Morgunblaðið - 29.05.2010, Page 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2010
Talningarmenn lokaðir inni
Fyrstu tölur úr stærstu sveitarfélögunum liggja fyrir rétt eftir klukkan 22
Rúnar Pálmason runarp@mbl.is
Búast má við að fyrstu tölur í öllum stærstu
sveitarfélögum landsins liggi fyrir rétt eftir að
kjörstöðum verður lokað klukkan 10 í kvöld. Í
Reykjavík verða talningarmenn lokaðir inni í
borgarstjórnarsalnum í Ráðhúsinu um klukkan
hálfsjö og salurinn innsiglaður á meðan atkvæði
verða flokkuð og talin.
Reykjavík er langstærsta sveitarfélagið með
rúmlega 85.000 manns á kjörskrá og því ærið
verkefni sem bíður talningarmanna. „En þetta er
öflugt lið sem vinnur þetta verk,“ segir Ólafur
Kr. Hjörleifsson, skrifstofustjóri borgarstjórnar,
sem hefur yfirumsjón með undirbúningi borg-
arinnar fyrir kosningarnar. Verkið felist í því að
flokka, yfirfara og telja atkvæðin, jafnt auða
kjörseðla sem aðra sem upp úr kössunum koma.
Sömu 13 kjörstaðir í Reykjavík
Kjörstaðir í Reykjavík eru 13, þeir sömu og í
atkvæðagreiðslunni um Icesave-lögin og alþing-
iskosningarnar 2009. Hafi menn ekki flutt í milli-
tíðinni, þá kjósa þeir á sama stað og síðast. Á
kjörskrá eiga að vera allir íslenskir ríkisborgarar
sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveit-
arfélagi samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár 8. maí
2010, og eru 18 ára eða eldri á kjördag.
Einnig hafa danskir, finnskir, norskir og
sænskir ríkisborgarar sem lögheimili hafa átt á
Íslandi í þrjú ár samfellt frá 29. maí 2007 kosn-
ingarétt, séu þeir orðnir 18 ára á kjördag. Enn-
fremur skulu vera á kjörskrá aðrir erlendir rík-
isborgarar sem lögheimili hafa átt á Íslandi í
fimm ár samfellt frá 29. maí 2005 enda séu þeir
18 ára eða eldri í dag. Þá eiga kosningarétt þeir
íslenskir ríkisborgarar, 18 ára og eldri, sem flutt
hafa lögheimili sitt frá Íslandi til hinna Norður-
landanna samkvæmt Norðurlandasamningi um
almannaskráningu. Þetta á fyrst og fremst við
um námsmenn.
Talningarmenn-
irnir verða lokaðir
inni í borgarstjórn-
arsalnum og hann
innsiglaður.
Vægi vefmiðla hefur aldrei verið
meira en nú og umhverfi rótgróinna
fjölmiðla eins og dagblaða og ljós-
vakamiðla hefur breyst varanlega.
Þetta er hluti af meginniðurstöðum
annars hluta rannsóknar Creditinfo
á fjölmiðlum og fréttum.
Frá því skýrsla rannsóknarnefnd-
ar Alþingis kom út hafa birst 2123
fréttir af henni í helstu dagblöðum,
ljósvakamiðlum og vefmiðlum. Eru
það að meðaltali um 10% frétta á
þessum tíma í prentmiðlum og innan
við 9% í ljósvakamiðlum. Meira en
helmingur fréttanna hefur birst í
veðmiðlum.
Umfjöllun um skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis hefur ekki breytt
því hverjir eru til umfjöllunar. Nefna
má að Samfylkingin er efst á listan-
um sem birtur er hér til hliðar.
Vantar upp á traust
Niðurstöður könnunar sem Capa-
cent gerði fyrir Creditinfo benda til
þess að fólk treysti almennt ekki um-
fjöllun fjölmiðla um orsakir efna-
hagshrunsins. Þannig segjast 18,6%
aðspurðra treysta vel umfjölluninni
og tæp 40% segjast treysta henni
illa. Liðlega 41% tekur ekki afstöðu.
Rúmlega helmingur þeirra sem
segjast illa treysta umfjölluninni
gefur þá skýringu að fjölmiðlarnir
séu hlutdrægir og um fimmtungur
nefnir eignarhald fjölmiðla.
Creditinfo telur að dagblöð og
ljósvakamiðlar muni þurfa lengri
tíma til að vinna traust almennings á
ný. Kostnaðaraðhald muni gera
þeim erfitt fyrir og líklega gera
fréttaflutning þeirra einhæfari. Í
þessu ljósi gefur Creditinfo það mat
að vægi íslenskra vefmiðla hafi aldr-
ei verið meira en nú og þar séu sókn-
arfæri.
