Morgunblaðið - 26.06.2010, Side 29
Minningar 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010
✝ GuðmundurKristinn Axelsson
fæddist að Lækj-
armóti í Víðidal 3.
janúar 1920. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Vesturlands
á Hvammstanga 20.
júní 2010. Foreldrar
hans voru hjónin Ax-
el Jóhannes Guð-
mundsson, fæddur á
Aðalbreið í Fremri-
Torfustaðahreppi 24.
september 1894, d.
18. janúar 1973, og
Guðrún Sigríður Guðmundsdóttir
frá Hvarfi í Víðidal, f. 28. janúar
1892, d. 2. desember 1971. Systkini
Guðmundar voru Helgi, f. 9. febr-
úar 1923, d. 9. desember 1989,
Skúli, f. 14. apríl 1926, d. 1. janúar
2009, og Benedikt, f. 9. janúar
1933. Eiginkona Guðmundar er
Guðbjörg Hulda Ragnarsdóttir, f.
12. mars 1930 á Grund í Vest-
urhópi. Barn Guðmundar og Huldu
er Axel Rúnar, f. 31. maí 1963.
Sambýliskona hans er Bogey Erna
Benediktsdóttir frá Neðri-
Torfustöðum í Miðfirði, f. 15. apríl
1970. Börn þeirra eru Heiðrún
Nína, f. 10. febrúar 1997, og Anna
Elísa, f. 9. maí 2004. Einnig ólu
sjálfmenntaður. Hann starfaði um
tíma við brúarvinnu og vegavinnu.
Bjó á tímabili í Reykjavík þar sem
hann vann ýmis störf, s.s. við síld-
veiðar í Hvalfirði, og vörubílstjóri
hjá garðyrkjumanni. Var um tíma í
vinnu hjá Landsímanum og í bíla-
umboðinu Heklu. Árið 1943 flytur
Guðmundur á æskuslóðir aftur og
þeir Helgi bróðir hans kaupa
Valdarás ytri. Árið 1953 hefja
hann og eiginkona hans búskap
saman að Valdarási ytri. Seinna,
eða árið 1974, eignast Guðmundur
Valdarás syðri en Helgi býr áfram
á Valdarási ytri. Guðmundur sinnti
ýmsum félagsstörfum á sínum bú-
skaparárum. Sat í hreppsnefnd og
kjörstjórn og var um árabil
deildarstjóri Þorkelshólshrepps-
deildar Kaupfélagsins. Það var þó
jörðin hans og búið að Valdarási
sem fyrst og fremst átti hug hans
allan. Mikil uppbygging var unnin í
hans búskapartíð í beinu framhaldi
af vinnu föður hans. Fjórtán ára að
aldri fór hann fyrst í göngur og
undi sér ætíð mjög vel fram um
heiðar og var vel kunnugur ör-
nefnum nær og fjær. Árið 1988
tekur sonur hans Axel Rúnar við
búi Guðmundar að hluta til en
Guðmundur stundar bústörfin af
kappi með honum allt þar til heils-
an gaf sig og hann flyst á Heil-
brigðisstofnunina á Hvammstanga
2005.
Útför Guðmundar fer fram frá
Víðidalstungukirkju í dag, 26. júní
2010, og hefst athöfnin kl. 14.
Meira: mbl.is/minningar
Guðmundur og Hulda
upp Grétar Gúst-
avsson, f. 13. júlí
1953. Eiginkona hans
er Guðný Bech, f. 2.
apríl 1950. Barn
þeirra er Lára Björg
og á hún soninn Grét-
ar Snæ. Eldri börn
Guðnýjar eru Anna
Ragnheiður, f. 19.
júní 1970, og Halldór
Rune, f. 18. sept-
ember 1979. Fyrir
átti Grétar dótturina
Lindu Björk en móðir
hennar er Sólveig Jónsdóttir. Eldri
dóttir Sólveigar er Kristín. Börn
Lindu eru Perla Kristín, Brynja
Sól og Saga Lind.
