Fréttablaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 06.10.2011, Blaðsíða 26
26 6. október 2011 FIMMTUDAGUR Í ræðu við setningu Alþingis sl. laugardag ræddi forseti Íslands tillögur stjórnlagaráðs. Um til- lögur ráðsins sem varða forseta Íslands sagði hann: „tillögur, sem efla umsvif forsetans á vettvangi stjórnkerfisins, færa embættinu aukna ábyrgð.“ Ummæli forset- ans í ræðunni um þessi efni hafa vakið viðbrögð. „Oftúlkun“, er haft eftir sumum. „Misskilning- ur“, segja aðrir. „Ekki í anda til- lagnanna“, er fullyrt. Nú þekki ég ekki andann – bara efnið. Lítum því á orðin ein í texta tillagnanna og berum saman við tilvitnanir í ræðu forseta. „Tillögurnar … færa embætt- inu aukna ábyrgð“, segir for- seti. Þessi texti finnst hvergi hjá stjórnlagaráði. Ekki heldur texti um hið gagnstæða. Því verðum við að bera saman textann í ræðu forseta um tilfærð dæmi og text- ann í tillögum stjórnlagaráðs. Dæmi sanna ekki – en þau skýra. Óbreyttur málskotsréttur Forseti segir: „Stjórnlagaráð leggur til að málskotsréttur for- seta, sem kveðið er á um í 26. gr. núverandi stjórnarskrár, verði áfram óbreyttur“. Í 60. gr. frum- varps stjórnlaganefndar segir í upphafi 2. mgr.: „Forseti Íslands getur ákveðið innan viku frá mót- töku frumvarps að synja því stað- festingar“. Umhugsunarfrestur forseta er hér styttur frá núver- andi ákvæðum en synjunarréttur hans hvergi takmarkaður. Ég fæ ekki séð að forseti oftúlki né mistúlki orðanna hljóðan. Túlkun hans styðst við efni máls. Ný valdsvið forseta Forseti segir: „Þá þarf forseti að samþykkja val á dómurum og ríkissaksóknara og geta aðeins tveir þriðju hlutar Alþingis hnekkt ákvörðun forseta“. Hér er nýtt verkefni falið forseta. Í 3. mgr. 96. gr. í tillögum stjórnlagaráðs segir um þetta: „Þegar ráðherra skipar í embætti dómara og ríkissak- sóknara skal skipun borin undir forseta Íslands til staðfestingar. Synji forseti skipun staðfestingar þarf Alþingi að samþykkja skip- unina með 2/3 hlutum atkvæða til að hún taki gildi.“ Ómögulegt er annað en að segja að túlkun for- seta styðjist hér nákvæmlega við orðanna hljóðan. Forseti segir: „Sérstakur fulltrúi forsetans skal og gegna formennsku í nefnd sem metur hæfni umsækjenda um önnur embætti og gerir tillögur um þau.“ Hér er líka nýtt verkefni falið for- seta. Um þetta eru ákvæði í 96. gr. frumvarps stjórnarskrárnefndar. Þar er mælt svo fyrir um að sér- stök nefnd skuli gera tillögur til ráðherra um skipan embættis- manna. „Forseti Íslands skipar formann nefndarinnar“ segir þar orðrétt. Ekkert í textanum hindr- ar að forseti geti tiltekið í skip- an sinni að formaðurinn skuli starfa í samvinnu við hann – sem fulltrúi forseta í nefndinni. Ég fæ því ómögulega séð að hér misfari forseti með efnið. Óbundinn við tillögugerð Þá segir forseti: „Hlutverk forseta við myndun ríkisstjórna tekur einnig mikilvægum breytingum; verður mun sjálfstæðara. Í stað þess að formenn stjórnmálaflokka móti valkosti forsetans eins og tíðkast hefur frá lýðveldisstofnun myndi forseti sjálfur hafa frum- kvæði að viðræðum við einstaka þingmenn og þingflokka. Hann gerir síðan tillögur til Alþingis um forsætisráðherra og er þá ekki bundinn af því að velja þingmann til þessa embættis. Verði fyrsta tillaga forsetans ekki samþykkt hefur hann að nýju viðræður við þingmenn og þingflokka.