Morgunblaðið - 03.07.2010, Síða 4
Skúli Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
Færa á þjónustu við fatlaða frá rík-
inu og í verkahring sveitarfélaganna
en til stendur að samkomulag um
fjárhagsramma þessarar breytingar
verði undirritað af fulltrúum ríkis-
stjórnarinnar og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga næstkomandi
þriðjudag.
„Við höfum verið að koma á fjár-
hagsramma við erfiðar aðstæður í
þjóðfélaginu en við teljum okkur
vera búin að ná lendingu,“ segir
Halldór Halldórsson, formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga og
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Segir
hann að samkomulagið í núverandi
mynd komi bæði ríki og sveitarfélög-
um vel, það sé fjarri lagi að ríkið sé
einfaldlega að létta af sér þessum
málaflokki. „Ég tel að þetta sé yfir-
færsla á jafnræðisgrundvelli með
hagsmuni skjólstæðinganna í huga.“
Halldór segir þau samkomulags-
drög sem fyrir liggja eigi að gera öll-
um sveitarfélögum kleift að sinna
málaflokknum þó þau séu misvel
stödd vegna efnahagsþrenginganna.
Hann telur þó ekki tímabært að
segja hve háar upphæðir munu fær-
ast til sveitarfélaganna vegna mála-
flokksins fyrr en það verður kynnt
formlega. Fjárhagslegt umfang mál-
efna fatlaðra hjá ríkinu segir hann
vera um tíu milljarða króna.
Mjög jákvætt skref stigið
„Til að byrja með munum við bara
taka yfir verkefnin og þau eru að
mörgu leyti vel rekin af ríkinu,“ seg-
ir Halldór en þegar fram líði stundir
muni þjónustan fléttast saman við
félagsþjónustu á hverju svæði og
taka breytingum. Þar sem nálægð
við skjólstæðinga komi til með að
verða meiri telur hann að öll nær-
þjónusta muni styrkjast í framhald-
inu.
„Ég met það þannig að þjónustan
muni jafnt og þétt þróast og vonandi
batna. Ég hef óbilandi trú á því að
þetta sé mjög jákvætt skref,“ segir
Halldór og segir að unnið hafi verið
að yfirfærslunni allt frá 2007.
7.000 á hverju þjónustusvæði
Svæðaskipting þjónustunnar mun
ekki fylgja línum sveitarfélaga með
öllu heldur munu smærri sveitar-
félögin fara saman með þjónustuna á
ákveðnum svæðum. Miðað er við að
ekki séu færri en 7.000 íbúar á
hverju þjónustusvæði. „Vestfirðir,
þar sem eru níu sveitarfélög, munu
til dæmis vinna saman sem ein
heild,“ segir Halldór og segir fram-
lög til sveitarfélaga á hverju svæði
verða miðaða við þörf þeirra og fötl-
unarflokka skjólstæðinga.
Mun efla þjónustu við fatlað fólk
Ríki og sveitarfélög eru að ljúka gerð fjárhagsramma þess að þjónusta við fatlaða fari til sveitarfélaga
Bæði til hagræðingar og bóta, segir ráðherra Breytingin hefur verið í undirbúningi síðan árið 2007
Halldór
Halldórsson
Árni Páll
Árnason
4 FréttirINNLMET
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2010
Borgartúni 24, Hæðarsmára 6 og Hafnarborg Hafnarfirði
Sími 58 58 700 www.madurlifandi.is
Maqui ber
er ofurfæði sem hefur mælst með eitt
hæsta gildi andoxunar*.
Þessi andoxunarblanda inniheldur einnig
Acai berjasafa ásamt öðrum berjasöfum
með hátt andoxunargildi.
Frábær náttúruleg blanda af andox-
unarefnum.
*ORAC gildi (Oxygen Radical Absorption Capacity)
Andoxun
Í fótboltanum er mikilvægt að skora mörk, því sá
vinnur sem skorar þau fleiri. Ekki er þó síður
mikilvægt að kunna að fagna mörkum og sigrum
vel, eins og þessir liðsmenn 5. flokks Víkings,
sem hlupu í átt að áhorfendum og renndu sér á
bringunni eftir grasinu, eftir góðan sigur á N1
móti KA á Akureyri.
Mótið er hið fjölmennasta í íslenskri knatt-
spyrnu ár hvert og í ár eru keppendur um 1.500,
í 168 liðum frá 35 íþróttafélögum. Með þjálfurum
og liðsstjórum eru um 1.800 manns á mótinu.
Þetta er í 24. skiptið sem mótið er haldið.
