sjá um þessa rann-
sókn og getur þá borið umgengnina
saman við þá styrki sem safnað var
á árunum 2007–2009 þegar engin
prófkjör fóru fram og eru talin gefa
góða mynd af sukkárunum.
Velta skal hverjum steini. Stak-steinar ætla að velta með.
Dagur B.
Eggertsson
Réttur Dagsins
Veður víða um heim 28.5., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 9 heiðskírt
Akureyri 11 léttskýjað
Egilsstaðir 5 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 11 alskýjað
Nuuk 6 léttskýjað
Þórshöfn 7 skýjað
Ósló 14 heiðskírt
Kaupmannahöfn 15 léttskýjað
Stokkhólmur 11 skúrir
Helsinki 12 skýjað
Lúxemborg 18 heiðskírt
Brussel 16 léttskýjað
Dublin 15 skýjað
Glasgow 13 skýjað
London 18 heiðskírt
París 18 heiðskírt
Amsterdam 14 léttskýjað
Hamborg 15 léttskýjað
Berlín 17 skýjað
Vín 22 skýjað
Moskva 15 skýjað
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 19 léttskýjað
Barcelona 20 léttskýjað
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 20 skýjað
Aþena 29 léttskýjað
Winnipeg 15 skúrir
Montreal 22 léttskýjað
New York 21 léttskýjað
Chicago 21 léttskýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
29. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:30 23:21
ÍSAFJÖRÐUR 2:54 24:07
SIGLUFJÖRÐUR 2:35 23:52
DJÚPIVOGUR 2:51 22:59
Myndbandið Brettahreysti sigraði í Videosamkeppni mbl.is og Canon, sem
efnt var til í tengslum við Skólahreysti og ætluð nemendum 8. – 10. bekkjar
grunnskóla. Brettahreysti er eftir Ásgeir Þór Þorsteinsson, nemanda í 10.
bekk Hamraskóla, og fékk hann að launum Canon LEGRIA HF-200 upp-
tökuvél, að verðmæti 150 þúsund kr.
Dómnefnd var skipuð ljósmyndurum Morgunblaðsins, starfsmönnum
mbl.is og fulltrúa Canon á Íslandi.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Sigurvegari Ásgeir Þór Þorsteinsson sigraði í Videosamkeppni mbl.is og
Canon. Lengst t.v. er Halldór Jón Garðarsson, vörustjóri Canon hjá Sense.
Brettahreysti besta myndbandið
Guðrún Elísa Ólafs-
dóttir, fv. varaformaður
Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur
og nágrennis, lést á
Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja að morgni
hvítasunnudags, 23. maí
sl.
Guðrún var fædd á
Ísafirði 3. febrúar 1932,
dóttir Önnu Filippíu
Bjarnadóttur og Ólafs
Guðbrands Jakobs-
sonar. Hún flutti síðar
til Keflavíkur ásamt manni sínum,
Magnúsi Jóhannessyni, sem er látinn.
Í Keflavík hóf hún störf við fisk-
vinnslu og var fljótlega kjörin trún-
aðarmaður á sínum vinnustað. Guð-
rún var ætíð mjög virk í störfum
sínum fyrir verkafólk og gegndi
fjölda trúnaðarstarfa fyrir verkalýðs-
hreyfinguna. Árið 1969 var hún kjör-
in í stjórn Verkakvennafélags Kefla-
víkur og Njarðvíkur og í mars 1973
var hún kjörin varaformaður félags-
ins. Stuttu síðar tók hún við for-
mennsku í félaginu við
afar erfiðar aðstæður,
eftir að þáverandi for-
maður lést í bílslysi.
Guðrún var formaður
Verkakvennafélagsins
allt þar til félagið sam-
einaðist Verkalýðs- og
sjómannafélagi Kefla-
víkur og nágrennis um
áramótin 1989 og hún
var varaformaður sam-
einaðs félags til apríl
2002. Hún var gerð að
heiðursfélaga í félaginu
sama ár.
Guðrún var varamaður í miðstjórn
ASÍ, Verkamannasambandi Íslands,
var í sambandsstjórn ASÍ og sat í
Menningar- og fræðslusambandi al-
þýðu. Menntamál verkafólks voru
henni afar hugleikin og starfaði hún
ötullega að þeim málum. Guðrún sat í
stjórn Félags eldri borgara á Suð-
urnesjum og var formaður þess allt til
dauðadags.
Guðrún og Magnús eignuðust fjóra
syni og átta barnabörn.
Andlát
Guðrún Elísa Ólafsdóttir
Skólanemendur á landinu öllu á
skólaárinu sem er að ljúka eru rúm-
lega 107 þúsund talsins. Hagstofan
hefur birt nýjar tölur um skólasókn
og nemendafjölda á skólaárinu frá
2009 til 2010. Skráðir eru 18.699
nemendur á leikskólastigi, 42.929
nemendur á grunnskólastigi, 26.364
nemendur á framhaldsskólastigi og
19.020 á skólastigum ofar fram-
haldsskólastigi.
Fram kemur í samantekt Hag-
stofunnar að nemendum fjölgaði um
1.529 frá árinu áður, eða um 1,4%.
Skólasókn 16 ára ungmenna á Ís-
landi haustið 2009 var 95% sé miðað
við öll kennsluform.
Undanfarin þrjú ár hefur skóla-
sókn 16 ára ungmenna á landsvísu
haldist óbreytt og verið 93%. Haust-
ið 2009 var skólasókn 16 ára komin í
95% og hefur því aukist um tvær
prósentur frá fyrra ári. Aldrei fyrr
hafa jafn margir 16 ára unglingar
sótt framhaldsskóla.
Í umfjöllun Hagstofunnar kemur
fram að nokkur munur sé á skóla-
sókn 16 ára ungmenna eftir lands-
hlutum. Hlutfallslega flestir 16 ára
unglingar sæki skóla á höfuðborg-
arsvæðinu utan Reykjavíkur og á
Vestfjörðum en þar er skólasókn
97% og hefur aldrei verið meiri.
Hins vegar sækja hlutfallslega fæst-
ir skóla á Suðurnesjum en þar sækja
92% 16 ára ungmenna skóla.
Haustið 2009 var hlutfall 17 ára í
skólum 90% en hlutfall 18 ára 81%.
Skólasókn hefur því einungis minnk-
að um 3 prósentur hjá þeim sem
voru 16 ára 2008 og um 12 prósentu-
stig hjá þeim sem voru 18 ára 2009.
Skólanemum fjölgar milli ára
Aldrei fleiri 16 ára í framhaldsskóla
Nemendur á háskóla- og
doktorsstigi voru rúm-
lega 18 þúsund sl. haust
og fjölgaði um 1107 eða
um 6,5% á milli ára. Skv.
tölum Hagstofunnar eru
37% þeirra skráð í grein-
ar sem falla undir fé-
lagsvísindi, viðskipta- og
lögfræði. Hlutfall nem-
enda í verkfræði, fram-
leiðslu og mann-
virkjagerð er 9% en í
raunvísindum, stærðfræði og tölvunarfræði eru 8% nemenda á þessum
skólastigum. Konur eru 63% allra nemenda á háskóla- og doktorsstigi.
Konur í miklum meirihluta
NEMENDUM Á HÁSKÓLASTIGI FJÖLGAÐI UM 6,5%
Flestir stunda nám í félags-, viðskipta- og lögfræði.