Morgunblaðið - 26.06.2010, Síða 27
tæplega, unnu þeir með pabba að
íbúðarhúsbyggingu heima. Það var
algjör bylting að komast í þetta
nýja hús, þetta var þeirra verk
feðganna einna við hálf erfiðar að-
stæður.
Síðan líða árin og systkinin fara
hvert í sína áttina eins og gengur.
Alvara lífsins tekur við og síðan
fjölskyldulífið og við hittumst
sjaldnar. Og nú standa æskustöðv-
arnar okkar í firðinum heima auð-
ar.
Ég veit að nú lítur hann heim að
Fjarðarhorni en mamma og Dídí
eru búnar að fagna honum í ríki
Drottins.
Kærar samúðarkveðjur til fjöl-
skyldu hans.
Breiðifjörður byggðin mín
bjart er yfir þínum vogum.
Þegar sumarsólin skín
sveipar haga gróðurlín.
Dýrðlegt er í dölum þín
að drekka líf í andasogum.
Breiðifjörður byggðin mín
bjart er yfir þínum vogum
Hjartakæra bjarta byggð
blómgist þú um aldaraðir.
Elski þig af ást og dyggð
eílífa þér sýni tryggð
börnin þín í brosi og hryggð
blessi sólargeisla faðir.
Hjartakæra bjarta byggð
blómgist þú um aldaraðir.
(Andrés Gíslason)
Elsku bróðir minn, Guð geymi
þig, við sjáumst síðar.
Guðmunda (Munda).
Að fá þær fréttir að Guðlaugur
væri dáinn var mér þungbært og
fóru minningarnar á fleygiferð. Ég
man fyrst eftir Guðlaugi þegar ég
var barn á planinu í Melhaga. Í
Melhaga hjá Guðlaugi og Ragn-
heiði var ég nokkur sumur í fóstri
og þar fann ég aldrei að ég væri
fyrir þrátt fyrir að fyrirferðin á
mér og masið hafði verið mikið og
var því dvölin mér á allan hátt
ánægjuleg.
Ég fór með Guðlaugi margar
ferðir í vörubílnum inn í vikur-
gryfjur þar sem skóflugrafan beið
eftir að vera hreyfð, ég beið ekki í
vörubílnum, ég fékk að koma með í
gröfuna og settist á minn stað í
gluggann á meðan Guðlaugur mok-
aði á bílinn.
Þá var komið að því að koma
vikrinum til viðskiptavina, stund-
um fór ég ekki lengra en heim í
Melhaga þar sem Ragnheiður tók
við eftirlitinu á mér en stundum
fór ég með Guðlaugi til Selfoss
sem ég kallaði „Pulsureikara“ í þá
daga því þar var stoppað og fengin
pulsa með öllu en síðan var haldið
áfram til Reykjavíkur eða bíllinn
losaður á eða rétt hjá Selfossi og
farið svo heim.
Ég var svo lánsöm að fá að
ferðast með þeim hjónum, þá var
tjaldvagninn settur aftan í Ram-
blerinn og lagt af stað, ekki man
ég hvar áfangastaðirnir voru en
man meira eftir svefnstaðnum
mínum sem var hálfgerð „hilla“ í
tjaldvagninum.
Með Guðlaugi fékk ég að prófa
og gera margt, þar á meðal að losa
dekkjarærnar á vörubílnum og
minningin er sú að þetta hafi ekki
verið mikið mál. Þarna hefur Guð-
laugur létt mér vinnuna og verið
búinn að losa upp á rónum. Þetta
lýsir honum því hann gerði margt
til að hjálpa og létta fólki vinnuna
og kenna börnunum störfin. Hann
átti mjög auðvelt með að útfæra
hugmyndir sem hann fékk eða aðr-
ir létu hann fá, því hann var mjög
handlaginn hvort sem um tré eða
einhverskonar járn var um að
ræða, búinn að gera við marga bíl-
ana og rétta þá einnig og margt
fleira. Hann var alltaf boðinn og
búinn til að aðstoða ef hann var
beðinn, orðið nei man ég aldrei eft-
ir að hann segði.
Elsku Guðlaugur, minning þín
lifir að eilífu. Ég þakka fyrir allt
sem þú hefur gert fyrir mig og
mína. Ég veit að það verður vel
tekið á móti þér á nýjum stað.
Sigrúnu, Halla, Óla og fjölskyldu
ykkar bið ég styrks og blessunar.
