Morgunblaðið - 03.07.2010, Side 23
Fréttir 23ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2010
Aukinn þrýstingur á kanslarann
Flokksbræður Merkel kalla eftir styrkari forystu Stjórnin þykir standa afar veikum fótum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Angela Merkel Þýskalandskanslari sætir vax-
andi gagnrýni úr röðum flokksbræðra sinna
sem saka hana um að hafa mistekist að marka
skýr skil á milli fyrri stjórnar Kristilegra
demókrata, systurflokksins CSU og Jafnaðar-
mannaflokksins annars vegar og núverandi
stjórnar Kristilegra demókrata, CSU og
Frjálsra demókrata hins vegar.
Gagnrýnin er tekin alvarlega enda eru hér
á ferð áhrifamenn í flokki kanslarans.
„Stjórnin hefur glutrað niður tækifærinu
til að marka nýtt upphaf,“ sagði Stanislaw Til-
lich, forsætisráðherra sambandsríkisins Sax-
lands og einn helsti áhrifamaður í flokknum.
Vandinn gleymist ekki
Financial Times fjallar um málið á vef sín-
um en þar er haft eftir þingmanni Kristilegra
demókrata að dagurinn sem Christian Wulff
var kjörinn forseti Þýskalands í vikunni hafi
verið „ömurlegur“ en hann er í flokki Merkel.
„Sú staðreynd að uppreisnarseggirnir
skyldu hafi kosið gegn Wulff, eða setið hjá,
sýnir hversu djúpstæð óánægjan er. Kosning-
arnar verða hugsanlega gleymdar eftir nokkr-
ar vikur en ömurleg staða stjórnarinnar verður
það ekki,“ sagði þingmaðurinn sem kaus að
koma fram undir nafnleynd.
Quentin Peel, blaðamaður Financial Tim-
es, túlkar stöðuna í þýskum stjórnmálum
þannig að nokkur mál kljúfi stjórn Merkel,
ágreiningur sem fátt bendi til að
verði leystur.
Ofarlega á blaði séu ólík-
ar skoðanir á því hvaða leið
beri að fara til að stoppa upp í
1.725 milljarða króna fjár-
lagagat í heilbrigðis-
geiranum árið 2011,
halli sem ýmsir telja
að kalli á aukna
kostnaðarþátttöku
sjúklinga. Philipp
Rösler, heilbrigðisráðherra Frjálsra demó-
krata, vilji leggja flatt aukagjald á sjúklinga,
hugmynd sem Kristilegir demókratar leggist
alfarið gegn.
Heldur sig á hliðarlínunni
Peel víkur að stjórnunarstíl Merkel með
þeim orðum að hún leyfi ágreiningnum að fara
fram fyrir opnum tjöldum þar til menn ræði sig
að niðurstöðu, stíll sem sé til þess fallinn að
styrkja þá ímynd af stjórninni að hún sé
ákvarðanafælin.
„Það er ekkert sem bendir til að hún muni
breyta um stíl,“ hefur Peel eftir áðurnefndum
þingmanni sem óttast að staðan breytist ekki.
Annar valkostur sé ekki í stöðunni.
Leiðarahöfundur dagblaðsins Frank-
furter Rundschau, sem þykir til vinstri, tekur
hins vegar dýpra í árinni með þeim orðum að
forsetakjörið, þar sem Wulff náði ekki kjöri
fyrr en í þriðju tilraun þrátt fyrir að virðast
hafa tryggan meirihluta, þýði að stjórn Merkel
sé að hruni komin.
Kínverski ofurhuginn Adili Wuxor, betur þekktur sem „prins bláþræðis-
ins“, tiplar eftir streng sem liggur yfir „fuglahreiðrinu“, eins og ólympíu-
leikvangurinn í Peking er gjarnan kallaður.
Wuxor gerði sér lítið fyrir og sló heimsmetið í þessari íþrótt en undan-
farna 60 daga hefur hann dvalið í litlum kofa á þaki leikvangsins á milli
þess sem hann gengur 5 tíma á dag eftir strengnum.
Tvo mánuði í háloftunum
Reuters
Eins og sjá má á kortinu hér til hlið-
ar glíma Afganar enn við mikinn
vanda vegna jarðsprengna.
Þrátt fyrir mikinn árangur síðustu
ár við að uppræta jarðsprengjur
finnast þær enn víða.
Fram kemur í skýrslu sem lögð
var fram í öryggisráði SÞ í septem-
ber að á mánuðunum 12 þar á undan
hafi um 80.000 jarðsprengjur, sem
komið er fyrir til að valda mönnum
skaða, verið grafnar úr jörðu í land-
inu. Á sama tímabili voru um 900
sprengjur sem ætlaðar eru skrið-
drekum grafnar upp og samanlagt
um 2,5 milljónir ósprunginna
sprengna gerðar óvirkar í landinu.
Jafnframt kemur fram að á árinu
2009 hafi dregið úr mannfalli vegna
jarðsprengna í Afganistan en þá lét-
ust um 50 manns að meðaltali af
þeirra völdum á mánuði. Höfðu þá
ekki færri fallið í um áratug.
Heimild: Landmine and Cluster Munition Monitor
Tölur byggjast á nýjustu gögnum.
Ljósmynd/Reuters/Tim Wimborne
Afganskur leitarmaður
leitar að ósprungnum
sprengjum
nærri flugvellinum
í Kandahar í
apríl.
