Morgunblaðið - 26.06.2010, Blaðsíða 37
Dagbók 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010
Sudoku
Frumstig
7 3 2 8
6 2 9 4 7
1
4
9 6
4 1 2
6 1 3 7 9
2 3
4 8 1
1 2 4
4 6
4 3
8 5 6 2
2 7 4 6
8 5
5 4
6 3 7 2
2 8 1
9 6 3 2
4
2 8 7 4
8
5 9
1 4 5 3
7 1
5 6 1
4 3 7
4 7 1 3 5 8 2 6 9
9 2 5 6 7 1 3 8 4
3 6 8 9 4 2 1 7 5
5 1 2 4 6 7 9 3 8
7 4 3 8 1 9 5 2 6
6 8 9 2 3 5 4 1 7
8 3 6 5 2 4 7 9 1
2 5 7 1 9 6 8 4 3
1 9 4 7 8 3 6 5 2
3 2 6 1 8 5 4 7 9
5 7 9 2 6 4 8 1 3
1 4 8 3 9 7 2 5 6
9 5 1 7 2 8 3 6 4
7 6 4 5 3 9 1 2 8
2 8 3 6 4 1 5 9 7
8 3 2 9 5 6 7 4 1
4 9 7 8 1 2 6 3 5
6 1 5 4 7 3 9 8 2
1 4 3 6 5 7 9 2 8
8 5 2 9 4 1 3 6 7
7 6 9 8 2 3 4 1 5
2 8 4 5 3 9 1 7 6
5 9 1 7 6 8 2 4 3
3 7 6 4 1 2 5 8 9
4 2 5 3 8 6 7 9 1
6 1 7 2 9 5 8 3 4
9 3 8 1 7 4 6 5 2
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 26. júní, 177. dag-
ur ársins 2010
Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér
skilja, að ég er í föður mínum og þér í
mér og ég í yður. (Jóh. 14,20.)
Skiptir þú á milli stöðva í upphafiauglýsingahlés / í miðju auglýs-
ingahléi / í lok upplýsingahlés?“ Þann-
ig hljómaði spurning sem Capacent
Gallup lagði fyrir Víkverja í vikunni.
Víkverji þurfti að hugsa sig um áður
en hann hakaði við „vil ekki svara“ því
þótt hann myndi gjarnan vilja skipta á
milli stöðva á meðan auglýsingar
standa er það ekki í boði, því það er að-
eins ein sjónvarpsstöð á heimilinu.
Stöðvaflakk er því ekki valmöguleiki
en Víkverji fannst hann gefa skakka
mynd með því að segjast aldrei skipta
um stöð í auglýsingahléi, því það
mætti túlka sem svo að honum þættu
auglýsingarnar alveg hreint ómissandi
eða væri svo óskaplega hrifinn af Rík-
issjónvarpinu að hann vildi alls ekki
skipta.
x x x
Að sama skapi kemur það Víkverjaekki beinlínis á óvart að meiri-
hluta vinsælustu dagskrárliða landsins
sé að finna hjá Ríkissjónvarpinu eða
að HM í fótbolta sé vinsælasti dag-
skrárliður dagsins í dag. Á mörgum
heimilum er ekki um neitt annað að
velja, ekki einu sinni fréttir, því hver
man hvenær þær eru sýndar þegar
dagskráin er stokkuð svona upp? Ekki
það að Víkverji ætli að slást í lið með
grátkórnum yfir dagskrá sjónvarps-
ins, HM er alls ekki slæm afþreying,
til dæmis naut Víkverji þess mjög að
sjá Ítölum bolað úr keppninni í vikunni
og fagnaði Slóvökum mjög fyrir að
vinna sigur á því leiðinlega liði. Að
sama skapi finnst Víkverja stór-
skemmtilegt að tvö sterkustu liðin af
síðasta heimsmeistaramóti, Frakkar
og Ítalir, skuli nú vera dottin út með
skömm. Það er aldrei gaman þegar
sömu lið eiga áskrift að sigrinum ár
eftir ár.
x x x
Víkverja þykir þannig sjónvarpiðágætt til síns brúks en á voðalega
erfitt með að skilja þegar slíku tæki er
komið fyrir í hverju einasta herbergi
heimilisins. Það hlýtur að vera voða-
legt áreiti, sjálfum finnst Víkverja oft
gott að slökkva á öllum rafmagns-
tækjum heimilisins, taka þau jafnvel
úr sambandi og helst ísskápinn líka, og
hlusta á þögnina. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 skrugga, 4
manna, 7 dulin gremja, 8
gefur upp sakir, 9 beita,
11 numið, 13 viðbjóður,
14 eignarjarðar, 15 nöf,
17 þróttar, 20 ambátt, 22
fiskur, 23 bál, 24 stjórn-
ar, 25 fleinn.