“ Í gildandi stjórnarskrá eru engin fyrirmæli um hvernig forseti eigi að standa að stjórn- armyndunartilraunum enda talar forseti í ræðu sinni hér að framan um þau vinnubrögð sem TÍÐKAST HAFA. Frá þeirri hefð á nú að víkja samkvæmt frá- sögn forseta. Ný vinnubrögð á að innleiða. Og hver eru þau? Um það eru ákvæði í 90. gr. í frumvarpi stjórnarskrárnefnd- ar. Þar segir í upphafi 2. mgr.: „Eftir að hafa ráðfært sig við þingflokka og þingmenn gerir forseti Íslands tillögur til þings- ins um forsætisráðherra“. Hvað merkir þessi setning? Hún hlýt- ur að merkja að það sé alfar- ið á forræði forseta við hvaða aðila á Alþingi Íslendinga for- seti ráðfærir sig – hvort heldur sem er við einstaka þingmenn eða einstaka þingflokka – og líka um hvað. Á forseti að kalla heila þingflokka á sinn fund eða bara t.d. formenn þeirra? Það er á hans valdi. Og um hvað á hann að ráðfæra sig við þá? Því ræður hann. Honum ber t.d. engin skylda til þess að ráðfæra sig við þá um hugsanlegt forsætisráð- herraefni, né að miða tillögugerð sína til Alþingis við einhvern eða einhverja þá einstaklinga, sem í ljós hefði komið að einhverjir þingflokkar eða einhverjir þing- menn í viðræðuteymi hans legðu til. Forseti hefur því algerlega óbundnar hendur og getur lagt til við þingið hvaða forsætisráð- herraefni sem honum hugkvæm- ist jafnt utan sem innan þings nákvæmlega eins og forseti segir í þingsetningarræðunni. Ekkert í texta tillagna stjórnlagaráðs mælir gegn því. Um andann í tillögum stjórnlagaráðs ræði ég ekki. Sé hann ekki í textanum. Hvað svo ef forseti gerir slíka tillögu samkvæmt eigin höfði og þingið ekki samþykkir tillöguna. Um það segir stjórnlagaráðið að þá „gerir forseti Íslands (aðra – innskot) tillögu með sama hætti“. MEÐ SAMA HÆTTI! Ekki þá heldur er forseti bund- inn af neinum ráðleggingum um tillögugerð sína – þarf ekki einu sinni að spyrja – en getur valið að gera tillögu um hvern þann einstakling sem honum hugnast. Og tíminn líður … Uppskrift að átökum Í 3. mgr. umræddrar 90. gr. í frumvarpi stjórnlaganefnd- ar segir svo: „Hafi forsætisráð- herra ekki verið kjörinn innan tíu vikna (frá kosningum – inn- skot) skal Alþingi rofið og boðað til nýrra kosninga.“ Tíu vikna fortakslaus frestur! Það var og. Engir tímafrestir eru hins vegar gefnir um tillögu- gerð forseta. Því er honum í lófa lagið – ef hann svo kysi – að miða tillögugerð sína til Alþingis um nýjan forsætisráðherra landsins við að harla lítill eða jafnvel eng- inn tími yrði eftir til umþóttun- ar ef ekki yrði gengið að tillögum hans. Þá kæmi til nýrra kosninga! Í þriðju atrennu – ef til kæmi – getur forseti svo gert sína þriðju tillögu en þá geta þingmenn og þingflokkar einnig komið fram með sínar tillögur um forsætis- ráðherraefni þingsins – en aldrei fyrr. Hér er beinlínis verið að leggja fram uppskrift að átökum forseta og þjóðþings. Uppskrift að því hvernig slíkt gæti orðið. Nú ætla ég engum getum að leiða að því hvort hér er með- vitað verið að auka völd forseta Íslands, skerða þau eða halda í jafnvægi. Læt öðrum það eftir. Ég segi einfaldlega að verið sé að fela forseta mörg ný verk- efni og að ég fæ ekki séð neinar brotalamir á tilvitnuðum orðum forseta Íslands í þingsetning- arræðu hans og á texta í frum- varpi stjórnlagaráðs. Efnið er þar í fullu samræmi við orð for- seta – en um andann kann ég ekki að dæma. Þekki enda hvorki jarðanda né loftanda og er hvorki spíritisti né miðill. Valdmörk forseta – efnið eða andinn Hlutverk forseta Sighvatur Björgvinsson fv. ráðherra og þingmaður Hér er beinlínis verið að leggja fram upp- skrift að átökum forseta og þjóðþings. Uppskrift að því hvernig slíkt gæti orðið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.