Morgunblaðið - 03.07.2010, Side 36
36 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2010
Sudoku
Frumstig
9 8 2
1 5 8 4
7
5 9 2 8
1 4
8 5 1 4
3 8 2 9 5
4 3 2 7
9 2 5
1
4 5 1 9
1 9 8 2
1 6
7
5
2 7 5 6
6 9 8 4 2
6 7
3 4 5 8
5 7 6
5
8 6 9
4 3
1 7 9 2 3
1 4
9 3
7 9 2 4 6 8 3 1 5
6 5 3 2 1 7 9 8 4
4 1 8 5 3 9 2 7 6
2 7 9 6 5 1 8 4 3
1 8 6 9 4 3 5 2 7
3 4 5 8 7 2 6 9 1
5 2 1 3 8 4 7 6 9
8 3 7 1 9 6 4 5 2
9 6 4 7 2 5 1 3 8
2 3 4 7 9 5 1 8 6
8 7 1 4 3 6 9 5 2
9 5 6 1 2 8 7 4 3
6 2 5 9 8 7 3 1 4
4 9 3 2 6 1 8 7 5
7 1 8 3 5 4 6 2 9
3 4 9 8 1 2 5 6 7
1 6 7 5 4 3 2 9 8
5 8 2 6 7 9 4 3 1
8 9 6 1 4 2 5 3 7
7 3 1 8 9 5 2 4 6
2 4 5 6 3 7 8 9 1
4 6 2 7 5 9 1 8 3
3 5 8 2 1 4 7 6 9
9 1 7 3 6 8 4 5 2
6 2 3 4 8 1 9 7 5
5 7 4 9 2 6 3 1 8
1 8 9 5 7 3 6 2 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 3. júlí, 184. dagur
ársins 2010
Orð dagsins: Drottinn er hlutskipti
mitt og minn afmældi bikar; þú held-
ur uppi hlut mínum. (Sálm. 16, 5.)
Í gær var skrifað um upphaf hval-veiðivertíðarinnar í dálkinum
„Frá degi til dags“ í Fréttablaðinu.
Hvalveiðisinnum var þar legið á hálsi
fyrir að vera ósamkvæmir sjálfum
sér, hafni þeir öllum tilfinningarökum
gegn hvalveiðum. Lóan var dregin
inn í umræðuna og ekkert vit sagt í
því að amast við sjálfbærum lóuveið-
um, þrátt fyrir fegurð hennar og
kvæði Jónasar um hana, ef menn
samþykkja ekki gáfur og göfgi hvala
sem rök fyrir friðun þeirra líka.
x x x
Þetta er í sjálfu sér skemmtilegurpunktur, en um leið fráleit vit-
leysa. Lóan er í huga Víkverja ekki
friðuð vegna þess að hún sé gáfaðri,
fallegri eða betri en aðrir fuglar. Hún
er hins vegar táknmynd vorsins og
lífsins í hugum margra Íslendinga.
Sem slík er hún óheppileg til veiða,
því maður skýtur vorið og lífið ekki á
færi. Aðrar mófuglategundir á Ís-
landi eru friðaðar og hefur lítið upp á
sig að skjóta þær flestar, enda smáar
vexti. Sjálfur hefur Víkverji þó oft
rennt hýru auga til spóans, sem
ásýndar virðist hafa nokkuð kjöt-
mikla bringu. Eins er óskiljanlegt að
ekki megi skjóta álftir, sem varla
verður þverfótað fyrir núorðið.
Merkilegast er hversu styggar þær
eru, þrátt fyrir að hafa verið friðaðar
frá árinu 1913.
x x x
Hafi aðrar þjóðir sérstakt dálæti áákveðnum dýrategundum er
sjálfsagt að þær hampi þeim sér-
staklega og kjósi að drepa þær ekki.
Víkverji veit til dæmis ekki til þess að
Íslendingar hafi ályktað nokkurn
skapaðan hlut gegn lóu- og hrossa-
gauksáti margra Evrópuþjóða. Þar
er lóan líka enginn sérstakur vorboði.
Meginreglan er sú að nýta alla nýt-
anlega stofna, með sjálfbærum hætti.
Líki okkur sérstaklega vel við ein-
hverjar þeirra, til dæmis ef þær skipa
sérstakan sess í menningu okkar eða
lífsháttum, getum við gert undan-
tekningar. Ekki er þar með sagt að
það verði að vera sömu undantekn-
ingar og aðrar þjóðir gera. Leiðinlegt
ef menningin þarf alls staðar að vera
eins. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 troðningur, 4
tvíund, 7 grassvarð-
arlengja, 8 á jakka, 9 und,
11 vitlaus, 13 venda, 14
eru í vafa, 15 illt umtal,
17 óhapp, 20 skel, 22 tig-
in, 23 gerist sjaldan, 24
dimmviðris, 25 rugga.
