Morgunblaðið - 26.06.2010, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
„Það er áhyggjuefni hvað við sitjum lengi uppi
með þetta. Þetta er ekki eitthvað sem lagast á
einhverjum vikum. Við erum að tala um ein-
hver ár,“ segir Þorsteinn Jóhannsson, sér-
fræðingur hjá Umhverfisstofnun, um hættuna
á því að aska úr eldgosinu í Eyjafjallajökli
haldi áfram að dreifast um byggðir með vind-
um.
Þorsteinn segir að því lengri tími sem líði frá
gosinu því minni líkur séu þó á að askan fari af
stað. Ennfremur að minni líkur séu á að það
gerist þar sem er gróið land sem skýli öskunni
en þar sem lítill eða enginn gróður sé. „Þetta
hefur sést á túnum undir Eyjafjöllum þar sem
er kannski þykkara öskulag en úti á Sólheima-
sandi. Það fýkur meira af honum. Það er að-
allega af þessu ógróna svæði sem maður hefur
áhyggjur til einhverra ára,“ segir Þorsteinn.
Fleiri öskudagar í Reykjavík?
Aðspurður hvort búast megi við því að aska
berist til höfuðborgarsvæðisins í miklum mæli
eins og gerðist ekki alls fyrir löngu segir Þor-
steinn ljóst að í því tilfelli hafi ekki verið um
slæmt veður að ræða. Það hafi alls ekki verið
hvasst fyrir austan þá. Ef það hins vegar gerð-
ist gæti askan hæglega borist til borgarinnar.
„Við höfum fengið miklu meiri vindstrengi
undir Eyjafjöllum. Það hafa komið svona til-
felli kannski einu sinni eða tvisvar á ári þar
sem þurr austanátt hefur blásið upp af Land-
eyjasandi og þá berst það akkúrat yfir Reykja-
vík,“ segir Þorsteinn.
Búast má við öskufjúki á næstu árum
Mest hætta á öskufoki af gróðurlitlum svæðum
Getur hæglega aftur borist til borgarinnar
Hálendisvakt
björgunarsveita
Slysavarna-
félagsins Lands-
bjargar hóf störf
í gær en þetta er
fjórða árið sem
hún er rekin.
Fjórar sveitir
verða ávallt
staddar á hálend-
inu meðan á
vaktinni stendur, þ.e. frá 25. júní til
15. ágúst. Verkefnin eru helst að
leiðbeina og aðstoða ferðamenn
auk þess að sinna leit og björgun.
Verkefnið er alfarið rekið með
sjálfboðaliðum og taka 27 björg-
unarsveitir þátt í hálendisgæslu í
sumar. Verkefnum hefur fjölgað ár
frá ári og til dæmis má nefna að ár-
ið 2008 voru 367 aðstoðarbeiðnir
skráðar en á síðasta ári ríflega níu
hundruð. Samkvæmt upplýsingum
frá Landsbjörg er mest um aðstoð
við ár og vöð en einnig nokkuð um
að grennslast sé eftir ferðamönnum
sem skila sér ekki á tilteknum tíma
í skála og aðstoð við ferðamenn
með bilaða bíla og sprungin dekk.
Straumur ferðafólks á hálendið
eykst ár frá ári, ávallt verða óhöpp
og slys og árlega banaslys á fjöll-
um. Því skipta skjót viðbrögð miklu
máli.
Fjórar sveitir ávallt
staddar á hálendinu
fyrir ferðamenn
Vakt Aðstoð veitt
ferðamanni í fyrra.
Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Um-
hverfisstofnun, segir að askan sem gosið í
Eyjafjallajökli skildi eftir sig sé almennt séð
skárri en svifryk af völdum umferðar en lík-
lega verri en sandfok. Bæði sé foksandur yf-
irleitt aðeins grófari þannig að hann fer síður
ofan í lungu fólks og einnig hafi sandurinn
fokið fram og aftur um ógróin svæði árum og
jafnvel áratugum saman og sé því orðinn
mjög rúnnaður. Öskukornin eru hins vegar
hvassari og beittari og festist því frekar. Lög-
un korna sem þessara sem rata ofan í lungu
manna skiptir að sögn Þorsteins heilmiklu
máli varðandi það hvernig þeim gengur að
losa sig við þau aftur.
