Fréttablaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 24
5. OKTÓBER 2011 MIÐVIKUDAGUR2 | Kennarasamband Íslands Tveir af grunnþáttunum sex í nýrri mennta- stefnu eru annars vegar jafnrétti og hins vegar lýðræði og mannréttindi. Hvernig hyggst ráðuneytið fylgja eftir þessum nýj- ungum í aðalnámskrám leik-, grunn- og framhaldsskóla? Ráðuneytið hefur skilgreint áherslusvið styrkja úr Sprotasjóði sl. tvö ár með hlið- sjón af grunnþáttum menntunar. Þróunar- styrkir verða áfram nýttir til að styðja við nýjungar og þróunarstarf í skólum á þessu sviði. Nú eru í vinnslu svo kölluð þemahefti um grunnþættina, sem eiga að nýtast kenn- urum, stjórnendum og öðrum starfsmönn- um skólanna sem handbækur við innleið- ingu nýrra hugmynda og starfshátta. Gerð- ur var samningur við Námsgagnastofnun um að sjá um þetta verkefni. Þá hefur verið gerður samningur við Menntavísindasvið HÍ um þróun kennaramenntunar, grunn- menntunar og símenntunar með hliðsjón af áherslum sem fylgja nýrri menntastefnu. Nýverið heyrðust raddir um að breyta skólaskyldu í fræðsluskyldu og um þetta varð nokkur umræða í fjölmiðlum. Hvað finnst þér um þetta (með tilliti til jafnréttis til náms)? Afnám skólaskyldu kemur ekki til greina í mínum huga. Það myndi hafa mest áhrif hjá þeim sem síst skyldi og sem ríkasta þörf hafa fyrir utanaðkomandi stuðning við menntun og uppeldi. Tilgangur skóla- skyldu er að tryggja af fremsta megni jafn- rétti allra barna til skólagöngu, óháð kyni, atgervi, efnahag, uppruna eða búsetu. Skóla- skylda er því farvegur til að tryggja hverju einstöku barni réttinn til menntunar í víðu samhengi þess orðs þar sem ólíkar einstak- lings- og samfélagslegar aðstæður eiga ekki að hafa áhrif á aðgengi og gæði menntunar. Jafnrétti til tónlistarnáms hefur líka verið í deiglunni og gildi listnáms fyrir þroska einstaklinga er staðfest með hverri rannsókninni á fætur annarri. Sterkar vís- bendingar eru jafnframt um að tónlistariðk- un, listsköpun og þátttaka almennings hafi jákvæð áhrif á þroska samfélaga í heild, auk hagræns ábata. Um leið er þrengt að tónlistarskólum og listsköpun í skólum. Hvað er ráðuneytið að gera í þessu? Síðastliðið vor var stigið mikilvægt skref til að tryggja aðgengi að tónlistarmenntun óháð búsetu. Þá var undirritað samkomu- lag á milli mennta- og menningarmálaráð- herra og Sambands íslenskra sveitarfélag um eflingu tónlistarnáms og jöfnun á að- stöðumun nemenda til tónlistarnáms. Gerir samkomulagið ráð fyrir að ríkissjóður veiti 480 m.kr. á ári vegna kennslukostnaðar í tónlistarskólum. Listgreinar eru ekki bara mikilvægur hluti skólastarfs, þær eru nauðsynleg- ur hluti almennrar menntunar. Það er því áhyggjuefni að þær séu látnar mæta afgangi nú þegar að þrengir. Í ráðuneytinu hefur verið unnið með niðurstöður Anne Bamford um list- og menningarfræðslu á Íslandi frá árinu 2009 og hefur það meðal annars skilað sér inn í nýjar aðalnámsskrár leik-, grunn- og fram- haldsskóla sem staðfestar voru fyrr á þessu ári. Í mennta- og menningarmálaráðuneyt- inu hefur verið lögð áhersla á þróun list- námsbrauta til stúdentsprófs á grundvelli nýrra laga um framhaldsskóla. Dæmi um slíkt er samstarf Kvennaskólans í Reykja- vík og Myndlistaskólans í Reykjavík