Morgunblaðið - 29.05.2010, Blaðsíða 39
Minningar 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MAÍ 2010
✝ Baldur Bjarnasonvélstjóri fæddist
13. ágúst 1936. Hann
lést á Brekkubæ, Nes-
jahr. A-Skaft., 19. maí
2010.
Foreldrar hans
voru Bjarni Bjarna-
son, bóndi, organisti
og tónskáld á
Brekkubæ, f. 10. maí
1897 í Tanga hjá
Hruna á Brunasandi,
d. 27. mars 1982, og
kona hans Ragnheið-
ur Sigjónsdóttir, f. 11.
apríl 1892 í Meðalfelli, Nesjahreppi,
d. 22. desember 1979.
Systkini Baldurs eru Sigríður
Ingibjörg, gift sr. Gísla H. Kolbeins.
Þau eiga 5 börn. Sigjón, kvæntur
Kristínu Einarsdóttur. Þau eiga 5
börn.
Baldur tók minna vélstjórapróf í
Vestmannaeyjum
1966. Hann stundaði
sjó á vertíðarbátum
frá Hornafirði frá
1953 og var vélgæslu-
maður (vélstjóri frá
1966) hjá útgerð
Kristjáns Gúst-
afssonar á Hornafirði
1963-72. Hann varð
einn af þremur eig-
endum útgerðar Sig-
urðar Ólafssonar á
Hornafirði og var vél-
stjóri á Sigurði Ólafs-
syni SF-44 þar til
hann lauk sjómennsku vorið 2006
og hafði þá verið á sjó linnulítið í 52
ár. Baldur fór fyrst á humarvertíð
1963 og eftir það féll ekki úr nein
humarvertíð til 2005 eða í 42 ár.
Útför Baldurs fer fram frá Hafn-
arkirkju á Hornafirði í dag, 29. maí
2010, og hefst athöfnin kl. 13.
Minningarnar sem leituðu á mig
þegar ég frétti að Baldur frændi
væri dáinn standa mér margar svo
ljóslifandi fyrir sjónum að þær hefðu
alveg eins getað gerst í gær. Fyrsta
minningin sem leitar á mig er frá
Melstað í Miðfirði. Þetta var rign-
ingardagur og Baldur frændi bauð
mér út í bíl að hlusta á tónlist úr
skrítnu tæki sem hét kassettutæki
sem ég hafði ekki séð áður. Ég var
líklega 6-7 ára og vildi fá að vita
hvaða þýðingu allir hinir takkarnir
hefðu í Volvóinum hans, og hann
sýndi mér það. Þetta var í fyrsta
skipti sem ég fékk að setjast inn í
fólksbíl, í sveitinni voru það bara
Land Rover og Willysar sem allir
voru frekar takkafáir í þá tíð. Ég
man það alltaf hversu glaður hann
var yfir þessum gríðarlega áhuga
mínum á bílum hans. Síðar var ég
staddur austur á Hornafirði hjá
ömmu og afa á Brekkubæ í Nesjum.
Ég var úti að leika við frændsystkini
mín þegar Baldur kom á bílnum í
hlaðið, hann var þá að koma af sjón-
um og kom með stóran bala af
stórum ferskum fiski sem hann hafði
veitt handa ömmu. Þetta var í fyrsta
skipti sem ég komst í tæri við fersk-
an fisk og Baldur og mamma fóru að
kenna mér hvað fiskarnir hétu.
Áhugi minn var nú aftur á móti ekki
á þeim heldur vildi ég frekar fræðast
um takkana í Volvóinum og hlusta á
tónlistina úr kassettutækinu og það
þótti honum gaman að heyra. Ég
mun aldrei gleyma því bjarta brosi
sem skein af andliti hans á þeim fal-
lega sólríka degi austur á Hornafirði
þegar hann sagði við mömmu að ég
væri tæknisinnaður og yrði líklega
pófessor í framtíðinni. Árin liðu og
Baldur endurnýjaði Volvóana reglu-
lega og kom oftast á hverju sumri í
heimsókn til okkar, oftast til að jafna
sig eftir að hafa átt góðar og glaðar
stundir í Reykjavík eins og sönnum
sjómanni sæmdi. Það var alltaf gam-
an þegar hann kom í heimsókn, hann
fór með mann á rúntinn og að skoða
bátana niðri á höfn. Baldur stofnaði
útgerð með tveimur öðrum á Höfn í
Hornafirði og skírðu þeir bát sinn
Sigurð Ólafsson. Baldur sá um vél-
ina og gerði það með miklum sóma.
