Morgunblaðið - 03.07.2010, Qupperneq 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2010
Kringlunni • Simi 568 1822 og Smáralind • sími 564 1822
www.polarnopyret.is
Útsalan
er hafin
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Útsalan
er hafin
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
útsala
Str. 36-56
30%-70%
afsláttur
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
Póstsendum
30-70%
afsláttur
Langur laugardagur
Opið til kl. 17 í dag
Stórútsala
Tollgæslan á Seyðisfirði hafði af-
skipti af fjórum Rúmenum sem
komu til landsins með Norrænu í
gær, en þeir reyndu að smygla
skartgripum til landsins. Tollverðir
fundu 26 kíló af skartgripum sem
búið var að koma haganlega fyrir í
innri brettum tíu ára gamallar
Mercedes Benz-bifreiðar.
Árni Elísson, yfirmaður tollgæsl-
unnar á Seyðisfirði, segir að skart-
gripirnir, mestmegnis hringar og
hálsmen, hafi verið gerðir upptækir.
Árni telur líklegt sé að um gull-
eftirlíkingar sé að ræða. Fólkið,
tveir karlar og tvær konur, hafi
sennilega ætlað að koma skartgrip-
unum í verð hér á landi. Það megi að
sjálfsögðu flytja inn skartgripi til
landsins en það verði að gera með
löglegum hætti, sem var ekki gert að
þessu sinni. eyrun@mbl.is
Glingrið gert
upptækt
Tilraun gerð til að smygla 26 kílóum
af skartgripum til landsins með Norrænu
Glingur Skartinu hafði verið komið
haganlega fyrir í brettum bifreiðar.
Eftir Kristínu Ágústsdóttur
Neskaupstaður | Kærkomin sumarblíða er nú í Nes-
kaupstað. Börnin á Sólvöllum notkuðu tækifærið og fóru
í karnivalgöngu um bæinn, klædd í gulu, rauðu, grænu
og bláu.
Lamið var í trommur og kallað: „Gulir eru bestir!“
Framundan eru frekari hátíðahöld, enda sjómannadags-
helgin að ganga í garð með tilheyrandi skemmtidagskrá.
Bærinn fyllist af brottfluttum Norðfirðingum og ferm-
ingarbarnamót verða áberandi.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Karnivalstemning í Neskaupstað
Árni Gunnarsson, framkvæmda-
stjóri Flugfélags Íslands, segir fyrir-
tækið tilbúið að standa straum af
kostnaði við að reisa flugstöð á eigin
svæði á Reykjavíkurflugvelli. Áætl-
að er að ný samgöngumiðstöð kosti
um 2-2,5 milljarða króna en gert er
ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á
þessu ári.
„Þetta er klárlega ódýrari lausn út
frá því sjónarmiði að á nýjum stað
þarf að gera ný flughlöð og þau eru
áætluð á eitthvað í kringum 700
milljónir króna. En hér þarf aðeins
að viðhalda þeim flughlöðum sem
fyrir eru. Þannig að sá kostnaður er
meiri við það að fara í samgöngu-
miðstöð heldur en að vera á þessum
stað sem við erum á núna,“ segir
Árni. Sú lausn gæti verið óháð um-
ræðunni um framtíð flugvallarins og
bara verið svo lengi sem flugvöllur-
inn er.
Hann segir flugfélagið þó áfram
vilja koma að samgöngumiðstöðinni
sé hún eini kosturinn í stöðunni.
Flugfélagið getur
sjálft byggt flugstöð
Morgunblaðið/Ómar
Flugtak Flugstöð Flugfélags Ís-
lands hefur lengi verið í Vatnsmýri.
Þorleifur Gunn-
laugsson,
fulltrúi VG í
velferðarráði
Reykjavíkur,
hefur óskað eft-
ir aukafundi í
ráðinu sem
fyrst, í ljósi þess
að hjálparstofn-
anir hafi lokað
fyrir mat-
argjafir í sumar.
Fram kemur í tilkynningu að
hann hafi jafnframt óskað eftir
upplýsingum um hvað það hafi
kostað borgina að veita 15.000 kr.
sumarbónus til hvers einstaklings
sem þiggi fjárhagsaðstoð og 5000
kr. vegna barns.
Þorleifur hyggst leggja til að
veittur verði sumarstyrkur til fá-
tækra skjólstæðinga velferðarsviðs
á aukafundi ráðsins verði formað-
ur þess við ósk hans.
Sumarstyrk
til fátækra
skjólstæðinga
Þorleifur
Gunnlaugsson
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, telur
það misráðið af hálfu Seðlabanka Íslands og
Fjármálaeftirlitsins að gefa út tilmæli um vaxtakjör, þrátt
fyrir fyrirvara, ofan í dóm Hæstaréttar um gengistryggð
lán.
„Ef lánveitendur efast um skyldur sínar og réttmæti
niðurstöðu Hæstaréttar eða telja þar eitthvað óútkljáð
verða þau að fá niðurstöðu fyrir dómi,“ skrifar Ögmundur
á heimasíðu sína.
Að mati Ögmundar er hlutverk ríkisvaldsins nú tvíþætt.
Í fyrsta lagi að gera allt sem í valdi framkvæmdavaldsins stendur til að
tryggja skjóta úrlausn mála fyrir dómstólum og í öðru lagi að setja í gang
markvissa vinnu um almennar aðgerðir í þágu skuldara.
Misráðið af Seðlabanka og FME
að gefa út tilmæli um vaxtakjör
Ögmundur
Jónasson