sem fór af stað í haust. Í könnun sem unnin var fyrir Kennara- sambandið fyrir nokkrum árum kemur í ljós marktækur munur á heildarlaunum karl- og kvenkennara. Grunnlaun eru hins vegar svipuð. Hvað er verið að gera í þessu? Kynbundinn launamunur á hvergi að líð- ast. Gerð kjarasamninga og framkvæmd þeirra er í höndum fjármálaráðuneytis- ins. Mennta- og menningarmálaráðuneyt- ið hefur ekki skoðað kynbundinn launamun meðal kennara en hefur lagt áherslu á að um hann sé fjallað á vettvangi samnings- aðila. Þá er rétt að benda á að í öllum ráðu- neytum er unnið að innleiðingu á kynjaðri hagstjórn. Hvað finnst þér skipta mestu máli í jafn- réttismenntun? Markmið jafnréttismenntunar er að skapa tækifæri fyrir alla til að þroskast á eigin forsendum, rækta hæfileika sína og lifa ábyrgu lífi í frjálsu samfélagi í anda skilnings, friðar, umburðarlyndis, víðsýn- is og jafnréttis. Jafnréttismenntun á að fela í sér gagnrýna skoðun á viðteknum hug- myndum í samfélaginu og stofnunum þess í því augnamiði að kenna börnum og ung- mennum að greina þær aðstæður sem leiða til mismununar sumra og forréttinda ann- arra. Sérstaklega þarf að huga að jafnrétti kynjanna. Hvenær á að skila til baka því sem búið er að skera niður í skólastarfi og í hvaða skrefum? Stjórnvöld hafa við ákvörðun fjár- veitinga á fjárlögum leitast við að hlífa menntakerfinu og hefur niðurskurður þar verið hlutfallslega minni en á öðrum svið- um ríkisútgjalda. Á næstu árum verður áfram gætt mikils aðhalds í ríkisfjármál- um þó svo að erfiðasti niðurskurðurinn sé afstaðinn. Það er hins ljóst að forgangsröð- un ríkisstjórnarinnar er í þágu menntunar og velferðar hér eftir sem hingað til. A sbjørn Wahl, leiðtogi í samtök-unum For velferdsstaten, segir ójöfnuð víða hafa aukist síðustu tuttugu ár sem endurspeglist meira í skólastarfi nú en áður. Hann segir skól- um og kennurum gjarnan kennt um lakan árangur nemenda en þykir það mikil ein- földun. Hann hélt erindi á fundi norrænna kennara í Reykjavík í lok september. „Skólinn hefur takmarkaða mögu- leika til að breyta því sem er að gerast í samfélaginu. Það eru efnahagslegir, félagslegir og pólitískir þættir sem end- urspeglast í skólastarfinu og aukinn ójöfn- uður gerir kennurunum erfiðara fyrir í starfi,“ segir Asbjørn. Hann segir niðurstöður alþjóðlegra rannsókna gefa til kynna að félagsleg- ur bakgrunnur nemenda hafi mikið með námsárangur að gera og að börn frá fá- tækum fjölskyldum komi verr út í sam- anburði við börn efnameira fólks. „Mér sýnist skólinn hafa takmarkaða möguleika til að breyta þessu. Það sem kennarar og skólastarfsmenn geta hins vegar gert er að mynda bandalög með öðrum hópum samfélagsins til að berjast gegn þessum aukna ójöfnuði. Þetta geta verið foreldrar, stéttarfélög, stjórnmálamenn og stofnanir svo dæmi séu nefnd.“ Asbjørn segir þá tilhneigingu ríkja í fjölmiðlunum og víðar að beina spjótum að kennurum þegar illa gengur en að það sé erfitt að kenna þeim um vandamál sem verða til í samfélaginu. „Vandamál eins og ójöfnuður og fátækt verða ekki leyst í skólunum. Þau þarf að nálgast á breiðari grunni.