Morgunblaðið - 03.07.2010, Blaðsíða 34
34 Minningar MESSUR Á MORGUN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2010
AÐVENTKIRKJAN:
Aðventkirkjan Reykjavík | Samkoma í
dag, laugardag, kl. 11 hefst með biblíu-
fræðslu fyrir börn, unglinga og fullorðna.
Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á
ensku. Guðsþjónusta kl. 12. Manfred
Lemke prédikar.
Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Sam-
koma í dag, laugardag, kl. 11. Boðið upp
á biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna.
Guðsþjónusta kl. 12. Bein útsending frá
kirkju aðventista í Reykjavík. Anna Mar-
grét Þorbjarnardóttir prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum | Sam-
koma í dag, laugardag, kl. 11 í Reykja-
nesbæ hefst með biblíufræðslu. Guðs-
þjónusta kl. 12. Þóra Jónsdóttir prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Samkoma á
Selfossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst
með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna.
Guðsþjónusta kl. 11. Eric Guðmundsson
prédikar.
Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði | Sam-
koma í Loftsalnum í dag, laugardag, hefst
með fjölskyldusamkomu kl. 11. Stefán
Rafn Stefánsson prédikar. Biblíufræðsla
fyrir börn, unglinga og fullorðna kl. 11.50.
Boðið upp á biblíufræðslu á ensku.
Samfélag Aðventista á Akureyri | Sam-
koma í Gamla Lundi í dag, laugardag,
hefst kl. 11 með biblíufræðslu fyrir alla.
Guðsþjónusta kl 12.
ÁRBÆJARKIRKJA | Helgistund kl. 11.
Kyrrðarstund, ritningarlestur og bæn. Fé-
lagar úr kirkjukórnum leiða söng undir
stjórn Krisztínu Kalló Szklenár organista
og sr. Sigrún Óskarsdóttir leiðir stundina.
Kaffisopi að stundinni lokinni.
BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Kór Bústaðakirkju syngur undir stjórn
kantors Jónasar Þóris, prestur er sr. Pálmi
Matthíasson. Messuþjónar aðstoða. Heitt
á könnunni eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
sr. Magnús Björn Björnsson, félagar úr kór
Digraneskirkju leiða söng. Sjá www.digra-
neskirkja.is
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálmar
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari, org-
anisti er Kári Allansson. Hádegisbænir á
þriðjudögum, kvöldkirkja á fimmtudögum.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fermingarmessa
kl. 14. Tónlistina leiða Anna Sigríður
Helgadóttir og Carl Möller ásamt kór Frí-
kirkjunnar, prestur er Hjörtur Magni Jó-
hannsson. Altarisganga.
GARÐAKIRKJA | Ljóðamessa og kyrrð-
arstund kl. 20. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
þjónar fyrir altari og Jóhann Baldvinsson
organisti leiðir tónlistina. Flutt verða ljóð,
hugleiðingar, og tónlist. Boðið upp á akst-
ur kl. 19.30 frá Vídalínskirkju, kl. 19.40
frá Jónshúsi og kl. 19.50 frá Hleinum. Sjá
gardasokn.is
GRAFARVOGSKIRKJA | Útvarpsguðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Kvartett syngur
og organisti er Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10,
bænastund kl. 10.15. Messa kl. 11. Alt-
arisganga og samskot til ABC-barnahjálp-
ar. Messuhópur þjónar, kirkjukór Grens-
áskirkju syngur, organisti er Árni
Arinbjarnarson og prestur er sr. Ólafur Jó-
hannsson. Molasopi eftir messu.
GRINDAVÍKURKIRKJA | Göngumessa í
Húshólma. Safnast verður saman við
kirkjuna kl. 10.30 og sameinast í bíla og
keyrt á þann stað sem gengið verður frá.