Margrét Ásta Jónsdóttir.
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010
✝ Gunnar KnúturValdimarsson
fæddist í Sælundi á
Bíldudal 3. nóvember
1924. Hann andaðist á
heimili sínu, Dalbraut
42, Bíldudal, 20. júní
2010.
Foreldar hans vou
Jónfríður Bjarnadótt-
ir f. 2. janúar 1893, d.
22. nóvember 1971 og
Valdimar Bjarnason
f. 5. febrúar 1888, d.
29. ágúst 1956. Systk-
ini Gunnars eru
Bjarni Þórarinn f. 8. nóvember
1913, d. 2. júlí 1972, Óskar Theoder
f. 20. desember 1916, d. 6. ágúst
2005. Ingólfur Kristinn f. 18. nóv-
ember 1914, d. 22. desember 1986.
Guðbjörg Fanney f. 6. apríl 1927.
Svava Lilja f. 21. september 1929.
Svavar Leo f. 16. apríl 1931, d. 12.
desember 1931. Jenný Lind f. 9.
ágúst 1932. Elsa Ester f. 1. júní
1936. Uppeldisbróðir Ingi Rafn f.
12. september 1944, d. 17. júní
2001.
Gunnar kvæntist Vilborgu Krist-
ínu Jónsdóttir f. 5. september 1953.
Foreldar Vilborgar voru Guðrún
Guðjónsdóttir f. 25. júlí 1900, d. 18.
Sambýliskona hans er Ingveldur
Björnsdóttir. 4) Þröstur Leó f. 23
apríl 1961, eiginkona hans er Helga
Sveindís Helgadóttir. Dóttir þeirra
er María f. 2005. Börn Þrastar með
fyrverandi sambýliskonu, Írísi Guð-
mundsdóttur, eru Pálína Margrét f
1993, Vilborg Kristín f. 1995, Guð-
mundur Leó f. 1997 og Silja Lind f.
1982. Sambýlismaður hennar er
Hafþór Bryndísarson. Dóttir þeirra
er Vilborg Elín, f. 2009. Fósturbörn
Þrastar eru Guðríður Hlín f. 1987
og Sólveig Magnea f. 1995. 5) Svan-
ur Kolbeinn f. 27. febrúar 1964.
Eiginkona hans er Jóna Sigurð-
ardóttir f. 1970. Börn þeirra eru
Ólafur Helgi f. 1990, Steinar Guðni
f. 1991 og Kolbeinn Þór f. 1997. 6)
Víkingur f. 30. desember 1966. Eig-
inkona hans er Þórhildur Þórodds-
dóttir f. 1971. Börn þeirra eru tví-
burarnir Þóroddur og Þorkell f.
2004 og Alexandra Stella f. 2009.
Börn Víkings frá fyrra sambandi:
Arnór f. 1987, Víkingur Ingi f. 1994
og Lena Dís f. 2001. Sonur Arnórs
er Ragnar f. 2009.
Gunnar Knútur bjó og starfaði
alla sína ævi á Bíldudal . Hann
starfaði sem vörubílstjóri í mörg ár
og var flugvallarvörður í yfir 25 ár.
Hann tók þátt í margskonar fé-
lagsstörfum, m.a. sem formaður
Verkalýðsfélagsins Varnar á Bíldu-
dal. Gunnar stundaði fjárbúskap
alla sína ævi.
Útför Gunnars fer fram frá
Bíldudalskirkju í dag, 26. júní 2010,
og hefst athöfnin kl 14.
október 1967 og Jón
Bjarni Ólafsson f. 1.
júlí 1903, d. 29. maí
1987. Börn þeirra
eru: 1) Jón Rúnar f.
22. febrúar 1954, eig-
inkona hans er Nanna
Sjöfn Pétursdóttir.
Börn þeirra eru Anna
Vilborg f. 1979, eig-
inmaður hennar er
Gísli Ægir Ágústsson.
Börn þeirra eru Rún-
ar Örn f. 1999, Nanna
Dís f. 2005 og nýfædd
dóttir. Lilja Rut f.
1981 Sambýlismaður hennar er Elf-
ar Steinn Karlsson. Dóttir þeirra er
Védís Eva f. 2009. 2) Fríða Björk f.
27. febrúar 1956, eiginmaður henn-
ar er Aðalsteinn Gotttskálksson .
Sonur þeirra er Gunnar Steinn f .
1983, sambýliskona hans er Sigríð-
ur Elísa Eggertsdóttir.
