Morgunblaðið - 03.07.2010, Síða 33
klukkustundunum saman hjá henni
og spjallað út í eitt um hvað sem er.
Amma mín var dugnaðarkona og
hafði margt í sínu fari sem er hægt
að taka sér til fyrirmyndar, allt sem
hún tók sér fyrir hendur kláraði
hún og gerði hlutina eins vel og
hægt var og hún hafði alltaf allt á
hreinu. Ég á eftir að sakna þess að
geta ekki litið í heimsókn til ömmu
að spjalla þegar ég kem heim í frí-
um frá skóla eins og ég hef gert síð-
ustu árin en minninguna um hana
og brosið sem mér þótti svo vænt
um mun ég alltaf geyma.
Herdís Magna Gunnarsdóttir.
Gengin er Magna Jóhanna Gunn-
arsdóttir, eiginkona Jóns Egils
Sveinssonar móðurbróður míns og
móðir frænda minna, Sveins, Gunn-
ars, Egils, Þrastar, Róberts og
Björns. Sveinn afi minn og synir
hans, Jón Egill og Ingimar, bjuggu
félagsbúi á Egilsstöðum. Ég ólst
mikið til upp í húsi afa og ömmu, og
móðurbræður mínir og þeirra fjöl-
skyldur hafa verið mér sem fjöl-
skylda og systkin alla tíð og alltaf
tekið mér og mínu fólki opnum örm-
um.
Magna var mikil húsmóðir og
stýrði heimili sínu af styrk og prýði.
Með sex öfluga og óstýriláta stráka
og skapmikinn eiginmann var það
áreiðanlega ekki alltaf tekið út með
sældinni en reglusemi og metnaður
var henni í blóð borinn og heimilið
og framganga drengjanna bar þess
gott vitni. Heimasaumuð jakkaföt,
skyrtur, úlpur og peysur, eins og úr
fínustu búðum, spruttu fram úr
höndum hennar eins og ekkert væri
og oftar en ekki sat hún inni á
Sauma, eins og eitt herbergið var
kallað, þegar ég kom í heimsókn.
Magna var geðrík kona og ekki
alltaf auðvelt að umgangast hana.
Hún gat skammað mann hressilega
en oft átti maður það reyndar skilið.
Sumarpart bjó ég útfrá hjá þeim
þegar mamma var erlendis, líklega
hef ég verið á ellefta árinu, og kom
einu sinni inn, á flótta undan ein-
hverjum stráknum og fór ekki úr
skónum í óðagotinu. Það hafði rignt
og ég sporaði inn allan ganginn.
Yfirhalninguna sem ég fékk hjá
Mögnu man ég enn, en hún húð-
skammaði strákana líka fyrir að
vera að stríða mér. Réttlæti var
henni í blóð borið.
Magna var heilsteypt kona með
ákveðnar skoðanir, alltaf trú sann-
færingu sinni og ætíð stór í sniðum.
Sumarið sem móðir mín bar mig
undir belti bjó hún heima hjá
Mögnu og Jóni Agli sem þá voru ný-
flutt í sitt hús. Hvíslandi spurning-
um hneykslaðra eldri frænkna um
hver væri faðir að barninu, svaraði
Magna að bragði: „Þið skuluð bara
spyrja hana sjálfa!“ og stöðvaði
þannig snarlega frekara hvískur.
Móðir mín mat Mögnu alla tíð mik-
ils og sagði mér þessa sögu oftar en
einu sinni til marks um mannkosti
hennar. Þeir komu enda ekki síst
fram í staðföstum stuðningi Mögnu
við móður mína í veikindum hennar
síðar.
Mögnu verður ekki minnst án
þess að nefna garðinn við hús þeirra
hjóna þar sem þau hafa í gegnum
árin blandað af sérstöku listfengi
einkennum skrúðgarðs og villtrar
náttúru þar sem hver tegund jurta
fær að njóta sín. Þarna renna lækir
eins og úti í íslenskri náttúru, þarna
er gosbrunnur eins og í erlendum
skrúðgörðum, þarna vaxa stórar,
suðrænar blómjurtir innan um eini,
birki og smágerð, íslensk blóm í
hlöðnum steinbeðum.
Magna var ákaflega fríð kona,
dökk að yfirbragði og svipsterk.
Mér þótti það undursamlegt fyrir
tæpu ári, þegar mér var sýnd són-
armynd af yngsta afkomandanum,
Heklu Líf Eiríksdóttur, að sjá þar
fagurmótaðan munnsvip langömm-
unnar Mögnu, sem flestir sona
hennar og svo margir annarra af-
komenda bera, svo skýran á ófæddu
barninu.
Jóni Agli frænda mínum, sonum
þeirra Mögnu öllum og fjölskyldum
þeirra, vottum við Gríma samúð
okkar við fráfall hennar.
Megi minning Mögnu veita frið.
Ingunn Ásdísardóttir.