Gangan mun taka um 3 klst. Þegar komið
verður til baka er gengið til kirkju. Daníel
Jónsson fer fyrir göngunni.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Auður Inga Ein-
arsdóttir prédikar, Guðlaug Pétursdóttir
syngur einsöng og söngstjóri er Kjartan
Ólafsson.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Messa
kl. 11. Prestur sr. Sigríður Guðmarsdóttir
og organisti er Hrönn Helgadóttir. Kaffi.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Sumarmessa
kl. 11. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjón-
ar, organisti er Bjartur Logi Guðnason, for-
söngvari er Jóhanna Ósk Valsdóttir.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Ferm-
ing. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjón-
ar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Fé-
lagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju
syngja, organisti er Björn Steinar Sól-
bergsson. Sögustund fyrir börnin. Al-
þjóðlegt orgelsumar laugardag kl. 12 og
sunnudag kl. 17. Christian Præstholm frá
Danmörku leikur.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11.
Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar og organisti
er Jóhann Baldvinsson. Samstarf þjóð-
kirkjusafnaðanna í Kópavogi. Sjá nánar á
www.hjallakirkja.is.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 20. Umsjón hefur Edith Dorthea
H. Dam.
HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
er sr. Hjörtur Pálsson og organisti er Jó-
hann Bjarnason. Tónleikar 14. Björg Þór-
hallsdóttir sópransöngkona og Elísabet
Waage hörpuleikari. Ókeypis aðgangur.
HVERAGERÐISKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur er sr. Baldur Kristjánsson.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Sam-
koma og brauðsbrotning kl. 11. Skírn-
arsamkoma. Vörður Leví Traustason pré-
dikar. Alþjóðakirkjan kl. 14. Samkoma á
ensku. Helgi Guðnason prédikar.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
20 með vitnisburðum um mátt Guðs, fyr-
irbænum og lofgjörð. www.kristskirkjan.is
KAÞÓLSKA Kirkjan:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og
laugardag kl. 18.
Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11
og 19. Virka daga er messa kl. 18.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema
föstudaga).
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30
og á ensku kl. 18. Virka daga kl. 18.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa
kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laug-
ardaga er messa á ensku kl. 18.30.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa laugardag kl. 18.
Bolungarvík | Messa kl. 16.
Suðureyri | Messa kl. 19.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16.
KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 14. Prestur er sr. Baldur Kristjánsson.
KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 14 í sam-
starfi þjóðkirkjusafnaðanna í Kópavogi. Al-
mennur safnaðarsöngur. Sjá www.kopa-
vogskirkja.is
LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Landakoti
kl. 14 á stigapalli á 2. hæð. Sr. Sigfinnur
Þorleifsson og Ingunn Hildur Hauksdóttir
organisti.
LAUGARNESKIRKJA | Ljóðamessa og
kyrrðarstund kl. 20. Sr. Bjarni Karlsson
þjónar fyrir altari og Árni Heiðar Karlsson
organisti leiðir tónlistina. Flutt verða ljóð,
hugleiðingar, og tónlist. Sjá laug-
arneskirkja.is
LÁGAFELLSKIRKJA | Guðþjónusta kl. 11.
Ferming. Prestur sr. María Ágústsdóttir og
organisti er Guðmundur Ómar Óskarsson,
„Tinda tríóið“ leiðir safnaðarsöng, Bjarni
Atlason syngur einsöng og Atli Guð-
laugsson spilar á trompet.
LINDAKIRKJA Kópavogi | Helgistund kl.
14. Samstarf þjóðkirkjusafnaða Kópa-
vogi.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Félagar úr kór
Neskirkju leiðir safnaðarsöng, organisti er
Reynir Jónasson og sr. Sigurður Árni Þórð-
arson prédikar og þjónar fyrir altari. Sam-
félag og kaffisopi á Torginu á eftir.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17.
Ræðumaður Jóhann P. Herbertsson.
SELJAKIRKJA | Kvöldguðsþjónusta kl. 20.
Sr. Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar
og þjónar fyrir altari, kór Seljakirkju leiðir
safnaðarsönginn og organisti er Tómas
Guðni Eggertsson. Altarisganga.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa kl. 11.
Fermd verða ungmenni búsett í Noregi.