Vel yfir tvö þúsund fréttir af
rannsóknarskýrslu Alþingis
Könnun Creditinfo sýnir lítið traust
fólks á umfjöllun fjölmiðla um skýrsluna 10 algengustu aðilarnirnefndir í fréttum tengdum rannsóknarskýrslunni
Heimild: Creditinfo
Aðili Fjöldi frétta
Samfylkingin 684
Glitnir banki hf 564
Landsbanki Íslands hf 552
Kaupþing banki hf 545
Sjálfstæðisflokkurinn 522
Seðlabanki Íslands 474
Forsætisráðuneyti 404
NBI hf 398
Vinstrihreyfingin-Grænt framboð 352
Fjármálaeftirlitið 351
Spurður hvort stefnuskrá Besta
flokksins væri grín vék Jón Gnarr
sér undan því að svara í umræðu-
þætti Sjónvarpsins í gærkvöldi og
tók fram að kjósendur væru sjálfir
vel í stakk búnir til þess að greina á
milli þess hvað væri grín og hvað
ekki. Jón sagðist ennfremur trúa því
að hann yrði mjög góður í stóli borg-
arstjóra.
Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri
græna, sagði ljóst að borgin þyrfti
að axla ábyrgð sem atvinnurekandi,
fara þyrfti í aukin viðhaldsverkefni
og í því samhengi ætti að bæta að-
gengismál fatlaðra.
Hanna Birna Kristjánsdóttir við-
urkenndi að það væru bæði persónu-
leg og pólitísk vonbrigði að fylgi
Sjálfstæðisflokks væri ekki meira á
þessum tíma. Rifjaði hún m.a. upp
að gott samstarf hefði verið á síðustu
tveimur árum í borginni þvert á
flokka. Dagur B. Eggertsson, odd-
viti Samfylkingarinnar, vill flýta
framkvæmdum og fjölga sumar-
störfum fyrir ungt fólk.
Kjósendur
góðir í að
greina grín
Umræður Oddvitar í sjónvarpi.
Borgin axli ábyrgð
Morgunblaðið/Eggert
Kjörkassar sem nota á Reykjavík voru fluttir í Ráðhús Reykjavíkur í gær-
kvöldi. Snemma í dag munu svo fulltrúar allra hverfiskjörstjórna taka á
móti kjörkössunum og kjörgögnum í Ráðhúsinu og flytja á kjörstaði borg-
arinnar í lögreglufylgd.
Sveitarfélög auglýsa kjörstaði í sveitarstjórnarkosningunum í dag og
mörg þeirra birta einnig kjörfundarupplýsingar á vefjum sínum. Finna má
upplýsingar um kjörskrár á vefnum kosning.is og á kosningavef Morgun-
blaðsins, mbl.is/kosningar, má finna lista yfir frambjóðendur, fréttir og
viðtöl auk helstu skoðanakannana sem gerðar voru í aðdraganda kosning-
anna. Að auki verða helstu fréttir af kosningunum á fréttavefnum, mbl.is.
Kjörkassarnir bíða eftir að taka við atkvæðum
Morgunblaðið/Golli
„Reykjavíkurframboðinu þykir lýð-
ræðishallinn alveg yfirdrifinn nú þeg-
ar,“ segir í tilkynningu frá framboð-
inu, X-E, sem lagt hefur inn kæru á
hendur Stöð 2 til útvarpsrétt-
arnefndar vegna kosningaumræðu
sem fram fór í gærkvöldi, þar sem
oddvitar fimm stærstu stjórn-
málaflokkanna í Reykjavík komu
fram. Framboðið telur að Stöð 2 hafi
brotið 9. gr. útvarpslaga með því að
útiloka þrjú framboð frá umræðunni.
Í athugasemd frá Stöð 2 segir að
þau framboð sem mælst hafa með
innan við 1% fylgi fengu tækifæri til
að kynna stefnu sína sérstaklega í
formi innslaga sem sýnd voru í gær.
Öll framboðin hafi tekið þátt í þeim.
Einnig kemur fram að Stöð 2 telji
sig „þjóna lýðræðinu betur með því
að beina meiri athygli að þeim fram-
boðum sem klárlega hafa raunveru-
legt kjörfylgi“.
Kæra vegna
lýðræðishalla
Morgunblaðið/Kristinn
Næst besti flokkurinn sendi yfir-
kjörstjórn í Kópavogi athugasemd í
gær við framkvæmd kosninga þar
sem farið var fram á að öll atkvæði
greidd fyrir 9. maí yrðu látin niður
falla. Telur flokkurinn að jafnræðis
hafi ekki verið gætt þar sem utan-
kjörfundaratkvæðagreiðsla hófst 32
dögum áður en framboðsfrestur
rann úr. Kjósendur viti því ekki
hverjir eru í framboði fyrstu fimm
vikur atkvæðagreiðslunnar.
Næst besti
vill ógilda