JARÐSPRENGJUR Í AFGANISTAN
Þrátt fyrir margra ára starf við að grafa upp jarðsprengjur
í Afganistan hafa áratuga átök og herseta Sovétríkjanna
skilið eftir sig meira en 650 ferkílómetra af landsvæði
þar sem enn má finna virkar jarðsprengjur.
Látnir 1.612
Slasaðir 10.457
Borgarar 5.607
Hermenn 504
Leitarmenn 441
Aðrir 5.517
Karlar 91%
Konur 9%
Börn 49%
AFGAN-
ISTAN
PAKISTAN
Kabúl
Afganistan
Kambódía
Kólumbía
Írak
Indland
Rússland
Angóla
Sómalía
Búrma
Laos
7.300
12.069
6.696
5.184
2.931
2.795
2.664
2.354
2.325
2.295
MESTA MANNFALLIÐ
Á árunum 1999 til 2008
200
150
100
50
0
24 16
27 17 22
40
26 28
52
'00 '01 '02 '03 '04 '05 '06 '07 '08
104 97 104
70
91
139134
176173
HREINSUN LANDSVÆÐA
Í ferkílómetrum í Afganistan
Vígvöllur
Önnur svæði
Uppræta
ógnvald
í jörðu
Enn er þó mikið verk
óunnið í Afganistan
Þegar Þjóðverjar
burstuðu Eng-
lendinga 4-1 í 16-
liða úrslitum HM
í knattspyrnu í
Suður-Afríku
gjörþekktu þeir
leik andstæðings-
ins og uppskáru
eftir því.
Það kemur svo
sem ekki á óvart
nema fyrir þá sök að tveir þýskir
námsmenn höfðu þá gert sér lítið
fyrir og legið yfir upptökum af
breska liðinu mánuðum saman, í því
skyni að finna á því veikleika.
Meðal þess sem þeir lögðu þýska
liðinu í hendur voru ábendingar um
hvernig það gæti tekið varnarmenn
Englendinga út úr stöðum, uppskrift
sem gekk fulkomlega upp í leiknum.
Námsmennirnir léku þannig á
Fabio Capello, hinn ítalska þjálfara
breska liðsins, sem þiggur vel á ann-
an milljarð króna í árslaun.
Stúdentar
kortlögðu
Bretana
Bretar eiga þó
fyrir gervistyttu.
Salt í sárin eftir HM
Breskt efnafólk sem heldur sig í
Kensington og Chelsea, auðmanna-
hverfum Lundúna, getur vænst
þess að lifa ríflega áratug lengur
en efnalítið fólk í Blackpool, einu af
fátækari hverfum borgarinnar.
Fjallað er um málið á vef Guard-
ian en þar segir að karlar í
Blackpool lifi að meðaltali í 73,6 ár
eða 10,7 árum skemur en karlar í
Kensington og Chelsea.
Fréttin byggist á úttekt stofnun-
ar sem fer með endurskoðun opin-
berra reikninga en þar segir að bil-
ið hafi haldið áfram að aukast þrátt
fyrir viðleitni jafnaðarmanna, sem
nýlega slepptu valdataumunum eft-
ir þrettán ára stjórnarsetu.
Sama staða hjá konunum
Bilið er jafn afgerandi hjá kon-
unum en það er mest á milli
kvenna sem búa í Lancashire-
sýslu, þar sem meðalævin er 78,8
ár, og í fínu hverfunum tveimur
þar sem konur lifa að meðaltali í
89,9 ár.
Meðal þess sem skorta þykir í
heilbrigðisþjónustunni í Bretlandi
er að efnalítið fólk hafi nægan að-
gang að blóðþrýstingslyfjum og
lyfjum sem slá á magn kólestróls í
blóði.
Læknana skortir líka í fátæku
hverfunum en í fréttinni er þó sér-
staklega tekið fram að ýmislegt
horfi til betri vegar í heilsugæslu
til handa efnalitlum.
Ríka fólkið lifir
áratug lengur
Minni ævilíkur fátækra Breta
Þau fínustu
» Hverfin tvö, Kensington og
Chelsea, voru vinsæl hjá ís-
lenskum útrásarvíkingum.
» Karl Bretaprins er meðal
íbúa fyrrnefnda hverfisins.
» Ný glæsiverslun Louis Vuit-
ton, sem selur lautarferðasett
á tæpar 8 milljónir króna, er
sniðin að lífstíl þessa hóps.
Það eru ekki aðeins leiðarahöfundar
Frankfurter Rundschau sem hafa lagt
drög að dánarvottorði stjórnarinnar.
Þannig segir í Bild, einu útbreiddasta
dagblaði Þýskalands, að vandaræðagang-
urinn í kringum kjör Wulffs gæti reynst
upphafið að keðjuverkandi ferli þar sem
stjórnin myndi að endingu leggja árar í bát
andspænis vandanum.
Tök Merkel á kosningabaráttunni dragi
leiðtogahæfileika hennar í efa.
Berliner Zeitung var með líku lagi harð-
ort en það túlkaði úrslitin sem „ósigur
Merkel“. Þá komst tímaritið Der Spiegel
svo að orði að kosningin væri „stærstu
mistök“ Merkel.
Gæti gefist upp
BLÖÐIN ERU HARÐORÐ
Angela Merkel