Morgunblaðið - 26.06.2010, Side 22
FRÉTTASKÝRING
Anna Sigríður Einarsdóttir
annaei@mbl.is
T
ekjujöfnunarframlag verð-
ur lagt niður í núverandi
mynd og tekið upp nýtt
fyrirkomulag útgjalda-
jöfnunar verði tillögur
starfshóps um endurskoðun á reglu-
verki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga að
veruleika. Vinna er raunar þegar hafin
innan samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytisins við að innleiða breyt-
ingar á lögum og reglugerðum svo
veruleg breyting geti orðið á starfi
jöfnunarsjóðs strax á næsta ári.
„Þessi skýrsla verður ekki lögð
upp í hillu,“ sagði Kristján L. Möller
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
á blaðamannafundi og kveður næsta
skref vera að setja af stað vinnuhóp
með Sambandi íslenskra sveitarfélaga
sem fái það hlutverk að útfæra enn
róttækari breytingar á sjóðnum.
Samstarfshópurinn leggur til að
strax um áramót verði skýr greinar-
munur gerður á verkefnum Jöfnunar-
sjóðs og er þetta meðal þeirra verk-
efna sem nú er unnið að í ráðuneytinu.
Verkefnunum verði skipt upp í
A-deild, er lúti að öllum framlögum
sem hafa jöfnunartilgang, og B-deild,
sem sinni öðrum verkefnum. Með
þessu sé komið í veg fyrir að verkefni
A-deildar líði fyrir sveiflur verkefna
B-deildar, líkt og raunin er í dag.
Þá verði dregið úr framlögum til
fámennra sveitarfélaga, enda sýni út-
reikningar að útgjaldaþörf þeirra hafi
verið ofmetin. Framlög verði hins veg-
ar aukin hjá sveitarfélögum með
3.000-11.000 íbúa þar sem þau hafa
verið vanmetin. Breytingar verði einn-
ig gerðar á öðrum viðmiðum greiðslna,
s.s. vægi aldurshópa íbúa, fjarlægðum,
fjölda þéttbýliskjarna og fækkun íbúa.
Ekki sama þörf alls staðar
Vilji er þó til að meiri grundvall-
arbreyting verði gerð á jöfnunar-
kerfinu. „Hlutverk sjóðsins á að vera
að jafna aðstöðu fólks. Vandinn hefur
hins vegar verið sá að jöfnunin hefur
verið afgangsstærð og því viljum við
snúa við,“ segir Flosi Eiríksson, for-
maður starfshópsins. Sá jöfnuður sé
ekki fyrir hendi í dag og sveitarfélög
fái úthlutað úr sjóðnum óháð raun-
verulegri þörf.
Mælir starfshópurinn með að
þróað verði nákvæmt útgjaldamæling-
arkerfi í samstarfi við Samband ís-
Engin framlög veitt
dugi skatttekjurnar
Áhrif framlaga Jöfnunarsjóðs
á tekjuhæstu og tekjulægstu sveitarfélögin
8%
14%
11%
21%
26%
52%
73%
130%
119%
178%
2.000.000
1.800.000
1.600.000
1.400.000
1.200.000
1.000.000
800.000
600.000
400.000
200.000
0
Fljótsdalshreppur
Skorradalshreppur
Hvalfjarðarsveit
Grímsn.ogGrafningshr.
Ásahreppur
Tjörneshreppur
Svalbarðshreppur
Bæjarhreppur
Akrahreppur
Skagabyggð
Útsvar og fasteigna-
skattstekjur
ÁhrifJöfnunarsjóðs; tekjujöfnunarútgjaldajöfnunarframlög,
fasteignaskattsframlögog framlög tengdyfirfærslu grsk.
Mögulegar
hámarkstekjur
á hvern íbúa:
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Ein helstaröksemdinfyrir aðild
Íslands að Evrópu-
sambandinu hefur
löngum verið að
landið væri betur sett með evr-
una en íslensku krónuna. Um-
ræðan um evruna síðustu daga
utan landsteinanna er þess
vegna afar athyglisverð fyrir
Íslendinga.
