Morgunblaðið - 29.05.2010, Síða 11
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Mikil spenna Blaðamaður ásamt þeim vel klæddu Chris og Marissu frá Kanada í upphafi ferðar.
buxur, rykug flíspeysa og vettlingar.
Þarna stöndum við tilbúin til far-
ar, þegar Magnús kemur með dálítinn
pappírssnepil og biður okkur að und-
irrita. Það var sem sagt einhverskon-
ar skriflegur samningur: „Ég, und-
irritaður, afsala mér öllum rétti
mínum, skyldi ég lenda í slysi eða
deyja í þessari fjórhjólaferð.“ Eitt-
hvað í þá áttina. Ekki sérlega traust-
vekjandi en jók vissulega varkárni
manns. Blessunarlega kom ekkert
fyrir og Hæstiréttur slapp þannig við
stóra fjórhjólamálið sem ég hefði að
sjálfsögðu höfðað.
Kröftug farartæki
Þá var komið að því, tryllitækin
dregin fram og eftir snarpa yfirferð
um helstu stjórntæki þeirra settumst
við á bak. Þetta eru nú engin geimvís-
indi, bara bensíngjöf og bremsa. Næst
spyrnti Magnús af stað og við eltum
hann hálfskjálfandi af reynsluleysi á
þessum kröftugu farartækjum. Ferð-
inni var heitið inn Jósepsdalinn.
Fjórhjólin komast á mun meiri
hraða en ég hélt. Kraft urinn er slíkur
að maður er í hættu að skjótast af
hjólinu ef maður tekur of hratt af stað.
Jarðvegurinn var skrafþurr og rykið
hvirflaðist upp undan fjórhjóli Magn-
úsar sem var fremstur í röðinni. Fín-
korna rykið komst auðveldlega inn
fyrir gleraugun og í augun á manni.
Tárin flæddu úr rykugum augunum
en gamanið og spennan var þvílík að
maður fann nánast ekki fyrir því.
Eftir u.þ.b. tíu mínútna ferð
blasti Jósepsdalurinn við okkur. Dal-
urinn skartaði sínu fegursta í sum-
arsólinni. Blár og bjartur himinn,
grænn grasbali í dalbotninum, út-
lenda parið vafið í vetrargallann og
fjórhjólahlífarnar í ofanálag og svo
þeysti maður um á ógnarhraða í
faðmi náttúrunnar. Ég er ekki frá því
að nákvæmnlega þarna hafi ég áttað
mig á því að sumarið væri loks komið.
Þegar veðrið og náttúran magna
gleðina í leiknum og spennuna.
Stórhættulegt stökk
Ferðinni var næst heitið niður að
Sandskeiði. Þar er fjórhjólabraut
með allskonar beygjum, hólum og
hoppum. Fjölmargar flugvélar voru í
snertilendingaæfingum á flugvell-
inum enda kjörið veður til þess.
Ég er mikill áhugamaður um
flugvélar sem varð til þess að augun
beindust gjarnan að vélunum en ekki
veginum á leið okkar aftur að Bo-
löldu. Þannig tókst mér að keyra hjól-
ið af veginum og á einhvern hól sem
skagaði þarna upp úr annars flötum
jarðveginum. Fjórhjólið lét það ekki
stöðva sig heldur tók örlítið stökk yfir
hólinn og einhvers staðar í loftinu
ákvað ég að einbeita mér að akstr-
inum frekar en flugvélunum. Stökkið
var örugglega ekki hátt, kannski
örfáir sentimetrar frá jörðu, en byrj-
andinn miklar allt fyrir sér. Þetta
voru því í mínum augum fleiri metrar
sem ég stökk upp í loftið. Að mínu
mati var ég í bráðri hættu að rekast í
eina flugvélina á lokastefnu. Þegar
við stigum af hjólunum vorum við
rykug í framan með drullugan tára-
straum niður kinnar en öll skælbros-
andi.
Það er merkilegt hvað manni
stendur mikið til boða á Íslandi. Ég
held að flestir Íslendingar átti sig
ekki á þeirri fjölbreyttu afþreyingu
sem fyrirtækjaflóran í ferðaþjónustu
heldur úti. Fyrir mitt leyti mun ég
tvímælalaust hugsa mig tvisvar um
hvort eitthvað meira spennandi
standi mér til boða næst þegar ég fer
í bíó eða keilu.
Daglegt líf 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2010
„Útvarpsstöðin Kaninn stendur fyrir
sumarfagnaði í Smáralind svo ég
verð mjög upptekinn í dag.