Barn borið til skírnar. Félagar úr Kamm-
erkór Seltjarnarneskirkju leiða safn-
aðarsöng og Margrét Grétarsdóttir syngur
einsöng, organisti er Friðrik Vignir Stef-
ánsson. Prestur íslenska safnaðarins í
Noregi sr. Arna Grétarsdóttir.
SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 17.
(Ath. breyttan messutíma). Flytjendur frá
sumartónleikum helgarinnar taka þátt í
messunni. Sr. Egill Hallgrímsson sókn-
arprestur, annast prestsþjónustuna og
organisti er Jón Bjarnason.
SÓLHEIMAKIRKJA | Hátíðarguðsþjónusta
kl. 14 í tilefni af 80 ára afmæli Sólheima.
Vígð verður ný altaristafla. Jón Gnarr borg-
arstjóri Reykjavíkur prédikar og fyrir altari
þjóna sr. Birgir Thomsen, sr. Gylfi Jónsson
og sr. Valgeir Ástráðsson, ritningarlestra
les Guðmundur Á. Pétursson. Organisti er
Ester Ólafsdóttir, óperusöngvararnir Davíð
Ólafsson og Garðar Thor Cortes syngja við
athöfnina. Meðhjálparar eru Ólafía E. Guð-
mundsdóttir, Eyþór Jóhannsson og Erla
Thomsen.
STRANDARKIRKJA | Messa kl. 14. Sr.
Skírnir Garðarsson messar, organisti er
Guðmundur Ómar Óskarsson.
ÞINGEYRAKIRKJA Húnavatnsprófasts-
dæmi | Messa kl. 14. Sr. Gunnar Jóhann-
esson prédikar og þjónar fyrir altari, fé-
lagar úr kirkjukór Hofsóss- og
Hólaprestakalls syngja og organisti er
Anna Jónsdóttir.
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Ef veð-
ur leyfir verður messan haldin sem göngu-
messa og hefst á Valhallarreitnum. Þaðan
verður gengið um Lögberg, Spöngina og
Grafreitinn og lesið og sungið á hverjum
stað. Gangan endar í kirkjunni með alt-
arisgöngu. Guðmundur Vilhjálmsson leiðir
söng og leikur á básúnu.
Ljósmynd/ Birgir Thomsen
Sólheimakirkja.
ORÐ DAGSINS:
Jesús kennir af skipi.
(Lúk. 5)
Spádómar
ÞÓRA FRÁ BREKKUKOTI
– Spámiðill
Spái í spil og kristalskúlu
Heilunartímar
Fyrirbænir
Algjör trúnaður
Sími 618 3525
www.engill.is
Gefins
Topplistinn.is
Topplistinn er ný leitarstöð fyrir
íslenskar vefsíður. FYRSTU 1.000 FÁ
ÓKEYPIS OG KRÖFULAUSA
SKRÁNINGU. Skráðu vefsíðuna í
dag! - http://www.topplistinn.is.
Húsnæði í boði
GISTING
60 m² íbúð í nýju húsi á Seltjarnar-
nesi með fríu aðgengi að bíl. Leigist
minnst í tvo sólarhringa. Verð 15.000
kr. per sólarhr. Upplýsingar í síma
899-2190 eða siggiggeris@talnest.is.
Ökukennsla
Kenni á BMW 116i og sjálfskipta
Ford Fiestu. Bifhjólakennsla.
Kennsluhjól Suzuki 500 og 125.
Snorri Bjarnason,
sími 892 1451.
Bilaskoli.is
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla -
akstursmat - kennsla fatlaðra
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Snorri Bjarnason
BMW 116i. Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Hann Bragi minn
er farinn. Bragi á sér-
stakan stað í hjarta
mínu. Hann var einn
af bestu æskuvinum
mínum, þó svo að 40 ár hafi skilið
okkur að í aldri.
Ljóslifandi eru minningarnar. Ég
lítil stelpa í Borgarnesi, síspyrjandi
um lífið og tilveruna. Bragi svaraði
ávallt um hæl og gægðist upp fyrir
gleraugun sín, brosandi og kíminn.