Mér var bent á að hans staðall á vél-
arrúmi væri sá að það ætti alltaf að
vera svo hreint að maður gæti geng-
ið um á sokkunum, það væri bara leti
og trassaskapur ef vélarrúm væri
svo drullugt að menn yrðu að vera í
skóm.
Síðasta minningin er frá því í vet-
ur þegar hann kom í mat til mín. Ég
og sonur minn elduðum saman góð-
an mat handa okkur og spjölluðum
saman, hann náði góðu sambandi við
son minn og stundin var góð, honum
leið þá nokkuð vel, hafði ekki verið
hressari frá því um áramót.
Það er ekki liðið hálft ár frá því að
hann Baldur frændi hélt að hann
væri með lungnabólgu. Annað koma
á daginn. Ég þakka honum fyrir að
hafa sýnt mér það traust sem hann
gerði á síðustu vikum lífs síns þegar
hann trúði mér á sinn hátt fyrir því
hversu veikur hann væri og bað mig
að koma því á framfæri við sína nán-
ustu. Einnig þakka ég honum fyrir
þá fræðslu um tækni og tól sem hann
færði mér í æsku. Baldur hafði skoð-
anir á lífinu og pólitíkinni en hlustaði
alltaf á fólk og bar virðingu fyrir
sjónarmiðum annarra, en tók sínar
ákvarðanir á sinn hátt, fyrir það
virði ég hann mest. Nú er hann far-
inn frá okkur og bið ég góðan Guð að
leiða hann á vit hins ókunna.
Halldór Kolbeins.
Nú er fallinn frá vinur minn og fé-
lagi, Baldur Bjarnason, eftir erfið
veikindi. Þegar ég kom til þín kvöld-
ið áður en þú kvaddir sagðir þú: Mig
langar svo mikið til að lifa. Þegar
maður hugsar til baka kemur þetta
ekki á óvart því þú elskaðir lífið svo
mikið. Þú tókst smáþorskana og
slepptir þeim aftur í sjóinn svo að
þeir gætu lifað lengur, ef humar beit
þig í puttann þá varð hann líka að fá
að lifa því að hann hafði barist svo
fyrir lífinu. Þegar þú keyrðir inn í
Nes á haustin þegar fýllinn var á leið
til sjávar, settir þú gjarnan þá sem
voru strand í skottið á Volvonum og
keyrðir þá út í Ósland þannig að þeir
að myndu örugglega lifa.
Takk fyrir allt, Baldur Bjarnason,
þú hefur kennt mér margt.
Hannes Ingi Jónsson.
Það eina sem við vitum þegar við
fæðumst er að við komum til með að
deyja. Það er víst bara spurning um
tíma. Tími Balla er kominn eftir til-
tölulega snörp veikindi. Hugurinn
skýr allt til loka en líkaminn búinn
eftir langa sjómannsævi og lífsstíl
sem var kannski ekki alltaf beint
upp úr heilsufræðibókunum. Okkur
skipsfélaga hans langar að minnast
hans með nokkrum orðum. Á okkar
vígstöðvum og reyndar miklu víðar
var hann alltaf kallaður Páfinn og
bar hann það viðurnefni stoltur og
vitnaði jafnan um sjálfan sig í þriðju
persónu sem Páfann og heimilið sem
Páfagarð eða Vatikanið. Það var gott
að vera á sjó með honum og skap-
jafnari maður vandfundinn. Alltaf
ánægður með það sem fiskaðist.
Hvort sem aflinn var ein klósettseta
eins og hjá Forrest Gump eða fullt
netaborð af spriklandi gulum þá
sagði sá gamli alltaf „ja þetta var
ekki svo slæmt“.
Langur sjómannsferill Balla hófst
árið 1954 og lauk svo ekki fyrr en
fimmtíu og tveimur árum síðar eða
árið 2006 og þar af þrjátíu og fjögur
ár sem vélstjóri á Sigurði Ólafssyni.
Hann reyndar hætti aldrei alveg því
hann fór bara í smá frí fyrir fjórum
árum, þá á sjötugasta aldursári, því
hnéð var eitthvað að stríða honum.
Svo dróst það að hann kæmi um
borð aftur enda lá svo sem ekkert á,
hann var með þann sem hann treysti
best af öllum til að líta eftir vélunum
fyrir sig. Hann fylgdist samt náið
með okkur, kom mikið um borð að
spjalla og var okkur innan handar,
enda einn af stofnendum og eigend-
um útgerðarinnar frá upphafi. Vél-
stjóri til síðasta dags og alltaf með
hugann við sjóinn, vélarnar og afla-
brögðin.
