Morgunblaðið - 26.06.2010, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 6. J Ú N Í 2 0 1 0
Stofnað 1913 147. tölublað 98. árgangur
LJÓÐ Á SPEGLUM
SEM HANGA Á
KARLYNJU
LÆKNIR
OG LANDS-
LIÐSMAÐUR
PRUFUTÍMI Í
TALANDI
BRÚNKUKLEFA
SUNNUDAGSMOGGINN HUNANGSGLJÁÐ INGVELDUR 10FORTÍÐIN Í SPEGLINUM 39
Skúli Á. Sigurðsson og
Önundur Páll Ragnarsson
Gengistryggð lán komu aldrei til at-
hugunar hjá Fjármálaeftirlitinu frá
því tekið var fyrir gengistryggingu ís-
lensks lánsfjár með lögum og þar til
dómar Hæstaréttar staðfestu í síð-
ustu viku að slík trygging væri ólög-
mæt. Þetta herma heimildir innan úr
FME en ólögleg gengistrygging við-
gekkst hér um átta ára skeið.
Þrátt fyrir þetta voru og eru lög um
eftirlitsskyldu FME ótvíræð og
ákvæði vaxtalaga skýr um hvers kon-
ar verðtrygging er heimil.
Ónógar fjárveitingar, viðhorf þess
ólögmæt og þau verða aðeins látin
bera hina ofurlágu vexti sem eru á
þeim í dag. „Þeir hafa auðvitað sett
sig inn í þetta mál og hafa verulegar
áhyggjur af því,“ segir Gylfi Magn-
ússon efnahags- og viðskiptaráð-
herra.
Hann segir þó enga línu hafa komið
frá AGS um viðbrögðin. Hann viti
ekki hvort þetta hafi áhrif á þriðju
endurskoðun efnahagsáætlunar AGS.
Svipuð svör fengust í Seðlabankanum
í gær, enn væri of langt í hana og of
margt gæti gerst í millitíðinni til að
hægt væri að segja til um það.
tíma til afskipta stjórnvalda af við-
skiptalífinu og skortur á forgangsröð-
un og áræði urðu til þess að eftirlitið
náði ekki markmiði sínu. Óskýr mörk
milli verksviða eftirlitsstofnana bættu
heldur ekki úr skák.
Í raun treysti Fjármálaeftirlitið
lögfræðingum bankanna, á sínum
tíma, til þess að meta lögmæti geng-
istryggingarinnar án nokkurrar sjálf-
stæðrar skoðunar.
Áhyggjufullur gjaldeyrissjóður
Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðs-
ins gagnvart Íslandi hafa áhyggjur af
afdrifum nýju bankanna, ef gengis-
trygging krónulána dæmist almennt
FME skoðaði aldrei gengislánin
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur verulegar áhyggjur af bönkunum vegna afnáms gengistryggingar
Viðskiptaráðherra segir ekki sjálfgefið að eigendur nýju bankanna vilji setja nýtt eigið fé inn í þá
MMyntkarfan týndist »2, 15
Afstaða Sjálfstæðisflokksins í Evrópumálum
byggist á raunsæislegu mati á því hvað þjónar
hagsmunum Íslendinga best til langs tíma. For-
ysta í utanríkismálum felst í staðfastri afstöðu
sem stenst dóm tímans. Þetta sagði Bjarni Bene-
diktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í setn-
ingarræðu sinni og einnig að við núverandi að-
stæður væri réttast að leggja umsókn að
Evrópusambandinu til hliðar. »14
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Réttast að leggja umsókn að ESB til hliðar
Borgarstjóra Reykjavíkur grunar að
hækkun á gjaldskrá Orkuveitu
Reykjavíkur sé óumflýjanleg á næst-
unni. „Mig grunar að það þurfi að
hækka gjaldskrána og það sé óum-
flýjanlegt. Mér sýnist allar forsend-
ur benda til að það sé eitthvað sem
verður að grípa til,“ sagði Jón Gnarr
borgarstjóri í kjölfar aðalfundar
Orkuveitunnar, sem fram fór í gær.
Jón kveðst hvorki vita hversu mik-
ið þarf að hækka gjaldskrána né hve-
nær hækkunin mun eiga sér stað.