Lóðrétt | 1 flugvélar, 2
storkun, 3 drykkjarílát,
4 digur, 5 lengjan, 6
offra, 10 kvíaá, 12
megna, 13 eldstæði, 15
beinpípu, 16 legubekkir,
18 setur, 19 illfygli, 20
smáalda, 21 mjög.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 bölvaldur, 8 Sævar, 9 ræðum, 10 tíð, 11 riðla,
13 innan, 15 stags, 18 kusur, 21 kál, 22 lemja, 23 ílöng,
24 brúðkaups.
Lóðrétt: 2 ölvuð, 3 varta, 4 lærði, 5 urðin, 6 ásar, 7
smán, 12 lag, 14 níu, 15 soll, 16 armur, 17 skarð, 18
klípa, 19 skörp, 20 regn.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 O-O 5.
Rge2 d5 6. a3 Bd6 7. Rg3 Rbd7 8. cxd5
exd5 9. Rf5 Rb6 10. Rxd6 Dxd6 11. Bd3
Be6 12. a4 Hfe8 13. a5 Rc8 14. Dc2 Dd7
15. f3 Rd6 16. g4 Hac8 17. g5 Rh5 18.
Bxh7+ Kh8 19. Bd3 c5 20. dxc5 d4 21.
cxd6 dxc3 22. bxc3 Rf4 23. Be4 Rh3 24.
Ha4 Rxg5 25. Hg1 f6 26. Hd4 Hc4 27. Ba3
Hec8 28. Bb4 Hxd4 29. exd4 He8 30. Kd1
Rxe4 31. fxe4 Bg8 32. Kc1 Bh7 33. He1 b6
34. a6 Db5 35. De2 Da4 36. Kb2 Hxe4
Staðan kom upp á hinu árlega of-
urskákmóti í Poikovsky í Rússlandi sem
kennt er við Anatoly Karpov, fyrrverandi
heimsmeistara í skák. Bosníski stór-
meistarinn Ivan Sokolov (2654) hafði
hvítt gegn rússneskum kollega sínum
Dmitry Jakovenko (2725). 37. Dxe4!
Bxe4 38. Hxe4 Kh7 39. He7 Dd1 40. d7
Dd2+ 41. Ka3 b5 42. Ba5 og svartur gafst
upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Upplýsandi innákoma.
Norður
♠G104
♥D53
♦KD4
♣D932
Vestur Austur
♠D8653 ♠972
♥Á9762 ♥KG108
♦8 ♦73
♣G5 ♣K1074
Suður
♠ÁK
♥4
♦ÁG109652
♣Á86
Suður spilar 5♦.
Í hinum fjörmikla leik við Þjóðverja
á EM vakti Sigurbjörn Haraldsson á
1♦ í suður. Í vestur var kjarkmaðurinn
Elinescu. Hann lét óhagstæðar hættur
ekki trufla sig og stakk sér inn á Mich-
aels 2♦ til að sýna hálitina. Magnús
Magnússon sagði 3♦ og Wladow í aust-
ur stökk í 4♥. Frá bæjardyrum suðurs
er slemma ekki útilokað, en svigrúm til
rannsókna er ekkert og Sigurbjörn lét
5♦ duga. Út kom ♥Á og meira hjarta.
Bessi spilaði nákvæmt. Hann tromp-
aði, spilaði tígli á ♦K og stakk ♥D. Tók
♠Á-K, fór inn í borð á ♦D og trompaði
♠G. Spilaði loks litlu laufi á níu blinds.
Austur átti slaginn á ♣10, en varð að
spila frá ♣K og gefa þar úrslitaslaginn.
Tvílita innákoman reyndist upplýs-
andi.
Hinum megin fóru Þjóðverjar tvo
niður á 6♦.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Haltu þig við skammtímaáætl-
anirnar og láttu hjá líða að skipuleggja til
lengri tíma. Raðaðu hlutunum í forgangs-
röð og taktu eitt verkefni fyrir í einu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það er að færast meiri hraði í líf þitt
og þú munt því hafa nóg að gera bæði
heima við og í vinnunni. Líttu á þetta sem
tækifæri til að þjálfa þig í þolinmæði.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Fegurðarskyn þitt verður óvenju
næmt næsta mánuðinn. Ef einhver vanda-
mál koma upp er best að ræða beint við
viðkomandi.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það skiptir þig miklu máli að sann-
færa einhvern um eitthvað í dag. Sinntu
þínu og þá munt þú verða ofan á þegar
vinda lægir aftur á vinnustaðnum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þér verður treyst fyrir miklu leynd-
armáli og mátt alls ekki bregðast því
trausti. Ef þú minnist gætilega á um-
kvörtunarefni heilar það sambandið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er oft gagnlegt að leita á vit
sögunnar þegar leysa þarf vandamál nú-
tímans. Stundum þarftu bara að reka þig í
eitthvað hart til að vera beint í rétta átt.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Í hönd fer tímabil mannfagnaða. Feg-
urðarskyn þitt er í hámarki í dag. Ham-
ingjan er fólgin í að treysta rétta fólkinu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Traust þitt á tiltekinni mann-
eskju endurnýjast og þú uppgötvar margt
í fari hennar sem hægt er að líta upp til,
meta og elska.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þótt öllum séu sett einhver
takmörk myndi fátt gerast ef enginn
freistaði þess að komast örlítið lengra.
