Fréttablaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 05.10.2011, Blaðsíða 38
5. október 2011 MIÐVIKUDAGUR30 folk@frettabladid.is Með Tímon tímaskráningarkerfi gefst fullkomin yfirsýn yfir það dýrmætasta í rekstrinum, tíma starfsfólks. Tímon einfaldar verkferla og gefur þér réttari upplýsingar við launaútreikninga. Þú getur séð í hvað launakostnaður stefnir – áður en uppgjör fer fram. Tímon sýnir þér á skýran hátt viðveru, fjarveru, orlofsstöðu, mönnunarþörf, starfsmannaveltu og margt fleira. Nánari upplýsingar má nálgast hjá TrackWell á www.timon.is sími: 5100 600. Taktu stjórnina með Tímon VILTU VITA Í HVAÐ TÍMINN FER? HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 05. október ➜ Tónleikar 12.30 Dagskrá með íslenskri tónlist helguð íslenskum skáldum í tilefni 100 ára afmælis Háskóla Íslands í Hátíðasal Aðalbyggingar HÍ. Allir velkomnir. 20.00 Tónleikar með Johannes Mar- tens sellóleikara og Joachim Kwetz- insky píanóleikara í Klassík í Vatns- mýrinni, tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna í Norræna húsinu. ➜ Kynningar 12.10 Hrafnhildur Schram listfræð- ingur og Gunnar J. Árnason listheim- spekingur kynna kafla úr ritinu Íslensk listasaga, frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar. Fjalla þau um fjórða og fimmta áratug 20. aldar fram að stríðslokum. Kynningin fer fram í fyrir- lestrasal Listasafns Íslands við Fríkirkju- veg. Aðgangur er ókeypis. ➜ Handverkskaffi 20.00 Franska listakonan Nadine kynnir glerperlugerð á handverkskaffi í Gerðubergi. Aðgangur er ókeypis. ➜ Tónlist 21.00 Plötusnúðarnir Robot Disco spila raftónlist á Bakkusi. 21.00 DJ Krúsi stjórnar tónlistinni á Prikinu. ➜ Samkoma 13.30 Korpúlfarnir, samtök eldri borg- ara í Grafarvogi, standa fyrir samkom- unni Gaman saman á Korpúlfsstöðum. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. „Við leituðum að verksmiðjunni en kom- umst að því að hún er ekki til,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson, forsprakki Prins Póló. Hljómsveitin er nýkomin heim úr sinni fyrstu tónleikaferð til Póllands. Um hálfgerða pílagrímsför var að ræða enda er hljómsveitin nefnd eftir pólska súkkulaðikexinu vinsæla. „Ásbjörn Ólafsson [sem flytur inn Prins Póló] benti okkur á verksmiðju í Suður- Póllandi. Við reyndum að grafa hana upp en hún er ekki lengur til sú verk- smiðja. Það vissi enginn hvar hún var,“ segir Svavar Pétur. „Mig grun- ar að Svisslendingar séu með í ráðum. Ég held að þeir séu búnir að taka yfir þennan súkkulaðiheim.“ Að sögn Svavars Péturs gekk tónleika- ferðin um Pólland vonum framar. „Það var búið að byggja upp mikla spennu í kringum þessa íslensku útgáfu af Prins Póló. Það mætti fullt af fólki á alla tón- leikana og þetta var geðveikt stuð. Áhorfendur voru dálítið í því að lauma að okkur súkkulaðistykkjum á tónleik- um. Við fórum út með fulla ferðatösku af söluvarningi og komum til baka með fulla tösku af súkkulaði.“ Fram undan hjá Prins Póló er tónleika- ferðin Partíþokan sem hefst á Græna hattinum 22. október. Með í för verða FM Belfast, Borko og Sin Fang. - fb Prinspóló fann enga verksmiðju ENGIN VERKSMIÐJA Svavar Pétur og félagar í Prinspóló leituðu að Prins Póló-verksmiðju í Póllandi en fundu enga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI DOLLARA kostaði nýi bíllinn hennar Kim Kardashian en það er hvítur Ferrari 458. Kardashian og eiginmaður hennar Kris Humphries fluttu nýlega inn í glæsilegt heimili í New York þannig að peningavandræði virðast ekki há hinum nýgiftu hjónum. 300.000 HAM Rokkararnir í Ham stíga á svið í Háskólabíói í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ham á há- tíðarfundi Fjöldi vinsælla flytjenda á borð við rokksveitina Ham, Mugison, Lay Low, Diddú, Bjartmar Guðlaugsson og Fóstbræður, auk grínistans Ara Eldjárns, kemur fram á hátíðar- og baráttufundi SÁÁ í Háskólabíói í kvöld klukkan 20. Á undan fundinum verð- ur í anddyrinu frá kl. 17.30 kynning á ýmsum 12 spora samtökum og félögum sem vinna með fíknisjúkdóminn. Auk kynninganna verður boðið upp á fyrirlestra og kl. 18 verður forsýnd stutt- mynd eftir leikstjórann Martein Þórsson með Ólafi Darra Ólafssyni í aðalhlut- verki. Hún fjallar um mann sem drekkur sig í gegnum einn dag.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.