Balli var vel að sér um dægurmál-
in og vel fróður um líffræði sjávarins
og var oft mikið pælt við netaborðið
eða trollmóttökuna þar sem hann
hafði sínar skoðanir og kenningar á
því sem gerðist í hafinu. Fiskifræði
Páfans kölluðum við þessa speki sem
oft var síst verri en fræðinganna.
Mikill fréttafíkill var hann og fylgd-
ist vel með pólitíkinni og þrættum
við jafnan okkur til ánægju og
skemmtunar um pólitík enda mis-
jafnlega staðsettir á baki þeirrar
skrítnu tíkur. Þetta voru skemmti-
legar rimmur þar sem skoðanir frá
hægri og vinstri voru krufðar og orð
eins og borðsalskommi, bússistar
með dollara í kjaftinum og íhalds-
leppar flugu og öllu var tjaldað til að
styðja málstaðinn. Hans staður í
borðsalnum er enn og verður áfram
vandlega merktur sem „Pólitíska
hornið“.
Balli var orginal eins og sagt er,
sjómaður af gamla skólanum. Alltaf í
stakk og klofstígvélum sem bætt
voru eftir þörfum og skipti helst ekki
um vettlinga fyrr en það vantaði á þá
alla puttana. Með honum er fallinn
frá góður skipsfélagi og vinur en eft-
ir stendur dýrmæt reynsla og marg-
ar minningar sem ylja, til dæmis um
hvað var gott í löngum stöðum að
hvíla hælana á spúlslöngunni, á
bekknum að hlusta á fréttir og ekki
síst myndin sem ósjaldan birtist ef
maður kom niður í vélarrúm og Balli
þá sitjandi á pliktunum yfir spildæl-
unni, tróð í pípuna og horfði dreym-
andi á vélarnar sínar snúast.
Fyrir hönd skipsfélaga á Sigurði
Ólafssyni SF 44.
Sigurður Ólafsson.
Baldur Bjarnason ✝
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
ÓLAFUR GUNNAR SIGURÐSSON,
Óli í Ásgarði,
Heiðarbraut 7,
Garði,
síðast til heimilis að Vatnsholti 7a,
Reykjanesbæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, mánudaginn 24. maí.
Útförin fer fram frá Útskálakirkju miðvikudaginn 2. júní kl. 15.00.
Soffía G. Ólafsdóttir, Sæmundur Kr. Klemensson,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
SVEINN ÓLAFSSON
myndskeri
frá Lambavatni,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti deild L-5
fimmtudaginn 20. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Jóna Gíslunn Árnadóttir,
Hólmfríður Steinunn Sveinsdóttir, Hilmar Össurarson,
Inga Guðrún Sveinsdóttir, Tómas Walter Maríuson,
Ólafur Sveinsson, Aðalbjörg Jónsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
✝
Ástkær eiginmaður, faðir, afi og bróðir,
EYSTEINN GÍSLI THORDARSON
fv. framkvæmdastjóri,
Angles Camp, Kaliforníu,
Bandaríkjunum,
lést á heimili sínu á aðfangadagskvöld.
Jarðsetning duftkers og minningarathöfn verður í
Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 4. júní kl. 14.00.
Pamela Thordarson,
Gunnar Thordarson,
Leifur Thordarson,
Elise Thordarson,
Stefán Thordarson,
Jón Þórðarson,
Sigurður H. Þórðarson,
Ármann Þórðarson,
María Sigríður Þórðardóttir,
Svanberg Þórðarson
og fjölskyldur.
✝
Okkar ástkæru dóttur, systur og barnabarns,
VIKTORÍU LINDAR HILMARSDÓTTUR,
sem lést á barnaspítalanum við Ullevål þriðju-
daginn 4. maí, verður minnst í Lágafellskirkju í
Mosfellsbæ miðvikudaginn 2. júní kl. 15.00.
Allir sem vilja minnast Viktoríu Lindar eru velkomnir
í minningarathöfnina.
Hilmar Þór Sævarsson, Guðrún Elvíra Guðmundsdóttir,
Ída María Hilmarsdóttir,
Emelíana Hilmarsdóttir,
Guðmundur Eggertsson,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn,
Sævar Berg Guðbergsson, Katrin Klara Björnsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSTHILDUR ÞORSTEINSDÓTTIR
ljósmóðir
frá Hróarsholti í Flóa,
seinna Kaplaskjólsvegi 63,
lést á Hrafnistu í Reykjavík sunnundaginn 27. maí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
3. júní kl. 15.00.
Ágúst Halldórsson,
Rannveig Halldórsdóttir,
Ólöf Halldórsdóttir, Haraldur Sigurðsson,
Guðmundur Halldórsson, Elsa B. Sveinbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.