Morgunblaðið - 26.06.2010, Síða 38
38 Velvakandi
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 2010
Land og þjóð
til sölu
Það hefur spurst út í
heim af lítilli þjóð, þar
sem stjórnvöld eru
óvitur, auðtrúa og sið-
ferði ekki á háu stigi,
allt er falt. Það er
fylgst með því að þessi
stjórnvöld rífast um
hvar eigi að skera nið-
ur, hvað skuli tekið af
öryrkjum og öldruðum,
engin framtíðarsýn,
engin uppbygging.
Nú skal nýta tæki-
færið, ef ekki Magma,
þá Ástralía og jú að
sjálfsögðu Kínverjar, til hvers ann-
ars þurfa þeir stórt húsnæði fyrir
sendiherra? Maður semur ekki við
Kínverja, svo einfalt er það. En
þetta er bara byrjunin á ásókn út-
lendinga í auðlindir okkar. Magma á
eftir að vilja selja orkuna til útlanda.
Viljið þið, stjórnvöld, ekki sýna þjóð-
inni myndir frá Suður-Ameríku,
hvernig land lítur út eftir gullleit?
Gott fólk, við sitjum uppi með
stjórnvöld, hættulega auðtrúa og
sem virðast ekki bera virðingu fyrir
landi og þjóð og hag þeirra fyrir
brjósti.
Nei, ég veit að miðað við það sem
ég sé og heyri munum
við verða þjóð sem
missir sjálfstæðið yfir
auðlindum sínum og
landi. Þá fyrst verðum
við fátæk, svo fátæk að
ekki verður lengur
hægt að hafa ofan af
fyrir frístundaþjóðinni
á Íslandi.
Við eigum sjálf að
nýta auðlindir okkar.
Það er að vera sjálf-
stæð þjóð. Það mætti
til dæmis nota pen-
ingana sem skilanefnd-
ir bankanna fá í laun.
Þar þykir sjálfsagt að
þeir fái milljarða, mjög
svo einkennilegt, já það eru aumar
sálir og litlar.
Stefanía Jónsdóttir, Sauðárkróki.
Ég gekk á Þverártindsegg um dag-
inn og mér til undrunar fann ég
myndavél hátt í hlíðum fjallsins.
Hún reyndist í fullkomnu lagi en
mér hefur ekki tekist að hafa uppi á
eigandanum.
Eigandi getur vitjað um hana hjá
Þór í síma 899- 5722
Ást er…
… skin og skúrir.
Velvakandi
Ármann Þorgrímsson orti vís-ur undir lok sjötta áratug-
arins þegar verið var að byggja
stöðvarhús Steimgrímsstöðvar.
Að beiðni Björns Ingólfssonar
var hann fáanlegur til þess að
rifja upp vísurnar og tildrög
þeirra:
„Þá tók Þingvallavatn upp á
því að stytta sér leið niður í Úlf-
ljótsvatn og rann þá um göngin
sem búið var að grafa gegn um
Dráttarhlíðina.
Þetta var mikið vatnsfall og
skolaði með út á vatnið kaffi-
skúrunum okkar og kömrunum
og ýmsu sem þarna var á bygg-
ingarstað.
Kamrarnir voru nú ekki það
fyrsta sem lagfært var þegar um
hægðist og fór fljótlega að bera á
vondri lykt í og kringum stöðv-
arhúsið.
Yfirmaður á staðnum setti þá
upp auglýsingu þar sem bannað
var að kasta af sér vatni í stöðv-
arhúsinu. Þetta var náttúrlega
allt of mikil freisting svo starfs-
menn settu upp aðra tilkynningu
þar sem stóð:
Finnst mér lífið dapurt, drengur,
dreymir mig um fornar tíðir,
má nú hvergi míga lengur
margir gerast blöðrusíðir.
En fögnum því sem fagna ber,
flestir telja sannað
að kúka megi hvar sem er
því hvergi sé það bannað.
Auglýsingin var tekin niður
samdægurs.“
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af kamarsleysi og banni
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
VEISTU HVAÐ
VIÐ HÖFUM EKKI
GERT LENGI?
ÚÐAÐ Í OKKU BAKKELSI ÞANGAÐ
TIL ÞAÐ LÍÐUR YFIR OKKUR!
ÉG ÆTLA AÐ KAUPA
KLEINUHRINGI OG SÍÐAN
LÁTUM VIÐ ÞÁ HAFA ÞAÐ
ÉG ELSKA
ÞENNAN DRAUM
ER ÞETTA
EKKI GÓÐ
ÁÆTLUN?
ÉG SÉ
EKKI
BETUR
ÉG HELD AÐ EF ÞEIR SENDA
MÉR EINA FRÍA BELJU ÞÁ
SÉ ÉG Í GÓÐUM MÁLUM
ÉG SEL SÍÐAN BELJUNA
FYRIR HÁLFA MILLJÓN OG
NOTA PENINGINN TIL AÐ
KAUPA MÉR FLEIRI BELJUR!
ÉG ER AÐ
SKRIFA BÆNDA-
SAMTÖKUNUM
HVAÐ VILTU FÁ Í
AFMÆLISGJÖF Í ÁR?
ÉG VEIT EKKI
HVAR ÉG GET
KEYPT ÞETTA
MÉR ÞYKIR
LEIÐINLEGT
AÐ SEGJA ÞÉR
ÞAÐ... EN
ÞÚ ÞARFT AÐ
LOSA ÞIG VIÐ
AFRÓIÐ
VILTU ÖRUGGLEGA
VERA JÓLASVEINNINN?
ÞAÐ ER SKÁRRA
EN AÐ TÍNA
RUSL ÚTI Á
BÍLAPLANI
MUNDU AÐ ÞAÐ EINA SEM
ÞÚ ÞARFT AÐ GERA ER AÐ
BROSA OG SPYRJA, „HVAÐ
VILTU FÁ Í JÓLAGJÖF?“
TIL ÞESS ERUM VIÐ
MEÐ ÖRYGGISÁLFANA
PABBI HENNAR ÖDDU FÆR VINNU YFIR JÓLIN
ERTU
TILBÚINN?
HVAÐ EF
EINHVER ER
MEÐ VESEN?
NEMA KANNSKI EF
ÞAÐ ER ARMBANDSÚR
NEEIII!!
MARÍA, ÞÚ
ÆTTIR ALDREI AÐ
HITTA FYRRVERANDI
MANNINN ÞINN
NÁLÆGT KLUKKU...
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Að skrifa minningagrein
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina.
Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar.
Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum
dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til
birtingar á mánudag og þriðjudag.
Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins
hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt
sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000
tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum,
þar sem þær eru öllum opnar.