Tveggja ára að aldri flytur Guð-
mundur með foreldrum sínum frá
Lækjarmóti að Valdarási syðri í
Fitjárdal og dvelur þar allan sinn
uppvöxt. Hann sækir farskóla á
bæi í sveitinni t.d. í Auðunarstaði
og Bakka, 1-3 mánuði á vetri frá
10 ára aldri fram að fermingu. Eft-
ir þetta stundar hann stöku sinnum
vinnu um skemmri tíma á bæjum í
sveitinni, t.d. á Fremri-Fitjum. Ár-
ið 1939 lá leið hans í nám við Hér-
aðsskólann að Reykjum í Hrúta-
firði. Upp frá þessu var hann
Mig langar til að heiðra minningu
Guðmundar Axelssonar frá Valdarási
með fáum orðum. Gamla bændasam-
félagið og nýir tímar mætast. Tvö
tignarleg hús á einni stórri jörð, sem
skipt var á milli bræðra. Báðir þekktu
þeir hverja einustu þúfu eins og lóf-
ann sinn þar sem barnsskónum var
slitið. Enn var ljósgult far og smá
dæld á einum stað á túninu þar sem
gamli torfbærinn stóð. Í huga barns-
ins var þetta allra flottasta sveitin í
dalnum með fullt af tækifærum við
leik og störf. Áin í allri sinni dýrð á
milli bæjanna, stikl á steinum, sull,
sundlaugartilraunir með tilheyrandi
kulda, ferskt drykkjarvatn á völdum
stöðum, fótboltinn sóttur og minning-
arnar streyma. Bræðurnir með ólíka
sýn þar sem sá yngri var vanafastur
en sá eldri duglegur að tileinka sér
stefnur og strauma samfélagsins. Við
árstíðarbundin störf tengdust fjöl-
skyldurnar sérstaklega og þá var til-
hlökkunin mikil. Eftirvænting að sitja
á hesti við smalamennskuna, berbakt
svo að litlir fætur flæktust ekki í
ístaðinu, rúningur í Selslandinu þar
sem unnið var hörðum höndum við að
koma fénu á heiðina. Tilhlökkun að
kitla bragðlaukana í kaffitímum þar
sem húsmæðurnar lögðu allan sinn
metnað í að hafa bakkelsi og drykki
sem gómsætast. Góðu dagsverki lokið
og öllum létt. Spretturinn tekinn
heim á leið. Hestar drengjanna voru
hraðskreiðari og barnið á Blesa, sem
hafði þann undarlega eiginleika að
bakka frekar en að fara áfram. Trunt-
an gerði þó sitt besta á heimleiðinni
en þó var góður tími til að virða fyrir
sér útsýnið, sem tengdist kynslóðum
horfinna tíma.
Guðmundur hafði hlýja og sterka
nærveru og aldrei var Hulda langt
undan. „Góða, vinan, ansi er stelpan
fjárglögg, hún yrði góður bóndi,“ eru
kunnugleg orð í eyrum. Hjónin voru
höfðingjar heim að sækja, öllu því
besta var tjaldað og borðið svignaði
undan kræsingum.
Guðmundur var með sterka rétt-
lætiskennd og fékk ég oft að njóta
hennar þegar stríðni drengjanna var í
hámarki. Þá var haft samband heim
því það gengi ekki að stríða stelpunni
svona sýknt og heilagt. Árin líða og
lífið gengur sinn vanagang. Guð-
mundur er kominn vel á efri ár þegar
leiðir okkar liggja saman enn á ný á
sjúkrahúsinu, þar sem ég starfaði
nokkrar vikur tvö sumur. Mikið var
ég glöð inni í mér að fá að sinna þess-
um aldna höfðingja, sem var elstur
sinna bræðra. Það var yndislegt hvað
hann var fljótur að átta sig á því hver
ég var. Hversu óhræddur hann var að
kalla nafnið mitt og biðja um sykur-
mola með kaffinu eða eitthvað annað
tiltækt hverju sinni. Það var ljúft að
upplifa tryggðina þegar síminn
hringdi á hverjum degi, sama tíma
dags og Hulda á línunni.
Það var heiður að fá að kynnast
Guðmundi Axelssyni, afabróður mín-
um. Blessuð sé minning hans.
Huldu, Rúnari, Ernu, Nínu og
Önnu Elísu votta ég samúð.
Anna Elísabet Gestsdóttir.
Góður búmaður er fallinn frá, Guð-
mundur Axelsson bóndi frá Valdarási
í Fitjárdal. Það var ólíkt Guðmundi að
kveðja þennan heim á háannatíma
sveitanna. Sauðburði er nýlokið,
sláttur að hefjast og náttúran að
vakna til lífsins. Honum er samt fyr-
irgefið, enda kominn á tíræðisaldur
og búinn að leggja mikið af mörkum
með vinnu- og útsjónarsemi öll sín bú-
skaparár. Ég var fimm ára þegar ég
fór í sveit að Valdarási og var þar öll
mín unglingsár. Á þessum tíma var
mikil gróska á Valdarási, bræðurnir á
bænum að mótast og taka sín gæfu-
spor í lífinu. Guðmundur var elstur af
fjórum bræðrum. Hann hóf fljótlega
að byggja upp sitt bú á Valdarási með
konu sinni Huldu Ragnarsdóttur sér
við hlið. Bæði voru þau harðdugleg og
ósérhlífin í öllum verkum sem vinna
þurfti. Verkskipting þeirra hjóna var
ljós, samvinna um lausn verkefna eins
góð og hugsast gæti. Öll búskaparár
Guðmundar einkenndust af góðri bú-
mennsku og undir umsjón Guðmund-
ar voru gerðar miklar jarðabætur,
tún endurnýjuð og ræktuð upp af
mikilli vandvirkni. Verklag við hey-
skap átti huga hans allan og með-
höndlun og fóðrun búpenings. Allir
hlutir voru nýttir sem best – fjárfest-
ingar voru úthugsaðar og vel tíma-
settar. Segja má að Guðmundur hafi
verið ákveðin kjölfesta á stóru sam-
vinnubúi sem lengi vel var rekið á
Valdarási. Guðmundi þótti vænt um
gott handbragð. Mér er alltaf minn-
isstætt þegar Axel heitinn, faðir Guð-
mundar, bað mig að sinna kindum
sínum á háannatíma vorsins þar sem
hann þurfti að fara frá í nokkra daga.
