Fréttablaðið - 03.10.2011, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Ný íslensk hönnun byggð á íslenskum þjóðvísum
Lyklahús eftir iðnhönnuð-
inn Hjördísi Ýr Ólafsdóttur
eru nú fáanleg í Epal og
Mýrinni. Þau fást í nokkrum
litum og koma sér vel til
að halda lyklum og mikil-
vægum pósti til haga.
Húsdýrin á hanka
H
ani, krummi, hundur, svín er
heiti nýrra snaga úr áli eftir
þau Ólaf Þór Erlendsson og
Silvíu Kristjánsdóttur. Snagana
kynntu þau á HönnunarMars í Epal í vor
og nú eru fyrstu eintökin komin í fram-
leiðslu. Form sitt og nafn draga snagarnir
af gamalli íslenskri þjóðvísu, en Ólafur og
Sylvía vinna saman undir heitinu
Hár úr hala.
„Við höfum bæði áhuga
á sögum og það verður
líklega undirtónninn í okkar vörum,“
útskýrir Ólafur, en nafn hönnunar-
teymisins er einmitt fengið úr sögunni
um Búkollu. „Þar eru hár úr hala Búkollu
notuð til að skapa eitthvað nýtt, eins og við
gerum úr efni,“ bætir hann við.
„Vísurnar eru mjög myndrænar og
okkur fannst þær henta vel í þetta verk-
efni,“ segir Sylvía. „Við hugsum snagana
fyrir unga sem aldna. Litirnir eru svartur
hvítur og grár svo þeir fara vel inni í for-
stofu.“ 2
Listh
Notalegir svefnsófar og hægindastólar
12 mánaða vaxtalausar greiðslur
Járn & Gler hf. Skútuvogur1h.
Barkarvogsmegin - 104 Reykjavík
S: 58 58 900 www.jarngler.is
Fyrirtæki - Húsfélög
Við bjóðum upp á sjálf-
virkan hurðaopnunarbúnað
ásamt uppsetningu og
viðhaldi.
Auðveldar aðgengi, hentar vel fyrir
aðgengi fatlaðra.
Áratuga reynsla af búnaði tryggir gæðin.