Lögun korna skiptir máli fyrir lungun
GOSASKA SKÁRRI EN SVIFRYK AF VÖLDUM UMFERÐAR EN VERRI EN SANDFOK
Oddhvöss Gosaska úr Eyjafjallajökli í rafeindasmásjá.
Kópavogsbær fær einkunnina B
með jákvæðum horfum hjá íslenska
lánshæfismatsfyrirtækinu Reitun
ehf. Í niðurstöðunni kemur fram að
staða sveitarfélaga hafi almennt
versnað í efnahagskreppunni og
Kópavogur, sem sé eitt öflugasta
sveitarfélag landsins, sé þar ekki
undanskilinn.
Mikil aukning í skuldastöðu í
kjölfar efnahagshrunsins er meg-
inástæða einkunnarinnar og góðar
horfur á hratt batnandi skulda-
stöðu í kjölfar bata í innlendum
efnahagsmálum. „Ef það gerist, og
ef áætlanir sveitarfélagsins ganga
eftir, batnar matseinkunn,“ segir í
mati Reitunar.
Kópavogsbær fær
einkunnina B með
jákvæðum horfum
Morgunblaðið/Kristinn
Mat Bærinn fékk B í einkunn.
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Almennar stjórnmálaumræður voru
fjörugar í gærkvöldi á flokksráðs-
fundi Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs sem var settur í
gær. Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður flokksins, hóf umræðurnar
með hvatningarræðu til flokkssystk-
ina sinna. Hann kvað tíma sinn í rík-
isstjórn hafa verið ævintýralegan en
um leið krefjandi. Hann sagði störf
sín hafa gengið betur en hann þorði
að vona og kvað atvinnuleysi hafa
minnkað og þjóðarbúskapinn standa
betur en spáð var.
„Leiðin liggur inn í framtíðina en
við erum í miðjum slagnum,“ sagði
Steingrímur. „Þessu miðar öllu í
rétta átt en margar brekkur eru eftir
og þá sérstaklega ein,“ og vísaði þá
til fjárlagagerðar fyrir árið 2011.
Steingrímur kvaðst þá eiga þá
draumsýn að geta í framtíðinni hugs-
að til baka og sagt: „Já það tókst og
það vorum við sem gerðum það,“ og
bætti svo við: „Ég, fyrir einn mann,
ætla ekki með það í gröfina á bakinu
að þetta hafi mistekist. Allavega ekki
svo að við sjálf höfum klúðrað
þessu.“
Óánægja með ESB
Töluverð óánægja kom fram í máli
margra fundargesta um aðildarum-
sókn Íslands að ESB.
Bjarni Harðarson, fv. þingmaður
Framsóknarflokksins, hóf ræðu sína
á að þakka fyrir hlýjar viðtökur.
„Mér var tekið ótrúlega vel, sem seg-
ir meira um flokkinn en sjálfan mig,“
sagði Bjarni sem er einn flutnings-
manna tillögu sem liggur nú fyrir
flokksráðinu þess efnis að Vinstri
grænir beiti sér fyrir því að ríkis-
stjórnin dragi aðildarumsókn Ís-
lands að ESB til baka en kosið verð-
ur um tillöguna kl. 14 í dag. „Ég held
að þetta sé mál sem við þurfum að
ræða. Ég held að þetta mál sé þannig
vaxið að við getum ekki bara sagt að
við höfum samþykkt að fara þessa
vegferð og bíða þess að þetta komi til
endanlegrar atkvæðagreiðslu. Það
hefur margt í forsendunum breyst,“
sagði Bjarni sem kvað 60-70% þjóð-
arinnar vera á móti aðild. „Við sem
höfum legið hvað mest í bókmennt-
um um þennan leiðinlega klúbb suð-
ur í Brussel vildum meina að það
væri hægt að senda bara inn aðild-
arumsókn. Það sem er í gangi núna
er bara hreint aðlögunarferli,“ sagði
Bjarni.
