Morgunblaðið - 24.06.2010, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 2010
„The A-Team setur sér það einfalda markmið
að skemmta áhorfendum sínum með látum, og
henni tekst það með stæl. Ekta sumarbíó!”
-T.V. - Kvikmyndir.is
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
„Sumarið er komið
með kúlnaregni”
-S.V. - Mbl.
„Brjálaður hasar”
-J.I.S. - DV
HHH
T.V. - Kvikmyndir.is
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
HHHH
„Ofursvöl Scarface
Norðurlanda“
Ómar Eyþórsson X-ið 977
Grown Ups kl. 5:50 - 8 - 10 LEYFÐ
The A-Team kl. 5:50 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 10:20
Sýnd kl. 4, 6 og 8
Sýnd kl. 4 - ÍSLENSKT TAL
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10
„Sumarið er komið með
kúlnaregni”
-S.V. - Mbl.
„The A-Team setur sér það einfalda markmið að
skemmta áhorfendum sínum með látum, og henni
tekst það með stæl. Ekta sumarbíó!”
-T.V. - Kvikmyndir.is
„Brjálaður hasar”
-J.I.S. - DV
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í BRETLANDI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
H E I M S F R U M S Ý N D
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greið með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
www.laugarasbio.is
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
gdu Aukakrónum!
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Útvarpsstöðin Kaninn hóf göngu sína
1. september í fyrra með höf-
uðstöðvar á Keflavíkurflugvelli þar
sem gamla Kanaútvarpið var staðsett
og útvarpsstöðin dregur nafn sitt af.
Nú hefur verið ákveðið að flytja höf-
uðstöðvar Kanans til Reykjavíkur og
verður hann í Skeifunni 7, í turni
hússins sem hýsir m.a. verslunina
Elko. Hinar nýju höfuðstöðvar verða
vígðar á mánudaginn, 28. júní.
Einar Bárðarson, útvarpsstjóri
Kanans, segir ástæðuna fyrir flutn-
ingunum þá að nýir aðilar séu að
koma að rekstrinum og að í raun hafi
þessi flutningur verið skref sem
menn sáu fyrir sér að taka fyrr eða
síðar. Einar segir ótímabært að
nefna hverjir hinir nýju rekstrarað-
ilar séu, þar sem hópurinn sé enn í
mótun.
Eins og Mogginn
– Nú er nafnið á stöðinni dregið af
staðsetningunni, Vellinum og Kana-
útvarpinu, eruð þið ekki að eyði-
leggja að vissu leyti hugmyndina að
baki stöðinni með því að flytja hana?
„Nei, þetta er bara eins og þegar
Morgunblaðið flutti úr miðbænum,
allt hefur sinn stað og stund,“ svar-
ar Einar. Þá séu 98% af við-
skiptavinum Kanans á höfuðborg-
arsvæðinu, þ.e. auglýsendur, og
gott að komast nær þeim.
– Verður einhver breyting á dag-
skrárgerðinni í kjölfar þessara
flutninga?
„Nei, ég geri nú ekki ráð fyrir
því. Flestir af þeim sem verið hafa
„on air“ hafa náttúrlega keyrt frá
höfuðborgarsvæðinu þannig að það
verður kannski auðveldara að
sækja vinnu, ef eitthvað er.“
Nýir tímar
Einar segir þetta nýja tíma fyrir
Kanann. „Kaninn hefur sent út frá
Keflavík síðan 1951 þannig að þetta
verður bara spennandi,“ segir
hann. – Og innkoma nýrra rekstr-
araðila þýðir væntanlega að meiri
peningur fer í reksturinn og að
staða stöðvarinnar verður þá betri?
„Já, svona vonandi léttir aðeins á
rekstrinum, já.“
Kaninn flytur til Reykjavíkur
Útvarpsstöðin Kaninn fer af Vellinum í Skeifuna Nýir
aðilar komnir að rekstrinum en engin breyting á dagskrá
Eins og Kani Kynningarmynd af Einari
Bárðarsyni útvarpsstjóra fyrir útvarps-
stöðina hans Kanann, nú í Skeifunni.
www.kaninn.is
Gamanmyndin Grown Ups, eða Full-
orðnir, verður frumsýnd í dag og
skartar hún mörgum sprelligosum í
aðalhlutverkum, þeim Adam Sand-
ler, Kevin James, Chris Rock, Rob
Schneider og David Spade en leik-
konurnar eru ekki eins þekktar fyr-
ir gamanleik, þær Salma Hayek,
Maria Bello og Maya Rudolph.
Grínmynd þessi segir af fimm körl-
um og æskuvinum sem hafa ekki
hist í háa herrans tíð. En nú gefst
tækifæri til að rifja upp gömul
kynni því heiðra skal látinn körfu-
knattleiksþjálfara sem þjálfaði þá
fyrir margt löngu. Félagarnir
ákveða að eyða saman helgi með
eiginkonum og börnum við stöðu-
vatn eitt, á sama stað og þeir fögn-
uðu körfuknattleikstitli fyrir ein-
hverjum áratugum. Endurkynnin
gera þeim ljóst að þó þeir séu orðn-
ir fullorðnir hafi hegðun þeirra lítið
breyst frá því þeir voru stráklingar
að leika sér.
Erlendir dómar eru fáir um mynd-
ina á netinu enn sem komið er. Vef-
urinn Rotten Tomatoes hefur tínt
saman fjóra neikvæða dóma, þ.e.
„rotna“, og engan jákvæðan og
Village Voice gefur myndinni 30
stig af 100 mögulegum.
Fullorðnir að leik Gamanleikararnir í Grown Ups í vatnsskemmtigarði.
Fullorðnir sprelligosar
FRUMSÝNING»