Morgunblaðið - 26.06.2010, Side 48
LAUGARDAGUR 26. JÚNÍ 177. DAGUR ÁRSINS 2010
Gunnþórunn Jónsdóttir
gunnthorunn@mbl.is
Hið árlega Viðeyjarmót er haldið um
helgina en fyrir mótinu stendur
skátafélagið Landnemar. Mótið var
sett á fimmtudaginn og stendur
fram á sunnudag en 300-500 skátar
eru á svæðinu og sá yngsti er átta
ára gamall. Á mótinu í ár er brugðið
út af hefðinni en krakkar úr útilífs-
skólum höfuðborgarsvæðisins, sem
halda sumarnámskeið á hverju
sumri, gistu eina nótt með skát-
unum. Tæplega 300 krakkar af sum-
arnámskeiðunum héldu til Viðeyjar í
útilegu á fimmtudag og komu í bæ-
inn aftur seinnipart gærdags.
Á mótinu er mikið um að vera og
þétt dagskrá. Þrautabraut er á
svæðinu fyrir skátana, kaffihús og
margt fleira. „Við stundum útivist,
það eru leikir og fjör, varðeldar og
dansiball. Hið árlega bryggjuball er
haldið þar sem harmónikkuleikari er
fenginn til að spila fyrir krakkana og
svo er diskó eftir það,“ segir Helgi
Jónsson, verkefnastjóri Skáta-
sambands Reykjavíkur. „Við eldum
góðan mat og leikum okkur. Allt það
sem okkur dettur í hug í útilegum,“
segir hann og bætir við að stemn-
ingin í Viðey sé góð.
Þema mótsins er frumbyggjar
Tjaldborgin í Viðey er stór enda
eru þátttakendur mótsins töluvert
margir og settu skátarnir tjaldbúð-
irnar upp sjálfir. Þema mótsins er
frumbyggjar og með því er átt við að
byrja á byrjunarreit, þ.e. upplifunin
sem frumbyggi. Skátarnir reisa
sjálfir trönubyggingar með spýtum
úr trönum og spottum og fleiru.
Viktoría Sigurðardóttir, dagskrár-
stjóri mótsins, útskýrði hvernig fyr-
irkomulaginu væri háttað: „Við höf-
um sett upp dagskrárþorp og hvert
þorp er með þema út af fyrir sig.
Þorpin eru þrjú og byggist þemað í
hverju þorpi út frá gömlum ætt-
bálkum,“ segir Viktoría. Eitt þorpið
byggist á vatnadagskrá, en þá er
unnið í flekagerð. Í öðru þorpi er
búið til didsjerídú, sem er hljóðfæri
frumbyggja frá Ástralíu, og fleira
föndur og í þriðja þorpinu er verið
að stunda sig, sveifla sér í apa-
rólu og fleira. Öll síðasta
vika fór í að undirbúa og
ferja út í eyju ýmsan búnað
og mun næsta vika fara í
það að koma öllu aftur til
baka að sögn Helga.
Skátar föndra sem frumbyggjar
Um 400 skátar á Viðeyjarmóti
Reisa trönubyggingar um helgina
Morgunblaðið/Eggert
Samvinna Mikið fjör er á Viðeyjarmóti skáta og á myndinni hjálpast krakkarnir að við að selflytja farangurinn eins og skátum einum er lagið.
Í Viðey er mikið um að vera hjá
skátum. Farið er í fjölbreytta
leiki og er þrautabraut á svæð-
inu. Skátarnir kveikja varðelda
og reisa trönubyggingar auk
þess að setja tjaldbúðirnar
upp.
Í kvöld verður hið ár-
lega bryggjuball haldið
og eflaust margir spennt-
ir fyrir því. Viðeyjarmótið
er árlegur viðburður
Skátafélagsins Landnema og
haldið í 51. skiptið í ár.