Allt í rjúkandi rúst
Snærós Sindradóttir hélt tilfinn-
ingaþrungna ræðu um þá sundrung
sem hún kvað ríkja í flokknum. „Hér
í flokknum er allt í rjúkandi rúst. Frá
stjórnarskiptum hefur ákveðinn
hópur hér innan flokksins farið mik-
inn í gagnrýni sinni á ríkisstjórnina.
Fyrst um sinn hugsaði ég með mér
að hér væri fólk sem vissi hvað það
vildi. Djöfull sem mér skjátlaðist,“
sagði Snærós og bætti við að það
væri skammarlegt að fullorðið fólk
rifist eins og hundar og kettir. Þá
kvað Snærós tortryggnina aldrei
hafa verið meiri innan flokksins og
taldi ákveðna klíku innan hans vera
að rífa hann á hol.
Þá tók Atli Gíslason til máls og bað
fundargesti að slökkva ekki á farsím-
um sínum. Hann tók fram að hann
hefði verið beðinn að halda sérstaka
samstöðuræðu. Hann bað alla að
standa upp og hringja í styrktarlínu
Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur
við góðar undirtektir fundargesta og
steig svo úr pontu.
Þorleifur Gunnlaugsson hélt ítar-
lega tölu um málsatvik Magma
energy-deilunnar í borgarstjórn. Þá
lagði hann fram tvær tillögur. Sú
fyrri er að ríkisstjórnin beiti öllum
ráðum til að taka yfir Magma energy
en sú seinni er þess efnis að sett
verði lög til að tryggja eignarhald al-
mennings á auðlindum Íslands.
Tvívegis voru lagðar til hugmynd-
ir um að öllu stjórnmálasamstarfi við
Ísrael yrði slitið og í bæði skiptin
tekið undir tillögurnar með lófataki.
Árni Þór Sigurðsson var annar
þeirra sem viðruðu þá hugmynd en
hann fjallaði einnig um störf utanrík-
ismálanefndar Alþingis. Hann árétt-
aði að ályktun Vinstri grænna þess
efnis að draga ætti aðildarumsókn
Íslands að ESB til baka gæti orðið til
þess að ríkisstjórnarsamstarfið rið-
aði til falls.
Róttækur og ögrandi flokkur
Sóley Tómasdóttir fjallaði þá um
stöðu sína í stuttu máli. „VG er rót-
tækur og ögrandi flokkur. Auðvitað
er ég stöðugt að læra og þroskast en
ég held að það gagnist lítið að reka
mig því það er nóg af róttæku og
ögrandi fólki í þessum flokki,“ sagði
Sóley sem kvað flokkinn ekki mega
breyta stefnu sinni þótt hún væri
óvinsæl. „Erum við ekki bara hug-
sjónafólk sem stendur með þeirri
stefnu sem við höfum mótað síðast-
liðin tíu ár? Verðum við ekki að
standa með þeirri stefnu, sama
hversu vinsæl eða óvinsæl hún er,“
sagði Sóley og hvatti flokksmenn til
að vinna saman. „Ég held að það
skipti mjög miklu máli að nú förum
við í það að skapa betri menningu
innan flokksins svo við stöndum ekki
hér gaggandi hvert á annað,“ sagði
Sóley.
Fjörugar umræður hjá VG
Tekist á um stefnumál Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs á flokksráðsfundi
Morgunblaðið/Kristinn
Fara yfir gögn Margt fólk var á fundinum en hann stendur yfir nú um helgina á Grand Hótel.
Morgunblaðið/Kristinn
Hugsi Ásmundur Einar Daðason og Bjarni Harðarson ráða ráðum sínum