Ætli dagurinn hefjist ekki upp úr
átta með undirbúningi sem stendur
til kl. 13. Þá hefst hátíðin með því að
Jógvan stígur á svið og svo koma all-
ar hinar Evróvisjón-stjörnurnar okkar
á eftir. Það má segja að ég taki Evr-
óvisjón-daginn snemma, ég held
hann byrji fyrr en þegar ég var úti í
keppninni 2001.
Ég dríf í því að kjósa í sveit-
arstjórnarkosningunum áður en ég
fer í Smáralindina því þangað kominn
er ég kominn út fyrir kjördæmið mitt.
Það verður stanslaus tónlistar- og
skemmtidagskrá í Smáralindinni til
kl. 16. Eftir það vorum við hjónin búin
að hóta því að halda Evróvisjónpartí,
við bjóðum vinum í heimsókn og
fögnum hvort sem Ísland lendir í
fyrsta, öðru eða þriðja sæti. Maður
getur ekki verið annað en bjartsýnn.
Ég veit ekki hvenær deginum lýkur
hjá okkur, það fer eftir því hvernig
okkur gengur í Evróvisjón. Sigga
Beinteins hefur heimtað að fá mig á
Players og svo getur vel verið að ég
kíki á Palla á Nasa, ef maður kemst
inn þar. Ég er nú það sver að ég hef
áhyggjur af því að taka of mikið
pláss, þyrfti líklega að kaupa tvo
miða.
Þetta verður mjög annasamur dag-
ur hjá mér og vikan er búin að vera
eins og HM í fótbolta fyrir tónlistar-
áhugafólk; Evróvisjón-forkeppni,
Idol-keppni, forkeppni, smáhvíld á
föstudaginn og svo úrslit í dag
Á morgun er afslöppun og svo ætla
ég að lyfta menningarstuðlinum með
því að fara að sjá Íslandsklukkuna
annað kvöld í
Þjóðleikhúsinu.“
Einar
Bárðarson
Útvarpsstjóri
Kanans.
Hvað ætlar þú að gera í dag?
Framlagið Einar er höfundur lagsins „Birta“ eða „Angel“ sem fór út í Evr-
óvisjónkeppnina fyrir Íslands hönd árið 2001. Þá var hún haldin í Danmörku.
Annasamur Evróvisjóndagur
Sumarið er einstaklega sprellandi
tími fyrir Íslendinga sem kúldrast
meira og minna inni yfir veturinn. Á
sumrin flæðir fólk út úr skúma-
skotum og vill vera úti undir berum
himni, nánast allan sólarhringinn.
Sumir segjast meira að segja ekki
tíma að sofa yfir sumarmánuðina,
reyna allavegana að komast af með
eins lítinn svefn og mögulegt er, enda
engin leið að sofa í allri þessari birtu.
En eitt er það sem fylgir því þegar
heitt veður og mikil hreyfing fer sam-
an: Það er sviti. Alltaf gott að svitna
duglega en þegar svitinn á tánum er
orðinn mjög mikill, þá veit hver mað-
ur að því fylgir hin fræga táfýla. Ýmis
ráð eru við táfýlu en eitt það allra
besta er að vera einfaldlega í opnum
skóm. Leyfa loftinu og sólinni að
leika um tásurnar en ekki loka þær
inni í hitakófi og myrkri. Á rölti um
götur bæjarins á góðum sumardegi
eða á flakki um landið eða útlönd í
fanta stuði, þá er um að gera að
draga á fót fagra bandaskó, sandala
eða aðra opna skó. Gnægð er í búð-
unum af slíku þarfaþingi en svo er
líka um að gera að draga fram gömlu
góðu skóna, frá mömmu eða ömmu.
Nú er tími bandaskónna og sandalanna
Morgunblaðið/Jim Smart
Tásur Eitt ráð við táfýlu er að vera einfaldlega í opnum skóm.
Lokið ekki inni tíu sveittar tær
Leyfið þeim frekar að anda
NÁTTÚRULEGT
FYRIR LIÐINA
NUTRILENK
NÝTT NÁTTÚRLEGT BYGGINGAREFNI FYRIR BRJÓSKVEFINN
Láttu ekki liðverki aftra árangri þínum í golfinu.
Minnkaðu liðverkina og vonandi forgjöfina í kjölfarið með hjálp Nutrilenk.
Nutrilenk er náttúrulegt byggingarefni fyrir brjóskvefinn og er mjög góður
valkostur fyrir þá sem þjást af minnkuðu liðbrjóski. Nutrilenk hefur hjálpað
þúsundum Íslendinga að öðlast betri liðheilsu.
NutriLenk er fáanlegt í flestum apótekum, heilsubúðum,
Fræinu Fjarðarkaupum, stærri Hagkaupsverslunum,
Þín verslun Seljabraut og Vöruvali Vestmanneyjum
Eru liðverkir að hækka forgjöfina?