Morgunblaðið - 29.05.2010, Side 26
26 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2010
Forseti Gvatemala, Alvaro Colom, hefur lýst yfir neyðarástandi vegna
kröftugs eldgoss sem hófst í eldfjallinu Pacaya á miðvikudagskvöld.
Illa brunnið lík sjónvarpsfréttamanns fannst í hlíðum eldfjallsins. Sam-
starfsmenn hans segja að hann hafi verið þar að vinna að frétt um gosið
þegar grjóti og glóandi hrauni tók að rigna yfir hann. Þriggja barna á
aldrinum sjö, níu og tíu ára er saknað á svæðinu, að sögn yfirvalda.
Forsetinn lýsti yfir neyðarástandi í að minnsta kosti fimmtán daga í
þremur sýslum í grennd við fjallið, sem er um 50 km frá höfuðborginni,
Gvatemalaborg. Alþjóðaflugvellinum La Aurora var lokað til að tryggja að
flugvélar færu ekki í öskuskýið, auk þess sem þeim var talin stafa hætta af
ösku sem féll á flugbrautirnar. Flugvélum í millilandaflugi var beint til
annarra flugvalla í landinu.
Eldfjallið er 2.552 metra hátt og um 1.600 manns voru flutt frá hlíðum
þess. Í Gvatemala eru alls 288 eldfjöll og átta þeirra eru virk.
Lýst yfir neyðarástandi
Reuters
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Fréttaskýrendur í Seúl telja að
stríðsyfirlýsingar stjórnvalda í
Norður-Kóreu síðustu daga megi
rekja til þess að Kim Jong-Il, leið-
togi landsins, sé að undirbúa valda-
töku sonar síns, sem er ungur að ár-
um, óreyndur og óþekktur, jafnvel í
heimalandi sínu.
Fréttaskýrendurnir telja þetta
líklegustu skýringuna á hörðum við-
brögðum ráðamannanna í Norður-
Kóreu við ásökunum um að her
landsins hafi sökkt suður-kóresku
herskipi með tundurskeyti 26. mars.
46 sjóliðar biðu bana í árásinni.
The New York Times hefur eftir
einum fréttaskýrendanna í Seúl,
Choi Jin-wook, að áformin um að
sonur leiðtogans taki við völdunum
sé „sá þáttur sem tengi alla aðra
þætti þegar reynt er að útskýra
hvers vegna Norður-Kóreumenn
gera það sem þeir hafa gert síðustu
daga. Án hans er engin skýring full-
nægjandi eða sannfærandi.“
Vill tryggja stuðning hersins
Fréttaskýrendurnir telja að
norður-kóresku ráðamennirnir hafi
fyrirskipað árásina á suður-kóreska
herskipið og blásið síðan í stríðs-
lúðra til að þjappa þjóðinni saman og
tryggja sér stuðning hersins. „Kim
Jong-il þarf að skapa ástand, sem
líkist stríði, heima fyrir til að knýja
fram áformin um að sonur hans taki
við völdunum. Til þess þarf hann
spennu og óvin að utan,“ hefur The
New York Times eftir öðrum sér-
fræðingi í málefnum Norður-Kóreu,
Cheon Seong-whun.
Kim Jong-il er 68 ára og hermt er
að hann sé heilsuveill eftir að hafa
fengið heilablóðfall í ágúst 2008. Tal-
ið er að hann hafi valið yngsta son
sinn af þremur, Kim Jong-Un, sem
eftirmann sinn.
Mjög lítið er vitað um Jong-Un,
sem er annar sonur leiðtogans með
þriðju konu hans. Nokkrir fjölmiðlar
í Suður-Kóreu segja að Jong-Un hafi
fæðst árið 1983 og hafi gengið í al-
þjóðlegan skóla í svissnesku borg-
inni Bern undir dulnefni.
Vill hefja nýjan
Kim til valda
Stríðsyfirlýsingarnar raktar til þess að
Kim Jong-Il vilji að sonur sinn taki við
Reuters
Kimar Seúl-búi með myndir af Kim
Jong-Un og afa hans, Kim Il-sung.
