Framsóknarblaðið - 23.05.1956, Qupperneq 1
flý siefna í úívegs-
málum.
2 kosningastefnuskrá Fromsóknarfiokksins og Ai-
þýðufiokksins er stefnfr oð því, að úfrgerðarrreenn og
sjómesin féi sannvirði framðeiðsðunnar í eigin
hendur.
Sjálfsfræðisflokkurinn
og úfrvegsmálin.
Á undanförnum árum hafa
ráðherrar Sjálfstæðisflokksins
haft á valdi sínu útvegsmálin,
gjaldeyrismálin og viðskiptamál
in o. fl. mikilvæg mál í athafna
og mcnningarlífi þjóðarinnar.
Og livað er svo að? Hvers vegna
eru allir óánægðir með stjórn
þeirra á þessum málum nema
fámenn gæðingastétt þeirra í
Reykjavík? Af þeirri einföldu á-
stæðu, að öll þessi fjárhags- og
atvinnumáh sem ráðherrar Sjálf
stæðisflokksins hafa farið með,
eru að fara í hundana, eru í
megnasta ólagi. Sjómaðurinn
hefur verið hlunnfarinn um
verðið á fiskinum. Að minnsta
kosti er það ekki afsannað. Þetta
liefur ekki átt sér stað af völdum
útgerðarmannsins. Nei, alls ekki.
Ástæðan er sú, að afurðasölu-
skipulagið er vitlaust og sniðið
til hagsbóta fámennri gróðastétt
í landinu, — stéttinni, sem ráð-
lterrar Sjálfstæðisflokksins verða
að lilýða nauðugir viljugir sök-
um þess valds, sem peningarnir
og gróðaaðstaðan í þjóðfélaginu
veitir gróðastétt Reykjavíkur.
Sú stétt telur svo nokkra menn
í kaupstöðunum „sína menn“ og
lætur bankana veita þeim næsta
takmaikalítið fé í fyrirtæki
þeirra. Allur almenningur á svo
að þjóna þessu ófyrirleitna pen-
ingavaldi. Ráðherrar Sjálfstæð-
isflokksins vita þetta og þeim
eru ljósir gallarnir á þessu öllu
saman, en þeir fá ekki rönd við
reist. Þeir eiga líka hið pólitíska
Hf sitt í höndum fjárbraflsmann
anna og gróðaklíkunnar.
Asfræðan fyrir samvinísu
slifrunum.
Sú saga hefur endurtekið sig
þrisvar sinnum, að Framsóknar
flokkurinn hefur orðið að slíta
samvinnu við Sjálfstæðisflokk-
inn í ríkisstjórn af gildum ástæð
um. Þegar Framsóknarflokkur-
inn hefur neyðzt til að mynda
ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokkn
um sökum þess glundroða, sem
Stalinistarnir liafa skapað í at-
vinnulífi þjóðarinnar á undan-
förnum áratugum, þá hafa ráð-
herrar Sjálfstæðisflokksins virzt
allir af vilja gerðir til þess að
stjórna málefnum útgerðar-
manna og sjómanna vel og
drengilega og láta ekki á þá hall
ast í fjármála- og atvinnulífinu.
En jafnan hefur sigið á ógæfu-
hliðina í þeim efnum, þegar lið
in hafa verið 2—3 ár frá stjórn-
armyndun. Svo er t. d. nú kom-
ið hagsmunamálum útgerðar-
manna og sjómanna. Gróðastétt-
in, sem situr við og hrærir í
kjötpottunum í Reykjavík, rak-
ar að sér fé á kostnað útgérðar-
manná og sjómanna, svo fjárhag
*ur útvegsins sligast undir at
vinnurekstrinum, og útgerðar-
mönnum er fjárhagslegur voði
búinn, ef ekki verður hægt að
kippa í strenginn innan tíðar og
breyta um stefnu í fjármálum og
afurðasölumálunum. Fjármagnið
og framleiðslutækin eru sí og æ
að verða eign aðeins fárra manna
vegna liins vitlausa skipulags og
eiginhagsmunastjórnar og póli-
tískrar stjórnar bankanna í land
inu. Já, allir hugsandi menn sjá
og vita, að fjármagninu er veitt
í hendur nokkurra manna, sem
stöðugt færa út kvíar sínar, efla
og bæta gxóðaaðstöðu sína, fjölga
framleiðslutækjum sínum og
auka þau, og auka verzlunarað-
stöðu sína og öll önnur gróða-
vænleg viðskipti, allt á kostnað
útgerðarmanna og annarra
framleiðslustétta í þjóðfélaginu,
þar sern hið nýja 'skipulag, sem
bændur notfæra sér, nær ekki
t;I og er ekki notað við sjávar-
síðuna.