Vel á annað þúsund skemmtir sér á N1-móti KA í knattspyrnu á Akureyri um helgina
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Sigurinn enn sætari ef honum er fagnað vel
„Það er mjög mikilvægt að færa
þjónustu við fatlaða í heild á
þetta stig stjórnsýslunnar og
eðlilegur hluti af því að færa fé-
lagsþjónustuna á eina hönd,“
segir Árni Páll Árnason félags-
og tryggingamálaráðherra.
Hann segir nokkra hagræðingu
felast í tilfærslu þjónustunnar
en einnig skapist tækifæri til að
bæta hana.
Þjónustan öll
á einni hendi
ÁRNI PÁLL ÁRNASON
Kjartan Guðjónsson
listmálari lést á hjúkr-
unarheimilinu Grund
miðvikudaginn 30. júní
sl. Kjartan fæddist 21.
apríl 1921, sonur
þeirra Guðjóns Jóns-
sonar bryta og Sigríð-
ar Bjarnadóttur hús-
freyju.
Kjartan ólst upp í
Þingholtunum í
Reykjavík og lauk
stúdentsprófi frá MR
1942. Ungur sýndi
hann mikinn áhuga á
myndlist og sótti ýmis
námskeið til að efla hæfileika sína á
því sviði. Á árunum 1942-43 stundaði
Kjartan við Handíðaskólann í
Reykjavík en fór svo til náms við
hinn virta listaháskóla í Chicago í
Bandaríkjunum.
Að námi loknu skip-
aði Kjartan sér í hóp
módernista í myndlist á
Íslandi. Hann var einn
úr upphaflega Sept-
emberhópnum svokall-
aða, sem sýndi fyrst
saman árið 1947 í
Listamannaskálanum,
en sú sýning, sem og
aðrar sem hópurinn
hélt, hafði víðtæk áhrif
á myndlist hér á landi.
Kjartan kenndi við
Myndlista- og hand-
íðaskóla Íslands í meira
en aldarfjórðung og
hélt fjölda sýninga.
Eiginkona Kjartans var Sigríður
Breiðfjörð, en hún lést 2003. Þau
eignuðust tvo syni, Bjarna og Sig-
urð. Fyrir hjónaband eignaðist
Kjartan soninn Gunnar Hrafnsson.
Andlát
Kjartan Guðjónsson Bæjarráð Akra-ness felldi í gær
úr gildi sam-
þykkt frá 10.
júní í fyrra um
algjört bann við
yfirvinnu starfs-
manna Akranes-
kaupstaðar.
Fréttavefurinn
Skessuhorn seg-
ir að bæjarráðið
hafi áréttað að
farið verði eftir samþykktum
fjárhagsáætlunar um heimildir
til yfirvinnu á hverjum tíma.
Yfirvinnubannið var hluti af
aðhaldsaðgerðum sem gripið
var til í fyrra. Á fundi bæj-
arráðsins kom m.a. fram að
rekstrarstaða kaupstaðarins
væri í samræmi við fjárhags-
áætlun. Gengisþróun hefði skap-
að hagstæðari niðurstöðu fjár-
munagjalda en áætlunin gerði
ráð fyrir.
Yfirvinnubann starfs-
manna fellt úr gildi
Akranes Gripið
var til aðhalds-
aðgerða.
Gísli Tryggvason, talsmaður neyt-
enda, hefur sent hagsmuna-
samtökum bankanna tilmæli vegna
gengisdóma Hæstaréttar. Hann
mælist til þess að neytendur fái að
njóta vafans „ef fyrirtækin velkjast í
vafa um fordæmisáhrif nýlegra
dóma Hæstaréttar um ólögmæti
gengistryggðra lána“, eins og segir í
tilmælunum sem talsmaður neyt-
enda sendi Samtökum fjármálafyr-
irtækja. Hann hvetur til þess að
samtökin „hvetji aðildarfyrirtækin
til þess að innheimta aðeins tiltekna
krónutölu miðað við hverja milljón
króna af upphaflegum höfuðstól lána
ef vafi er talinn leika á hvort lána-
skilmálar falli undir fordæmisáhrif
dóma Hæstaréttar frá 16. júní sl. í
málum þar sem gengistrygging var
dæmd ólögmæt samkvæmt lögum
um vexti og verðtryggingu“.
Hafa Hagsmunasamtök heim-
ilanna lýst yfir ánægju með tilmæli
talsmanns neytenda, en með þeim
séu neytendur látnir njóta vafans
um útkomu í fordæmisgefandi
dómsmálum.
Neytendur
njóti vafans
Morgunblaðið/RAX
Umdeild Miklar deilur hafa staðið
um gengislán frá bankahruninu.