Morgunblaðið - 26.06.2010, Síða 19
Fréttir 19INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010
Viðamikil rannsókn á einelti gegn börnum á
Íslandi hefur hlotið styrk að fjárhæð 2,2
milljónir króna úr Styrktarsjóði Margaret og
Bents Schevings Thorsteinssonar. Rannsókn-
inni er ætlað að efla sérfræðiþekkingu á ein-
elti enn frekar og styrkja þannig félagsleg
og lagaleg úrræði til að sporna við því, að
því er segir í tilkynningu frá styrktar-
sjóðnum.
Verkefnisstjóri eineltisrannsóknarinnar er
Þórhildur Líndal, forstöðumaður Rann-
sóknastofnunar Ármanns Snævarr í fjöl-
skyldumálefnum, en umsjón og stjórnsýsla
verkefnisins verður í höndum stofnunarinnar
í samvinnu við félagsráðgjafardeild, laga-
deild og menntavísindasvið Háskóla Íslands.
2,2 milljónir í
rannsókn á einelti
Morgunblaðið/Kristinn
Saman Brynhildur G. Flóvenz dósent við HÍ og formaður stjórnar styrktarsjóðsins, Þórhildur Líndal,
Margaret Scheving Thorsteinsson, Kristín Ingólfsdóttir rektor, Halldór S. Guðmundsson lektor við HÍ,
Halldóra Vanda Sigurgeirsdóttir lektor við HÍ og Bent Scheving Thorsteinsson, stofnandi sjóðsins.
Skortur er á upp-
lýsingum um
kostnað og vinnu
undirstofnana
ráðuneyta við að-
ildarumsókn Ís-
lands að ESB.
Þetta er mat
Gunnars Braga
Sveinssonar,
þingmanns
Framsókn-
arflokksins, sem óskaði nú á vordög-
um eftir svörum frá hverju ráðu-
neyti um kostnað og vinnu
ráðuneytanna og undirstofnana
þeirra vegna aðildarumsóknarinnar.
„Mér þótti þessi svör að mörgu leyti
mjög undarleg, ekki síst að sam-
kvæmt þeim skuli ekki nema tvö til
þrjú ráðuneyti bera einhvern kostað
af umsókninni. Maður hefði haldið
að kostnaður lægi víðar,“ segir
Gunnar Bragi. Svör vanti að sínu
mati varðandi undirstofnanir ráðu-
neyta. „Ég er þess fullviss að stofn-
anir á borð við Byggðastofnun hafa
lagt töluverða vinnu í umsóknina og
er sannfærður um að þetta er um-
fangsmeira en fram kemur í þessum
svörum.“
Ein skýring á kostnaðartölum
kunni að vera sú að ráðuneytin vinni
málin jafnóðum og tilefni er til.
Áætlanir um framtíðarkostnað ættu
þó að liggja fyrir. „Slíkar tölur má
væntanlega nálgast hjá öðrum ríkj-
um sem hafa farið í gegnum þetta og
heimfæra þær með einhverjum
hætti.“
Gunnar Bragi kveðst því hafa full-
an hug á að fylgja málinu eftir á
haustþingi og reyna að ná fram ná-
kvæmari svörum um kostnað vegna
ESB-umsóknarinnar. annaei@mbl.is
Undarleg
svör frá
ráðuneytum
Skortir upplýsingar
um undirstofnanir
Gunnar Bragi
Sveinsson
Rangfærsla í
æviágripi
Rangt var farið með dánarár í æviá-
gripi um Óla Má Guðmundsson sem
birtist í Morgunblaðinu 24. júní sl.
Hið rétta er að hann lést árið 1997.
Hlutaðeigendur eru beðnir velvirð-
ingar á mistökunum.
Í grein um ný hjúkrunarrými fyrir
eldri borgara sem birt var í blaðinu í
gær var ranglega ritað að Fjarða-
byggð hefði gert samning við félags-
og tryggingamálaráðuneytið um
byggingu hjúkrunarheimilis. Hið
rétta er að Fljótsdalshérað gerði
slíkan samning við ráðuneytið. Beð-
ist er velvirðingar á þessum mistök-
um.
LEIÐRÉTT
Tvítug stúlka féll ofan af þriðju hæð
fjölbýlishúss á Akureyri síðdegis í
gær. Lenti hún á grilli en slapp
óbrotin. Stúlkan er undir eftirliti
lækna en mikil mildi þykir að ekki
skyldi fara verr. Lögreglan á Akur-
eyri hefur til skoðunar af hverju
stúlkan var að príla á húsinu.
Stúlka féll af
þriðju hæð
mbl.is
smáauglýsingar