Breska dagblaðið Daily Tele-
graph greindi frá því fyrir viku
að Frakkland og Þýskaland
væru að kanna leiðir til að
skipta evrusvæðinu í tvennt.
Betri hlutinn yrði fyrir þessi
tvö ríki ásamt Hollandi, Aust-
urríki og Finnlandi. Í lakari
hluta evrusvæðisins yrði af-
gangurinn, svo sem Grikkland,
Spánn, Ítalía, Portúgal og Ír-
land. Haft er eftir embættis-
manni í Evrópusambandinu að
þetta sé til marks um örvænt-
ingu og stafi af því að betur
stæðu ríkin hafi ekki efni á að
bjarga stærri ríkjum í vanda
líkt og þau björguðu Grikk-
landi.
Þegar tvö öflugustu ríki
evrusvæðisins eru í fullri alvöru
byrjuð að undirbúa að skipta
svæðinu upp og forða sér frá
vanda annarra ríkja, er aug-
ljóst að evrusvæðið er að byrja
að liðast í sundur. Þó að á þess-
ari stundu sé ekki augljóst
hvernig þetta mun enda þarf
ekki að efast um að vandi evr-
unnar er gífurlegur.
Þjóðir og stjórnvöld utan
evrusvæðisins átta sig á þessu
eins og sjá má af nýlegum
könnunum meðal almennings
og ummælum for-
ystumanna. Dag-
blaðið Berlingske
Tidende sagði frá
því í fyrradag að
andstaðan við upp-
töku evrunnar í Danmörku
hefði aldrei verið meiri en nú og
vitnaði í því sambandi til könn-
unar sem Danske Bank lætur
gera reglulega. Tæpur helm-
ingur Dana hafnar evrunni en
innan við þriðjungur lýsir
stuðningi við upptöku hennar. Í
Svíþjóð lýsti Fredrik Reinfeldt,
forsætisráðherra, þeirri skoðun
sinni í viðtali sem birtist í gær
að varnirnar sem byggðar hafi
verið upp í kringum evruna hafi
ekki virkað. Augljóst sé að ríki
hafi komist inn í samstarfið sem
hafi ekki átt þangað neitt er-
indi. Niðurstaðan sé sú að evr-
an standi ekki undir þeim vænt-
ingum sem til hennar hafi verið
gerðar. Sænska hagkerfið er að
hans mati betur sett utan evru-
svæðisins og með sænsku krón-
una.
Þetta eru aðeins umræður
allra síðustu daga um evruna,
en lýsa vel því ástandi sem ríkir
innan Evrópusambandsins að
þessu leyti. Ríki Evrópusam-
bandsins, hvort sem þau eru
innan eða utan evrusvæðisins,
reyna eftir megni að forðast
þau vandræði sem henni fylgja.
Á sama tíma reyna íslensk
stjórnvöld að koma Íslandi inn í
Evrópusambandið hvað sem
það kostar til að freista þess að
taka upp evruna. Sú viðleitni
lýsir hvorki miklum skilningi á
hagsmunum Íslands eða þróun
mála í Evrópu.
Öflugustu evruríkin
ræða nú um að
kljúfa evrusvæðið}
Evran í ógöngum
Í gær átti stöð-ugleikasátt-
málinn svokallaði
á milli ríkisstjórn-
arinnar og aðila
vinnumarkaðarins
ársafmæli. Af
ástæðum sem hægt er að hafa
fullan skilning á fór lítið fyrir
hátíðarhöldum.
Í stöðugleikasáttmálanum
sjálfum sagði að hann væri
„eitt af meginmarkmiðum rík-
isstjórnarinnar við end-
urreisn efnahagslífsins“.
