Morgunblaðið - 03.07.2010, Qupperneq 42
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JÚLÍ 2010
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
Killers kl. 1 - 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára The A-Team kl. 2:30 - 5:20 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
Killers kl. 1 - 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 LÚXUS Get Him to the Greek kl. 1 - 3 - 5:30- 8 - 10:25* B.i. 12 ára
Grown Ups kl. 1 (650 kr) - 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 LEYFÐ Húgó 3 kl. 1 (650 kr) íslenskt tal LEYFÐ
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
H E I M S F R U M S Ý N D
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
Sími 462 3500
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
FRÁ LEIKSTJÓRA FORGETTING SARAH MARSHALL
OG FRAMLEIÐANDA KNOCKED UP
KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND SUMARSINS
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
HHHH
„Ofursvöl Scarface
Norðurlanda“
Ómar Eyþórsson X-ið 977SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
Killers kl. 4(600kr) - 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára
Grown Ups kl. 6 - 8 LEYFÐ
The A-Team kl. 10 B.i. 12 ára
Húgó kl. 4(600kr) LEYFÐ*Aðeins sýnd Sunnudag
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó,
Háskólabíó
og Borgarbíó
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti teng
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Hið ljúfa og eyrnagælandi lag „Búum
til börn“ hefur nú liðið um hlustir
landans reglubundið í um tvö ár. Höf-
undurinn er hljómsveitin Moses
Hightower og geta unnendur þess-
arar geðþekku sveitar nú óhræddir
farið að nudda saman höndum af
spenningi því að fyrsta breiðskífa
sveitarinnar, samnefnd slagaranum
góða, er væntanleg í búðir eftir helgi.
Flandur
Steingrímur Karl Teague, einn af
fjórum liðsmönnum sveitarinnar (hin-
ir eru þeir Andri Ólafsson, Daníel
Friðrik Böðvarsson og Magnús
Tryggvason Eliassen) segir mann-
skapinn sem sveitina skipar hafa
þekkst í um tíu ár en það var svo ekki
fyrr en árið 2007 að ákveðið var að
ramma samstarfið inn.
„Við urðum svo fljótlega nokkurs
konar húskallar hjá Dísu (Bryndísi
Jakobsdóttur), vorum tónleikabandið
hennar og hristumst þá rækilega
saman.“
Lagið „Búum til börn“ var svo sett
saman árið 2008 en stuttu síðar fór
Steingrímur utan til náms, nánar til-
tekið til Amsterdam.
„Þetta snýst þá upp í hálfgerða int-
ernethljómsveit. Póstsendingar á
milli landa og svona. Ég kem svo aft-
ur til landsins í fyrra og þá hertökum
við sveitabæ, flytjum þangað inn
ásamt Magnúsi Öder hljóðmanni og
tökum upp grunna í viku á meðan
beljurnar baula fyrir utan. Í fram-
haldinu höldum við áfram að dúlla við
plötuna og á því tímabili fer Andri til
Amsterdam. Þannig að það er búið að
vera nokkurt flandur á okkur.“
Spilverkið maður
Steingrímur vill þó ekki meina að
þeir séu búnir að vera „ólöglega“
lengi að þessu eins og hann orðar það,
þó að vissulega hafi þetta verið nokk-
urt púsluspil.
„Það er mikið af spilurum á plöt-
unni og þetta er svona rjómaterta,
lagskipt mjög. Þannig að málið var að
passa upp á það að platan myndi ekki
hljóma of stirðbusalega. Halda þessu
lifandi. Og það tekst að mínu mati,
þar sem grunnarnir voru teknir upp
frekar hrátt og „spontant“.“
Textar sveitarinnar eru skemmti-
„Það er gaman
að búa til barn“
Moses Hightower gefur út breið-
skífu á mánudaginn Lagskipt rjóma-
terta …en um leið hrá og „spontant“
Morgunblaðið/Ernir
Sáttir „Við erum ánægðir með að hafa loksins eitthvað til að sýna fyrir þennan hóp,“ segir Steingrímur Teague
(annar frá vinstri) en hljómsveitin Moses Hightower gefur út fyrstu plötu sína á mánudaginn kemur.