Láttu það eftir þér að "eyða" tímanum í
spjall yfir kaffibolla.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Finndu út hvar þú best getur
komið skoðunum þínum á framfæri því þú
vilt að hlustað sé á þig. Leitaðu fé-
lagsskapar.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú þarft ekkert að fyrirverða
þig fyrir tilfinningar þínar, ef þær eru
sannar og án sársauka fyrir aðra. Hlust-
aðu vandlega á það sem aðrir segja.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Fjárhættuspil er yfirleitt ekki góð
hugmynd, en tilfinning þín fyrir heppni er
svo mikil í augnablikinu að þú ættir að
láta slag standa og taka smávegis áhættu.
Breyttu um stefnu.
Stjörnuspá
3. júlí 1948
Undirritaður var samningur
um nær 39 milljón dala aðstoð
Bandaríkjanna við Ísland, svo-
nefnda Marshallaðstoð, sem
meðal annars var nýtt til að
kosta virkjanir í Sogi og Laxá
og til byggingar Áburðarverk-
smiðjunnar.
3. júlí 1973
Vísindamenn tilkynntu form-
lega að eldgosinu í Heimaey
væri lokið. Það hófst 23. jan-
úar og stóð til 26. júní eða í
155 daga. Um 240 milljón rúm-
metrar af hrauni og ösku
komu upp í gosinu og á fjórða
hundrað hús eyðilögðust.
Sums staðar eru allt að 150
metrar niður á leifar húsanna.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Úlfar Ágústsson kaupmaður á
Ísafirði er sjötugur í dag, 3. júlí.
Eiginkona hans Jósefína Gísladóttir
varð sjötug 24. janúar síðastliðinn
og gullbrúðkaupsdagur þeirra var
13. febrúar síðastliðinn. Í tilefni
þessara áfanga bjóða þau vinum og
vandamönnum til veislu í frímúr-
arasalnum á Ísafirði, laugardaginn
10. júlí kl. 19.
70 ára
Ingibjörg
Gestsdóttir, Frí-
holti 8 í Garði,
verður sjötug
mánudaginn 5.
júlí. Hún tekur á
móti ættingjum
og vinum á Flös-
inni, Garðskaga
frá kl. 20 á af-
mælisdaginn.
70 ára
„Ég ætla aldrei þessu vant að sofa til hádegis,“
segir Ragnar Magnússon, barnaskólakennari á
Ólafsfirði. Hann er fertugur í dag og er mættur á
æskuheimilið í Reykjavík þar sem hann ætlar að
halda upp á daginn. Þegar hann vaknar tekur við
hefðbundinn undirbúningur fyrir veisluna.
„Skúra, skrúbba og bóna. Svo á ég nú von á að það
komi hérna nokkrir vinir til margra ára. Það er
stefnan að bjóða þeim hérna í bús, brauðtertur og
brjálaða stemningu,“ segir Ragnar, sem sér fram
á skemmtilegt kvöld. Um tuttugu manns hafa
fengið boð um að mæta. „Þrítugsafmælið mitt
þótti vel heppnað og þess vegna var nú meiningin að endurtaka bara
leikinn og bjóða sama hópi heim. Reyndar minnkar stuðið í hlutfalli
við aldurinn, en þó að afmælisgestirnir fari snemma heim ætlar af-
mælisbarnið að halda gleðinni áfram,“ segir hann, staðráðinn í að
halda uppi stuðinu.
Ragnar býr á Ólafsfirði á skólatíma en hefur annan fótinn í bænum
þess utan. Í sumar stefnir hann hringinn í kringum landið, í fyrsta
skipti síðan 1974. „Með vikuviðkomu á Austfjörðum, þar er bústaður
sem bíður eftir okkur á Héraði.“ onundur@mbl.is
Ragnar Magnússon er 40 ára í dag
Brauðtertur og brjálað stuð
Nýirborgarar
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is
Reykjavík Jóhanna Kara
fæddist 17. jnaúar kl. 0.44.
Hún vó 3.315 g og var 49
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Soffía Guðrún
Gísladóttir og Haraldur
Jóhannesson.
Dalvík Valgerður Fríður
fæddist 3 maí. Hún vó
4.550 g og 56 cm löng.
Foreldrar hennar eru
Hólmfríður Guðrún
Skúladóttir og Tryggvi
Kristjánsson.