Lóðrétt | 1 óskýrt tal, 2
ótti, 3 ræktaðra landa, 4
snjór, 5 sveigjanleg, 6
undin, 10 týna, 12 frí-
stund, 13 reykja, 15 auð-
sveipur, 16 látin, 18 ól,
19 beiskan, 20 skordýr,
21 klæðleysi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 goðheimur, 8 kubba, 9 mamma, 10 fáu, 11 peð-
in, 13 rella, 15 ókind, 18 snæða, 21 róm, 22 kalla, 23 efl-
ir, 24 snögglega.
Lóðrétt: 2 ofboð, 3 hrafn, 4 ilmur, 5 urmul, 6 skip, 7
taða, 12 inn, 14 enn, 15 óska, 16 iglan, 17 draug, 18
smell, 19 ærleg, 20 arra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 f5 2. g3 Rf6 3. Bg2 g6 4. Rf3 Bg7
5. O-O O-O 6. b3 d6 7. Bb2 e5 8. dxe5
Rg4 9. Ra3 Rxe5 10. Rxe5 dxe5 11.
Dxd8 Hxd8 12. Rb5 Ra6 13. Had1 He8
14. Bd5+ Kh8 15. Bf7 Hf8 16. Ba3 c5
17. Bc4 Bf6 18. Rd6 Rb4 19. c3 Rxa2
20. Bxc5 b6 21. Ba3 Rxc3 22. Hc1 e4 23.
Rb5 Rxb5 24. Bxf8 Bd7 25. Bb4 a5 26.
Bd2 Rd4 27. Bc3 Bc6 28. Hfd1 Hd8 29.
e3 Rf3+ 30. Kg2 Hf8
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Búdapest í
Ungverjalandi. Sigurvegari mótsins,
Hjörvar Steinn Grétarsson (2394),
hafði hvítt gegn Nicholas Tavoularis
(2130) frá Grikklandi. 31. Hd8! og
svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Fyrsta spilið.
Norður
♠K632
♥ÁKD72
♦--
♣Á952
Vestur Austur
♠D1075 ♠--
♥5 ♥G1043
♦KDG10872 ♦963
♣4 ♣KD10763
Suður
♠ÁG984
♥986
♦Á54
♣G8
Suður spilar 6♠.
Ísland mætti Ítalíu í upphafsleik EM
og strax í fyrsta spili dró til tíðinda. Í
lokaða salnum tóku Ítalir 300-kall í 5♦
dobluðum. Á hinu borðinu höfðu Jón
Baldursson og Þorlákur Jónsson
stærri drauma. Þar fékk Jón tækifæri
til að beita „exclusion“ ásaspurningu,
en um þá sagnvenju hefur Eddie Kant-
ar skrifað lærðar ritgerðir með fögrum
dæmum. Jón vakti í norður á sterku
laufi og Lauria skaut inn 1♥ á fjórlit-
inn. Þorlákur sagði 1♠ og Versace í
vestur 2♦. Nú var allt til reiðu og Jón
tók heljarstökk í 5♦ til að spyrja um
lykilspil utan við tígulinn. Þorlákur
stakk ♦Á í vasann og sýndi bara eitt
lykilspil með 5♠. Jón reyndi við sjö,
sagði 5G, en Þorlákur aftók slíkt með
öllu og varð síðan að játa sig sigraðan í
6♠, enda legan ekkert venjuleg.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Dómgreindin er ekki upp á sitt
besta núna. Atburðir verða að gerast
þegar þér þóknast, annars ertu ekki með.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Rífðu upp stemninguna í kringum
þig, líka hvað varðar líkama þinn, föt,
heimili og bíl. Gættu þess að vera ekki of
smámunasamur.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það gengur ekki að að drottna
einn yfir öllu, þegar um samstarf við aðra
er að ræða. Þú hefur látið heillast af nýrri
persónu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Láttu ekki verkefni safnast fyrir á
skrifborði þínu óleyst. Dagurinn er kjör-
inn til að taka ákvarðanir varðandi sam-
eiginlegt eignarhald.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Líttu það jákvæðum augum og
ræddu málin við vini þína. Nauðsynlegt
er að kynnast nýju fólki og öðrum skoð-
unum en þú ert vanur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Upplagt að stunda viðskipti við
aðra í dag, ekki síst ef þú þarft að reiða
þig á tekjur þeirra. Leggðu staðreyndir á
borðið eins og þær blasa við þér.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Samskipti nútímans eru nær öll í
tækninni. Til þess að ná árangri þarftu að
vera raunsæ/r og gera þér glögga grein
fyrir því hvað er mögulegt og hvað ekki.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Græskulaust gaman er þér að
skapi og það er sjálfsagt að lífga upp á
tilveruna með þeim hætti. Breyttu við-
horfi þínu til erfiðrar aðstöðu í samband-
inu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Besta leiðin til þess að höndla
strauma augnabliksins er að vera dugleg-
ur í vinnunni. En peningar eru ekki allt
og þú þarft líka að huga að öðrum hlutum
áður en það er of seint.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Fólk er æst í að eiga við þig
samskipti. Tímasetning skiptir sköpum.