3) Valdimar Smári f. 8. júlí 1958,
eiginkona hans er Arna Guðmunds-
dóttir f. 1961. Börn þeirra eru Auð-
ur f. 1982, sambýlismaður hennar
er Brynjar Bragason. Börn þeirra
eru Katrín Sunna f. 2001, Frosti
Björn f. 2005 og Ísabella Arna f.
2009. Gunnar Ingi f.1989. Sonur
Valdimars er Árni Freyr f. 1979.
Það var Þjóðhátíðarárið 1974 sem
ég kom til Bíldudals í sumarafleys-
ingu sem verkstjóri í frysihúsið. Þar
kynntist ég Gunnari Valdimarssyni
sem þá var vörubílstjóri sem alltaf var
hægt að leita til.
Örlögin réðu því síðan að ég tengd-
ist fjölskyldunni þetta sama ár. Síðan
hafa kynni mín af Gunnari verið mér
mjög verðmæt. Aldrei hef ég séð
Gunnar skipta skapi. Hann hefur allt-
af verið mjög jákvæður og réttsýnn.
Fljótlega var ég þess var að Gunnar
var mikill fjölskyldumaður og var fjöl-
syldan honum allt. Hann hafði unun
af að leika við börn sín og síðar barna-
börn. Oft sáust þau mörg í fanginu á
honum í einu.
Gunnar var mjög fróður og fylgdist
vel með málefnum líðandi stundar.
Hann var einnig sérstaklega fróður
um gamlar sögur og sagnir. Hann
hafði unun af því að segja frá og eru
eftirminnilegar margar gamlar frá-
sagnir og fróðleikur um menn og mál-
efni. Eftirminnileg er fjölskylduferð
að Sjöundá á Rauðasandi og frásögn
Gunnars frá þeim atburðum sem þar
áttu sér stað.
Með Gunnari er farinn sögumaður
af guðs náð. Þegar ég lít yfir farinn
veg koma í hugann margar góðar
minningar með þeim heiðurshjónum
Boggu og Gunnari. Margar hafa verið
ferðirnar vestur og þeirra heimsóknir
suður, ferðalög hérlendis og síðast en
ekki síst heimsókn þeirra hjóna
ásamt Guggu systur Gunnars til okk-
ar Fríðu þegar við bjuggum í Bret-
landi. Við ferðuðumst vítt og breitt
um Bretland og er þessi ferð mér
mjög minnisstæð.
Gunnar var mikill reglumaður en
Það var oft stutt í strákinn í Gunnari
og hann átti til að vera hnyttinn í til-
svörum. Gunnar var mikil Bílddæl-
ingur í sér og unni byggðarlagi sínu.
Hann lét til sín taka á ýmsum sviðum
og kom að atvinnurekstri, skemmt-
anahaldi og verslun á staðnum svo
dæmi sé tekið. Arnarfjörður átti hug
hans allan. Hann var mjög veður-
glöggur maður og gaman var að ræða
við hann um þá hluti. Gunnar var
einnig sauðfjárbóndi alla tíð og kind-
urnar voru honum mikil lífsfylling.
Hann nefndi allar kindur sínar með
nafni og þekkti hann þær allar í sund-
ur. Hin síðari ár var smalamennska
árlegur viðburður sem öll fjölskyldan
hlakkaði til. Það var oft mikið fjör og
var Gunnar sannkallaður fjallkóngur
og hljóp eins og unglingur upp til
fjalla þar til fyrir rúmum fjórum ár-
um þegar heilsan fór að gefa sig.
Síðasta ár hefur verið Gunnari erf-
itt heilsufarlega. Hann hefur af æðru-
leysi tekist á við að mörg af þeim líf-
færum sem gera líf okkar eðlilegt
hafa gefið sig. Þrátt fyrir þetta var
Gunnar alltaf jákvæður og sagðist
alltaf hafa það gott þó svo hafi ekki
verið. Honum var mikið kappsmál að
fá kveðja heima í faðmi fjölskyldu
sinnar. Síðustu dagana átti hann erf-
itt með alla hreyfingu en lífskraftur-
inn var mikill og allt fram á síðustu
stund var stutt í brosið. Fjölskyldan
átti með honum eftirminnilega stund
þar sem hann fór yfir aldur gamalla
húsa á Bíldudal kvöldið áður en hann
lést. Söknuður fjölskyldunnar er mik-
ill.