Hagleiksmaðurinn Bragi, sem allt
kunni, að dytta að, lagfæra og
smíða, ilmandi af fersku sagi og
Half and half-píputóbaki, dokaði
við til að troða í pípuna sína og
þjappaði vel niður með eldspýtu-
stokknum. Hnyttinn, glaðlyndur og
Bragi Jóhannsson
✝ Bragi Jóhannssonfæddist á Heið-
arhöfn á Langanesi
hinn 7. október 1931.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Akraness 18. júní
2010.
Útför Braga fór
fram í Borgarnes-
kirkju 24. júní 2010.
hjálpsamur. Alltaf
hafði Bragi tíma til að
veita stelpunni at-
hygli, hlýju og virð-
ingu. Hann kunni lag-
ið á henni sem enginn
annar kunni.
Ég bar ómælda
virðingu fyrir þessum
barngóða, knáa og
skelegga vini mínum.
Enda kallaði ég hann
aldrei annað Braga
„minn“.
Bragi minn hafði verið heilsulaus
í langan tíma. Ég heimsótti hann
fyrir rúmu ári með Benedikt son
minn. Þrátt fyrir heilsuleysið gat
hann enn gefið af sér til hans, líkt
og til mín áður fyrr. Hann var ekta
alla leið.
Elsku Bragi minn – þakka þér
fyrir að vera vinur minn. Minningin
um þig lifir.
Ég sendi Kristínu, Ingu Láru,
Oddnýju Þórunni og fjölskyldum
þeirra samúðarkveðjur.
Guðrún Alda Elísdóttir.
Elsku Gauja amma
okkar er dáin, 87 ára
gömul.
Við héldum fyrir nokkrum árum
að hún væri að kveðja en hún tók á
sig rögg og ákvað að það væri nú
aldeilis ekki málið. Þetta var amma í
hnotskurn, nett og smávaxin en
ótrúlega harðger og þrautseig kona.
Hún var fámál og blíðlynd, kallaði
okkur elskuna sína og hló að vitleys-
unni í börnunum sínum sem þekkt
eru fyrir ýmsar brellur.
Amma var meistari heimilisins,
stoð þess og stytta, umhyggja og
blíða.
Við munum eftir henni sívinnandi
í eldhúsinu, berandi fram ótal köku-
sortir og hún fylgdist grannt með
því að allir fengju sér minnst einu
Guðrún Sigríður Jó-
hannesdóttir Blöndal
✝ Guðrún SigríðurJóhannesdóttir
Blöndal var fædd 21.
október 1923 í Hrísey.
Hún lést á Dvalar- og
hjúkrunarheimilinu
Holtsbúð í Garðabæ
18. júní 2010.
Útför Guðrúnar
var gerð frá Garða-
kirkju í Garðabæ 28.
júní 2010.
sinni af hverri sort.
Tekex með smjöri og
osti sem búið var að
smyrja hliðarnar á,
hafrakex, hjónabands-
sæla, grænkaka, lag-
kaka, djöflaterta,
karamelluterta, form-
kökur og kleinur. Ást
hennar kom til okkar í
formi sætabrauðs.
Hvern sunnudag kom-
um við í heimsókn og
settumst til hennar í
eldhúsið. Á jólunum
var svo beðið með eft-
irvæntingu eftir ömmukossunum,
sem engum hefur tekist að baka
jafnvel, og ekki má gleyma heima-
tilbúna ísnum. Við munum sakna
hennar og vildum óska þess að hafa
fengið fleiri tækifæri til að ræða við
hana um horfinn heim, þegar fólk
ólst upp í torfbæjum, konur fæddu
tíu börn og áttu sitt ríki innan
veggja heimilisins. Amma okkar var
hlédræg og kímin, með iðnar hend-
ur og hlýjan vanga.
Við minnumst hennar með virð-
ingu og þakklæti.
Karlotta J. Blöndal, Eivor-
Pála J. Blöndal og Anna
Kristín B. Jóhannesdóttir.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er
um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin
fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini,
maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín
en ekki stuttnefni undir greinunum.
Minningargreinar