Fréttablaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 8
5. október 2011 MIÐVIKUDAGUR8 www.bleikaslaufan.is Þú greiðir f. símanr. og að ra n otk un sk v. ve rð sk rá á s im in n. is Ef þú ert með GSM eða Internetið hjá Símanum færðu aðgang að Bestu lögunum fyrir 0 kr. í dag. Magnaður miðvikudagur! Bestu lögin fyrir 0 kr. í dag bestulogin.is Skannaðu hérna til að sækja B arcode Scanner Greitt skv. gjaldskrá. Nán ar á sim inn .is í miðbænum til sölu Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is Hótelrekstur 50 herbergja gamalgróið hótel á góðum stað í miðbæ Reykjavíkur, sem hefur verið í góðum og vaxandi rekstri. Um er að ræða kaup á rekstri en ekki fasteign og mögu- leikar á stækkun. Skemmtilegt fyrirtæki með mikla framtíðarmöguleika. Nánari upplýsingar hjá Guðna Halldórssyni í síma 414 1200, gudni@kontakt.is H a u ku r 1 0 .1 1 FRÉTTASKÝRING: Hvaða áhrif hafa fjárlögin 2012? Ekki er gert ráð fyrir viða- miklum breytingum á skatt- kerfinu á næsta ári sam- kvæmt fjárlagafrumvarpi. Krónutöluhækkun á ýmis gjöld, nýr skattur á fjár- málafyrirtæki og hækkun veiðileyfagjalds á að skapa nýjar tekjur. Gert er ráð fyrir umtalsverðri neyslu- aukningu sem skili fé í ríkissjóð. Tekjuáætlun fjárlagafrumvarps- ins gerir ráð fyrir að heildartekjur ríkissjóðs nemi 521,5 milljörðum króna á næsta ári. Það er aukning um 8 prósent á milli ára að nafn- virði, eða 4,2 prósent að raunvirði. Heildartekjur hækka sem hlutfall af landsframleiðslu úr 29,4 pró- sentum í 29,6 prósent. Sú aukning er öll í frumtekjum, sem hækka sem hlutfall af landsframleiðslu úr 28,1 í 28,4 prósent á milli ára. Forsendur fjárlaganna eru byggðar á tekjuáætlun ársins 2011, þjóðhagsspá fyrir árið 2012 og áformum um nýja tekjuöflun. Nokkuð var tekist á um þess- ar forsendur á þingi í gær, en Kristján Þór Júlíusson, þing- maður Sjálf- stæðisflokksins, bendir á að þjóð- hagsspá Hag- stofunnar geri ráð fyrir 3,1 prósenti en spá Seðlabanka Íslands geri ráð fyrir 2,8 prósenta hagvexti. Frumvarpið á síðan að endurskoða í samræmi við nýja þjóðhagsspá, sem kemur fram í október. Ekki almennar breytingar Steingrímur J. Sigfússon fjármála- ráðherra hefur sagt að í frum- varpinu sé ekki að finna almenn- ar skattahækkanir. Tekjuöflunin byggi fyrst og fremst á sértækum aðgerðum. Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ, segir að frumvarpið boði ekki almennar skattkerfisbreytingar eða miklar breytingar á sköttum gagnvart einstaklingum. „Stóru breytingarnar eru að það er verið að lækka frádráttarbærni á iðgjöldum í séreignarsjóðum, úr fjórum í tvö prósent. Það mun að sjálfsögðu hafa áhrif á þá sem leggja fjögur prósent til hliðar. Þá er einnig verið að bæta við þrepi í auðlegðarskattinn, en það mun ekki koma við meginþorra fólks.“ Persónuafsláttur verður hækk- aður um 5,1 prósent og verður 46.500 krónur eftir breytingu. Henný segir það í takt við kjara- samninga í vor. Þá verða þrepa- mörk innan tekjuskattskerfisins hækkuð um 3,5 prósent. Sú breyting, ásamt hærri auð- legðarskatti, á að ná fram því markmiði ríkisstjórnarinnar að skattkerfið verði notað, ásamt félagslegum stuðningi, til að auka jöfnuð í samfélaginu. Ríkisstjórnin hyggst lækka tryggingargjald og er með því von- ast til þess að svigrúm skapist til launahækkana. Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs hjá Deloitte, segir að nýtt þrep í auð- legðarskatti og minni frádráttar- bærni á lífeyrissjóðsgjöldum hljóti að hafa einhver áhrif á þá sem fyrir þeim verði. Ekki sé þó enn skýrt hvernig ríkisstjórnin hyggist útfæra þær tillögur. Hún segir að ekki sé um almennar skattahækk- anir að ræða, ekki prósentutölu- hækkun á skattþrepum. Nýr skattur á banka Eignasala á að skila ríkissjóði 7 milljörðum króna á árinu 2012. Að henni undanskilinni er stærsti ein- staki nýi tekjuliðurinn fjársýslu- skattur á fjármálafyrirtæki, líf- eyrissjóði og vátryggingarfélög. Skatturinn nemur 10,5 prósentum og mun skila 4,5 milljörðum króna á næsta ári. Henný segir að skatturinn sé ígildi virðisaukaskatts og slíkir skattar hafi tilhneigingu til að leita út í verðlag og þjónustugjöld. Veiðileyfagjaldið verður einnig hækkað og á sú hækkun að skila 1,5 milljörðum króna. Á fiskveiði- árinu 2009 til 2010 greiddi útgerð- in 1,4 milljarða í veiðigjald og 2,8 milljarða króna á nýliðnu fiskveiði- ári. Eftir hækkun nemur veiði- gjaldið því 4,3 milljörðum króna. Verðlagsbreytingar Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að ýmis gjöld hækki í takt við verðlagsbreytingar. Áætlað er að hækkun krónutölugjalda leiði til 1,9 milljarða króna tekjuaukning- ar fyrir ríkissjóð. Þau gjöld sem um ræðir eru: sérstakt vörugjald á bensín, olíugjald, kílómetragjald, bifreiðagjald, sérstakur skattur á raforku, áfengisgjald og tóbaks- gjald. Einnig er gert ráð fyrir hækkun á útvarpsgjaldi. Samkvæmt forsendum fjár- lagafrumvarpsins skýrast þessar breytingar á verðlagshækkun, en gert er ráð fyrir að hún nemi 5,1 prósenti á næsta ári. Þetta hefur nokkuð verið gagn- rýnt og fullyrt að um skatta- hækkanir sé að ræða sem bitni á almenningi. Stjórnvöld hafa á móti bent á að í fjárframlögum til ein- stakra stofnana sé einnig tekið tillit til vísitölubreytinga. Aukin einkaneysla Fjárlagafrumvarpið gerir ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfun- artekna aukist um 3,2 prósent milli áranna 2011 og 2012 og þjóðarútgjöld um 4 prósent. Gert er ráð fyrir því að nafnaukning einkaneyslu nemi 7,5 prósentum. Það vegur þyngst í hækkun á vog virðisaukaskattsins milli ára, en hún nemur 7,2 prósentum að nafnvirði. Gert er ráð fyrir að vörugjöld af ökutækjum skili tæplega fjórum milljörðum krónum meira í tekjur á næsta ári, eða um 2,7 milljörðum króna, en reiknað er með að rúm- lega sjö þúsund bílar verði flutt- ir til landsins. Þá er reiknað með því að sala á bensíni aukist um 2,3 prósent og á olíu um 1,2 prósent. Kolefnagjald var lagt á í árs- byrjun 2010 en aðeins til hálfs. Viðmiðunin hækkaði í 75 prósent árið 2011 en mun taka gildi að fullu á næsta ári og mun það auka tekjur ríkisins um 0,8 milljarða króna. Áfengissala hefur dregist veru- lega saman frá efnahagshruni en talið er að hún nái botni á árinu 2011. Gert er ráð fyrir að hún auk- ist um 1,5 prósent á næsta ári en tóbakssala dragist saman um 0,9 prósent. Sértækar aðgerðir en ekki almennar FJÁRMÁLARÁÐHERRA Steingrímur J. Sigfússon segir að í fjárlagafrumvarpinu sé ekki að finna almennar skattahækkanir. Þá sé vörður staðinn um velferðarkerfið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HENNÝ HINZ Sértækar tekjuaðgerðir árið 2012 Breyting á frádráttarbærni v/viðb.lífeyrissparnaðar 1,4 Fjársýsluskattur á fjármálafyrirtæki 4,5 Auðlegðarskattur 1,5 Kolefnisgjald 0,8 Veiðigjald 1,5 Arður 2,0 Eignasala 7,0 Alls án séreignarsparnaðarheimildar 18,7 Heimild til útttektar séreignarsparnaðar 2,0 Alls með séreignarsparnaðarheimild 20,7 Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.