Þá litu þeir bræður til mín einstaka
sinnum og í eitt skiptið gaf Guðmund-
ur sér sérstaklega góðan tíma í að
ræða við mig. Þá hafði ég átt í erf-
iðleikum með að hreinsa tað af grind-
um. Sú kennsla sem ég fékk þennan
dag frá Guðmundi við að hreinsa
grindur með góðri reku lagði grunn-
inn að þeirri hugsun hjá mér að gott
verklag er gulls ígildi og hefur verið
mér gott veganesti við lausn mála í
hraða nútímans.
Þó svo að Guðmundur hafi haft
mikinn áhuga á þjóðmálum og al-
mennri umræðu samtímans þá vöktu
fréttir og viðburðir í nánasta um-
hverfi hans meiri áhuga, í sveitinni
þar sem hann ólst upp. Hann var barn
síns tíma hvað þetta varðar. Jákvæð
umræða um menn og málefni var í há-
vegum höfð og léttvæg atvik voru
ekki tekin fram yfir þau stóru, hvort
sem umræðan var um búskaparhætti,
orðaskipti manna á milli eða beit.
Guðmundur og Hulda hafa verið
fastir punktar í mínu lífi þegar ég hef
farið norður. Við Guðmundur skipt-
umst á skoðunum um þjóðmál og bú-
skaparhætti, Hulda hellti á könnuna
og tók þátt í umræðunum þess á milli.
Nú er þessum kafla lokið. Frá því að
Guðmundur missti heilsuna hef ég
heimsótt hann á sjúkrahúsið í sömu
erindagjörðum og áður fyrr og Huldu
þess á milli á Valdarási. Ég vona að
við Hulda höldum ótrauð áfram að
ræða mál og drekka kaffi um ókomin
ár. Guðmundar verður sárt saknað.
Við á Hrísum höfum misst góðan
nágranna. Blessuð sé minning hans.
Okkar innilegustu samúðarkveðjur til
fjölskyldu hans og vina okkar á
Valdarási.
Karl Friðriksson og
fjölskyldan á Hrísum.
Guðmundur Kristinn
Axelsson
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN BJÖRN DAGSSON,
Víðihlíð í Grindavík,
áður til heimilis að Heiðarvegi 24,
Keflavík,
lést á dvalarheimilinu Víðihlíð í Grindavík 21. júní.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, miðvikudaginn
30. júní kl. 13.00.
Eyjólfur Guðni Björnsson,
Dagbjartur Björnsson,
Valur Björnsson, Erla Guðjónsdóttir,
María Björnsdóttir, Georg Svavar Einarsson,
Ingiþór Björnsson,
Bjarnveig Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
GRÉTA AUSTMANN SVEINSDÓTTIR,
frá Patreksfirði,
lést á Hrafnistu Reykjavík þriðjudaginn 22. júní.
Jarðarför hennar verður gerð frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 28. júní kl. 13.00.
Jón Kristjánsson, Dóra Hansen,
Kristján Valur Jónsson, Erla Óskarsdóttir,
Steinvör Jónsdóttir, Finnur Ingi Einarsson,
langömmubörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞORBJÖRG GEORGSDÓTTIR,
frá Miðhúsum í Breiðuvík,
sem lést á Hrafnistu Hafnarfirði miðvikudaginn
16. júní, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju
mánudaginn 28. júní kl. 15.00.
Jón Guðmundsson, Áslaug Garðarsdóttir,
Lára Guðmundsdóttir, Guðbjartur Daníelsson,
Jenný Guðmundsdóttir, Gunnar Guðmundsson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og
langalangafa,
MAGNÚSAR ÓLAFS JÓNSSONAR.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Jóna Gréta Magnúsdóttir, Bæring Guðmundsson,
Erna Hólmfríður Magnúsdóttir, Eigil Rossen,
Guðrún Ásta Magnúsdóttir,
Ellert Sigurður Magnússon, María Eir Magnúsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Okkar ástkæra,
LILJA BERNHÖFT,
áður til heimilis að
Meistaravöllum 11,
Reykjavík,
lést á dvalarheimilinu Grund við Hringbraut mánu-
daginn 21. júní.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn
30. júní kl. 11.00.
Baldur Sigurðsson, Eva Benediktsdóttir,
Gísli Sigurðsson, Guðrún Hólmgeirsdóttir,
Sigríður Bjarnadóttir,
Guðmundur Bjarnason,
Þóra Bjarnadóttir.