Hvernig er svo þróunin í þess
um málum hér í Eyjum? Er
nokkur Eyjabúi svo blindur á al-
raenn fjármál og fjármála- og at-
vinnuþróun, að hann sjái ekki
eða gangi þess dulinn, hvernig
allt þetta mótast og þróast? Þró-
unin hér í Eyjum er svohtil speg
ilmynd af heildarþróuninni í
þjóðfélaginu nú. Allt virðist
reka að því, að allur fjöldi út-
gerðarmanna og sjómanna verði
efnalega ófrjálsir rnenn, neyddir
til að leggja árar í bát um útgerð
og áthöfn alla og krjúpa að
knjám lámennrar stéttar, sem
hefir nú bankavald þjóðarinnar
og fjármagn í hendi sér. Vonir
standa nú til, að loksins opnist
augu þessara ágætu þjóðfélags-
þegna, þeir rísi nú upp á lýðræð
islegan hátt og styðji ekki leng-
ur við kosningar fjárgróða- og
milliliðastéttanna til valda í Al-
þingi og ríkisstjórn.
Véð kreíjumsfr þess# oð
sfrefnuskránni sé fram-
fylgfr úfr í æsar.
Framsóknarflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn hafa í samein-
ingu tilkynnt þjóðinni stefnu-
skrá, sem þeir vilja fylgja fram
í athöfnum sínum, ef þjóðin
veitir þeim brautargengi til þess
við þessar alþingiskosningar. Ef
svo verður, sem við vonum og
allt útlit er fyrir eftir þeim góðu
og glæsilegu undirtektum, sem
hún og kosningasamtök þessi fá
nú út um allt land, verður eng-
inn bilbugur á því að fylgja fast
fram stefnuskránni. Sá kafli
hennar, sem fjallar um málefni
útgerðarinnar og sjómannastétt-
arinnar, er mjög athyglisverður.
Þar segir m. a.: Starfræksla fyr-
FRAMBOÐ.
Afráðið hefur verið, að Ólafur
Þ. Kristjánsson skólastjóri Flens
borgarskólans verði í frantboði
hér fyrir Alþýðuflokkinn við al-
þingiskosningarnar, sem fram
eiga að fara 24. júní n. k.
Fulltrúaráð Framsóknarfélags
Vestmannaeyja samþykkti ein-
róma á fundi sínum 19. þ. m. að
styðja framboð Ólafs skólastjóra
og vinna af fremsta megni að
þvf, að lilutur hans verði sem
beztur. Ólafur Þ. Kristjánsson
hefur alltaf verið í vinstri armi
Alþýðuflokksins.
Að gefnu tilefnl.
Að gefnu tilefni óska ég að
tjá Eyjabúum þann sannleika,
að greiðsla til kennara Gagn-
fræðaskólans fyrir heimavinnu
nemur sem hér segir frá s. 1. ára-
mótum til skólaslita t8. þ. m.:
Sigfús J. Johnsen .......... kr. 789,24
Einar H. Eiríksson .......... — 1120,30
Víglundur Þ. Þorsteinsson .. — 920,93
Þorst. Þ. Víglundsson ....... — 160,00
Sigurður Finnsson .................... 00
Séra Jóliann Hlíðar .................. 00
Dagný Þorsteinsdóttir ................ 00
Samtals kr. 299047
AIls tvö þúsund níu hundruð
og níutíu krónur og fjörutíu og
sjö aurar.
Þ. Þ. V.
irtækja, sem vinna úr sjávarafla
landsmanna, skal endurskipu-
lögð með löggjöf í því skyni, að
sjómönnum og útvegsmönnum
verði tryggt sannvirði aflans.
Fulltrúar ríkisvaldsins ákveði í
samráði við fulltrúa sjómanna,
útvegsmanna og fiskvinnslu-
stöðva lágmarksverð á fiski, sem
öllum fiskvinnslustöðvum er
skylt að greiða. Stefnt sé að því,
að fiskvinnslustöðvar séu reknar
í sem nánustum tengslum við út
Framhald á 2. síðu.