Morgunblaðið - 24.06.2010, Qupperneq 40
FIMMTUDAGUR 24. JÚNÍ 175. DAGUR ÁRSINS 2010
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
1. Bruðlurum bjargað
2. Donovan hetja Bandaríkjanna
3. Defoe skaut Englendingum áfram
4. Nýjasta lýtaaðgerðin
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónlistarhátíðin Pönk á Patró verð-
ur haldin í fyrsta sinn um helgina í
Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði og
svo aftur 7. ágúst næstkomandi. Sér-
hugsuð hátíð fyrir börn og unglinga,
segir skipuleggjandi hennar. »33
Tónlistarhátíð fyrir
börn og unglinga
Listahátíðin
Jónsvaka hefst á
morgun, en á
henni verður boð-
ið upp á ýmsa list-
viðburði. Meðal
þess sem boðið er
upp á er að Ragn-
heiður Bjarnarson
sýnir tvö frum-
samin íslensk dansverk í Nýlistasafn-
inu um næstu helgi: Þráðarhaft á
laugardag kl. 18 og Kyrrja á sunnudag
kl. 14. »31
Sýnir tvö frumsamin
íslensk dansverk
Úrslit í Gaddakylfunni 2010,
glæpasagnasamkeppni tímarits-
ins Mannlífs og Hins íslenska
glæpafélags, voru tilkynnt í
gær. Verðlaunin í ár hlýtur
Halldór E. Högurður fyrir
söguna Innan
fjölskyldunnar
en átta bestu
sögurnar
birtast í
Mannlífi
sem kemur
út í dag.
Úrslit Gaddakylf-
unnar tilkynnt
Á föstudag og laugardag Austlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og væta af og til S- og SV-
lands, en annars bjart að mestu. Hiti 12 til 18 stig, en svalara á annesjum N- og A-lands.
Á sunnudag Austlæg átt, 8-13 m/s syðst á landinu og við N-ströndina, annars hægari.
Dálítil rigning sunnantil, en annars skýjað með köflum. Hiti 10 til 17 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Rigning með köflum N- og A-lands, annars léttskýjað að mestu.
Líkur á síðdegisskúrum S- og SV-lands. Þurrt í kvöld. Hiti 7 til 19 stig, hlýjast á S-landi.
VEÐUR
KR komst áfram í 8-liða úr-
slit VISA-bikars karla í
knattspyrnu í gærkvöld
með 2:1 sigri á Fjölni eftir
að hafa lent undir í seinni
hálfleik. Sigurinn var þó
fyllilega verðskuldaður.
Valur lenti einnig í vand-
ræðum gegn Víkingi R. en
komst að lokum áfram líkt
og Víkingur Ó., sem leikur í
2. deild, og Stjarnan og
Þróttur R. Þrír leikir fara
fram í kvöld. »4
Reykjavíkurveldin
sluppu fyrir horn
Englendingar sluppu í 16-liða úrslit
heimsmeistarakeppninnar í fótbolta
með því að sigra Slóvena, 1:0, í Suð-
ur-Afríku í gær. Þeim tókst þó ekki að
vinna C-riðilinn, það gerðu Banda-
ríkjamenn með því að vinna Alsír 1:0
á marki í uppbótartíma. Fabio Ca-
pello, landsliðsþjálfari Englands,
fagnaði gífurlega með sínum mönn-
um í leikslok. »3
England og Bandaríkin
komust í 16-liða úrslit
Þýskaland og Gana tryggðu sér sæti í
16-liða úrslitum á HM í knattspyrnu í
gærkvöldi úr D-riðli en Serbar og
Ástralar sitja eftir með sárt ennið.
Gana er fyrsta Afríkuþjóðin á þessu
móti sem kemst í 16-liða úrslit. Þjóð-
verjar mæta Englendingum í næstu
umferð og sigurlið þess leiks leikur
annaðhvort við Argentínu eða Mexíkó
í 8-liða úrslitum. »2-3
Gana í 16-liða úrslit
fyrst Afríkuþjóða
ÍÞRÓTTIR
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Vesturbæjarlaug hefur endurheimt
gersemi sína. Í gær var nýtt fiska-
búr afhjúpað og stendur í anddyri
sundlaugarinnar. Búrið er hug-
arfóstur félags Vesturbæinga.
