Framsóknarblaðið - 23.01.1946, Blaðsíða 1
9. árgangur. Vestmannaeyjum, 23. jan. 1946 2. tölublað
Búskaparháttnr Sjálfstæðisflokks-
manna á bæjarstjórn Vestmannaeyja
Eins og á hefur verið drepið
hér í blaðinu, hafa Sjálfstæðis-
menn í bæjarstjórn Vestmanna-
eyja aldrei séð, eða viljað fara,
aðra leið til tekjuöflunar bæjar-
sjóði en með niðurjöfnun út-
svara á bæjarbúa. Hvort tveggja
er, að það eru takmörk fyrir því,
hve mikið er hægt að „leggja á“
árlega, og svo nægja útsvör ekki
nema fyrir litlum hluta þess, er
bæjarfélagið þarf til uppbygg-
ingar þess og aðkallandi fram-
kvæmda. Dæmin eru deginum
Ijósari: Hér vantar flest það,
sem bæjarfélagi er lífsskilyrði,
skóla, s. s. gagnfræðaskóla, hús-
mæðraskóla, sjóvinliuskóla,
sjúkrahús, góða vegi, og síðast
en ekki sízt, hér í Eyjum, trygga
og rúmgóða höfn. Ég hef und-
anfarin ár bent á það I bæjar-
stjórn og flutt tillögur um, að
bæjar- og hafnarsjóður tæki
skip á leigu eða keyptu, til þess
að kaupa og flytja út ísvarinn
fisk. í byrjun styrjaldarinnar
var strax augljóst að arðvænlegt
var að kaupa og flytja út fisk.
Enda komu fulltrúar Sjálfstæð-
ismanna í bæjarstjórninni fljótt
auga á þetta. Ársæll Sveinsson
og Tómas Guðjónsson tryggðu
sér skip, og nokkrir útgerðar-
menn stofnuðu skipafélag og
keyptu e.s. Sæfell undir stjórn
Guðlaugs Gíslasonar bæjarfull-
trúa. Atvinnurekstur þessi gaf
af sér góðan arð. Út af fyrir sig
er ekki nema allt gott um það
að segja, að atvinnurekstur sé í
höndum bæjarbúa, ekki undan-
skildir bæjarfulltrúar, en þess-
ir menn, bæjarfúlltrúarnir,
gleymdu bara hag bæjarsjóðs.
Stjórn bæjarsjóðs, undir for-
ustu Sj álfstæðisflokksins, eftir
mestu veltuár, sem yfir landið
hefur komið, er sú, að hagur
bæjarsjóðs er lítið betri nú en
1939, og upplýst er að yfir V2
miljón króna var ógreitt í víxil-
skuldum um s. 1. áramót. Fé því,
sem samþykkt var að verja til
verklegra framkvæmda og
leggja skyldi til hliðar, s. s.
skólabygginga, fyrirfinnst ekki.
Fénu hefur verið varið í annað,
og nokkur hluti þess án þess að
samþykki bæjarstjórnar lægi
fyrir. Skal að því vikið. síðar.
Eins og að framan greinir hefi
ég flutt tillögur 1 bæjarstjórn
um að bænum yrði aflað tekna
á annan hátt, en eingöngu með.
útsvörum.
Bæjarbúum til leiðbeiningar
leyfi ég mér að birta hér bréf,
er ég sendi hafnarnefnd í des.
1942. Þá lá fyrir bæjarstjórn til-
laga frá hafnarnefnd um hækk~
un á vörugjaldi, sem mun vera
hæst hér á landi í Vestmanna-
eyjum. Tillaga mín var svæfð í
hafnarnefnd og fékkst aldrei
afgreidd. í hafnarnefnd eiga
4 Sjálfstæðismenn og Páll Þor-
björnsson fyrir Alþýðuflokkinn.
Verður ekki annað séð en þeir
hafi allir verið hjartanlega sam-
mála um afdrif tillögunnar.
Bréfið fer hér á eftir:
„Vestmannaeyjum 8. des. 1942.