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra bætti við að
sáttmálinn væri „veigamikil
forsenda fyrir endurreisn-
arstarfinu á næstu miss-
erum“.
Ástæður þess að enginn
ráðamaður vakti athygli á af-
mæli þessarar „veigamiklu
forsendu“ endurreisnarinnar
eru vitaskuld þær að stöð-
ugleikasáttmálinn varð í aug-
um ríkisstjórnarinnar aldrei
annað en orð á
blaði. Áformin
gengu ekki eftir,
endurreisnin er
ekki enn hafin og
úrræðaleysið er
æpandi.
Önnur ástæða, tengd hinni
fyrri, er vitaskuld að stærstu
samtök bæði launþega og
vinnuveitenda hafa þegar
sagt sig frá sáttmálanum.
Fulltrúar samtaka sem eftir
eru hafa lýst því að þeir séu
tvístígandi um áframhaldandi
þátttöku. Um leið hefur kom-
ið fram að engir fundir hafi
verið haldnir mánuðum sam-
an. Ríkisstjórnin hefur þann-
ig viðurkennt að stöð-
ugleikasáttmálinn, ein helsta
forsenda endurreisnarstarfs
hennar, er í raun dautt plagg.
Það kann að hryggja ein-
hvern. Enn hryggilegra er þó
að ríkisstjórnin skuli engin
önnur úrræði hafa sem stutt
gætu við endurreisnina.
Stjórnvöld sögðu
stöðugleikasáttmál-
ann forsendu
endurreisnarinnar}
Ársafmæli orða án efnda
Í
draumi vitjaði mín spekingur með inn-
herjaupplýsingar um HM í fótbolta.
Ég hef ekki áhuga á peningum og
nýti mér ekki það sem gesturinn hafði
fram að færa en sjálfsagt er að aðrir
græði í getraunum.
Minn maður er viss um að Úrúgvæ vinni
Suður-Kóreu í dag. Forlan gerir eina markið,
ef það skiptir máli. Örugglega hægt að veðja
einhvers staðar á það.
Bandaríkjamenn halda sínu striki og leggja
firnasterka Gana – Ganverja, Ganabúa eða
hvað menn vilja kalla þá – í framlengdum leik.
Á morgun slá Argentínumenn út lið Mexíkó
(þó ekki væri nema til að minna menn á að það
var í Mexíkó sem Maradona leiddi Argentínu
til heimsmeistaratitils 1986, sagði speking-
urinn) og Þjóðverjar hefna loks ófaranna á Wembley
1966 og leggja Englendinga að velli. Miroslav Klose ger-
ir markið sem ræður úrslitum – en minn maður gat
reyndar ekki fullyrt hverjar lokatölurnar yrðu. En hann
sagði að síðasta markið yrði ekki skot í þverslána og inn
(eða ekki inn), eins og á Wembley.
Holland sigrar svo Slóvakíu á mánudag þar sem Nið-
urlendingar verða þó í mun meiri vandræðum en flestir
gera ráð fyrir. Maðurinn í draumnum nefndi Nigel de
Jong en sagði mér ekki hvers vegna. Miðjumaðurinn
duglegi er ekki vanur því að skora, en hver veit?
Síðar sama dag hrella Chilebúar meistarana marg-
földu frá Brasilíu en verða þrátt fyrir góða
frammistöðu að lúta í gras.
Í síðustu viðureignum 16-liða úrslitanna
koma Honda og hinir hraðskreiðu Japanirnir
skemmtilega á óvart – og þó ekki – og slá
Paragvæa út og Spánverjar skilja Ronaldo og
félaga í portúgalska liðinu eftir með sárt enn-
ið. Okkar maður hvíslaði að mér nöfnum
Iniesta og Puyol en ekki veit ég hvers vegna.
Hann var viss í sinni sök varðandi átta liða
úrslitin: Bandaríkjamenn vinna Úrúgvæa,
Hollendingar slá Brasilíumenn út, Argentína
sigrar Þýskaland og Evrópumeistarar Spán-
ar bruna áfram með því að sigra Japani.