Orð hans ganga jafnframt og því sem
næst gegn orðum nýkjörins stjórn-
arformanns.
Haraldur Flosi Tryggvason, for-
maður stjórnar Orkuveitunnar, seg-
ist ekki endilega vilja hækka gjald-
skrána.
„Ég vil ekki gera það að einhverri
pólitík að þurfa endilega að fara í
gjaldskrárhækkun. Við munum að
sjálfsögðu leitast við að spara í
rekstrinum,“ segir Haraldur. Hann
bendir á að núna sé taprekstur á fé-
laginu og það verði að leiðrétta.
„Ef sú óþægilega staða er uppi að
það þurfi að hækka gjaldskrá verð-
um við bara að horfast í augu við það
og takast á við það eins og menn. En
það er ekki fyrirfram gefið.“ »9
Morgunblaðið/ÞÖK
Hækkun í pípunum Útlit er fyrir að
gjaldskrá Orkuveitunnar hækki.
Grunar að gjaldskrár-
hækkun sé óumflýjanleg
Þegar eignir voru færðar úr gömlu
bönkunum yfir í þá nýju var aldrei
gert ráð fyrir að gengistrygging
lána kynni að verða dæmd ólög-
mæt af dómstólum. Það undir-
strika ummæli Gylfa Magnússonar
viðskiptaráðherra frá því í sept-
ember 2009. Gunnar Tómasson
hagfræðingur sendi öllum þing-
mönnum jafnframt bréf í sama
mánuði, sama ár, þar sem hann
varaði við því að engir fyrirvarar
hefðu verið settir við því að færa
gengistryggð lán yfir í nýju bank-
ana án nokkurra fyrirvara. Geng-
istryggð lán voru færð yfir í nýju
bankana með talsverðum afslætti,
sem virðist þó ekki veita bönk-
unum borð fyrir báru, ef marka má
ummæli embættismanna. »20
Eignir keyptar dýru verði
FÆRSLA EIGNA FRÁ GÖMLU BÖNKUNUM YFIR Í NÝJU BANKANA
Staða Dags B. Eggertssonar er tal-
in hafa veikst í kjölfar slakrar út-
komu Samfylking-
arinnar í borgar-
stjórnarkosning-
unum. Ólafur Þ.
Harðarson pró-
fessor rýnir í nið-
urstöður kosning-
anna á flokksstjórn-
arfundi Samfylkingarinnar í dag.
Samfylkingarmenn virðast telja að
flokkurinn hafi aðeins „sloppið fyr-
ir horn“ með því að ganga til sam-
starfs við Besta flokkinn. Eftir
standi að útkoman hafi verið slök
og umræðu og endurbóta sé þörf.
Starf umbótanefndar Samfylk-
ingarinnar verður kynnt í fyrsta
sinn á fundinum. »16
Ræða slaka útkomu
Töluverðrar óánægju gætti við al-
mennar stjórnmálaumræður á
flokksráðsfundi Vinstri grænna í
gærkvöldi og beindist sérstaklega að
aðildarumsókn Íslands að Evrópu-
sambandinu. Tillaga liggur fyrir
fundinum þess efnis að Vinstri græn-
ir beiti sér fyrir því að draga umsókn-
ina til baka.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur flokksins, fór með hvatningarræðu
og sagði leiðina liggja inn í framtíðina
þó svo slagurinn stæði yfir. „Þessu
miðar öllu í rétta átt en margar
brekkur eru eftir og þá sérstaklega
ein,“ sagði Steingrímur og vísaði til
fjárlagagerðar næsta árs. »4
Óánægja
með ESB
Brúnaþungir Árni Þór Sigurðsson
og Steingrímur J. Sigfússon.
Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur
hjá Umhverfisstofnun, segir það
áhyggjuefni hversu lengi aska úr
eldgosinu í Eyja-
fjallajökli mun
halda áfram að
dreifast um
byggðir landsins
með vindum.
Að hans mati
mun öskufjúkið
verða viðvarandi
í nokkur ár.
Þorsteinn telur ennfremur að í
vissum vindáttum geti askan hæg-
lega borist í miklum mæli til Reykja-
víkur.
Hann telur þó öskuna skárri en
svifryk af völdum umferðar en að
öllum líkindum verri en sandfok. »4
Öskufok næstu árin