Meðlimir félagsins brettu upp erm-
ar og ákváðu að gefa hverfinu sínu
það sem það hafði saknað svo lengi.
Gleðigjafinn í anddyrinu
Lengi vel stóð fiskabúr í anddyri
Vesturbæjarlaugar. Skömmu eftir
að sundlaugin var opnuð á fyrri
hluta sjöunda áratugarins, lagði
arkitektinn Gísli Halldórsson til að
fiskabúr yrði sett upp fyrir gesti
laugarinnar. Hann hannaði búrið
sem var lengi vel eitt helsta að-
dráttarafl Vesturbæjarlaugar-
innar. Einkum þótti yngri gestum
laugarinnar mikið til búrsins og
íbúa þess koma. Að lokum var búr-
ið fjarlægt, en ástæða þess var
fyrst og fremst hið mikla umstang
sem búrið krafðist.
Það voru einmitt áðurnefndir
yngri gestir sem höfðu frumkvæði
að nýja búrinu. Að vísu teljast þeir
ekki lengur til yngri gesta. Í dag
mynda þeir vináttufélag Vestur-
bæjar sem nefnist Mímir.
Lífguðu bernskuminningar við
Einar G. Guðmundsson er einn fé-
lagsmanna. Hann segir að hug-
myndin hafi kviknað í kjölfarið á
hversdagslegum umræðum um
gömlu tímana.
„Við hugsuðum með okkur að við
gætum ekki alltaf nöldrað um
hvernig hlutirnir voru áður. Okkur
langaði að gera eitthvað upp-
byggilegt,“ segir Einar, sem hafði
yfirumsjón með verkefninu.
„Fiskabúrið var lítið og
saklaust mál, sem þó hefur
stærri merkingu vegna
þess frumkvæðis sem íbú-
ar sýndu þegar það var
upphaflega sett upp.“ Þegar Vest-
urbæjarlaugin var byggð var það að
hluta til gert fyrir samskot íbúa
Vesturbæjar.
Nýja fiskabúrið var alfarið fjár-
magnað með frjálsum framlögum
Vesturbæinga og velunnara sund-
laugarinnar. Kostnaðurinn er hátt í
milljón krónur. Að baki verkefninu
liggur fjöldi vinnustunda. Einar seg-
ir að allir hafi gefið vinnu sína.
Látum umhverfið okkur varða
Einar kveðst sérstaklega ánægð-
ur með sögulega skírskotun verk-
efnisins.
„Þetta minnir á þá tíma þegar
borgarar létu nærumhverfi sitt sig
varða. Það er gott að sjá íbúa taka
þátt í að móta umhverfi sitt í sam-
ráði við yfirvöld.“
Einar er vongóður um að fiska-
búrið muni auka veg Vesturbæjar-
laugar í sundlaugaflórunni.
„Einhver sagði, að Vesturbæjar-
laug væri eins og gömul hefðarfrú.
Hún á að fá að eldast í friði, án þess
að nokkur reyni að yngja hana upp.
Hún þarf engar rennibrautir, hún er
góð eins og hún er.“
Endurheimtu hverfisgersemina
Vesturbæjarlaug fær nýtt fiskabúr
Íbúar stóðu fyrir framkvæmdinni
Morgunblaðið/Kristinn
Sundlaug innan sundlaugar Nýja fiskabúrið er gríðarlega stórt. Það rúmar um 900 lítra af vatni og mikinn fjölda litskrúðugra fiska.
„Mér datt í hug að nýta hina rúm-
góðu forstofu laugarinnar til að
gera eitthvað til að stytta fólki
stundir á meðan það beið í bið-
salnum,“ segir Gísli Halldórsson.
Gísli hannaði upprunalega búrið
sem var fjarlægt á níunda ára-
tugnum. Gísli er einn þekktasti
arkitekt þjóðarinnar og á að baki
glæstan feril.
Gísli er afar ánægður með
endurkomu fiskabúrsins.
„Það er vel þegið að
búrið sé komið aftur og ég
fagna því mjög,“ segir
hinn 96 ára gamli Gísli.
Hann gat því miður
ekki verið við-
staddur afhjúp-
unina.
Fagnar
framtakinu
GÍSLI HALLDÓRSSON