“ Skólinn leysir ekki samfélagsleg vandamál Ójöfnuður endurspeglast í auknum mæli í skólastarfi í dag. Að mati Asbjørns Wahl hefur skólinn takmarkaða möguleika til að breyta því. Asbjø rn segir vandamál eins og aukinn ójöfnuð og fátækt ekki leyst innan veggja skólans. Þau þurfi að nálgast á breiðari grunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Starfsþróun kennara og stjórnenda er afar mikil- væg og gegnir lykilhlut- verki í framþróun á námi og kennslu. Skólastefna Kennarasambands Íslands og stefna Alþjóðasam- bands kennara í mennta- málum benda á mikilvægi þess að kennar- ar og stjórnendur eigi kost á að stunda sí- menntun og starfsþróun jafnhliða starfi. Stjórnvöld þurfi að tryggja kennurum og stjórnendum aðstöðu og tækifæri til að sinna starfsþróun sér að kostnaðarlausu. Kennarar, stjórnendur og samtök þeirra eiga að hafa tækifæri til að hafa áhrif á þá starfsþróun og símenntun sem boðið er upp á bæði fyrir einstaklinga og hópinn í heild. Í mótun starfsþróunar og símenntunar þarf skólastjórnandi að vera faglegur leiðtogi sem hvetur og leiðir kennarahópinn með umræðum og samvinnu um þá starfsþróun sem unnið er að innan hvers skóla. Að mínu áliti er starfsþróun kennara og stjórnenda einn mikilvægasti þátturinn við alla framþróun á námi og kennslu. Ný- breytni, þróunarstarf og breytingar á kennsluháttum gerast ekki nema í gegnum faglega starfsþróun kennara og stjórnenda. Ljóst má vera að menntun er ein af undirstöðum vel- ferðar í öllum samfélögum. Eitt af stóru málunum á þingi Alþjóðasambands kennara í Höfðaborg var samþykkt stefna þeirra í menntamálum. Um er að ræða stórt og mikið plagg sem tekur á menntamálum almennt í átta köflum og 51 grein. Þegar stefnan er lesin kemur í ljós að kennarar um allan heim fást við sams konar mál. Í henni segir meðal annars: „Mjög áríðandi er að gera kennarastarfið eftirsóknarverðara. Sú kynslóð kennara sem nú er í starfi eldist og allt of margir nýir kenn- arar hverfa úr starfi innan nokkurra ára. Stjórnvöldum og forstöðumönnum mennta- stofnana ber skylda til að sjá til þess að bæði þeim sem nú eru að störfum og verðandi kenn- urum finnist kennarastarfið og starfskjör þess eftirsóknarverð og standist samanburð við kjör sambærilegra starfsstétta.“ Það er áhyggjuefni að sífellt er aukið við störf kennara og æ fleiri kjósa að gera kennslu ekki að ævistarfi. Færri innritast í kennara- nám og kennarastéttin eldist. Kennsla virðist ekki vera aðlaðandi ævistarf. Til þess að svo megi verða þarf að búa betur að kennurum, bæði hvað varðar starfsaðstæður og launa- setningu. Auka þarf sjálfstæði og sjálfstraust kennara og viðurkenna í verki að kennslu sinna sérfræðingar á því sviði, sérfræðingar sem í framtíðinni hafa menntað sig til þess með fimm ára háskólanámi. Gerum kennarastarfið að aðlaðandi ævistarfi! KENNARASAMBAND ÍSLANDS Kennarahúsinu | Laufásvegi 81 | 101 Reykjavík Sími 595 1111 | Fax 595 1112 | Netfang ki@ ki.is Opnunartími skrifstofu 9:00-16:00 Fréttabréf Kennarasambands Íslands Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Kristín Elfa Guðnadóttir Ólafur Loftsson, formaður Félags grunnskólakennara GERUM KENNARASTARFIÐ AÐ AÐLAÐANDI ÆVISTARFI Svanhildur María Ólafsdóttir, formaður Skólastjórafélags íslands STARFSÞRÓUN MIKILVÆG Ráðherra situr fyrir svörum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.