Varðeldar og
þrautabraut
VIÐEYJARMÓT 2010
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Gifti sig í gallabuxum
2. Byr sendir óbreytta greiðsluseðla
3. „Feginn að vera kominn heim“
4. Portúgal með Brasilíumönnum …
Listamaðurinn Alistair Macintyre
opnar Listasumar á Akureyri með
sýningunni Dry Ice and Anti-Freeze í
Ketilhúsinu í Grófargili. Á sýningunni
getur að líta verk unnin úr ísblokkum
og jarðlitaefnum. »40
Vinnur með ís og
jarðlitaefni
Norræna prjóna-
hátíðin Lykkjur,
sem nú stendur yf-
ir í Norræna hús-
inu, hefur vakið
talsverða athygli
erlendis. Er m.a.
fjallað um hátíðina
á vefsíðunum daz-
eddigital.com og coolhunting.com
þar sem m.a. er vitnað í Brynhildi
Pálsdóttur, einn forsvarsmanna Víkur
Prjónsdóttur. Lykkjur samanstanda
af sýningu og viðburðadagskrá, en
viðfangsefnið er prjón og hekl.
Prjón og hekl vekur
athygli erlendis
Í tilefni nýrra hjúskaparlaga, sem
taka gildi á morgun, efna Samtökin
’78 til Regnbogahátíðar með guðs-
þjónustu í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Þar munu fjölmargir listamenn
koma fram, en séra Hjörtur Magni
Jóhannsson leiðir samveru-
stundina. Páll
Óskar Hjálmtýs-
son er einn
þeirra sem
munu taka lagið
og hann segir
tilefnið mjög
ánægjulegt. »41
Hjúskaparlögum
fagnað í Fríkirkjunni
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, víða 3-8 m/s, en 8-13 syðst. Víða léttskýjað NA-lands,
en annars skýjað að mestu og stöku síðdegisskúrir V-til. Hiti 10 til 18 stig að deginum.
Á sunnudag Norðaustlæg átt, 5-15 m/s. Skýjað S-lands og dálítil rigning við SA-
ströndina, en annars bjartviðri. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast V- og NV-lands.
Á mánudag NA 8-13 m/s við SA-ströndina og NV-lands. Lægir síðdegis. Dálítil rigning
SA-lands, skýjað en þurrt að kalla við N-ströndina. Stöku síðdegisskúrir SV-lands.
Tvö lið af Suðurlandi mættust í fyrsta
skipti í efstu deild karla í fótbolta í
gærkvöldi. ÍBV vann þá Selfyssinga,
3:0, að viðstöddu fjölmenni í Vest-
mannaeyjum en áhorfendur voru
nokkuð á annað þúsund. Með sigr-
inum eru Eyjamenn með tveggja
stiga forystu í deildinni en aðrir leikir
í níundu umferðinni fara fram á
morgun. »4
ÍBV á toppnum eftir
Suðurlandsslaginn
Evrópumeistarar Spánar
urðu síðastir, ásamt Chile-
búum, til að tryggja sér
sæti í 16-liða úrslitum
heimsmeistarakeppninnar í
fótbolta í gærkvöldi. Spán-
verjar leika við Portúgala og
Chile mætir Brasilíu. Und-
anúrslitin hefjast í dag með
viðureign Úrúgvæ og Suður-
Kóreu en slagur Englend-
inga og Þjóðverja er stór-
leikur helgarinnar. »1-3
Spánn og Chile
síðustu lið áfram
Enn einn leikmaðurinn er horfinn á
braut frá handknattleiksliði Vals því í
gær gerði Elvar Friðriksson, einn lyk-
ilmanna þess, þriggja ára samning
við danska úrvalsdeildarliðið Lemvig.
„Ég lít á þetta sem spennandi tæki-
færi fyrir mig til þess að spila í einni
sterkustu deild
í heimi. Liðið
hefur styrkt
sig verulega og
ég sé ekki fram á
annað en að
skemmtilegir tímar séu
framundan,“ sagði
Elvar við Morg-
unblaðið. »1
Valsmenn missa Elvar
til Danmerkur