Með Gunnari er farinn góður
drengur. Hafðu þakkir fyrir allt.
Blessuð sé minning Gunnars Valdi-
marsonar.
Þinn tengdasonur
Aðalsteinn Gottskálksson.
Ég sit í kvöldkyrrðinni og hugsa
um tengdapabba sem fékk hægt and-
lát í faðmi fjölskyldunnar. Hann unni
fjölskyldunni, heimilinu og dalnum
sínum af heilum hug.
Minningarnar hrannast upp. Ég
minnist þess þegar við kynntumst.
Við Addý vinkona vorum að labba nið-
ur Dalbrautina þegar við mætum
Gunnari á vörubílnum. „Brostu til
tengdó“ sagði Addý stríðnislega við
mig og ég fór öll hjá mér, 16 ára stelp-
an. Þetta var fyrir tæpum 40 árum
þegar við Rúnar vorum að byrja að
skjóta okkur saman. Ekki grunaði
mig þá hversu mikilvægur hluti af lífi
mínu Gunnar og Vilborg kona hans
ættu eftir að verða. Gunnar var ákaf-
lega góður tengdafaðir. Traustur og
blíður og ávallt reiðubúinn að aðstoða
á alla lund. Við vissum það alltaf að
hann vildi allt fyrir okkur gera. Börn-
in höfðu forgang í lífi þeirra hjóna.
Það kom sér oft vel að vera tengda-
dóttir Gunnars Valdimarssonar.
Hann var skemmtileg blanda af hlé-
drægum kjarnyrtum bónda og gáska-
fullum stríðnispúka með frásagnar-
gáfu. Hann hafði ákaflega gaman af
því að spjalla um fréttir og málefni líð-
andi stundar og hafði ákveðnar skoð-
anir á öllum hlutum.
Það hefur verið gott að vera ná-
granni tengdaforeldra minna öll þessi
ár, bæði fyrir okkur hjónin og ekki
síður fyrir dætur okkar sem eru
tengdar ömmu og afa uppfrá böndum
væntumþykju og trausts. Þau hafa
verið ómissandi í jólahaldinu í Sæl-
undi og órúlega oft var það Gunnar
sem fékk möndluna og leyndi því kím-
inn á svipinn.Við erum stolt af því að
vera hluti af Gunnsunum.
Elsku Gunnar, hafðu þökk fyrir allt
og allt. Þín verður sárt saknað.
Nanna Sjöfn.
Elsku afi, okkur systur langar að
kveðja þig og þakka allar samveru-
stundirnar og þá sérstaklega á jólun-
um. Við erum svo þakklátar fyrir að
hafa haft þig uppfrá á okkar bernsku-
árum. Manstu öll leikritin sem við lék-
um fyrir ykkur ömmu og fengum að
taka upp á stóru upptökuvélina þína.
Manstu þegar þú hrúgaðir okkur
barnabarnaskaranum aftur á pall svo
við værum ekki fyrir í smalamennsk-
unni? Við munum alltaf minnast þín
og hláturs þíns þegar þú varst að
stríða okkur.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Elsku afi, við söknum þín.
Anna Vilborg og Lilja Rut.
Gunnar Knútur
Valdimarsson
Legsteinar ehf, Gjótuhrauni 8
Hafnarfirði, Sími: 571 0400
legsteinar@gmail.com
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi og langafi,
EINAR ÞÓRARINSSON
fyrrverandi sjómaður,
Stekkjargötu 25,
Innri-Njarðvík,
lést sunnudaginn 20. júní á heilbrigðisstofnun
Suðurnesja.
Útförin fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn
29. júní kl. 14.00.
Jarðsett verður í Innri-Njarðvíkurkirkjugarði.
Ragnheiður Gestsdóttir,
Sæunn Ásta Sigurbjörnsdóttir,
Guðrún Hrönn Einarsdóttir,
Þórunn Drífa Deaton,
Aldís Dröfn Einarsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
FRÍÐA HELGADÓTTIR,
Efstalandi 4,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn
22. júní.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
1. júlí kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á líknarstofnanir.
Magnús Gunnar Pálsson, Þóra J. Hólm,
Bertha S. Pálsdóttir,
Sigurður Pálsson, Hanna M. Baldvinsdóttir,
Svavar Pálsson,
Helgi Pálsson, Pálína Reynisdóttir,
Málfríður Ágústa Pálsdóttir,
Páll Garðar Pálsson
og ömmubörn.