Hvít dúfa er nú í
vörslu vopnaðra
lögreglumanna á
lögreglustöð á
Indlandi vegna
gruns um að hún
sé útsendari
leyniþjónust-
unnar í grann-
ríkinu Pakistan.
Bréfdúfan fannst á dögunum í
indverska sambandsríkinu Punjab,
nálægt landamærunum að Pak-
istan. Hún var með hring um ann-
an fótinn og pakistanskt síma-
númer og heimilisfang hafði verið
skrifað með rauðu bleki á búkinn.
Indverska fréttastofan PTI hef-
ur eftir lögreglumönnum að grun-
ur leiki á að bréfdúfan hafi verið
send með skilaboð, líklega til út-
sendara pakistönsku leyniþjónust-
unnar, þótt engin skilaboð hafi
fundist.
Pakistönsk
dúfa tekin
fyrir njósnir
Vísindamenn
segja að þeim
sem bursta ekki
tennurnar tvisvar
sinnum á dag sé
hættara við því að
fá hjarta-
sjúkdóma. Þetta
kemur fram í
skoskri rannsókn
sem 11.000 manns
tóku þátt í.
Fram kemur í rannsókninni, sem
er birt í The British Medical Journ-
al, að þeir sem hirða illa um tenn-
urnar og tannholdið séu líklegri til
að fá hjartasjúkdóma en þeir sem
bursta tennurnar tvisvar á dag.
Þetta er í fyrsta sinn sem vís-
indamenn rannsaka hvort tengsl séu
á milli tíðni tannburstunar og þess
hvort fólk geti fengið hjarta-
sjúkdóma, að sögn fréttavefjar BBC.
Góð tann-
hirða góð
fyrir hjartað
Að minnsta kosti áttatíu manns biðu bana þeg-
ar hraðlest fór út af sporinu og skall á vöru-
flutningalest á Indlandi í fyrrakvöld. Indversk
yfirvöld sögðu að hraðlestin hefði farið út af
sporinu vegna skemmdarverks maóista.
Búist var við að tala látinna hækkaði þar
sem talið var að farþegar væru enn fastir í
vögnum sem eyðilögðust í árekstrinum. Um
200 manns slösuðust, nokkrir þeirra lífshættu-
lega.
Hraðlestin var á leiðinni frá Kalkútta til
Mumbai og fór út af sporinu á afskekktu svæði
í Vestur-Bengal, nálægt sambandsríkinu
Jharkhand, höfuðvígi hreyfingar indverskra
maóista. Áreksturinn varð klukkan hálf tvö um
nóttina að staðartíma og flestir farþeganna
voru sofandi.
Maóistarnir hófu uppreisn árið 1967 í þorp-
inu Naxalbari í Vestur-Bengal og hún breidd-
ist út um sveitahéruð í mið- og austurhluta
Indlands. Talið er að vopnaðir liðsmenn hreyf-
ingarinnar séu um 10.000-20.000. Uppreisnin
hefur kostað yfir 6.000 manns lífið.
Maóistarnir hafa hert uppreisnina á síðustu
mánuðum með árásum á hermenn, lögreglu-
menn, opinberar byggingar, lestir, rútur og
lestastöðvar. Mannskæðasta árás þeirra til
þessa var gerð í apríl þegar maóistar felldu 76
hermenn í árás úr launsátri.
Fyrr í vikunni hvöttu maóistar til mótmæla í
fimm sambandsríkjum, meðal annars Vestur-
Bengal. Mótmælin áttu að hefjast í gær og
standa til miðvikudagsins kemur.
Maóistar herða uppreisn sína á Indlandi og eru taldir hafa orðið tugum lestarfarþega að bana
Blóðbað í
hraðlest
Reuters
Mannskætt skemmdarverk Indverskir hermenn og björgunarmenn bera slasaðan farþega úr hraðlest sem fór út af sporinu og skall á vöruflutn-
ingalest í Vestur-Bengal í fyrrakvöld. Þrettán vagnar hraðlestarinnar eyðilögðust í árekstrinum. Lestin var full af fólki á leið í sumarfrí.
Hótel í miðbænum. Góður aðbúnaður.
295 dkr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með
wc og sturtu
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk
Sofðu vel! Í Kaupmannahöfn