Minningar 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2010
✝
Sonur minn, bróðir okkar og mágur,
DR. KJARTAN G. OTTÓSSON
prófessor,
við háskólann í Osló,
sem lést mánudaginn 28. júní, verður jarðsunginn
frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 6. júlí kl. 11.00.
Gyða Jónsdóttir,
Óttar Ottósson,
Helga Ottósdóttir, Stefán S. Guðjónsson,
Geirlaug Ottósdóttir, Grímur Guðmundsson,
Theodór Ottósson, Árný Elíasdóttir,
Helga Ehlers, Reinhard Wolf.
✝
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
HALLS SIGURBJÖRNSSONAR
fv. skattstjóra,
Grundargerði 3d,
Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahússins á
Akureyri fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót.
Aðalheiður Gunnarsdóttir,
Sigurbjörn Hallsson, Ane Thomsen,
Margrét Hallsdóttir, Kristinn Einarsson,
Gunnar Hallsson,
Friðrik Haukur Hallsson, Angelika Woldt-Hallsson,
Þórarinn Óli Hallsson, Karin Rova,
Hallur Heiðar Hallsson,
Hlynur Hallsson, Kristín Þóra Kjartansdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær faðir minn og afi okkar,
DAÐI DANÍELSSON,
dvalarheimilinu Höfða,
síðast Stillholti 19,
Akranesi,
lést á dvalarheimilinu Höfða 15. júní.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Elín Ingibjörg Daðadóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir þann hlýhug og vináttu sem
okkur hefur verið sýnd vegna andláts og útfarar
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
HJALTA BJARNASONAR
fyrrv. bifreiðastjóra,
frá Sólvangi,
Árskógsströnd.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á dvalarheimilinu Hlíð
og lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri, fyrir persónulega og hlýja
umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna Gíslína Vigfúsdóttir,
Bjarni H. Hjaltason, Anna G. Sigurðardóttir,
Bjarki V. Hjaltason, Dýrleif K. Steindórsdóttir,
Elín Hjaltadóttir, Þórarinn Kristjánsson,
Reynir Gísli Hjaltason, Helga Ó. Finnbogadóttir,
Vignir Hjaltason, Edda B. Kristinsdóttir,
Vigdís E. Hjaltadóttir, Guðmundur Þ. Jónsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og virðingu
við minningu elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
JÓNS RAGNARS BJÖRGVINSSONAR
garðyrkjufræðings,
Rjúpnasölum 8,
Kópavogi,
sem lést föstudaginn 11. júní.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar
Landspítalans Fossvogi og séra Gunnars R. Matthíassonar fyrir
ómetanlegan stuðning.
Elsa Hildur Óskarsdóttir,
Björgvin Jónsson, Guðlaug Hrönn Björgvinsdóttir,
Óskar Jónsson, Þóra Hrönn Óðinsdóttir,
Laufey Jónsdóttir,
Sigríður Jónsdóttir, Þórður Helgi Jónsson
og barnabörn.
✝
Elskuleg mamma okkar, tengdamamma og amma,
KLARA BJÖRNSDÓTTIR,
lést miðvikudaginn 30. júní að Hornbrekku,
Ólafsfirði. Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju
fimmtudaginn 8. júlí kl. 14.00.
Bjarkey Gunnarsdóttir, Helgi Jóhannsson,
Hrólfdís Helga Gunnarsdóttir,
Ásgeir Gunnarsson, Maria Kærulf
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
MAGNÚSAR BJARNASONAR
leigubílstjóra,
Markholti 22,
Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á
krabbameinslækningadeild 11E og Karitas konum, fyrir hlýja og
persónulega umönnun í veikindum hans.
Hanna Þóra Bergsdóttir,
Björk Magnúsdóttir, Gunnar Örn Steingrímsson,
Gígja Magnúsdóttir,
Magnús Andri Pálsson,
Bjarklind Björk Gunnarsdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS BRYNTÝS ZOEGA MAGNÚSSONAR,
Dalbraut 16,
Reykjavík.
Pálína Ellen Jónsdóttir, Örn Björnsson,
Jóhanna Guðrún Zoega Jónsdóttir, Ragnar Ólafsson,
Helgi Jón Jónsson,
Heiðar Bryntýr Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför,
GUÐFINNU JÓNSDÓTTUR,
Bólstaðarhlíð 60,
áður til heimilis að
Syðsta-Ósi í Miðfirði.
Þorvaldur Böðvarsson, Hólmfríður Skúladóttir,
Hólmfríður Böðvarsdóttir, Sveinn Kjartansson,
Jón Böðvarsson, Ingibjörg Jóhannesdóttir,
Ingibjörg Böðvarsdóttir,
Þórunn Guðfinna Sveinsdóttir,
Pétur Böðvarsson, Hildur Árnadóttir,
Elísabet Böðvarsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reit-
inn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa
borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför
er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður
en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en
3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15
línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er
um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin
fer fram.
Minningargreinar