Bandaríkjamenn komast sem sagt í fyrsta
skipti í undanúrslit á HM; skrá sig á spjöld
sögunnar en tapa fyrir Hollendingum. Mara-
dona og hans menn slá Spánverjana svo út í
besta leik keppninnar. Ekki nefndi vinur minn tölur eða
markaskorara en ég byggi túlkun mína á því að hann
sagði Maradona myndu renna sér í grasinu eftir leik og
togna í læri. En brosa samt breitt.
Úrslitaleikurinn verður sem sagt á milli Hollendinga
og Argentínumanna. Og líkt og 1978 fagnar suðuramer-
íska stórveldið heimsmeistaratitli. Liggur það annars
ekki einhvern veginn í loftinu að Maradona fagni sigri?
Upplýsingarnar skal taka með fyrirvara um óhagstætt
veðurfar, geðrænar sveiflur leikmanna, rangstöðu og
mistök dómara. Að öðru leyti er þetta öruggt.
skapti@mbl.is
Skapti
Hallgrímsson
Pistill
Viltu vinna milljarð?
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjórar:
Davíð Oddsson Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Útgefandi:
Óskar Magnússon
Starfshópurinn vill að verkefni
Innheimtustofnunar sveitarfé-
laga verði færð til ríkisins, þar
sem þau verði sameinuð öðrum
innheimtukerfum ríkissjóðs.
Í dag borgar jöfnunarsjóður
hallann á Innheimtustofnun
sveitarfélaga. Hann nam 1,1 millj-
arði kr. á síðasta ári og er að
stærstum hluta tilkominn vegna
ógreiddra meðlaga. „47% af
þeirri upphæð fara í að borga
meðlög feðra á höfuðborgar-
svæðinu og dregur með því úr
því fé sem er til jöfnunnar hjá fá-
tækum sveitarfélögum úti á
landi. Þetta samhengi viljum við
rjúfa,“ segir Flosi.
Vinna við að rjúfa þessi tengsl
er þegar hafin á vegum sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðu-
neytis, fjármálaráðuneytis og fé-
lags- og tryggingaráðuneytis.
Áhrif með-
laga mikil
RÍKIÐ TAKI VIÐ INNHEIMTU
lenskra sveitarfélaga, sem veiti grunn
til að skilgreina og meta útgjaldaþörf
vegna lögbundinna og venjubundinna
verkefna. Fjármunir verði síðan veittir
til sveitarfélaganna á grundvelli þess-
arar fjárþarfar.
Flosi bendir á að í dag séu mjög
tekjuhá sveitarfélög að fá framlög úr
sjóðnum. Tekjuhæsta sveitarfélagið,
Fljótsdalshreppur, sé t.a.m. með 1,6
milljónir kr. í meðaltekjur á íbúa á ári
og fái samt 8% greiðslu úr sjóðnum til
að standa undir sínum rekstri. Tjör-
neshreppur, sem lægstar tekjur hafi,
nái hins vegar rétt um 400.000 kr. á
íbúa með framlagi jöfnunarsjóðs. „Síð-
an eiga þessir hreppar að bjóða sínu
fólki sömu þjónustu.“
Starfshópurinn vill einnig tekju-
tengja framlög úr sjóðnum. Mið verði
þá tekið af hámarksskatttekjum hvers
sveitarfélags af útsvari og fasteigna-
skatti og þörf þess fyrir framlög látin
ráðast af því hve mikið vantar upp á.
Reynist útgjaldaþörf síðan minni en
skatttekjur verði ekki veitt framlag úr
sjóðnum.
Að sögn Flosa má gera ráð fyrir
að vinna við þetta taki 18-24 mánuði.
„Þetta er býsna viðamikið verkefni,
sem vinna þarf í sátt og samlyndi, því
mörg þessara framlaga eru bundin í
lög og reglur.“