Gefðu þér tíma til að greiða úr flækjunni
og þá leysast allir hlutir auðveldlega.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér munu berast ýmsar upp-
lýsingar um líf forfeðra þinna. Um þessar
mundir ættir þú að einbeita þér að heim-
ilinu og fjölskyldunni.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú nýtur þess að iðka svolitla
heilaleikfimi í dag, þótt ekki sé með form-
legum hætti. Þú hefur verið kraftmikill,
jákvæður og bjartsýnn upp á síðkastið.
Stjörnuspá
26. júní 1928
Boranir hófust eftir heitu
vatni í Laugardal í Reykjavík.
Þetta var upphaf Hitaveit-
unnar.
26. júní 1930
Alþingishátíðin á Þingvöllum
var sett. Hún var haldin til að
minnast þúsund ára afmælis
Alþingis og stóð í þrjá daga.
Um þrjátíu þúsund manns
sóttu hátíðina. „Er það víst að
síðan land byggðist hefur
aldrei jafn margt fólk verið
saman komið á einum stað og
á Þingvöllum nú,“ sagði í
Morgunblaðinu.
26. júní 1949
Þuríðarbúð á Stokkseyri var
vígð eftir að Stokkseyringa-
félagið í Reykjavík hafði látið
endurreisa sjóbúðina í minn-
ingu Þuríðar Einarsdóttur (f.
1777, d. 1863). Þuríður hóf sjó-
sókn 11 ára gömul og var for-
maður á áttæringi í áratugi.
Hún átti þátt í að upplýsa
Kambsránið.
26. júní 1992
Kjaradómur kvað upp úrskurð
um hækkun launa æðstu emb-
ættismanna ríkisins. Úrskurð-
inum var harðlega mótmælt
og rúmri viku síðar voru sett
bráðabirgðalög til að breyta
forsendum dómsins.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Hreyfing heldur manni auðvitað við og er nauð-
synleg, ekki síst fyrir aldraða,“ segir Rannveig
Sigurðardóttir, fyrrverandi handmenntakennari,
sem verður 90 ára í dag. Hún stýrir sundleikfimi
eldri borgara í Sundlaug Kópavogs í tvö skipti af
þremur á viku, auk þess að stunda leikfimi fyrir
aldraða á vegum Digraneskirkju á veturna. „Ég er
búin að stunda sundleikfimi í mörg ár og datt svo
inn í starfið óvænt vegna forfalla og festist óvart í
þessu, en ég er enginn sund- eða leikfimikennari.“
Hún leggur mikið upp úr hreyfingu og kveðst
reyna að borða hollan mat og fjölbreyttan til við-
bótar henni. Rannveig kenndi handmennt við Gagnfræðaskóla verk-
náms, sem síðar varð Ármúlaskóli, en lét af kennslu árið 1983. Hún
býr enn í einbýlishúsi að Skólatröð í Kópavogi, sem hún og maður
hennar byggðu árið 1953, en hann er nú látinn. Auk leikfimi og sunds
hefur Rannveig verið í kórastarfi og syngur með Ekko-kórnum, sem
er kór kennara á eftirlaunum í Kópavogi. Rannveig segist ekki ætla
að gera mikið úr afmælinu og vill ekki halda stóra veislu en ætlar að
gleðjast með fjölskyldu og nánustu vinum.
ingibjorgrosa@mbl.is
Rannveig Sigurðardóttir 90 ára í dag
Gleðst með fjölskyldunni
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Finnland Lóa Tuulianna
fæddist 26. apríl kl. 22.56.
Hún vó 3,670 g og var 51
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Eeva-Kaisa Suho-
nen og Ellert Smári Krist-
bergsson.
Akureyri Teitur Nolsöe
fæddist 5. júní kl. 13.25.
Hann vó 3.975 g og var 54
cm langur. Foreldrar
hans eru Elin Nolsöe
Grethardsdóttir og Bald-
ur Helgi Benjamínsson.