Með skírskotun til tillögu
hafnarnefndar um hækkun
vörugjalda, er var til umræðu
á s. 1. bæjarstjórnarfundi, svo
og með skírskotun til afstöðu
minnar þá til þessa máls, þá
leyfi ég mér hér með að benda
hátttvirtri hafnarnefnd á aðrar
tekjuöflunarleiðir til handa
hafnarsjóði. Ég tel, að sú tekju-
öflunarleið er hafnarnefnd hef-
ur lagt til að farin yrði, sé mjög
hæpin, og hana eigi ekki að fara
nema að allar aðrar leiðir séu
lokaðar.
í því tilefni hef ég nokkuð
unnið að því undanfarna daga,
að leita fyrir mér um það, hvort
mögulegt væri að fá leiguskip
Sveinn Guðmundsson
fyrir hafnarsjóö, til fiskflutn-
inga til Bretlands.
Ég leyfi mér að skýra hafnar-
nefnd hér með frá því, að ég
hefi í fyrsta lagi átt tal við for-
mann Fiskimálanefndar, hr.
Guðmund Albertsson, og spurst
fyrir um m.s. „Artic,“ sem mun
vera eign þeirrar stofnunar.
Tjáði hann mér að nefndin vildi
selja skipið, en enn sem komið
væri, væri engin kaupandi að
skipinu. En jafnframt tjáði
hann mér, að komið gæti til
mála, að nefndin leigði hafnar-
sjóði Vestmannaeyja skipið um
óákveðinn tíma, ef ekki yrði úr
sölu, og mundi hann leggja það
fyrir nefndina og láta mig vita
hið fyrsta um þetta efni.
Þá hefi ég einnig átt tal við
hr. útgerðarmánn Magnús And-
résson, Rvík um sama efni. Skip
sín „Capitana“ og „Þorfinn“ vill
hann selja, en gat þess jafn-
framt, að bæjarfélag í grennd
við Reykjavík vildi kaupa „Capi-
tana.“ En ef ekki yrði um sölu
að ræða á skipum sínum, þá
gæti leiga komið til greina milli
sín og hafnarsjóðs Vestmanna-
eyja.
Enn fremur leyfi ég mér að
geta þess, að ég hefi fengið upp-
lýsingar um það, að hægt er að
fá fiskiskútu frá Færeyjum á
leigu, en ég tel umrætt skip
helzt til of lítið, aðeins 60—70
tonn.
Ég tel, að ákip gert út af hafn-
arsjóði til fiskflutninga til Bret-
lands, mundi koma til að skapa
hafnarsjóði nokkrar tekjur á n.
k. vertíð eins og nú horfir. Og
frá mér séð tel ég hikluast að
fara beri frekar þá leið til að
afla hafnarsjóði tekna, en að
hækka vörugjald frá því sem
nú er. Að sjálfsögðu er ég reiðu-
búinn að gefa nefndinni fyllri
upplýsingar um þetta, ef hún
óskar þess.
Og að sjálfsögðu skal þess get-
ið, að ég tók það fram við þá
aðila, sem ég hefi rætt þetta mál
við, og að framan er getið, að
ég mundi láta hafnarnefnd í té
þessar upplýsingar og hún
mundi svo koma til með að ræða
um leigu á skipi eða skipum við.
þá, ef hún gæti fallizt á tillögur
mínar í þessu efni.
Að lokum leyfi ég mér að fara
fram á, að hafnarnefnd taki mál
þetta til rækilegrar athugunar
áður en tillögur hennar um
hækkun vörugjalds verða til
annarar og lokaumræðu í bæj-
arstjórninni, og leggi niðurstöðu
þeirra fyrir n. k. bæjarstjórnar-
fund. Ég vænti þess og að þér
gefið mér kost á að fylgjast með
gangi þessa máls.
Virðingarfyllst.
Sveinn Guðmundsson.
Til hafnarnefndar
Vestmannaeyj akaupstaðar.“
Á aukafundi í bæjarstjóm
Vestmannaeyja, er haldinn var
20. jan. ’43 var spmþykkt tillaga
frá fulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins að hækka hafnargjald af
ísvörðum fiski um 100%.